Morgunblaðið - 14.05.2010, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.05.2010, Blaðsíða 19
rekstur af þessu tagi. Félag smá- bátaeigenda virðist ekki hafa hafa fulltrúa þarna inni samkvæmt full- trúalista fyrir árið 2010. Þrátt fyrir það hafa Örn Pálsson, Jóhann Páll og Árni Konráðsson barist gegn þessum öflum á ársfundum sjóðs- ins með ósk um svör við spurn- ingum sem við höfum lagt fyrir stjórn Gildis svo eftir hefur verið tekið. En snillingarnir neita enn að svara mínum spurningum frá árinu 2009 og nú. Ég hef óskað eftir skýrslu end- urskoðenda fyrir árið 2008-2009, bæði munnlega og skriflega, en jafnan verið neitað. Það vill svo vel til að skýrslu endurskoðenda fyrir árið 1999-2000 hef ég undir hönd- um og úttekt Talnakönnunar hef ég undir höndum með huggulegu nafnspjaldi frá Árna Guðmunds- syni. Þá var í lagi að afhenta mér ársskýrslu. Nú kemur það ekki til greina, því spyr maður sig hvað er verið fela? Af hverju? Gildi afskrif- aði árið 2008 59,513 milljarða og árið 2009 43,331 milljarð, sem eru 102,844 milljarðar á tveimur árum og ekki verður séð fyrir endann á þessu falli. Hvar eru eftirlitsstofn- anir? Hvar eru nú rannsakendur efnahagsbrota? Ég bar spurningu til endurskoðenda þar sem ég spurði hann hvort það væri ekki rétt hjá mér að skuldir umfram eignir væru 12%. Hann svaraði spurningunni: Jú. Spurning tvö: Leiðir þetta ekki til greiðslufalls sjóðsins þegar fram í sækir? Svar: Jú! Hrunadans Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis kemur fram að árið 2005 voru bankarnir lentir á óheilla- braut, og því haldið fram að einn bankinn hefði verið komin að fót- um fram árið 2006. Um mitt sumar 2007 þyngdist róðurinn fyrir alvöru og eru sumir þeirrar skoðunar að þá hafi verið of seint að koma þeim til bjargar. Þrátt fyrir þetta slógu lífeyrissjóðaknaparnir í klárinn. Lífeyrissjóðir halda áfram að fjár- festa, dansinn heldur áfram hjá Gildi með kaupum á skuldabréfum eins og að ofan greinir. Enda segir Árni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Gildis, fyrir rann- sóknarnefnd Alþingis 22. sept- ember 2009: „Við höfðum mikla trú á þessum fyrirtækjum. Þetta var algjörlega meðvitað rætt á stjórn- arfundum og ekkert sem menn vissu ekki.“ Eins kemur fram: Fjárfestingar íslensku lífeyrissjóð- anna hafa farið illa, ekki síst skuldabréfaeign þeirra, en bréfin voru að miklu leyti gefin út af hin- um föllnu félögum. Þessi bréf eru ekki tryggð með veðum. Hugið ykkur ekki tryggð með veðum. Vilhjálmur Egilsson, fráfarandi formaður stjórnar Gildis, reynir að gera lítið úr sjóðsfélögum sem keppa að gagnsæi og vilja fylgjast með því hvernig farið er með það lítilræði sem menn spara saman á langri starfsævi og lífeyrissjóðum er trúað fyrir. Leggst lítið fyrir kappann, þennan stríðsmann sem á allgóð lífeyrisréttindi nokkuð vel tryggð, til dæmis annars staðar en hjá Gildi. Í stað þess að brúka kjaft ætti þessi Vilhjálmur Eg- ilsson að biðja sjóðsfélaga afsök- unar. » Í stað þess að brúka kjaft ætti þessi Vil- hjálmur Egilsson að biðja sjóðsfélaga afsök- unar. Höfundur er sjómaður og sjóðsfélagi í Gildi. Umræðan 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2010 –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /M O R 48 90 9 1/ 10 Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt sérblað um Tísku og förðun föstudaginn 21.maí Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna sumarið 2010 í förðun, snyrtingu, fatnaði, umhirðu húðar- innar dekur og fleira. MEÐAL EFNIS: Förðunarvörur. Sumarförðun. Nýjustu snyrtivörurnar. Krem. Sólarvörur og sólarvörn. Hvað verður í tísku í sumar. Meðferð á snyrtistofum. Ilmvötn. Kventíska. Herratíska. Fylgihlutir. Skartgripir. Og fullt af öðru spennandi efni. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 17. maí. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Tíska og förðun P NTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS FYRIR 17. MAÍ Eftir 60 ára styr milli Kína og Taívans breytti forseti Taív- ans (Lýðveldisins Kína), Ma Ying-jeou, vígstöðunni á róttæk- an hátt með innsetn- ingarræðu sinni fyrir tæpum tveimur árum. Friðarhöndin sem hann rétti út þar hef- ur leitt af sér fjóra fundi og tólf sáttmála milli ríkjanna, meðal annars um ferðamennsku, flutninga og varnir gegn glæpum. Skoðanakannanir meðal almennings á Taívan sýna að þorri fólks þar styður frekari fundi og samninga sem tryggi frið og stöðugleika í samskiptunum yf- ir Taívanssundið. Alþjóðavæðing er lausnarorð dagsins í dag og fyrir Taívanbúa skiptir fríverslunarsamningur Suðaustur-Asíuríkja miklu máli en hann tók gildi 1. janúar 2010. Illu heilli á Taívan þó ekki aðild að honum þar sem flest ríki á svæð- inu fylgja hinni svokölluðu reglu um „eitt Kína“. Þetta hefur af- drifaríkar afleiðingar til hins verra fyrir efnahag Taívans, sem bygg- ist að stórum hluta á útflutningi. Eina ráðið er að reyna að komast að tvíhliða samkomulagi við Kína sem tryggi áframhaldandi sam- keppnishæfni Taívans. Ýmsir sérfræðingar hafa bent á hættuna á að Taívan gefi of mikið eftir í slíkum samningum og að samskiptin við Kína séu þegar orðin of náin. Það er brennandi spurning á vörum allra Taívanbúa hversu langt megi ganga til að vinna upp missætti fortíðarinnar. Sumir ganga svo langt að telja að tví- hliða fríversl- unarsamningur við Kína myndi á end- anum leiða til samein- ingar ríkjanna. Það virðist ofmat. Taív- anbúar þurfa einfald- lega á slíkum samn- ingi að halda til að tryggja ýmis efna- hagsleg og pólitísk réttindi sín. Að öllu samanlögðu má ætla að samningur af þessu tagi yrði Taívan til mun meira gagns en tjóns og forseti landsins hefur heitið því að ekki verði haggað við hagsmunum og sjálfræði Taív- anbúa. Það er hins vegar ekki vanda- laust að tryggja alþjóðlega hags- muni Taívans. Hygginda og hug- rekkis er þörf til að standast þrýstinginn frá stórveldinu hand- an sundsins; og haga verður segl- um eftir vindi. Núverandi stjórn á Taívan er hvorki „með“ Kína eða „á móti“ Kína, eins og það er stundum svo einfeldningslega orð- að. Hún vill einfaldlega stuðla að sátt og friði við meginlandið án þess að stefna að sameiningu við það. Ma forseti hefur ítrekað sagt að samningar um sameiningu Kína og Taívans verði ekki hafnir á hans vakt. Þrátt fyrir útrétta friðarhönd Taívans er ekkert lát á eld- flaugaógninni sem stafar frá meg- inlandinu. Yfir 1000 eldflaugum er beint að Taívan þaðan til að koma í veg fyrir að Taívanbúar svo mik- ið sem velti möguleikanum á sjálf- stæði fyrir sér. Í komandi fríversl- unarsamningum við Kína mun Taívan ekki horfa framhjá þessari ógn. Stjórnvöld hafa nýlega und- irritað stóran vopnakaupasamning við Bandaríkin upp á 6,4 milljarða dollara. Það eitt sýnir að Taív- anbúar ætla