Morgunblaðið - 08.05.2010, Síða 40

Morgunblaðið - 08.05.2010, Síða 40
40 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010 ✝ Ólafur EinirGunnarsson fæddist í Reykjavík 13. febrúar 1941. Hann lést á heimili sínu, Íragerði 3, Stokkseyri, 27. apr- íl sl. Foreldrar hans voru Arndís Tómasdóttir, f. 27. nóv. 1905, d. 29. sept. 1986, og Gunnar Ólafsson, f. 25. apríl 1906, d. 29. júlí 1986. Bræð- ur Ólafs voru Sig- urður Einir, f. 27. desember 1936, d. 11. janúar 1939. Halldór, f. 20. mars 1944, d. 7. júní 2009. Ólafur giftist eftirlifandi eiginkonu sinni, Ingibjörgu Sig- ríði Jones, þann 19. apríl 1962. Foreldrar Ingibjargar eru Svan- fríður Símonardóttir, f. 2. júlí 1923, og William Haywood Jon- es, f. 27. júlí 1923, d. 8. mars 2008. Fósturfaðir Ingibjargar var Ingólfur Marteinn Sigurðs- son, f. 19. júlí 1926, d. 23. febr- úar 1971. Börn þeirra eru: 1) Hrafnhildur Linda, f. 1. júní 1963, maki Kristján Hoffmann, dóttir þeirra er Fransiska, f. 1994, 2) Ingólfur Marteinn, f. 30. mars 1971, maki Helga Guðfinns- dóttir, börn Ing- ólfs eru Helena Dögg, f. 1990, Sylvía Lind, 1995, og stjúpbarn er Sonja Rut Jóns- dóttir, f. 1995. 3) Sigurður Arnar, f. 18. október 1973, sonur hans er Ólafur Andri, f. 2000, 4) Svan- fríður Louise, f. 19. nóvember 1976, maki Reynir Már Sig- urvinsson, börn þeirra eru Ingi- björg Linda, f. 1993, Victoría Ósk, f. 2001, Elísabet Dís, f. 2003, og Daníela Mist, f. 2003. Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst upp að Kársnesbraut 19 í Kópavogi og gekk hefðbundna skólagöngu. Ólafur fór ungur á sjóinn og var þar megnið af sinni starfsævi. Ólafur bjó megnið af ævi sinni í Reykjavík en flutti á Stokkseyri ásamt konu sinni árið 2002 og bjó þar síðustu æviár sín. Útför Ólafs fer fram frá Stokkseyrarkirkju í dag, 8. maí 2010, og hefst athöfnin kl. 14. Elskulegi maðurinn minn, ég kveð þig með þessu fallega ljóði, hafðu þökk fyrir allt, elskan mín. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta. Vinur þó félli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Þín eiginkona, Ingibjörg. Elsku pabbi. Ég sit hér og er að hugsa um hvað ég á að skrifa, mér finnst að ég eigi ekki að vera að skrifa minn- ingargrein um þig núna, ég hélt að við ættum kannski 15-20 ár enn. Við eigum svo margar minningar pabbi, ég og þú, já þær eru margar. Hvað ég gæfi til að eiga fleiri framundan, en það er víst ekki í spilunum fyrir okkur hversu sárt sem það er. Það fyrsta sem ég hugsa er allt það sem þú hefur lent í í gegnum árin, marg- ir mundu flokka þig undir hrak- fallabálk, en alltaf komstu í gegnum allt, hvað sem á þig var lagt. Hvern hefði grunað að kvöldið áður en þú kvaddir þetta líf skyldi vera síðasta stund okkar saman, við töluðum mikið saman eða ég talaði mikið og þú hlustaðir. Þegar ég fylgdi þér inn í herbergi og breiddi ofan á þig og bauð þér góða nótt og sagði við þig að ég kæmi aftur á morgun. Pabbi, ef mig hefði grunað þetta þá hefði ég aldrei farið frá þér. Ég sakna þín svo mikið, pabbi. Ég sakna hlátursins og spjallsins um heima og geima. En ég er að reyna hugga mig að ég hafi minningarnar, eins og manstu þegar þú og mamma fóruð og keyptuð fyrsta gasgrillið og þú settir kóteletturnar á og fórst svo inn; þegar við tókum eftir reykjarmekkinum þá hljópst þú að athuga en þá var ekkert eftir nema askan en við lærðum hvað er fljót- legt að grilla á gasi, og hlógum við mikið að þessu í gegnum árin. Eins með ferðirnar austur og oft var nú komið við í Seljavallalaug og að sjálfsögðu farið í paradísarhellinn, þar sem þú sagðir mér alltaf