Morgunblaðið - 08.05.2010, Síða 26
26 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010
20 mismunandi bækur
sem dæma þarf af
kápunni.
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
50 kassar utan um
augnakonfekt.
5.000 umslög af
heppilegri stærð.
2.000 bæklingar
með afar djúpum
pælingum.
HAGNAÐUR Arion
banka á árinu 2009
nam 12,8 milljörðum
króna eftir skatta.
Arðsemi eiginfjár
var 16,7%. Enginn
arður verður
greiddur til hluthafa
bankans árið 2010
vegna hagnaðar hans á síðasta ári.
Með yfirtöku Kaupskila á 87% hlut
í Arion banka hinn 8. janúar sl.
styrktist eiginfjárstaða bankans þar
sem Kaupskil lögðu bankanum til
nýtt eigið fé ásamt því að ríkið veitti
bankanum víkjandi lán. Við þetta fór
eiginfjárhlutfall bankans úr 13,7% í
lok árs 2009 í 16,4%. Fjármálaeftir-
litið gerir nú kröfu um 16% eiginfjár-
hlutfall.
Rekstrartekjur tæpir
50 milljarðar
Rekstrartekjur námu alls 49,6
milljörðum króna á árinu. Hreinar
vaxtatekjur námu 12,1 milljarði
króna og hreinar þóknunartekjur
námu 5,9 milljörðum króna. Nettó-
breyting á lánasafni nam 10,3 millj-
örðum króna en þar er bæði tekið til-
lit til virðisaukningar vegna líkna á
betri endurheimtum og virðisrýrn-
unar sem hefur orðið á lánasafninu.
Þá eru 10,6 milljarða króna gjöld
tilkomin vegna samningsbundinnar
lækkunar á kröfu bankans á Kaup-
þing vegna hlutdeildar Kaupþings í
virðisaukningu hluta þeirra eigna
sem færðar voru frá Kaupþingi til
Arion banka haustið 2008, að því er
segir á vef bankans.
Arion
hagnast
Arðsemi eiginfjár
16,7% árið 2009
● Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI
hækkaði um 0,2% í gær, í 5,5 milljarða
króna viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt
hækkaði um 0,1% í 1,6 milljarða króna
veltu og GAMMAxi: Óverðtryggt hækk-
aði um 0,2% í 3,6 milljarða króna við-
skiptum.
Skuldabréfavísitalan
breyttist lítið í gær
unar. Sá banki lánaði svo hvoru fé-
lagi 125 milljónir evra. Lánin eru
veitt í ágúst 2008 og flutt í íslenska
bankann í september. Hinn 2. októ-
ber 2008 veitir Kaupþing Chester-
field og Partridge hvoru um sig 125
milljóna evra lán til viðbótar til að
mæta veðköllum frá Deutsche Bank,
sem slapp því frá lánasamningnum
án taps.
Á stuttu tímabili lánaði Kaupþing
því alls 510 milljónir evra í þessi
skuldatryggingaviðskipti og fóru
þær allar beint til Deutsche Bank.
Eigendur félaganna komu ekki með
neitt eigið fé, heldur voru viðskiptin
öll fjármögnuð af Kaupþingi.
Hreiðar Már sagði við skýrslu-
töku hjá rannsóknarnefndinni að
þessi viðskipti hefðu haft áhrif á
skuldatryggingaálagið, sem hann
segir að hafi lækkað um 2-3 prósent.
Ætlun Kaupþings var að
hafa áhrif á markaðinn
Kaupþing lánaði 510 milljónir evra til að reyna að lækka skuldatryggingaálag
Kaupendur lánshæfistengdra skuldabréfa
Kevin
Stanford
Karen
Millen
Tony
Yerolemou
Skúli
Þorvaldsson
Ólafur
Ólafsson
Sheik Mohamed
Al-Thani
Carbon Capit.
€ 41,6 m
Holly Beach
€ 41,6 m
Harlow eq.
€ 130 m Mink Trading Co.
Trenvis Ltd.
€ 46,8 m
Chesterfield United
€ 125 m
PartrigdeM.GR.
€ 125 m
Brooks Tr. Ltd.
€ 50 m
50% 50%
36% 32% 32%
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
EKKI er enn ljóst nákvæmlega hver
ástæðan var fyrir handtöku þeirra
Hreiðars Más Sigurðssonar og
Magnúsar Guðmundssonar, fyrir ut-
an að rannsóknin snúi m.a. að
meintu skjalafalsi, auðgunarbrotum
og markaðsmisnotkun. Hreiðar Már
var forstjóri Kaupþings og Magnús
var forstjóri Kaupþings í Lúx-
emborg.
Í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis er ítarlega fjallað um þátt
Kaupþings í viðskiptum með eigin
hlutabréf og einnig um skuldabréfa-
viðskipti sem áttu að hafa áhrif á
skuldatryggingaálag bankans.