ekki að láta Kína vaða yfir sig. Taívan og Ísland eru bæði lýð- ræðisríki sem virða frelsi og mannréttindi. Svo lengi sem Kína virðir ekki málfrelsi, mannréttindi og lýðræði kemur aldrei til greina að Taívan taki upp viðræður við Kína um pólitíska sameiningu. Eldflaugaógnin frá Kína rýrir gildi viðskiptasamvinnu við Taívan Eftir Arthur Cheng »Núverandi stjórn á Taívan er hvorki „með“ Kína eða „á móti“ Kína, eins og það er stundum svo einfeldn- ingslega orðað. Arthur Cheng Höfundur er forstöðumaður á Full- trúaskrifstofu Taívans í Danmörku. Undanfarið hefur leiðindaorð tekið sér bólfestu í umræðu samfélags- ins, niðurskurður! Við fáum hroll þegar við heyrum það, við finnum óbragð af því að segja það, við verðum döpur og neikvæð að lesa það. Því niðurskurður þýðir í þessum tilvikum að eitthvað verði tekið af okkur til að spara. Eitt- hvað sem við erum kannski farin að líta á sem sjálfsagðan hlut. Sem betur fer höfum við flest tæki og færni til að a.m.k. tjá okkur um það hvaða áhrif niðurskurður hingað og þangað mun hafa á okk- ur. En það eru ákveðnir hópar sem geta það ekki. Til þess þurfa þeir málsvara sem eiga að vera allir hinir sem geta tekið upp hanskann fyrir þá sem ekki geta varið sig. Hver stendur vörð um réttindi fatlaðra einstaklinga á niðurskurð- artímum? Réttindi þeirra til tóm- stundaiðkunar, íþrótta, náms og atvinnu eru þau sömu og hjá þeim sem ekki lifa með fötlun en sú krafa er á grundvelli mannrétt- inda. Þegar við fórum af stað til að skoða hvaða úrræði eru í boði fyr- ir fatlaða einstaklinga sem eru að ljúka framhaldsskóla, s.s. eftir tví- tugt, komumst við að því, okkur til mikillar ánægju, að það er margt í boði fyrir þessa einstaklinga og valinn maður í hverju rúmi, enda er það ekkert vafamál að þeir sem sækja í þau störf sem snúa að málefnum fatlaðra gera það ekki vegna launanna. En það kom ávallt upp í umræðunni hvað myndi gerast núna í ljósi þess að skera þarf niður í öllum kerfum samfélagins. Mörg okkar geta kyngt þessum margháttaða niðurskurði, öðrum okkar finnast ósanngjarnt að beita honum og enn aðrir neita að sam- þykkja að niðurskurður sé rétta leiðin. Þessi mál má vel rökræða fram og til baka. En við höldum því fram að þegar kemur að fötl- uðum sé ekki í boði að rökræða það hversu mikið megi taka af þeim. Ef manneskja getur ekki séð um sig sjálf verður hún að geta treyst á það að aðrir sjái um hana, það eru hennar mannrétt- indi. Á sama tíma má ekki gleyma að það er mikil vinna að sjá um fatlaða einstaklinga, en einhverra hluta vegna hefur, þrátt fyrir góð- æri, verið erfitt að manna mjög margar stöður á þessum sviðum, því einhverra hluta vegna eru skilaboðin þau að ekki sé það pen- inganna virði að leggja fram það fjármagn sem þarf til til að sjá um fatlaða einstaklinga sem er ekkert annað en vanvirðing við bæði fatl- aða, starfsmenn þeirra og fjöl- skyldna þeirra. Koma skal fram við fólk með fötlum eins og annað fólk, af virðingu og kurteisi. Við krefjumst þess að yfirvöld og ráðamenn okkar líti ekki svo á að hér sé á ferðinni hópur sem megi taka af, því ekki er nóg fyrir. Virðið réttindi þeirra. RANNVEIG ÓSKARSDÓTTIR, GESTUR EINARSSON, nemendur við Háskóla Íslands. Verndum réttindi þeirra Frá Rannveigu Óskarsdóttur og Gesti Einarssyni Gestur Einarsson Rannveig Óskarsdóttir BRÉF TIL BLAÐSINS Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.