Morgunblaðið - 14.05.2010, Blaðsíða 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2010
Orð dagsins: Hann stendur mér við
hlið til þess að veita mér lið og vernd.
(Daníel 11, 1.)
Íslandsmeistarar FH í fótboltahófu titilvörnina með því að gera
jafntefli við Valsmenn á Hlíðarenda í
fyrsta leik mótsins á þessu ári. KR-
ingum er reyndar spáð titlinum, en
nýliðar Hauka gerðu sitt til þess að
koma í veg fyrir að sú spá rætist
með því að ná jafntefli á KR-
vellinum. Bikarmeistarar Breiða-
bliks máttu sætta sig við tap á
heimavelli, þegar þeir fengu Kefla-
vík í heimsókn, en Blikum hefur ver-
ið spáð góðu gengi.
x x x
Kópavogsbúinn og Blikinn EinirSturla, sem er fimm ára, hefur
reynst nokkuð sannspár og hann
spáir KR Íslandsmeistaratitlinum í
ár. Hann telur að Breiðablik verði í
öðru sæti, en áréttar að skori Blikar
fleiri mörk en KR-ingar geti þeir
orðið meistarar.
x x x
Þegar Einir Sturla byrjaði aðfylgjast með fótbolta var Liver-
pool hans lið. „En svo fór ég að halda
með Chelsea af því að vinir mínir
halda með Chelsea,“ segir hann.
Hvað annað. Þessu til staðfestingar
fékk hann nýjan Chelsea-galla fyrir
lokaumferðina um nýliðna helgi og
var viss um að Chelsea myndi bursta
Wigan. Hann var líka sannfærður
um að Didier Drogba myndi gera
nokkur mörk og sýndi Víkverja í
upphitun fyrir sunnudagsleikinn
hvernig hann færi að því. Hann vildi
líka að Drogba fagnaði eins og
spænski landsliðsmaðurinn Fern-
ando Torres, miðherji Liverpool, og
tók nokkur rennsli því til áréttingar.
x x x
Úrslit í ensku knattspyrnunniréðust ekki fyrr en í síðustu
umferð og hugsanlega verða áhuga-
menn um íslenska fótboltann að bíða
til 25. september til að fá botn í mál-
ið. Fram að þeim tíma eiga eflaust
eftir að sjást skemmtileg tilþrif,
óvænt úrslit og fögn að hætti Torres.
Úrslitin eru hvergi nærri ráðin, eins
og Bjarni Fel. segir, og það er næsta
víst að það verður nóg að gera í bolt-
anum í sumar, jafnt innan sem utan
vallar. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hel, 4 taka
fang saman, 7 hljóð-
færið, 8 siða, 9 fæði, 11
kropp, 13 lof, 14 hagn-
aður, 15 lauf, 17 ókyrrð-
ar, 20 lítill stallur, 22
slitna, 23 bjargbúar, 24
sortna, 25 les.
Lóðrétt | 1 hrímið, 2
stafategund, 3 hafa tíma
til, 4 opi, 5 skerandi
hljóð, 6 stéttar, 10 gera
liðugt, 12 skán, 13 skar,
15 kletts, 16 erfð, 18 hal-
inn, 19 peningar, 20
karlfugls, 21 glatt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kyrrlátur, 8 eldum, 9 tuddi, 10 aki, 11 dæsir,
13 nærri, 15 kefli, 18 hatts, 21 ger, 22 lítil, 23 áttan, 24
sanntrúað.
Lóðrétt: 2 yndis, 3 rómar, 4 ástin, 5 undar, 6 feld, 7 biti,
12 ill, 14 æra, 15 kola, 16 fitla, 17 iglan, 18 hráar, 19
titta, 20 senn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Láttu það ekki buga þig þótt verk-
efni þitt sé erfiðara en þú bjóst við. Góðir
vinir hjálpa í neyð. Ferðalag liggur í loft-
inu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú gerir þér grein fyrir því að sam-
band þitt við einhvern þarf að breytast.
Láttu það hafa forgang að kippa því í lið-
inn.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert komin/n út á ystu nöf
vegna útgjalda í félagslífinu eða vegna
óskalista smáfólksins. Allir í kringum þig
sjá kosti þína.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur gert miklar áætlanir
tengdar ferðalögum, útgáfu eða menntun.
Reyndu að sjá hvað þú átt sameiginlegt
með öðrum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ástvinir átta sig ekki á því hvað þú
ert að fara eða misskilja þig alfarið. Vertu
óhrædd/ur við breytingar því þær eru
nauðsynlegur þáttur af tilverunni.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Tilfinningar skipta máli. Farðu á
rólegan stað og skipuleggðu fallega helgi.