Skuldatryggingaálag á bréf Kaup-
þings hafði hækkað stöðugt árið
2008 og töldu stjórnendur bankans
að hækkunin væri óeðlileg og byggð-
ist á litlum sem engum viðskiptum,
heldur aðeins tilboðum á markaði.
Tvö félög, Chesterfield United og
Partridge Management Group,
fengu að kaupa lánshæfistengd
skuldabréf, útgefin af Deutsche
Bank, fyrir 125 milljónir evra hvort.
Í upphafi átti þriðja félagið, Brooks
Trading, að taka þátt í þessum við-
skiptum, en ekki verður séð að af því
hafi orðið. Var ætlunin að lækka
skuldatryggingaálag Kaupþings.
Milljarðalán veitt
Eigendur Chesterfield voru þau
Kevin Stanford, Karen Millen, Tony
Yerolemou og Skúli Þorvaldsson.
Eigandi Partridge var Ólafur Ólafs-
son og eigandi Brooks var Sheik
Mohamed Al-Thani. Í upphafi lánaði
Kaupþing í Lúxemborg eigendum
hvors félags 130 milljónir evra, en
fimm milljónir af því fóru til
Deutsche Bank til greiðslu þókn-
Kaupþing varði miklum fjármunum
haustið 2008 til að hafa áhrif á
skuldatryggingaálag á bréfum sín-
um. Féð rann á endanum allt í vasa
hins þýska Deutsche Bank.
Í SKÝRSLU rannsóknarnefndarinnar er ítar-
lega farið yfir viðskipti Kaupþings með eigin
bréf, sem og lán bankans til annarra aðila til
kaupa á bréfum í Kaupþingi. Þekkt dæmi um
slíkt eru kaup Q Iceland Finance á stórum hlut
í bankanum, sem fjármögnuð voru að öllu leyti
af Kaupþingi.
Þegar sú deild Kaupþings sem sá um eigin
viðskipti er skoðuð sést að mikið ójafnvægi er
á milli kaup- og sölutilboða deildarinnar í til-
boðabók kauphallarinnar. Styður það þá kenn-
ingu að markmið viðskiptanna hafi verið að
hafa áhrif á verð hlutabréfa bankans.
Þá vekur athygli hve oft Kaupþing í Lúx-
emborg er skráður kaupandi á bréfum móður-
félagsins. Má gera ráð fyrir því að hlutirnir
hafi verið keyptir fyrir hönd einhverra við-
skiptavina bankans. Þegar skýrslan var birt
hafði nefndin ekki fengið nánari upplýsingar
um ákveðin viðskipti fyrir eigin reikning
Kaupþings í Lúxemborg. Alls keypti dóttur-
félagið 3,27 prósenta hlut í Kaupþingi. Var því
um að ræða verulega hlutdeild í bankanum þar
sem raunverulegt eignarhald var ekki þekkt.
Holt Investment, félag í eigu Skúla Þor-
valdssonar, var viðskiptavinur í eignastýringu
í Lúxemborg og var eitt þeirra sem fengu lán
til að kaupa bréf í bankanum. Alls fékk Holt
lánaða 18,2 milljarða króna til kaupa á bréfum
og námu keypt bréf umfram seld 15,6 millj-
örðum. Athygli vekur hins vegar að í sept-
ember keypti Holt, aftur með láni frá Kaup-
þingi, bréf af bankanum sjálfum fyrir 2,6
milljarða króna. Ellefu dögum síðar keypti
bankinn þessi bréf aftur og þá á hærra verði.
Hagnaður Holts af viðskiptunum var um 90
milljónir króna.
Hafði áhrif á verð
Viðskipti Kaupþings með eigin bréf benda til þess að
markmiðið hafi verið að hafa áhrif á verð bréfanna
Morgunblaðið/Ómar
Viðskipti Ójafnvægi var milli kaup- og sölu-
tilboða Kaupþings hvað varðaði eigin bréf.
Magnús Guðmundsson hefur
verið leystur frá störfum sem
bankastjóri Havilland-banka í
Lúxemborg. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá bankanum. Í til-
kynningu Havilland-bankans
kemur fram að Jonathan Row-
land taki við starfi forstjóra
bankans.
Sigurður Einarsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Kaup-
þings, hefur ekki svarað kalli
sérstaks saksóknara um að
flýta komu sinni til landsins
vegna fyrirhugaðrar yfir-
heyrslu, samkvæmt frétt
Stöðvar 2.
Leystur frá störfum
! "
"
# "
$ % & ' '
$
()$( $ *!
+,-.-/
+-0./-
+,/.,/
,,.+1+
,1.2/3
+3.-/4
++3.,-
+./04
+0+.4-
+35.4/
+,0.+5
+-0.-5
+,/.40
,,.+33
,1.202
+3.--5
++3.3
+./00+
+0,.+4
+35.00
,,1.034+
+,0.54
+01./
+,/.04
,,.,/+
,1.-4-
+3.0//
++3.0,
+.51/,
+0,.2,
+34.54