Morgunblaðið - 14.05.2010, Page 30
30 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG MAN AÐ AÐALHEIÐUR,
FRÆNKA MÍN, GEKK
ALLTAF MEÐ MJÖG
STÓRT VESKI
UPPHANDLEGGSVÖÐVINN
Á HÆGRI HÖNDINNI VAR
STÆRRI OG LÆRIÐ Á HENNI
ÞAÐ VAR MJÖG SKRÍTIÐ AÐ
SJÁ HANA Í FÍNUM KJÓL
ÉG ÞAKKA ÞÉR
KÆRLEGA FYRIR
NÝJA MARTRÖÐ
HVAÐ ÆTLAR
ÞÚ AÐ GEFA
MÉR Í
AFMÆLISGJÖF?
RÁNDÝRA DEMANTS-
HÁLSFESTI!
EN FRÁBÆRT! DEMANTAR
ERU ÆÐI!
ÞÚ ERT
NÚ MEIRI
ENDEMIS
LETINGINN!
ÉG HÉLT ÉG HEFÐI GIFST MANNI SEM ER FULLUR AF
ORKU OG ALLTAF SPYRJANDI MIKILVÆGRA SPURNINGA!
ÞÚ GERÐIR
ÞAÐ...
HVAÐ ER
Í MATINN
Í KVÖLD?
ÞÚ VERÐUR
AÐ FARA ÚT OG
SLÁST VIÐ HITT
LUKKUDÝRIÐ
EN ÉG
GET EKKI
BARIÐ
DVERG!
ÞETTA ER EKKI
DVERGUR, ÞETTA
ER BÚÁLFUR!
VILTU
„LUCKY
CHARMS“?
ÉG HAFÐI ÁHYGGJUR AF ÞVÍ
AÐ KOMAST Í GEGNUM ÞETTA
HJÓNABANDSNÁMSKEIÐ, EN ÞETTA
ER AUÐVELDARA EN ÉG HÉLT
ÉG ÞARF BARA AÐ SEGJA
ÞAÐ SEM FÓLK VILL HEYRA
OG ALLIR ERU ÁNÆGÐIR
MEÐ MIG, SVO LENGI
SEM ÉG ER JÁKVÆÐUR
NÆST VIL ÉG AÐ MAKARNIR
PARI SIG SAMAN OG RÆÐI
AÐEINS HVORT VIÐ ANNAÐ
Æ, NEI
VÁ! ÖLL SÝNINGIN
ER HORFIN!
ÖRYGGISMYNDAVÉLARNAR
ERU LÍKA HORFNAR!
ÞAÐ
SKIPTIR EKKI
MÁLI
VIÐ VITUM
HVER VAR AÐ
VERKI
Um listafólk
Mig langar að minn-
ast á tvo listamenn á
Akureyri, Laufeyju
Gísladóttur, sem er
frábær málari. Hinn
er öðruvísi málari,
vatnslitamálarinn
Einar Helgason, hann
var teiknikennari á
Akureyri. Það væri
mjög skemmtilegt ef
hægt væri að gefa út
bækur með mál-
verkum þessara
tveggja listamanna
svo við hin gætum
notið þess á að horfa.
Einnig væri gaman ef hægt væri
að halda sýningu á listaverkum
þeirra í Reykjavík. Svo vil ég líka
minnast á málverk Ólafar Péturs-
dóttur, hún féll af hestbaki og lést
fyrir nokkrum árum. Ég missti af
sýningu á listaverkum hennar í
Ráðhúsinu í Reykjavík. Hennar
málverk eru yndisleg og gefandi
og þar getur maður lifað sig inn í
annan heim. Það væri
líka gaman að sjá
listaverk hennar á
bók. Svo þakka ég
bara fyrir.
Hulda.
Síbrotamenn
Ég er innilega sam-
mála Ómari F. Dab-
ney, sem skrifaði
grein í Morgunblaðið
11. maí, um að senda
eigi erlenda brota-
menn með íslenskt
ríkisfang úr landi
brjóti þeir ítrekað af
sér. Nú er tækifærið
til að koma þessu í gegnum þingið
því dómsmálaráðherra er hvorki í
Samfylkingunni né örvhentum
rauðum.
Svavar Guðni.
Ást er…
… að vita útkomuna
fyrirfram.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, út-
skurður kl. 13, bingó kl. 13.30.
