Morgunblaðið - 28.04.2010, Page 30

Morgunblaðið - 28.04.2010, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010 Sími 462 3500 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓ Bráðske mmtileg gaman mynd í anda A merican Pie. ATH: SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Das Weisse Band kl. 5:20 - 8 B.i.14 ára The Crazies kl. 10:20 B.i.16 ára Clash of the Titans 3D kl. 10:30 B.i.12 ára Dear John kl. 5:40 - 8 LEYFÐ Loftkastalinn sem hrundi kl. 6 - 9 B.i.14 ára Kóngavegur kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.10 ára She‘s out of my league kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára The spy next door kl. 6 - 8 LEYFÐ Date night kl. 10 B.i. 10 ára FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SHREK & KUNG FU PANDA SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI sum stefnumót enda með hvelli SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Crazy Heart ísl. texti kl. 5:45 - 8 LEYFÐ Un Prophéte enskur texti kl. 6 - 9 B.i.16 ára The Cove ísl. texti kl. 8 LEYFÐ Burma VJ ísl. texti kl. 10 B.i.12 ára The Young Victoria ísl. texti kl. 6 B.i.12 ára Rudo Y Cursi ísl. texti kl. 10 B.i.12 ára Videocracy ísl. texti kl. 6 B.i.12 ára The Messenger ísl. texti kl. 10:15 B.i.12 ára Food, Inc. ísl. texti kl. 8 LEYFÐ HHHHH - SV, Mbl HHHHH - SV, Mbl SÍÐASTA SÝNING SÍÐASTA SÝNING HHHH - SV, Mbl HHH - ÞÞ, Fbl HHHH - HG, Mbl Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR Margar vísindaskáldsögurfjalla um fyrsta fundmannkynsins og hugs- andi vera utan úr geimnum. Sum- ar gera ráð fyrir því að geimver- ur hljóti að vera vel meinandi og siðferðilega þroskaðar. Tegund, sem ekki hefur lagt fyrir róða óheflaða árásargirni gæti ekki náð þeim áfanga að komast út í geiminn. Aðrar sögur fjalla hins vegar um geimverur sem fara um him- ingeiminn eins og hátæknivæddir mongólar og vilja ekkert frekar en að útrýma mannkyninu eða hneppa það í þrældóm. Vissulega eru margar slíkar sögur skrif- aðar með þessum hætti einfald- lega vegna þess að stríð og átök eru meira spennandi umfjöllunar- efni, einkum í kvikmyndum, en sögur af geimálfum, sem vilja allt gott fyrir mennina gera. Kvikmyndin First Contact sýnir líklega einna best hvað slík nálg- un getur verið leiðinleg.    En hvor þessara lýsinga ágeimverum er líklegri til að vera nær sannleikanum en hin? Er það virkilega svo að til að komast út fyrir sólkerfið verði geimverur að vera eins konar grænhúðaðir hippar, sem ekki geti hugsað sér að gera öðrum mein? Stephen Hawking, sem er heimsfrægur fyrir að vera einn greindasti maður sem uppi hefur verið, segir að við eigum ekki að taka áhættuna. Við eigum ekki að reyna að hafa samband við geim- verur, heldur að halda kyrru fyr- ir. Undanfarin þrjú ár hefur Hawking unnið að gerð sjón- varpsþáttaraðar fyrir Discovery Channel sjónvarpsstöðina þar sem hann segir allar líkur á því að fleiri hugsandi verur séu til en við mennirnir. Við vitum nú að stjörnukerfi í alheiminum eru nánast óteljandi og svo virðist sem í mörgum þeirra séu plán- etur. Þá sýna nýjar rannsóknir fram á að líf hér á jörðinni getur dafnað við hreint ótrúlega fjand- samlegar aðstæður. Þetta tvennt þýðir, að mati Hawking, að miklar líkur séu til þess að líf sé að finna á öðrum hnöttum. Hann telur hins vegar ekki heppilegt að leita það uppi, að minnsta kosti ekki um sinn. Segir hann að fyrsti fundur manna og geimvera gæti allt eins orðið eins og fyrsti fundur amer- ískra indíána og Spánverja. Allir vita að sá fundur varð ekki til mikillar lukku fyrir frumbyggja Norður-Ameríku.    Eins og með svo margt semtengist geimferðum og geimverum kann þetta að virka undarlega á marga. Af hverju eigum við að velta svonalöguðu fyrir okkur þegar við eigum fullt í fangi með kreppuna? Hvað mig varðar þykir mér svona pælingar einfaldlega skemmtilegar. Það er gaman að velta því fyrir sér hvernig aðrar hugsandi verur kunna að líta út og hegða sér. Þá er með þetta eins og svo margt annað. Þegar – eða ef – við hittum fyrir verur ut- an úr geimnum væri ekki verra að vera búin að hugsa aðeins um hvaða afleiðingar slíkur fundur gæti haft fyrir okkur. Hvað varðar friðsömu geimver- urnar er gott að hafa í huga að við höfum ítrekað farið út í geim- inn án þess að hafa losað okkur við stríðstól eða tilhneiginguna til að nota þau. Er óhugsandi að sama eigi við um aðrar tegundir, hvar sem þær er að finna? Er skynsamlegt að leita að geimverum? » Við höfum ítrekaðfarið út í geiminn án þess að hafa losað okkur við stríðstól eða til- hneiginguna til að nota þau. Er óhugsandi að sama eigi við um aðrar tegundir? AF GEIMVERUM Bjarni Ólafsson Alien Geimverur kvikmyndanna hafa margar verið ófrýnilegar og alls óvíst að þær séu eitthvað skárri séu þær til.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.