Morgunblaðið - 08.05.2010, Page 31
Umræðan 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010
ÞANN 1. maí sl.
birtist í Morgunblaðinu
viðtal við Gylfa Gunn-
arsson, útgerðarmann
frá Grímsey, og fer
hann mikinn í til-
svörum og lýsingum
um afmarkaða lokun á
sjö fjörðum og sjálf-
sagt hefur hann haft
grátklútinn innan seil-
ingar. Það er með ólík-
indum hvað menn geta niðurlægt
sjálfa sig með rangfærslum og sann-
leiksskorti, en það á greinilega að
verja dragnótaveiðina með kjafti og
klóm.
Skýrsla sú er kom frá HAFRÓ í
nóvember og Gylfi minntist á hefur
fengið þá umsögn líffræðinga og
fiskifræðinga að vera illa unnin og
ómarktæk því öll sýnin voru tekin
þar sem dragnót hafði verið dregin
þótt friðuð lína væri á því svæði, en
það þykir sjálfsagður hlutur hjá
dragnótabátum á Skagafirði að kasta
dragnótinni inni á friðaða svæðinu og
toga svo út fyrir. Það er minnst á létt
og lipurt veiðarfæri sem er lítill sann-
leikur í; kápuklæddir stálvírar og
getur kasthringurinn hjá stærstu
bátunum verið á 7 km. Sem sagt eng-
in vasaklútaveiðarfæri. Það er mjög
gott framtak hjá sjávar-
útvegsráðherra að ýta þessu merkis-
framtaki úr vör og á eftir að gjörbylta
lífríkinu og skapa grundvöll fyrir
vistvænar veiðar á fjörð-
um víða kringum landið.
Sú undiralda sem verið
hefur verið að myndast í
þessum málum verður
ekki stöðvuð úr þessu.
Hér í Skagafirði er al-
menn ánægja með þessa
friðun sem sjáv-
arútvegsráðherra legg-
ur til og lengi er búið að
berjast fyrir og er þetta
góður áfangi á áfram-
haldandi friðun á Skaga-
firði. Þau eru undarleg ummæli sveit-
arstjóra Skagafjarðar um
dragnótaveiðar í Morgunblaðinu
þann 4. maí sl. en þar minnist hann á
rannsóknir á firðinum sem voru mis-
heppnaðar svo og einhverjar krónur
sem töpuðust ef dragnótabátar hættu
að landa hér. Ég er viss um að með
þessari innfjarðarfriðun mun skapast
aukning á útgerð minni báta og
fjöldamörg störf skapast og að
Skagafjörður haldi áfram að vera
blómleg byggð.
Um drag-
nótaveiðar
Eftir Ragnar
Sighvats.
Ragnar Sighvats.
»Hér í Skagafirði er
almenn ánægja
með þessa friðun sem
sjávarútvegsráðherra
leggur til og lengi er
búið að berjast fyrir …
Höfundur er trillukarl á Sauðárkróki.
SÆLL Árni Páll.
Mig langaði til þess
að spyrja þig nokk-
urra spurninga varð-
andi áætlanir þínar
um gengistryggð bíla-
lán.
Í fyrsta lagi þá
spyr ég: Hvers vegna
núna?
Ég spyr einungis af
forvitni þar sem hin
svokallaða gengistrygging er kom-
in á dagskrá Hæstaréttar þann 2.
júní næstkomandi og því ætti nið-
urstaðan að verða ljós í síðasta lagi
um 16. júní. Niðurstaðan gæti jafn-
vel komið fyrr ef úrskurður Hér-
aðsdóms Reykjavíkur frá 30. apríl
sl. verður kærður til Hæstaréttar.
Í þeim úrskurði var gengis-
tryggingin talin ólögmæt og að
ekki mætti miða við aðra vexti en
umsamda Libor-vexti. Ef Hæsti-
réttur kæmist að sömu niðurstöðu
myndi það þýða algera leiðréttingu
fyrir lántakendur vegna ólögmætr-
ar afurðar. Fjármálastofnanir
hljóta að bera ríka ábyrgð varð-
andi lögmæti samninga sinna við
neytendur. Aðrir aðilar kæmust
ekki upp með að bjóða upp á ólög-
mæta samninga og vera svo gripn-
ir í faðm ríkisins þegar búið er að
dæma gerningana ólögmæta. Því
spyr ég, af hverju ekki að bíða eft-
ir niðurstöðu Hæstaréttar?
Í öðru lagi langaði mig að spyrja
um 15% álagið sem þú segir vera
„sanngirnissjónarmið“ vegna bíla-
lánanna. Ef mér skjátlast ekki þá
voru það einmitt eigendur bílalána-
félaganna, bankarnir, Exista o.fl.
sem stóðu að stöðutöku gegn krón-
unni. Í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis segir:
„Auknar lánveitingar til ein-
staklinga í erlendum myntum
komu þar líka við sögu, og var
breytingin í raun meiri á þeim
markaði eins og fram kemur í kafla
8.0, þar sem lánveitingar í erlend-
um myntum til einstaklinga jukust
allverulega á tímabilinu frá 2006 og
fram að falli bankanna. Með þessu
var í raun verið að flytja myntá-
hættu, sem skapaðist vegna fjár-
mögnunar bankanna erlendis, frá
þeim yfir á einstaklinga.“
Þessi stöðutaka varð til þess að
krónan féll og varð til þess að
gengistryggð lán rúmlega tvöföld-
uðust. Mér skilst að skv. frumvarpi
því sem þú hefur lagt fyrir rík-
isstjórn muni lánin færast að sömu
upphæð eins og um hafi verið að
ræða verðtryggt lán ásamt 15%
álagi, til að stuðla að sanngirni í
garð lánveitanda. Sá
lántaki sem tók lán um
mitt ár 2007 gat litið
til baka á þróun krón-
unnar og séð fram á
20-30% flökt gagnvart
helstu gjaldmiðlum.
