Nýr Stormur - 23.09.1966, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 23. sept. 196G
Ódeigur skrifar pistilinn:
Hartn kostaSl á srnum
ttma 25 ajira pésinn, sem
ég var að handleika rétt í
þessa!
Hann heitir hvorki meira
né minna en:
„ísland“, málgagn flokks
þjóðernissinna og fjallar
um „LANDNÁMI. — HRUN
ÞINGRÆÐISINS".
Þessi merkilegi ritlingur
er sagður sérprentaður úr
„MJÖLNI“-----------og bak
og fyrir er hann skrýddur
flokksmerki þýzku nazist-
anna!!!
Að sjálfsgðu er rétt að
geta þess, að riokkur tími
er síðan þessi stórfróðlegi
og sögulegi boðskapur var
kynntur íslenzku þjóðinni
-----eða nánar tiltekið ár
ið 1934!!
Höfundurinn er islenzk-
ur og var á sama ári 25 ára
lögfræðinemi-------sem af
og til klæddist grástakk!!
í dag er þessi fyrrver-
andi merkisberi nazismans
— eða þjóðernissinna, eins
og þeir kölluðu sig — nær
sextugur hæstaréttarlög-
maður — klæddur venju-
legum jakkafötum!
Honum hefur farnast vel
— það bezt er vitað — og
mun fjárhagslega bjarg-
álna, enda þótt ÞINGRÆÐ
H) á íslandi hafi sífellt vax
ið i stað þess að HRYNJA!!
„Heil Hitler — öskur og
„gymnastik“ ...!!“
Þessi fyrirmaður gegnir
nú virðingarstöðu meðal
stéttarbræðra sinna —
hann er formaður Lög-
mannafélagsins og heitir
Jón — eins og forsetinn frá
Rafnseyri við Arnarfjörð.
Því ber eigi að leyna, að
hér fer enginn miðlungs-
maður — heldur harðdug-
legur, greindur og vitur
persónuleiki!!
Ég er þess fullviss, að ein
mitt ÞINGRÆÐIÐ hérlend
is hefur eigi hvað sízt hlað
ið upp þann stall — sem
formaður Lögmannafélags
ins stendur nú á — vígður
metorðum stéttar sinnar!
Þegar Adolf sálugi Hitler
komst tll valda í Þjóðverja
landi árið 1933 — fór
Nazistahreyfingin hraðbyri
um víða veröld — líkt og
Bítla-mennmg 1 ár!
Ungir menn fylltust eld-
móði framsækni, hugsjóna
og þjóðrækni — eins og títt
er meðal ómótaðra lær-
dómsmanna — sem eru að
því komnir að hætta að
nota sokkabönd — enda ný
komnir frá skraddaranum
— eftir að hafa í fyrsta
skipti mátað síðar buxur!!
Það var heldur ekki for-
svaranlegt að vera Nazisti
í stuttbuxum og í háum
sokkum.
„Hvar eru verkin? —
Allt er að verða óreiðunn-
ar fjandi...!!“
Á þessum árum Nazis-
mans var engum ungum
manni vitsmunavant — eft
ir að hann hafði klæðst síð
buxum — gráum stakki
með hakakrossmerki á —
kynni aö rétta fram hend-
ina — þramma um götur
og torg — og öskra inni-
haldslaus slagorð:
Niður með þetta og hitt!
„HEIL HITLER“ — var
lausnarorðið — og hverju
máli skipti — hvort maður
skildi — eða ekki?! —
Aðalatriðið var:
„ÖSKUR OG GYMNA-
STIK“!!
Ekki hefði ég neina á-
stæðu til að virða Jöni
hæstaréttarlögmanni það á
verri veg — þó hann á
unga aldri fylgdi sínum
aldaranda!
Slíkt og þvílíkt gerizt í
dag og hefur gerzt á öllum
tímum — því ungæðishátt-
urinn fylgir að sjálfsögðu
æskuárunum-------eins og
barnaskapurinn bernskuár
unum--------og þroski og
reynzla fullorðinsárunum!
í kjölfar aldursins fylgja
gjarnan áhyggjur, ábyrgð-
artilfinning og lífsbarátta!
Að dæma manninn af
gjörðum hans í bernzku —
eða af hugarórum hans í
æsku — er dómur yfir
manni sjálfum!!!
Þessa staðreynd skyldi
sérhver vandlega íhuga —
þvi það er eigi aðeins háska
legt að reyna að Ijúga að
sannleikanum — lieldur
miklu fremur tilgangslaust
og heimskulegt athæfi —
sem óhjákvæmilega leiðir
til andlegs sjálfsmorðs!!!
Mér þótti rétt að hafa
þennan „prologus" — því
annars kynni einhver að
misskilja það uppátæki
mitt, að rifja upp nokkur
orð úr áðurgreindum pésa
Jóns N. Sigurðssonar hæsta
rættarlögmanns og for-
manns Lögmannafélagsins,
er hann reit á æsku- og
námsárum sínum!
Ég fullyrði að þessi upp-
rifjun er alls ekki gerð í
þeim tilgangi að áfellast
Jón á nokkurn veg — enda
á hann það hvergi skilið —
né heldur á slíkt nokkurn
rétt á sér, í einni eða ann
arri mynd!
Að svo búnu leyfi ég mér
að birta orðrétt nokkur
atriði úr ritlingi Jóns —
eftir að hafa hnusað ofur-
lítið í hann fyrir forvitni-
sakir!
Bæklingur Jóns um
„Hrun þingræðisins“, hefst
þannig:
hrópað hástöfum til Alþing
is og rikisstjórnar;
„Hvar eru verkin? . . .“
svo áfram til hins síðasta
orðs!!!