söguna um hann. Þú varst alltaf til staðar pabbi, alltaf þegar ég þurfti á þér að halda komstu hvort sem var á nóttu eða degi, þá lagðirðu frá þér hvað sem þú varst að gera og komst til mín. Yndislegur varstu með stelpun- um, þær voru alltaf svo glaðar þeg- ar afi kom að passa því þá þýddi það að þær mættu vaka lengur, tví- burarnir höfðu venjulega ekki orku lengi, en það hafði sko Victoría og alltaf þegar þú sást að við vorum að koma heim þá varst þú fljótur að koma henni í rúmið og þú sast í sóf- anum flissandi, þá vissum við það, en þá sagðir þú alltaf, ekki skamma hana, þetta var mér að kenna. En nú ertu kominn til Halla bróður þíns og er ég viss um að þið séuð að bralla eitthvað ef ég þekki ykkur báða rétt. Ég elska þig pabbi minn svo heitt og sakna þín enn meira. Þar til við hittumst á ný, pabbi, geymi ég þig í hjarta mínu. Hafdís sendi mér þetta ljóð og það passar svo vel við þig að ég ætla að leyfa því að fylgja með: Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein, né blómstígar gullskrýddir alla leið heim. Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar, á göngu til himinsins helgu borgar. En eg hefi lofað þér aðstoð og styrk, og alltaf þér birtu þó leiðin sér myrk. Mitt ljúfasta barn ég lofað þér hef, að leiða þig sjálfur hvert einasta skref. (Staðf. Hjálmar Jónsson.) Þín dóttir, Svanfríður (Sanný). Pabbi minn er látinn, lést í svefni þann 27. apríl síðastliðinn, nýlega orðinn 69 ára. Pabbi minn elskuleg- ur, seinheppni flækjufóturinn sem var alltaf að lenda í einhverjum óhöppum. Oft var gips eða einhverj- ar sáraumbúðir einhversstaðar ná- lægt. Þá var haldið lítið ættarmót á slysadeildinni í Fossvogi. Við kom- um æðandi úr öllum áttum og söfn- uðumst svo saman við sængina hans, viðbúin öllu. Hann slapp ætíð furðanlega vel og það að hann skyldi fá að kveðja í svefni, undir sinni eigin sæng, var hvorki tíma- bært eða neitt sem við áttum von á. Margs er að minnast: þegar ég sat í fanginu á honum og fékk að stýra bílnum og mikið seinna þegar ég var að læra að aka bíl og við læddumst upp í Heiðmörk til að ég gæti lært að bakka og þegar hann kenndi mér grundvallaratriðin í raf- magnsvinnu á heimilinu svo að ég gæti bjargað mér þegar hann væri á sjónum, dálæti okkar beggja á góðum verkfærum, þegar hann kenndi mér að prjóna og steikja lærisneiðar í raspi. Þegar ég fór með honum á sjóinn, trollið var fullt af fiski, svo að skipið lagðist nánast á hliðina. Góður tími, enda sjórinn hans líf og yndi. Síðasta sumar unn- um við saman við frágang á ýmsum munum Halla frænda og töluðum um þá bræður báða, en pabbi átti einn bróður, Halldór, sem lést í júní á síðasta ári eftir tiltölulega skamma en erfiða sjúkdómslegu. Síðasta mánuðinn sem hann lifði vakti pabbi yfir honum allt þar til yfir lauk. Þá renndi engan í grun að svona skammt yrði á milli þeirra bræðra. Pabbi var gjafmildur, glað- ur að gefa og satt er að hann gaf meira en hann nokkurn tímann fékk. Hann kom oft með jólagjafir og afmælisgjafir heim sem hann hafði keypt í útlöndum og átti að geyma til stóra dagsins. Alltaf lét hann undan freistingunni og gaf okkur gjafirnar strax og þá ekki við miklar vinsældir mömmu en fór svo og keypti fleiri. Nýverið var hann á sjúkrahúsi og virtist sem loksins væri fundin lausn á vanda sem herjað hafði á hann lengi og valdið honum miklum ama og rýrt öll hans lífsgæði, loks var lausn fundin og hann var glaður, sá fyrir sér nýtt líf þar sem hann gæti gert svo margt sem hann hafði orðið að neita sér um lengi, til dæmis að gera bara það einfalda, góður göngutúr