Morgunblaðið - 14.05.2010, Side 6

Morgunblaðið - 14.05.2010, Side 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2010 Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@mbl.is „Það er frábært að geta farið af stað með þetta nám og boðið upp á meiri fjölbreytni í listnámi á þessu skólastigi,“ sagði Ingibjörg Jó- hannsdóttir, skólastjóri Myndlista- skólans í Reykjavík, en á þriðjudag var haldin kynning á nýju starfs- tengdu listnámi í teikningu og text- íl sem er samstarfsverkefni Mynd- listaskólans í Reykjavík og Tækniskólans. Einnig koma tvö ís- lensk fyrirtæki að uppbyggingu námsins, tölvuleikjaframleiðandinn CCP og fatahönnunarfyrirtækið STEiNUNN, sem og fjórir erlendir háskólar. Við samsetningu námsins er litið til þarfa íslensks samfélags fyrir fjölbreytt starfstengt listnám á fagskólastigi. Þá er tekið tillit til nýrra, evrópskra reglna um nám og munu nemendur geta tengt námið við nám annars staðar í álfunni og lokið BA-gráðu frá samstarfsskóla en námið var þróað með styrk frá Leonardo, starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Starfstengt listnám í textíl og teikningu hefst í haust Tveggja ára, lánshæft nám á fagskólastigi Morgunblaðið/Kristinn Ný námskrá Ingibjörg afhendir Katrínu Jakobsdóttur nýja skrá. Tvær íslenskar stúlkur um tvítugt voru látnar lausar úr fangelsi í Lundúnum eftir að dómari úr- skurðaði að þær hefðu í sakleysi sínu látið glepjast í útlöndum og lent í slæmum félagsskap. Stúlk- urnar höfðu setið í fangelsi síðan í júlí í fyrra vegna þátttöku í vopn- uðu ráni. Þær játuðu báðar þátt sinn í ráninu í dómsalnum í fyrra- dag. Á vef DailyTelegraph kemur fram að stúlkurnar hafi tælt rúm- lega tvítugan karlmann heim til sín en þær höfðu hitt hann á bar nokkrum dögum áður. Í íbúð stúlknanna biðu átta vopnaðir menn mannsins, rændu bæði pen- ingum og skartgripum af honum, tóku bíl hans og skildu hann eftir bundinn í auðri byggingu. Fengu stúlk- urnar báðar 18 mánaða dóm en voru látnar laus- ar þar sem þær hafa setið í varð- haldi síðan í júlí. Fram kom við réttarhöldin að stúlkurnar komu til Lundúna í apríl í fyrra og lentu fljótlega á glapstigum, búðarþjófnaði og fleiru slíku. Sagði dómarinn að stúlkurnar hefðu komist í kynni við verstu af- kima samfélagsins. Þetta sýni hvernig spennandi, alþjóðleg og lífleg borg eins og Lundúnir geti á sama tíma verið hættuleg. ingibjorgrosa@mbl.is Létu glepjast og lentu í fangelsi  Stúlkurnar tálbeitur fyrir hóp ræningja Stefna um kyrrsetningu eigna á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni var birt lögmönnum hans í Bretlandi síðdegis í gær. Þetta staðfestir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður sitastjórnar Glitnis. Jóni Ásgeiri var ekki birt stefnan persónulega en að sögn Steinunnar telst það fullnægjandi að lögmenn- irnir, sem hann hefur leitað til um málsvörn í Bretlandi, taki við stefn- unni fyrir hans hönd. Jón Ásgeir hefur 48 klukkustundir frá því honum var birt stefnan, eða fram til kl. 13 að íslenskum tíma á laugardag, til að skila upplýsingum um eignir sínar. Geri hann það ekki, eða gefi hann rangar upplýsingar, þá eru viðurlög við því og má hann þá búast við því að verða handtekinn og eiga fangelsisvist yfir höfði sér. Steinunn bendir á að þar sem fresturinn renni út á laugardaginn sé mögulegt að lögmenn Jóns Ásgeirs fari fram á að fresturinn verði fram- lengdur. Enn sem komið er hafa þeir ekki farið fram á það, en ekki er úti- lokað að þeir gætu fengið frest fram á mánudag. „Við munum samt halda því fram að hann eigi að skila þessu innan þessara 48 klukkustunda,“ segir Steinunn. Aðspurð segist hún ekki vita hvar Jón Ásgeir haldi til, ekki hafi tekist að ná í hann. Morgunblaðið/Golli Slitastjórn Steinunn skýrir frá málshöfðuninni gegn Jóni Ásgeiri. Stefnan birt Jóni Ásgeiri Verður að skila upp- lýsingum á laugardag Kristján Jónsson kjon@mbl.is Mikið var fjallað um stefnu skilanefndar Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og tengdum aðilum á vefsíðum nokkurra breskra blaða í gær og fyrradag. The Times rifjaði upp mikil umsvif Jóns Ásgeirs á breska smásölumarkaðnum, kaupunum á leikfangaverslanakeðjunni Hamleys og fleiri þekktum verslunum í Bretlandi. Vikið var að þætti PricewaterhouseCoopers (PwC). Blaðið endursegir inngang stefnu skila- nefndar og hvernig þar er komist að þeirri nið- urstöðu að eigendahópurinn með Jón Ásgeir í broddi fylkingar hafi mergsogið bankann innan frá. Þá er rifjað upp að Jón Ásgeir hafi farið fyrir Baugi sem hafi átt hlut í Hamleys, House of Fraser og Debenhams auk 39% hlutar í Glitni. Tengslin rakin og hlutur endurskoðenda Blaðið gerir grein fyrir aðilum sem skila- nefndin stefnir, þ.á m. endurskoðunarfyrir- tækinu PricewaterhouseCoopers hf. á Ís- landi, útibúi eins stærsta endurskoðunarfyrirtækis heims. Guardian rakti efnahagsþróunina á Ís- landi síðustu árin, gríðarlegan vöxt bankanna á örfáum árum og hrunið 2008. Stefnan væri af- leiðing af ítarlegri rannsókn á starfsemi Glitnis síðustu árin sem endurskoðunarfyrirtækið Kroll hefði átt hlut að. Glitnir hefði valið New York til að birta hana vegna skuldabréfaútboðs í borginni upp á milljarð dollara haustið 2007. Jón Ásgeir og félagar hans hefðu notað féð til að reyna að koma í veg fyrir hrun eigin fyrirtækja og hækka hlutabréfaverð í þeim. Lán Jóns Ásgeirs væru öll í vanskilum. Vitnað er í ummæli formanns slitanefndar Glitnis, Steinunnar Guðbjartsdóttur, um að bankinn hefði verið „rændur innan frá“. Jón Ás- geir hefði komið eigin mönnum fyrir í æðstu stöðum og þvingað í gegn fyrirgreiðslu gegn mótmælum liðsmanna áhættustýringar. Lög- fræðingar Glitnis teldu að ránið innan frá hefði ekki verið gerlegt án þess að starfsmenn PwC hefðu verið í vitorði með Jóni Ásgeiri. Einnig var sagt að lögfræðingar Glitnis hefðu fengið dómaraúrskurð um að frysta eignir Jóns Ásgeirs um allan heim, þ.á m. „tvær íbúðir í New York að verðmæti 25 milljónir dollara og 144 feta skemmtisnekkju“. Eiginkona Jóns Ás- geirs, Ingibjörg Pálmadóttir, var nafngreind, einnig þeir Þorsteinn Jónsson og Lárus Welding. Ingibjörg hefði fengið 30 milljónir dollara lán til að opna hótel í Reykjavík en lánið aldrei verið endurgreitt.  Times, Financial Times, Guardian og fleiri blöð segja frá stefnu slitanefndar Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og tengdum aðilum Mikil umfjöllun erlendis Eitt þekktasta viðskiptadagblað heims er Financial Times sem sagði ítarlega frá stefnunni bæði í gær og fyrradag. Jón Ás- geir var þar sagður vera „einn helsti mað- urinn á bak við ofþenslu og hrun íslensku bankanna“ en væri nú ásamt félögum sín- um krafinn um tvo milljarða dollara. Vitnað var í orð Jóns Ásgeirs hjá Bloomberg- fréttaveitunni. „Þetta eru bara stjórnmál. Ég er með öruggar sannanir fyrir því að við vorum að endurgreiða lán sem voru á gjald- daga 20 til 40 dögum síðar. Þetta var bara endur- fjármögnun á eldri lánum.“ Blaðið minnti einnig á handtöku Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi yfirmanns Kaupþings, og handtökuskipun á hendur Sigurði Einarssyni, öðrum yfirmanni bankans. Þensla og hrun UMFJÖLLUN FINANCIAL TIMES Jón Ásgeir Jóhannesson Þeir haggast ekki sem steyptir eru í styttur hér og þar um bæinn, þó mannfólkið bregði á leik í blíðunni í nágrenni við þá. Jónas Hallgrímsson lét sér ekki bregða við þennan litríka flugdreka sem sótti að honum þar sem hann stendur í Hljómskálagarðinum með hönd á hjarta. Morgunblaðið/Golli Styttur bæjarins láta sér ekki bregða við neitt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.