Slíkt flökt var þó hag-
stæðara heldur en
verðtryggingin sem
Samfylkingin hefur
barist fyrir að afnema,
eða allavega þangað til
hún komst í rík-
isstjórn, síðan þá hefur ekkert
heyrst um slíkt afnám. Lántaki
sem skoðaði þessar tölur komst að
því, með ráðgjöf lánveitanda, að
það væri hagstæðara að taka geng-
istryggt lán, enda væri verðtryggt
lán ómögulegt. Lántakendur voru
hins vegar einfaldlega blekktir í
ljósi þess að gengi krónunnar var
ofmetið árið 2007, sbr. skýrslu
greiningardeildar Kaupþings árið
2007, en þar kom fram að krónan
væri ofmetin gagnvart öðrum
myntum, t.d. um 23% gagnvart
bandarískum dollara. Þetta eru
upplýsingar sem lántakar hefðu
með réttu átt að fá. Einu sinni var
það þannig að menn treystu bönk-
unum, en það er erfitt að fyrirgefa
slíkt trúnaðarbrot.
Því spyr ég aftur: Hvar liggur
sanngirnin í þessu 15% álagi?
Í þriðja lagi þá langar mig til að
spyrja þig varðandi mögulega
skaðabótaskyldu ríkisins á grund-
velli 72. gr. stjórnarskrár en þar
segir:
„Eignarrétturinn er friðhelgur.
Engan má skylda til að láta af
hendi eign sína nema almennings-
þörf krefji. Þarf til þess lagafyr-
irmæli og komi fullt verð fyrir.“
Ljóst er að kröfuréttindi á borð
við þau sem hér eru til umræðu
eru klárlega eignarréttindi, sem
njóta verndar stjórnarskrár. Með
þessum lögum ertu í raun að
skylda fjármögnunarfyrirtækin til
að láta þau af hendi, enda uppfyllir
það skilyrðið um almenningsþörf.
Þetta er gert með lögum en nú
spyr ég: Hver á að greiða fullt
verð?
Í dómi Héraðsdóms Suðurlands
þann 13. apríl síðastliðinn var talið
að ábyrgð ábyrgðarmanna félli
ekki niður jafnvel þó ábyrgð skuld-
ara félli niður vegna greiðsluaðlög-
unar. Taldi dómurinn að um væri
að ræða kröfuréttindi sem „njóta
verndar eignarréttarákvæðis 72.
gr. stjórnarskrárinnar og verða
ekki skert án bóta með afturvirkri
og íþyngjandi löggjöf.“ Er þá ekki
ljóst að hið sama myndi gilda um
kröfuréttindi fjármögnunarfyr-
irtækja eða þau gætu, ef lögin
halda, krafist „fulls verðs“ skv.
ákvæðum 72. gr. stjórnarskrár? Ég
átta mig alveg á því að þessi laga-
setning hlýtur að vera að einhverju
leyti gerð í samvinnu við fjármögn-
unarfyrirtækin, enda hefur Kjart-
an Georg Gunnarsson, forstjóri SP
fjármögnunar, lýst því opinberlega
í Morgunblaðinu 1. maí sl., að lögin
hafi nánast verið samin á skrifstofu
félagsins. Ég tel þó að verið sé að
tefla á tvær hættur varðandi þessa
lagasetningu. Með einföldum
reikningi hefur mér þó sýnst að
1.800.000 kr. lán sem yrði fellt nið-
ur um 40%, að viðbættu 15% álagi
og 13% vöxtum miðað við 7% verð-
bólgu myndi kosta það sama eftir
einungis þrjú ár og gengistryggt
lán með 6% vöxtum ásamt álagi og
er þá miðað við að gengi krón-
unnar í dag. Gaman væri að sjá út-
reikninga varðandi þetta eða er
þetta bara einn stór blekking-
arleikur?
Virðingarfyllst.
Eftir Braga Dór
Hafþórsson
Bragi Dór Hafþórsson
» Félagsmálaráðherra
hefur lagt fram
frumvarp sem á að
koma til móts við
skuldara. Er það
samt sem áður bara
blekkingarleikur?
Höfundur er lögfræðingur.
Gengislánin – Blekkingar-
leikur félagsmálaráðherra?
gerir grillmat að hreinu lostæti!
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
38
33
8
Útsölustaðir:
Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum,
Maður lifandi, Blómaval, Á grænni
grein, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa
og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík,
Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækning-
abúðin, Lyfjaval, Yggdrasill, Reykja-
víkur apótek, Árbæjarapótek, Apótek
Vesturlands, Apótek Hafnafjarðar
Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi
apótek um allt land.
Vatnslosandi Birkisafi unninn úr
lífrænt ræktuðum Birkilauf-
blöðum, án
aukaefna.
Hollur og góður
fyrir líkamann.
Safinn virkar vel á eðlilega
úthreinsun líkamans
Bætir meltinguna
Losar bjúg
Léttir á liðamótum
Losar óæskileg efni úr
líkamanum
Góður fyrir húð, hár og neglur
Blanda má safann með vatni
Má einnig drekka óblandað
Velkomin að skoða
www.weleda.is