heill- aði. Við áttum saman yndislega stund, hlógum svo innilega að tárin runnu þegar við vorum að rifja upp og mesta grínið gerði hann að sjálf- um sér. Okkar besta stund í langan tíma. Ég vissi ekki þá að það yrði síðasti hláturinn okkar saman. Þegar við vorum að kveðja þig, fórum með bænina og lágum svo hjá þér í hinsta sinn og töluðum við þig eins og þú værir enn hér og vildum að þetta væri bara plat. Sú stund er okkar allra, við vorum alls ekki tilbúin til að sleppa þér. Tím- inn var bara ekki kominn. Pabbi minn, ég elska þig og ég vildi að ég hefði sagt þér það oftar en ég veit að nú ertu hjá fólkinu þínu, Halla bróður þínum, sem þú saknaðir svo mikið, ömmu og afa og öllum þeim sem farnir eru undan þér. Og einn góðan dag í framtíð- inni verðum við þar líka. Takk fyrir allt. Þín dóttir, Linda. Nú er skarð fyrir skildi. Látinn er elskulegur tengdafaðir minn, Ólafur Einir Gunnarsson. Hann tók innilega á móti mér, baklandslaus- um og stefnulausum stráknum sem datt inn í líf hans í gegnum dóttur hans fyrir 30 árum, og ekki var mér síður vel tekið af minni elskulegu tengdamóður, Ingibjörgu. Síðan þá hafa þau reynst mér sem mínir aðr- ir foreldrar og þeirra heimili verið mitt annað heimili. Ólafur var að- eins venjulegur maður, skýr, kjarn- yrtur og innilega hressandi sem slíkur og það í heimi þar sem flestir reyna að sýna aðra mynd en að vera venjulegur. Hann var alltaf boðinn og búinn til þess að aðstoða okkur í hvívetna og var hamingju- samastur þegar hann var að gera okkur samferðafólkinu gagn. Ég man eftir bílunum mínum sem í gegnum tíðina biluðu eða urðu bensínlausir víðsvegar um landið og Óli kom og bjargaði. Málningar- vinnu og viðgerðum á íbúðum okk- ar, Heiðarvatnsferð, afmælum, sumarbústaðaferðum, fermingum, jólunum öllum og áramótum. Alltaf var Óli til staðar, partur af ævintýr- inu. Og ég man þegar tengdafaðir minn hélt dóttur minni undir skírn. Ólafur stundaði mörg störf á lífs- leiðinni, lengst af sem sjómaður og þá á Vigra RE. Það stóra og flotta skip var hluti af honum löngu eftir að hann hætti vegna veikinda, enda tel ég að á Vigra hafi honum liðið best í starfi. Eitt augnablik í eilífð- inni varð ég yfirmaður hans hjá stóru öryggisfyrirtæki og þar varð til tími sem við unnum og náðum best saman. Hann starfaði sem ör- yggisvörður sem teflt var fram í erfiðum verkefnum og ég fylgdist með aðlögunarhæfni hans, skilningi og þekkingu á mannlegu eðli og var stoltur. Hans verður nú sárt saknað af allri fjölskyldunni, sérstaklega nú þegar sumarið og birtan gengur í garð. Það er bjart yfir minningu tengdaföður míns og vil ég þakka honum fyrir hve góður hann hefur verið mér og fjölskyldu minni alla tíð. Elsku tengdamóður minni votta ég samúð og bið henni guðs bless- unar og velfarnaðar. Kristján Hoffmann. Elsku Óli minn, mér finnst sem stórt skarð sé höggvið í mitt hjarta, það að þurfa að kveðja þig svona snögglega er okkur líklega ekki ætlað að skilja, en það er sárara en orð fá lýst. Þú sem varst ætíð tilbú- inn að stökkva til okkar yfir götuna og passa afastelpurnar þínar, þú sem varst ætíð tilbúinn að styðja okkur hvað sem á dundi, eitt símtal og þú varst kominn. Minningarnar hrannast upp á þessum erfiðu tím- um, það er það dýrmætasta sem maður hefur á þessari stundu, minningar um góðan mann. Þegar ég sit hér við eldhúsgluggann þá hugsa ég til þín þegar þú komst fyrir hornið og ég heyrði hljóðið í mölinni, það var þitt merki, þá fór ég og hellti upp á kaffi handa okk- ur. Við gátum setið tímunum saman og spjallað um allt og ekkert, á þeim stundum vorum