Morgunblaðið - 14.05.2010, Page 11

Morgunblaðið - 14.05.2010, Page 11
Daglegt líf 11 Söfn John Waters er einn þeirra fjölmörgu kvikmyndaleikstjóra sem Úlfar heldur upp á. Hann á safn mynda hans sem og margra annarra. bekk,“ segir Úlfar sem hefur ekki að- eins áhuga á gömlum kvikmyndum heldur allri kvikmyndasögunni, hvort sem það eru vestrar, költ-myndir frá John Waters eða nýjar myndir. „Af nútímakvikmyndaleik- stjórum eru í uppáhaldi menn eins og Paul Thomas Anderson sem gerði m.a. Magnolia og There Will Be Blood. Tarantino er líka mér að skapi og Natural Born Killers eftir Oliver Stone er ein af mínum uppáhalds, svo fátt eitt sé nefnt.“ Draugagangur og drungi En Úlfar lætur ekki duga að horfa á myndir, hann hefur líka próf- að að gera sjálfur kvikmynd. Þegar hann var í tíunda bekk vann hann ásamt tveimur vinum sínum stutt- myndakeppni grunnskólanna. „Það voru áttatíu myndir sendar inn, svo við vorum nokkuð ánægðir með að vinna. Við fengum fína um- sögn sem var eitthvað á þá leið að myndin væri helst til fullkomin. Við fengum bæði verðlaun fyrir bestu mynd og besta karlleikara í aðal- hlutverki,“ segir Úlfar sem var ein- mitt sá leikari. Steinarr Ingólfsson vinur hans skrifaði með honum hand- ritið og þeir gerðu myndina saman en fengu einn aukaleikara með sér til að leika í myndinni, Lárus Kristján Johnsen. „Við gáfum okkur góðan tíma í þetta, vorum eiginlega frekar latir, það tók okkur tvo mánuði að koma fjögurra mínútna mynd niður á blað. Myndin heitir Phasmatis, sem merkir draugur. Við reyndum að skapa drungalega stemningu með því að breyta litakontröstum. Við settum filter yfir linsuna til að ná ákveðinni stemningu sem minnir á þýska ex- pressjónismann í kvikmyndum.“ Kvikmyndaskólar í vestri Úlfar horfir á myndir og veltir fyrir sér sjónarhornum í tökunum og öllu því sem tengist sjálfri kvik- myndagerðinni, enda ætlar hann að verða kvikmyndagerðarmaður. „Ég sagði víst oft þegar ég var lítill: „Ég vil verða leikstjóri,“ án þess að vita hvað það beinlínis merkti, en ég hef ekkert breytt þessari stefnu minni. Það eru tveir skólar sem ég er spenntur fyrir. University of South California er með eina bestu kvik- myndadeild í heimi og svo er skóli í Toronto í Kanada sem kemur til greina. Ég ætla að kíkja á þetta eftir stúdentsprófið og vona að ég komist í annan hvorn þessara skóla.“ Morgunblaðið/Ernir Með þrívíddargleraugu Úlfar í herberginu sínu þar sem flest tengist kvik- myndum, m.a þessi póstkort með myndum af gömlum kvikmyndaplagötum, sem Steinarr vinur hans gaf honum þegar hann kom frá New York. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2010 n o a t u n . i s H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t UNGNAUTA- BORGARI, 90 G KR./STK. 99 169 BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI Ö ll ve rð er u bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill u og /e ða m yn da br en gl 100% ÁVAXTASAF AR FÍN ÓDÝRT EÐA GRÓF ERIN SÓSUR 4 TEGUNDIR 149 KR./PK. LÍF APPELSÍNUSAFI 129 KR./STK. JACOB’S PÍTUBRAUÐ 215 KR./PK. SHOP RITE ÁLPAPPÍR 22,8 M X 30 CM 529 KR./PK. ÓDÝRT Við gerum meira fyrir þig 41% afsláttur LAMBAKÓRÓNA AÐ HÆTTI GRIKKJA KR./KG 2999 3998 BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI Hljómsveitin Í svörtum fötum var að senda frá sér safnplötuna Tímabil sem inniheldur alla helstu smelli sveitarinnar síðasta áratuginn ásamt þremur nýjum lögum. Einnig er að finna með plötunni dvd-disk sem inniheldur myndbönd og tónleika- upptökur. Hinir síspræku og öfgahressu svartstakkar fagna útgáfunni með tveimur dansleikjum um helgina. Í kvöld, föstudagskvöld, verða þeir í Kaupfélaginu á Akranesi og annað kvöld í Hvíta húsinu á Selfossi. Þess má geta að á næstu dögum fer lagið „Heim“ með Í svörtum föt- um í spilun á útvarpsstöðvum lands- ins en síðustu vikur hefur lagið „Ást í meinum“ gert það gott á vinsælda- listum. Endilega … Í svörtum fötum á Akranesi og Selfossi um helgina. … farið á ball með Í svörtum fötum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.