Morgunblaðið - 28.04.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.04.2010, Blaðsíða 29
ÞAÐ hefur verið tíska undanfarin ár að sækja efnivið í afþreyingu morg- undagsins aftur til fortíðar. Það er enda kannski ekki svo skrýtið þar sem það gamla og góða virðist oft betur úr garði gert en hraðsuðu- hugmyndir nútímans, að minnsta kosti í nostalgískri minningunni. Á næstu misserum munu hinir hug- umstóru Strumpar til dæmis prýða hvíta tjaldið um heim allan, en ótal aðrar teiknimyndahetjur væri vert að kynna fyrir börnum á ný. 1. KÆRLEIKSBIRNIRNIR Kærleiksbirnirnir, Care Bears, hafa lifað nokkuð góðu lífi þrátt fyrir að hafa horfið af skjáum lands- manna. Hægt hefur verið að fá lit- ríka bangsana í öllum helstu leik- fangabúðum með sínar hjarta-, regnboga-, og sólarprýddu bumbur. 2. HE-MAN He-Man var á sínum tíma aðal- ofurhetjutöffarinn. Hann er „alter- ego“ prinsins Adam sem fær of- urkrafta við að lyfta sverði sínu á loft og fara með töfraþulu. Hann átti í endalausum útistöðum við Skeletor (var hann kallaður Beini á íslensku?) og honum til aðstoðar var heil hers- ing af hetjum. Dolf Lundgren lék hetjuna í bíómynd árið 1987 en til stendur að gera nýja mynd á næst- unni. 3. SHE-RA She-Ra átti aldrei eins miklum vinsældum að fagna hérlendis og tvíburabróðir hennar He-Man, en á svipaðan hátt og bróðir hennar breyttist þá hætti hún að vera Adora prinsessa og varð She-Ra með því að lyfta töfrasverði sínu á loft. Flott kvenhetja sem bíður þess að vera lífguð við á hvíta tjaldinu af Cameron Diaz eða Charlize Theron. 4. FOLINN MINN LITLI Folinn minn litli, eða My Little Pony, hefur eins og Kærleiksbirn- irnir slegið í gegn á ný í leik- fangaverslunum landsins. Nú er bara spurning hvort folarnir hefji ekki innreið sína í kvikmyndahús bráðlega. 5. GÚMMÍBIRNIRNIR Gummi Bears voru fyrstu teikni- myndahetjurnar sem Disney- fyrirtækið framleiddi efni um fyrir sjónvarp og var hugmyndin fengin frá sælgætinu sívinsæla. Samkvæmt sögunni flúðu birnirnir yfirgang mannanna og urðu aðeins þjóðsaga í þeirra huga, en það er kannski kominn tími á að þeir minni mannfólkið á sig á ný. 6. ÞRUMUKETTIRNIR Ef einhverjir voru svalari en He- Man og félagar þá voru það Þrumu- kettirnir. Eins og kollegar þeirra sóttu kettirnir mátt sinn í töfrasverð sem í var greyptur máttarsteinn frá plánetunni Thundera. Þrumu- kettirnir voru ótrúlega svalir og Warner Bros. voru með ThunderCats-mynd í smíðum fyrir tveimur árum, en enn hefur ekki heyrst af afdrifum verkefnisins. 7. SÚPER MARIO-BRÆÐUR Hvernig stendur á því að ekki er búið að gera almennilega teikni- mynd í fullri lengd um pípulagn- ingamennina knáu? Nógu margar eru persónurnar til að moða úr: prinsessan, Bowser, Wario, Donkey Kong, Yoshi og allir hinir grall- ararnir úr heimi Marios. Alla þá hugmyndavinnu sem hefur verið lögð í tölvuleikina væri tilvalið að nýta í að minnsta kosti eina mynd. 8. REGNBOGA- BIRTA Örlög Regnboga- Birtu hafa orðið þau sömu og Strawberry Shortcake og lafði Lokkaprúðrar (Lady Lovely Locks). Allar hafa þær verið settar í stranga megrun og orðið tælandi og þokkafullar í meðförum nýrra hugmyndasmiða. Meira að segja hestur Regnboga-Birtu hefur fengið lengri leggi. Það er ekki van- þörf á því að litlar stúlkur í dag fái að kynnast litlum og dálítið búttuðum fyrirmyndunum. holmfridur@mbl.is Kærleiksbirnir og Þrumukettir MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Faust HHHH IÞ, Mbl Gauragangur (Stóra svið) Fim 29/4 kl. 20:00 K.10 Mið 12/5 kl. 20:00 Fös 4/6 kl. 20:00 Fös 30/4 kl. 20:00 K.11 Fös 21/5 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00 Fös 7/5 kl. 20:00 Lau 22/5 kl. 20:00 Fös 11/6 kl. 20:00 Lau 8/5 kl. 20:00 Fös 28/5 kl. 