Árskógar 4 | Smíðastofa kl. 9, bingó kl.
13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Sumargleði verður
27. maí kl. 17, matur, Tindatríó syngur,
happdrætti og ball, Þorvaldur Hall-
dórsson sér um tónlistina. Uppl. í s.
535-2760. Skrán. f. 25. maí.
Dalbraut 18-20 | Söng- og harmonikku-
stund kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
botsía kl. 10.45. Listamaður mánaðar-
ins.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans í
Ásgarði, Stangarhyl 4, sunnudagskvöld
kl. 20, Klassík leikur fyrir dansi. Sam-
koma söngvökufólks og gesta 19. maí
kl. 15-17.
Félag eldri borgara, í Kópavogi |
Gleðigjafarnir í Gullsmára koma saman í
dag,14. maí, kl. 14 undir stjórn Guð-
mundar Magnússonar, píanóleikara.
Seinasta söngur Gleðigjafanna í vetur.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.30, jóga kl. 10.50, botsía kl. 13 og fé-
lagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Jóga kl.
9.30, ganga kl. 10, leikfimi kl. 10.30.
Gleðigjafarnir koma saman og syngja kl.
14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Félagsvist FEBG kl. 13, kr. 100. Þátttak-
endur í vorsýningu geta sótt sýning-
armuni sína til kl. 16 í dag og á mánu-
dagsmorgun.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, m.a. bókband, prjónakaffi kl. 10,
stafganga kl. 10.30. Frá hádegi er spila-
salur opinn. Kóræfing fellur niður.
Myndlistarsýning í Kaffi Loka á Skóla-
vörðuholti.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl.
11.30, brids kl. 12.30, www.febh.is.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl.
9, postulínsmálning. Námskeið í mynd-
list kl. 13. Síðasti dagur myndlistarsýn-
ingarinnar á afgreiðslutíma stöðv-
arinnar, kaffisala.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Tríó Björns Thoroddsens og
Andrea Gylfadóttir kl. 14 á Sal. Kvik-
myndin Sveitabrúðkaup kl. 15.30 í Betri
stofu. S. 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjábakka
kl. 13. Uppl. í síma 554-2780, www.glod-
.is.
Korpúlfar Grafarvogi | Í dag er sund-
leikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30.
Listasmiðja Korpúlfa er síðan opin á
Korpúlfsstöðum frá kl. 13-16.
Norðurbrún 1 | Myndlist og útskurður
kl. 9.
Vesturgata 7 | Skartgripagerð/korta-
gerð, glerbræðsla kl. 9, enska kl. 11.30,
tölvukennsla kl. 13.30. Sungið v/flygil
kl. 14.30, kaffiveitingar kl. 14.30, dans-
að í aðalsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir-
mótun kl. 9, handavinnustofa kl. 9,
morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10.15,
bingó kl. 13.30.
Friðrik Steingrímsson veltir fyr-ir sér þróun þjóðmálanna:
Á gullið setja glópar traust
og græðgin vefur svika þræði,
á menn rennur endalaust
einhverskonar gyllinæð-i.
Í hjónaballsbrag Þorgríms
Starra frá byrjun sjötta áratug-
arins stendur:
En freistingar eru ekki fyrir þá menn
sem falla eigi,
en streitast á móti með steytta hnefa
svo standast megi.
En þær eru hinna, sem hika aldrei
en hlýða kalli,
og vita að það er vonlaust mál
að verjast falli.
Baldur Eyjólfsson (1882-1949)
orti á sínum tíma, að því er fram
kemur í Vísnasafni Héraðs-
skjalasafns Skagfirðinga:
Freistingin á förnum vegi
flestum mætir.
Ýmsir hana yfir stíga
aðrir lágt að velli hníga.
Þegar Óttar Einarsson var æsku-
lýðsleiðtogi til Svalbarðsþinga í
Þistilfirð í lok síðustu aldar var
hann einhverju sinni orðinn lang-
eygur eftir vori:
Norðangarrinn nakta jörð
nótt sem daga lemur.
Þá er vor um Þistilfjörð
þegar hrafninn kemur!
Hallmundur Kristinsson heyrði
ýjað að því að sumir yxu upp úr
hárinu:
Lít ég yfir langan æfiveg.
Lúmskri elli bægi frá sem nöðru.
Hitt er það að hárið mitt og ég
höfum löngu vaxið frá hvort öðru.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af gulli og freistingum
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn