Morgunblaðið - 08.05.2010, Síða 18

Morgunblaðið - 08.05.2010, Síða 18
18 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010 Á morgun, sunnudag, standa hverf- isráð Breiðholts og íbúasamtökin Betra Breiðholt fyrir fegrunar- og hreinsunardegi í Breiðholti. Við- burðurinn hefst kl. 11. Afhentir verða pokar og tínur við Breið- holtsskóla við Arnarbakka, Fjöl- brautaskólann í Breiðholti við Aust- urberg og Hverfismiðstöðina í Jafnaseli. Um er að ræða árlegan viðburð til að hvetja íbúa til að hreinsa og snyrta í eigin görðum og næsta nágrenni. Einnig eru fyrir- tæki og stofnanir hvött til að taka til hendinni og snyrta þau svæði sem umlykja starfsemi þeirra. Hreinsunardagur ÚR BÆJARLÍFINU Björn Björnsson Nýlokið er árlegri Sæluviku Skag- firðinga, sem að flestra dómi var ágætlega heppnuð. Hófst með veg- legri sýningu í íþróttahúsi staðarins þar sem fólk, félög og fyrirtæki kynntu starfsemi sína og þjónustu og urðu gestir um fjögur þúsund þá tvo daga sem sýningin stóð.    Og svo er pólitíkin líklega loksins komin í fullan gang. Fyrir allnokkru birtust framboðslistar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, síðan listi Sam- fylkingarinnar og nú síðast listi Vinstri grænna. Heyrst hefur að Frjáslyndi flokkurinn hafi verið að huga að framboði, en það er ekki komið fram. Almennt hefur það heyrst að flokkarnir hafi átt í nokkr- um erfiðleikum með að fá fólk til að taka sæti á framboðslistum til sveitarstjórnar, enda staða flestra sveitarfélaga í landinu verulega erfið nú um stundir og því ef til vill lítt fýsi- legt að fara að glíma við hana.    Að þessu sinni virðist grásleppu- vertíðin ætla að verða léleg á Norður- landi og austur um, allavega lélegri en á síðasta ári, á meðan vel veiðist fyrir sunnan og vestan. Eru grá- sleppukarlar hér ekkert sérlega upp- rifnir yfir veiðiskapnum, en miklu bjargar að gott verð fæst fyrir það sem þó veiðist.    Við Sauðárkrókshöfn eru þessa dagana meiri umsvif en oft áður, búið er að flytja hingað um 6000 tonn af áburði, í dag, fimmtudag, er verið að landa úr Örvari rúmlega 7000 kössum eða um 180 tonnum af frosinni grá- lúðu, Málmey er í höfn í Reykjavík, og þar verður einhverjum afla landað til að létta á, en síðan verður haldið á Reykjaneshrygginn. Á morgun kem- ur flutningaskip með um 700 tonn af rækju til vinnslu hjá rækjuverksmiðj- unni Dögun og á mánudag er fastur löndunardagur hjá Klakknum.    Strax eftir páska greindist smit- andi hósti á hrossabúinu að Hólum í Hjaltadal. Hefur þessi veiki haft, sem eðlilegt er, mest áhrif við skólann á Hólum, og þannig hafa próf í hesta- greinum ekki getað farið fram með eðlilegum hætti. Sigríður Björns- dóttir dýralæknir segir hlé hafa verið gert á þjálfun kynbóta- og keppn- ishesta fyrir landsmótið í sumar, og þau mót sem voru liður í undirbúningi mótsins hafa farið nokkuð úr skorð- um.    Hér sjást núna dag eftir dag tveggja stafa hitatölur á mælunum. Túnin í Blönduhlíðinni og víða á bæjunum út að austan eru mörg hver svört af helsingja, sem hvílir sig þar í þúsundatali, og gæsirnar spígspora þarna líka, og þessir fuglar hreyfa sig varla, rétt líta upp ef bíll ekur hjá rétt eins og þeir viti að það er öllu óhætt þangað til í haust. Ferjumaðurinn Jón Ósmann vakir yfir Vesturósi, Helsingjarnir hvíla sig þúsundum saman SAUÐÁRKRÓKUR UM helgina fagnar Samfylkingin 10 ára afmæli flokksins með há- tíðahöldum vítt og breitt um landið, en Samfylkingin var stofnuð 5. maí árið 2000. Í tilefni afmælisins mun samfylkingarfólk með frambjóðendur í fararbroddi taka til hendinni og standa fyrir hreinsunarátaki í sinni heima- byggð og gleðjast saman að góðu verki loknu. Þá verða í dag haldnar afmælis- og fjölskylduhá- tíðir samfylkingarfélaga á Akur- eyri, Álftanesi, Garðabæ, Grinda- vík, Kópavogi og Mosfellsbæ. Þess má einnig geta að í tilefni afmælisins hefur verið gefin út söngbók með 54 sönglögum. Atli Heimir Sveinsson tónskáld valdi lögin í bókina. Samfylkingin 10 ára EYLANDS-ÞING verður haldið á Hvanneyri í dag. Með þinginu á að minnast Árna G. Eylands og starfs hans sem einn helsti frumkvöðull tæknivæðingar og nýrra verkhátta í sveitum á tuttugustu öld. Árni var fæddur á Þúfum í Ós- landshlíð 8. maí 1895. Hann var búfræðingur frá Hólaskóla og nam búfræði í Noregi og Þýskalandi. Þar kynntist hann ýmsum nýmæl- um í búskap svo sem vélum og verkfærum. Hann réðst til starfa hjá Búnaðarfélagi Íslands árið 1921, meðal annars sem þúfna- banastjóri. Síðar var hann verk- færaráðunautur Búnaðarfélagsins, framkvæmdastjóri Búnaðardeildar SÍS, Áburðarsölu ríkisins og Grænmetisverslunar ríkisins og í forystu verk- færanefndar og Vélasjóðs. Árni lét þjóðmál mjög til sín taka og skrifaði mikið í blöð og tímarit, meðal annars um landbúnaðarmál og fleira í Morgunblaðið. Síðar varð Árni fulltrúi í at- vinnumálaráðuneytinu og sendi- ráðsfulltrúi í Ósló. Hann lést á árinu 1980. Landbúnaðarsafn Íslands og Bændasamtök Íslands standa að Eylands-þinginu. helgi@mbl.is Þing til heiðurs Árna Eylands búnaðarfrömuði Í HNOTSKURN »Árni kom að flestu því ervarðaði mikla verk- tæknibyltingu landbúnaðarins sem hófst á þriðja áratug 20. aldar. »Hann skrifaði bókina Bú-vélar og ræktun sem er einstakt heimildarrit um tæknivæðingu íslensks land- búnaðar. »Eylands-þing verður áHvanneyri í dag, kl. 13 til 16. Árni G. Eylands var brautryðjandi í íslenskum landbún- aði. ÞRIÐJA daginn í röð umlukti þoka höfuðborgarbúa. Í gærmorgun, þegar þokunni létti stundarkorn, mátti sjá að grasbalar og börð höfðu tekið vel við sér og grænk- að í rakanum undanfarna daga. Líklega má því bráð- lega fara að slá því föstu að enn á ný sé komið sumar og tímabært að huga að garðinum. Morgunblaðið/Ernir ÚT ÚR ÞOKUNNI sinnum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.