20:00 Lau 12/6 kl. 20:00 Sun 9/5 kl. 20:00 Ný auka Sun 30/5 kl. 20:00 Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk Faust (Stóra svið) Sun 2/5 kl. 20:00 Ný auka Fim 6/5 kl. 20:00 Ný auka Fim 20/5 kl. 20:00 í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports. Sýningum líkur í maí Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Sun 2/5 kl. 14:00 Sun 9/5 kl. 14:00 Sun 16/5 kl. 14:00 Dúfurnar (Nýja sviðið) Mið 28/4 kl. 20:00 k.8. Lau 8/5 kl. 19:00 k.12. Lau 15/5 kl. 19:00 k.17. Fim 29/4 kl. 20:00 k.9. Sun 9/5 kl. 20:00 k.13. Lau 15/5 kl. 22:00 Fös 30/4 kl. 19:00 k.10 Mið 12/5 kl. 20:00 k.14. Fös 21/5 kl. 20:00 Fös 30/4 kl. 22:00 aukas. Fim 13/5 kl. 20:00 k.15. Lau 22/5 kl. 20:00 Fös 7/5 kl. 19:00 k.11. Fös 14/5 kl. 19:00 k.16. Fös 7/5 kl. 22:00 Fös 14/5 kl. 22:00 frumsýnt 10. apríl Rómeó og Júlía í leikstjórn Oskaras Korsunovas (Stóra svið) Fös 14/5 kl. 20:00 Lau 15/5 kl. 20:00 Í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík Rómeó og Júlía Vesturports (Stóra svið ) Þri 11/5 kl. 20:00 Mán 24/5 kl. 20:00 Sun 6/6 kl. 20:00 Sun 16/5 kl. 20:00 Mið 26/5 kl. 20:00 Þri 18/5 kl. 20:00 Mið 2/6 kl. 20:00 í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports. Miðasala hefst 26. apríl Eilíf óhamingja (Litli salur) Fös 30/4 kl. 20:00 Lau 15/5 kl. 20:00 Sun 16/5 kl. 20:00 Fyrir þá sem þora að horfa í spegil. Snarpur sýningartími Villidýr / Pólitík eftir Ricky Gervais (Litla svið) Lau 1/5 kl. 19:00 Sun 2/5 kl. 20:00 Fös 7/5 kl. 20:00 Uppsetning Bravó - aðeins 4 sýningar. Athugið: Óheflað orðbragð Ath. Sýningar hefjast kl. 19:00 Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200 Mbl, GSP Þ J Ó Ð L E I K H Ú S I Ð 6 0 Á R A Í FEBRÚAR síðastliðnum hélt hljómsveitin Reginfirra til Dan- merkur og hélt þá tónleika í tónlist- arskóla í Óðinsvéum. Að tónleik- unum loknum tóku Reginfirrumenn og nokkrir áheyrenda tal saman og svo vel fór á með mönnum að þeir sammæltust um að vinna saman tón- list, eða svo rekur gítarleikarinn Daníel Friðrik Böðvarsson söguna. „Það kom mér á óvart hvað þeir voru vel að sér í íslenskri tónlist og við ákváðum að reyna að gera eitt- hvað saman hér heima,“ segir Daní- el. Upp úr samtalinu varð til hljóm- sveitin Uwaga Wagga sem heldur tónleika á Rósenberg í kvöld kl. 21.00. Á þeim tónleikum mun sveitin leika tónlist sem orðið hefur til í vik- unni en félagar Daníels í sveitinni, píanóleikarinn Adi Zukanovic, trompetleikarinn Tomasz Da- browski og saxófónleikarinn Sven Meinild, tóku sína fyrstu æfingu á sunnudag og héldu í hljóðver á þriðjudag, en mánudeginum eyddu þeir í vinnubúðum fyrir nemendur við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Daníel segir að þeir félagar hafi tekið upp sjö eða átta lög á mánu- daginn og til stóð að fara í hljóðver aftur í gærkvöldi. „Það er ekki skortur á efni, en svo á eftir að hlusta á það og skera niður og skoða hvort það er eitthvert vit í þessu,“ segir hann. Óskar Guðjónsson saxó- fónleikari lék með þeim félögum í hljóðverinu og hann verður einnig með á tónleikunum í kvöld og eins trommuleikarinn Einar Scheving. Á morgun halda þeir félagar norð- ur í land og halda tónleika á Græna hattinum í höfuðstað Norðurlands annað kvöld. Daníel segir að þeir félagar hans í sveitinni vilji ólmir halda tónleika í Danmörku og eins í Póllandi, en Tomasz Dabrowski en einmitt ætt- aður þaðan. „Ef þetta gengur vel er aldrei að vita hvað getur gerst.“ arnim@mbl.is Ekki skortur á efni  Alþjóðlegt samstarf birtist í nýju hljómsveitinni Uwaga Wagga Samstarf Félagarnir í Uwaga Wagga; Adi Zukanovic, Tomasz Dabrowski, Sven Meinild og Daníel Friðrik Böðvarsson, spila á Rósenberg í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.