Morgunblaðið - 08.05.2010, Page 49

Morgunblaðið - 08.05.2010, Page 49
Velvakandi 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010 Hallmundur Kristinsson vaktimáls á því á Leirnum, póst- lista hagyrðinga, að vísnaflensu- veiran væri „eldgamall genatískur sjúkdómsvaldur, trúlega upprunn- inn í Skagafirði og hefur þaðan breiðst út um nálæg byggðarlög í fyrstu, og síðan um land allt með auknum samgöngum og búferla- flutningum“. Séra Hjálmar Jónsson sagði mestu formbyltingu í kveðskap hægt að rekja til Egils Skallagríms- sonar, en nýjustu fréttir um út- breiðslu svínaflensunnar höggva nær okkur: Hér er vísnaveiran mætt, veikjast gömlu brýnin. Nú er okkur orðið hætt úr því hún fór í svínin. Friðrik Steingrímsson greip þetta á lofti: Ekki verður annað séð ýmsa pestin þvingar, en sömu genin séu með svín og Skagfirðingar. Pétur Stefánsson greip þetta á lofti: „Jaaaá, nú skil ég af hverju pabbi kallaði alltaf: „Hættu þessu, svínið mitt“ þegar ég gerði eitthvað af mér sem krakki. – Það er mikið til í þessu hjá Friðriki. Um æðar, hjarta og vöðvavefi vella skagfirsk genin mín. Lífið allt ég unað hefi við át og drykkju, líkt og svín.“ Og Friðrik klykkti út með: Af Pétri þannig fréttum fer að flesta held ég velgi, er ræktar hann í sjálfum sér svínið hverja helgi. Vísnahorn pebl@mbl.is Af vísnaveiru og svínum Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand SJÁÐU, LÍSA GLEYMDI VESKINU SÍNU SNERTU ÞAÐ ERTU AÐ GRÍNAST? ÞAÐ GÆTI SPRUNGIÐ AF HVERJU SLÓ HANN EKKI BARA EINUM METER LENGRA? KONAN MÍN BAÐ MIG AÐ SPYRJA ÞIG HVORT ÞÚ VÆRIR TIL Í AÐ FARA ÚT MEÐ RUSLIÐ ÞEGAR ÞÚ FERÐ? HVAÐ? ER VINUR MINN, UGA, HJÁ HÁSKÓLANUM Í GEORGÍU VEIKUR? SEGÐU HONUM AÐ ÉG KOMI EINS FLJÓTT OG ÉG GET AÐ NOTA FLÓAPÓST ER SVO 1990 LALLI, TIL AÐ FÁ LEYFI TIL AÐ STÝRA HJÓNABANDSNÁMSKEIÐUM ÞARF ÉG AÐ TAKA ÞÁTT Í EINU MEÐ ÞÉR EN MIG LANGAR ÞAÐ EKKI AF HVERJU EKKI? VIÐ HÖFUM GERT ÞAÐ ÁÐUR ÉG VEIT... MANSTU EKKI HVAÐ GERÐIST SÍÐAST? ÞANNIG AÐ ÞÚ ÆTLAÐIR AÐ LÁTA MIG TAKA SÖKINA? STJÓRNANDINN NOTAÐI MIG ALLTAF SEM DÆMI UM ÞAÐ SEM ÁTTI EKKI AÐ GERA EN ÞÚ HEFUR SKÁNAÐ MIKIÐ SÍÐAN ÞÁ ÞÚ HLÆRÐ EKKI MIKIÐ NÚNA! ÖRYGGISMYNDA- VÉLARNAR SÝNA HVER HINN RAUNVERULEGI GLÆPAMAÐUR ER AUK ÞESS SEM ÉG SETTI UPP VÉLINA MÍNA TIL AÐ NÁ MYNDUM MAÐUR VERÐUR AÐ SJÁ FYRIR SÉR Seldu fjörusteina og skeljar Þessar stúlkur í fyrsta, öðrum og þriðja bekk Grunnskólans á Þórs- höfn settu upp lítið sölu- borð, þar sem þær seldu fallega fjörusteina, skeljar og annað smá- legt. Þetta var til styrkt- ar Rauða krossinum og söluágóðann, 10.418 kr., afhentu þær síðan gjald- kera deildarinnar á Þórshöfn. KR verður ekki meistari 2010 KR lék gegn fjórðu deildar liði Knattspyrnufélagsins Ægis í Þor- lákshöfn um daginn, var mál manna að allt minna en 15-0 væri tap fyrir KR sem skv. öllum spám á titilinn vísan þetta árið. Ægismenn báru mikla virðingu fyrir andstæðing- unum í fyrri hálfleik og komst KR því strax í upphafi leiks í 0-2 og end- aði fyrri hálfleikur í 0-6. En það var ljóst strax í upphafi síðari hálfleiks að leikmenn Ægis fengu góða lesningu í hléinu því þeir áttu hvert færið af öðru og voru mun frískari og í raun óheppnir að skora bara 2 mörk fyrir leikslok. KR skoraði aðeins eitt mark í síð- ari hálfleik og var það í raun eina almenni- lega færið sem þeir sköpuðu sér í hálf- leiknum. Bjarni var aðaldriffjöðrin í liði KR og í raun sá eini sem var sýnilega mörgum deildum ofar en andstæð- ingarnir og það er ljóst af fram- göngu þeirra að stjörnum prýtt lið KR þarf enn eitt árið að sætta sig við að vera bara „Spá-R“. Þór Emilsson. Ást er… … að skýla augum hennar fyrir sólinni. Velvakandi Morgunblaðið/Líney Sigurðard Gjöf Stúlkurnar seldu fjörusteina og fleira til styrktar Rauða krossinum. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 4. maí var spilað á 18 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S: Bragi Björnss. – Bjarnar Ingimars 368 Auðunn Guðmss. – Óli Gíslason 362 Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 360 A/V Örn Einarss. – Bragi Bjarnason 400 Oddur Jónsson – Gísli Þorvaldss. 366 Tóms Sigurjss. – Jóhannes Guðmannss. 365 Golf/bridsmót Golf/bridsmótið verður haldið laugardaginn 22 . maí á Strandarvelli (Hellu). Leikfyrirkomulag í golfinu er „betri bolti“,þ.e.a.s. báðir leika til enda og betra skor gildir. Ræst á öllum teigum kl. 10. Eftir golfið verður matast og síðan hefst tvímenningur. Sömu pör í golfi og brids og samanlagður árangur gildir til sigurs. Kepnnisgjald er kr. 11.000 á parið, allt innifalið. Upplýsingar og skráning hjá Lofti, s: 897 0881 / bolsturverk@sim- net.is og hjá GHR, s: 487 8208 / ghr@simnet.is. Skráningu lýkur 17. maí. Bridsfélögin á Suðurnesjum Feðgarnir Dagur Ingimundarson og Bjarki Dagsson voru með forystu í tveggja kvölda tvímenningi eftir fyrra kvöldið sem lauk sl. miðviku- dagskvöld. Þeir fengu mjög gott skor eða 66,3% en náðu ekki að fylgja því eftir og enduðu í fjórða sæti. Garðar Garðarsson og Arnór Ragnarsson sigruðu en Vignir Sig- ursveinsson og Úlfar Kristinsson urðu í öðru sæti og Karl G. Karlsson og Gunnlaugur Sævarsson þriðju. Þar með lauk formlegu vetrar- starfi bridsfélaganna. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.