við líklegast klárari en allir, eða það fannst okk- ur allavega. Nú sit ég við gluggann, einn, ekkert hljóð, bara minning. Við kynntumst fyrir um 12 árum. Á fyrstu jólunum okkar vorum við Sanný hjá þér og Ingibjörgu í Rjúpufellinu, síðan fluttuð þið á eft- ir okkur á Stokkseyri og síðan þið fluttuð þá hefur þú verið hjá mér, Sanný og stelpunum á hverju að- fangadagskvöldi. Hvern grunaði það um jólin að þetta væru þau síð- ustu saman, jólin voru góður tími. Þá gátum við setið saman og borð- að, það þótti okkur alls ekki leið- inlegt. Þegar þú kvaddir þá missti ég ekki bara tengdaföður minn, heldur góðan félaga og einn minn besta vin. Við náðum vel saman Óli og það er sárt að missa þig. Ég veit að þú munt vera með okkur og veita okkur styrk þegar við þurfum, vaka yfir okkur þegar við eigum erfitt og gleðjast með okkur þegar vel gengur. Stelpurnar þínar eiga eftir að sakna þín sárt, sakna afa sem var svo stór hluti af fjölskyld- unni, afa sem elskaði þær svo mik- ið, afa sem þær elska svo heitt og sakna svo mikið. Þegar ég kveð þig að sinni Óli minn er ég með tárin í augunum, en við hittumst síðar og þá fæ ég svörin við öllum ósvöruðu spurningunum sem byrja allar á: af hverju? Ég sendi þér hér fallegt ljóð sem lýsir þinni fallegu og góðu sál: Börnin sem þú blessun vafðir þinni búa þér nú stað í vitund sinni: alla sína ævi geyma þar auðlegðina sem þeim gefin var. Þú ert áfram líf af okkar lífi: líkt og morgunblær um hugann svífi ilmi og svölun andar minning hver athvarfið var stórt og bjart hjá þér. Allir sem þér unnu þakkir gjalda. Ástúð þinni handan blárra tjalda opið standi ódauðleikans svið. Andinn mikli gefi þér sinn frið. (Jóhannes úr Kötlum) Guð gefi þér ljós og frið. Þinn tengdasonur, Reynir. Að missa náinn ástvin er sjálf- sagt það erfiðasta sem manneskja gæti lent í. Þann 27. apríl 2010 lent- um við í því að missa okkar ástkæra afa sem okkur þótti óendanlega vænt um. Það ósanngjarnasta var að við fengum ekki einu sinni við- vörun til þess að geta sagt bless og hvað við elskuðum hann heitt. Aldr- ei datt okkur í hug að þurfa að skrifa þessa minningargrein svona snemma. Hann var án efa einn sá besti afi sem hægt var að hugsa sér. Alltaf þegar maður þurfti á hjálp að halda eða einhvers konar aðstoð reyndi hann sitt besta til að vera til staðar. Afi var þannig að hann varð aldrei reiður og reyndi að gera gott úr öllu. Hann gat oft verið mikill hrakfallabálkur en það var einmitt það sem einkenndi afa. Hann var mikill stríðnispúki og mikill krakki í sér og var sjálfur eins og einn af okkur. Við bjugg- umst ekki við því að þurfa að missa hann svona snemma því hann komst alltaf í gegnum alla erfið- leika sem hann lenti í. Hann var sterkastur af okkur öllum og átti því ekki að þurfa að fara frá okkur strax. Þú munt alltaf búa innst í hjörtum okkar og við elskum þig, afi, hittumst í draumi. Þínar dótt- urdætur, Ingibjörg Linda og Fransiska Guðrún. Ólafur Einir Gunnarsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Ég á eftir að sakna þín, hvíldu í friði. Ólafur Andri. Elsku afi minn. Ég elska þig og sakna þín, afi minn. Þín Elísabet Dís. Elsku afi minn. Ég elska þig svo mikið, afi minn, og sakna þín svo mikið. Afi, þú mátt svo eiga fyrstu tönnina mína sem ég missi. Þín Daníela Mist. Elsku afi, þú leyfðir mér allt- af að vaka lengur þegar þú varst að passa mig. Og leyfðir mér oft að ráða. Ég sakna þín mjög mikið, afi, ég mun aldrei gleyma þér. Ég mun alltaf hugsa til þín. Ég elska þig, afi minn. Þín Victoría.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.