Sé þess gætt, að þetta
MOTTO fyrir ritsmíð korn
ungs þjóðernissinna Á
KREPPUÁRUNUM — hafi
þá þótt við eiga af vafa-
laust mörgum þegnum þess
arar þjóðar---------hvað
skyldi þá í dag?!!
íslenzka þjóðin er fyrir
löngu komin út úr KREPP
• UNNI en þrátt fyrir þá stað
reynd blasir hvarvetna við:
MEIRI KREPPA — á
KREPPULEYSISÁRUM!!!
„Allt er að VERÐA óreið-
unnar fjandi . . .“ — því
hafi KREPPA verið rétt-
nefni „i den tid“ — þá
. . . „sæmir mér ekki sem
íslending . .' .“, að nefna
smásmugulegra orð þess-
ar stundirnar---------en
ÚLFA-KREPPU!!!
Er það máske ekki sann-
nefni — að kalla ástand
þjóðmálanna ÚLFA-
KREPPU — þegar litið er
til þess, að gengisfelling —
kaupkröfuhækkanir —
vöruhækkanir — sí aukin
skattpining — samdráttur
„MOTTO:
Hvar eru verkin? Viltu ei þjóð mín skoða
viljalaust þing með rifinn trúarskjöld.
Dáðlausir menn á málefnunum troða,
metast um bita og lítilfjörleg völd.
Horfinn er dugur, drepinn þingsins sómi,
dottar nú lýður yfir slíkum dómi.
Sorglega hverfur sannur manndómsandi,
sannleikans festa og dyggðum prýddir menn.
Allt er að verða óreiðunnar fjandi,
ataður fanta- og lydduskap í senn.
Þingið er eins, og það er versta meinið,
þjóðlífið spillist — rotnar fyrst við beinið.“
Þetta kvæöi er
Kjartan Ólafsson!!
eftir
Þess vegna hefi ég tekið
það til birtingar — að mér
sýnist svo furðulega margt
sannleikskornið I því —
sem frómt frá sagt gæti
jafnvel frekar átt við í dag
— heldur en fyrir röskum
30 árum!!
„Kreppuárin forffum-----
voru hátíð hjá ÚLFA-
KREPPUNNI - sem ríkis-
stjórnin er nú í...!! “
Eitt er víst, að hvað sem
öllum Nazisma og öðrum
stjórnmálastefnum liður —
fyrr og síðar — þá bókstaf-
lega gæti almenningur
núna — með fullum rétti
í atvinnumálum og fram-
kvæmdum o. s. frv. — gæg-
ist upp fyrir sérhverja
hundaþúfu, sem valdhaf-
arnir hafa kosið að hreykj a
sér upp á — í stjórnartíð
sinni undanfarin ár — og
þó einkum á hinum síðustu
7 til 8 árum?!!
Svari nú hver fyrir sig!
„Hlutafélagið „Bjarni
píslarvottur & Gylfi
ferðalangur“ . . . ! !
í pésa sínum um „HRUN
ÞINGRÆÐISINS" — segir
Jón m. a.:
„Allt miðast við stjórn-
málaskoðanir og hagsmuni
hins ráðandi flokks. Sum-
staðar fara Jafnaðarmenn
með völdin, annars staðar
Framsóknarmenn og á
þriðja staðnum Sjálfstæð-
ismenn — allstaðar ójafn-
aðarmenn. Hvergi er neitt
sameiginlegt starf. Allir á
móti öllum og allt á hausn
um er alveg hæfilegt
brennimark á ástandið' ...!
Áður segir Jón:
„Ábyrgð byggist á skyld-
um, og ef þær eru ekki upp
fylltar, verður í þessu sam
bandi að tala um refsing
.“...! !
Og enn segir svo:
„að ætti að geta verið
öllum Ijóst, að það er
hreinn óþarfi að hafa 42
þingmenn (þ. e. árið 1934),
hvað þá fleiri. Færri — t. d.
20—30 — eru alveg eins
færir um að leysa vanda-
mál þjóðarinnar ...“ ! !
Nú éru þingmennirnir
orðnir 60 að tölu — stofn-
að hefur veriö Hagráð með
20 mönnum — nefndafjöld
inn hefur margfaldast —
bankastjórum fjölgar í öf-
ugu hlutfalli við aðstoðina,
sem bankarnir veita al-
menningi — og þannig
mætti lengi áfram rekja
raunalistann — sem þjáir
íslenzku þjóðina miklu
meira með hverju árinu!
Þegar niðursetningar harð
indaáranna forðum eru
loks horfnir — hafa aðr-
ir þannig tekið við hlut-
verki þeirra, —------stór-
um þyngri á fóðrum--------
þrautleiðinlegir gámar —
— óstarfandi — og sumir
naumast ferðafærir milli
Landsbankans og Hótel
Borgar!!
Sízt er ég „heillaður“ af
múgsefjun Nazismans og
geðveiki Hitlers — en ein-
hvern veginn virðist mér,
að meinlegri örlög geti eigi
— heldur en þau — að skrif
ungs manns fyrir 30 árum
-----mótuð af öfgum, og
áhrifagirni æskuára-------
skuli á þessum haustmán-
uðum ársins 1966 ---------
vera hrein vizka við hlið-
ina á ríkjandi stjórn-
heimsku hlutafélagsins
.BJARNA PÍSLARVOTTS &
GYLFA FERÐALANGS“.!!
Hvað um það — ekki þýð
ir íslenzku þjóðinni lengur
að standa sífellt í bleyju-
þvotti--------það er vissu
lega kominn tími til að
taka stálpaðri börn — í
íslenzku ríkisstjórnina...!
ODEIGUR