Viðurkenndu mistök þín og reyndu að
gangast við misfellunum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Notaðu sköpunarhæfileika þína og
listræna hæfileika til þess að koma ein-
hverju hagnýtu í verk. Gefðu nýjum æv-
intýrum tækifæri því þú hefur gott af því
að fá smátilbreytingu í líf þitt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Gefðu þig að þeim sem eru
sterkir á sviði sem þú ert veik/ur á og
deildu niður verkefnum. Enginn er með
stjörnustæla og allir sammála um að
klára það sem fyrir liggur.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert búin/n undir stórræði
andlega, en líkaminn lætur á sér standa.
Egóið ræður ferðinni, en þú ert að reyna
að tapa ekki áttum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Vertu meira úti við. Brettu bara
upp ermarnar og gakktu í málin því hálfn-
að er verk þá hafið er. Vertu þakklá/tur
fyrir hæfileika þína.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Samtal við ættingja, nágranna
eða fjölskyldu hefur jákvæð áhrif á þig.
Kannski tekst áætlun þín, kannski ekki.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Síðastliðið ár var þér gott. Hvernig
væri að setja félagslífið í forgang? Segðu
öllum frá plönunum þínum og þú neyðist
til að standa við þau.
Stjörnuspá
14. maí 1922
Aftaka norðanveður gekk um
Vesturland og Norðurland
(nefnt Krossmessugarðurinn).
Þá fórust fimm skip og með
þeim 44 sjómenn.
14. maí 1965
Fyrsta Fokker Friendship-
flugvél Flugfélags Íslands
kom til landsins. Vélar af þess-
ari tegund voru notaðar í inn-
anlandsflugi í áratugi.
14. maí 1998
Jóhanna Sigurðardóttir talaði
samfellt í fimm og hálfa
klukkustund í umræðum á Al-
þingi um húsnæðisfrumvarp
og sló þar með eldra met sem
var fimm klukkustundir.
14. maí 2002
Utanríkisráðherrafundur Atl-
antshafsbandalagsins hófst í
Reykjavík. Meðal þátttakenda
voru Colin Powell frá Banda-
ríkjunum, Silvio Berlusconi
frá Ítalíu og Jack Straw frá
Bretlandi. Einn af gestum
fundarins var Igor Ivanov frá
Rússlandi. Fundinum var lýst
sem „útför“ kalda stríðsins.
14. maí 2003
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, og Dorrit Moussa-
ieff voru gefin saman á Bessa-
stöðum en hann varð 60 ára
þennan dag.
14. maí 2005
Um tvö hundruð manns gengu
á Hvannadalshnjúk í Öræfa-
jökli og höfðu þeir aldrei verið
fleiri. Morgunblaðið hafði eft-
ir einum þátttakenda að hóp-
urinn hefði liðast upp á tind-
inn líkt og ormur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Þetta er búið að vera alveg frábært,“ sagði Sig-
urjón Garðar Óskarsson sem í dag fagnar 60 ára
afmæli í Þýskalandi. Hann er þar á ferð með konu
sinni, Önnu Ólöfu Ólafsdóttur, verslunarstjóra í
vínbúð ÁTVR á Höfn í Hornafirði.
Sigurjón flutti til Hafnar í Hornafirði árið 1974
og rak þar rútufyrirtæki í 37 ár og sá m.a. um
ferðir á milli Hafnar og Egilsstaða. Hann seldi
reksturinn fyrir nokkrum árum og hefur síðustu
þrjú árin unnið við rafvirkjun.
„Það er nóg að gera,“ sagði Sigurjón. „Það var
aldrei neitt 2007 í gangi hjá okkur. Það gengur
allt sinn vanagang hjá okkur á Höfn.“
Meðan Sigurjón ók rútum tók hann þátt í því að byggja upp þjón-
ustu við ferðamenn sem sóttust eftir að komast upp á Vatnajökul.
Hann sagði að það hefði verið skemmtilegt að taka þátt í því. Á síð-
ustu árum hafi tekist að byggja upp mikinn áhuga á jöklaferðum.
Vegurinn upp á Vatnajökul er vondur, en Sigurjón sagði að hann
hefði verið enn verri á þessum upphafsárum.
Sigurjón hefur núna breytt um hlutverk og nýtur þess að aka um í
rútu um Austurríki og Þýskaland undir leiðsögn. egol@mbl.is
Sigurjón Garðar Óskarsson sextugur
Fagnar afmæli í Þýskalandi
Sudoku
Frumstig
1 2 5 3 8
7 6 1
9 1 6
2 8
9 7 8
1 9 6 5 2
1 2 7
3
5
1 5
2 7 8
5 6 9
2 5 6 3
9 8 2 7
3 9
8
1 2
5 6 3 1
2 8
2 4
5 7 6
6 3 5
4 5 3
7 9 1
3
8 1 5 2 4 7
7 5
2 8 1 7 6 3 5 4 9
4 6 5 8 2 9 3 7 1
3 7 9 1 5 4 8 6 2
8 3 2 5 7 1 6 9 4
9 1 6 3 4 2 7 5 8
7 5 4 6 9 8 1 2 3
6 2 3 9 1 7 4 8 5
5 4 8 2 3 6 9 1 7
1 9 7 4 8 5 2 3 6
3 6 4 5 7 8 1 2 9
8 5 9 4 2 1 6 3 7
7 2 1 6 3 9 5 4 8
1 4 7 8 6 2 9 5 3
2 8 6 9 5 3 4 7 1
5 9 3 1 4 7 2 8 6
6 7 8 2 9 5 3 1 4
4 1 5 3 8 6 7 9 2
9 3 2 7 1 4 8 6 5
8 2 5 4 6 9 3 7 1
3 7 6 1 5 2 9 8 4
4 9 1 8 7 3 6 5 2
7 8 9 2 4 5 1 3 6
6 1 4 9 3 8 7 2 5
2 5 3 6 1 7 8 4 9
5 6 2 3 8 1 4 9 7
1 3 7 5 9 4 2 6 8
9 4 8 7 2 6 5 1 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 14. maí, 134. dagur
ársins 2010
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. Rc3 Bb7
5. Bf4 Bb4 6. Db3 a5 7. a3 Bxc3+ 8.
Dxc3 d6 9. e3 Rbd7 10. Bd3 O-O 11.
O-O-O De7 12. h4 d5 13. Kb1 c5 14.
Re5 dxc4 15. Rxc4 Rd5 16. Dc2 Rxf4
17. Bxh7+ Kh8 18. exf4 f5 19. Hhe1
Kxh7 20. d5 Rf6 21. Hxe6
Staðan kom upp í atskákeinvígi
Davids Navarra (2708) og Juditar
Polgar (2682). Judit hafði svart og
sneri nú á andstæðinginn: 21… Dxe6!
22. dxe6 Be4 23. Hd3 Hfd8 24. Re5
Hxd3 25. Rxd3 Hd8 26. Kc1 Bxd3
svartur stendur nú til vinnings. 27.
Db3 Hd6 28. Dd1 c4 29. De1 Be4 30.
f3 Bc6 31. e7 Ba4 32. b3 cxb3 33. g4
Be8 34. g5 Rh5 35. De5 Hc6+ 36.
Kb2 g6 37. Kxb3 Rg7 38. Dd5 He6
39. Dd8 Kg8 40. Kc4 Kf7 41. Kd5 a4
42. Dc7 Rh5 43. Kd4 b5 44. Kc5 Hc6+
45. Dxc6 Bxc6 46. Kxc6 b4 47. Kd7
Rg7 48. h5 gxh5 og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ég átti tíu
Norður
♠86543
♥43
♦Á62
♣Á97
Vestur Austur
♠KG107 ♠ÁD92
♥-- ♥K
♦D974 ♦10853
♣KG543 ♣D1062
Suður
♠--
♥ÁDG10987652
♦KG
♣8
Spil, sem pössuð eru út eru sjaldnast
fréttaefni en í bridsmetabók Davids
Birds og Nikos Sarantakos eru
skráðar mögulegar slemmur sem
voru passaðar út.
Þetta spil er sagt hafa komið fyrir í
bandarísku móti. Í norður var David
Berkowitz og í suður Ron heitinn
Andersen sem átti að hefja sagnir.
Hann ákvað að leggja gildru fyrir
andstæðingana og passaði. Í kjölfarið
fylgdu þrjú nokkuð hröð pöss.
Ég átti 11 punkta, sagði austur. Ég
átti 10, sagði vestur. Ég átti bara 8
sagði Berkowitz. Þú hlýtur þá að hafa
átt 11, sagði austur við Andersen.
Nei, ég átti 10, svaraði hann og tíndi
hjörtun sín tíu á borðið. Bird segist
ekki geta svarið fyrir að þessi saga sé
sönn enda minni hún á ýmsar kunnar
bridsþjóðsögur. Berkowitz hefur
hvorki viljað neita henni né játa.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is