Morgunblaðið - 21.05.2010, Síða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þetta er neyðarráðstöfun því sl. tvö
ár hefur kostnaður ríkisins vegna
þunglyndislyfja aukist mikið vegna
gengisbreytinga. Í fyrra var þessi
kostnaður um einn milljarður króna.
Ég tel þó enga ástæðu til að ætla að
þetta þýði að sjúklingar fái verri
meðferð, enda verður þeim jafnan
vísað á þau lyf sem þeir nauðsynlega
þurfa,“ segir Þórður Sigmundsson,
yfirlæknir á geðsviði Landspítalans.
Heilbrigðisráðuneytið hefur
breytt reglugerð um greiðsluþátt-
töku ríkisins vegna þunglyndislyfja.
Nú verða að öðru jöfnu aðeins ódýr-
ustu lyfin niðurgreidd. Með þessu á
að draga úr notkun dýrari þunglynd-
islyfja og spara 200 til 300 millj. kr. á
ári. Ef hagkvæmustu lyf gagnast
ekki sjúklingi sér læknir til þess að
hann fái eigi að síður lyfin sem þarf.
Ekki breytt hjá fólki í bata
„Í flestum tilvikum ætti það að
vera auðsótt því lyfjameðferð hjá
fólki í bata er yfirleitt ekki breytt,“
segir Þórður Sigmundsson sem bæt-
ir við að breytingin verði í raun helst
sú að pappírsvinna lækna vegna
lyfjaávísana aukist. Hann leggur
áherslu á að sala þunglyndislyfja hér
á landi hafi ekki aukist undanfarin
ár.
Heilbrigðisráðuneytið segir að
hvergi sé notkun og kostnaður vegna
þunglyndislyfja meiri en á Íslandi.
Þá sé notkun dýrari þunglyndislyfja
hlutfallslega meiri hér á landi en á
hinum Norðurlöndunum. Notkun á
algengasta þunglyndislyfinu, Cipra-
lex, er 24% af heildarnotkun þung-
lyndislyfja á Íslandi en aðeins 7% í
Svíþjóð. Notkun Oropram, sem er
ódýrara, er 9% af heildarnotkun
þunglyndislyfja hér en 32% í Sví-
þjóð.
Frumtök, sem eru samtök fram-
leiðenda frumlyfja, segjast í yfirlýs-
ingu í gær undrast staðhæfingar
heilbrigðisráðuneytis um að fyrir-
hugaðar sparnaðaraðgerðir bitni
ekki á sjúklingum. Við lyfjameðferð
verði að horfa til þátta eins og
skammtastærðar, verkunar, auka-
verkana eða áhrifa á lífsgæði. Brýnt
sé að meta gagnsemi nauðsynlegra
lyfja út frá þessum þáttum.
Illmögulegt að staðfesta
meintan sparnað
„Ljóst er að með skertum að-
gangi að nýjum lyfjum muni óvissa
ríkja um meðferð þunglyndissjúk-
linga. Ennfremur er illmögulegt að
staðfesta meintan sparnað þar sem
ekki hefur farið fram mat á kostnaði
á móti virkni,“ segja Frumtök sem
benda á að einungis um sjö af hverj-
um tíu þunglyndissjúklingum svari
meðferð. Einnig sé þekkt að ekki
svari allir sjúklingar sömu meðferð-
inni eins, enda hafi lyfin mismikil
áhrif á boðefnakerfið. Aðgerðir nú
verði að taka taka mið af þessu.
Óvissa um meðferð sjúkra
Ríkið ætlar að spara 300 milljónir kr. með breyttri reglugerð um þunglyndislyf
Neyðarráðstöfun en ekki verri meðferð sjúklinga, segir yfirlæknir á geðdeild
Pappírsvinna
lækna við ávísanir
á þunglyndislyf
eykst með reglu-
gerðarbreytingu.
Hestamenn hafa miklar áhyggjur af veirusýkingu í
hrossum. Alls komu um 600 manns á fund í reiðhöllinni
í Víðidal í gærkvöldi. Sigríður Björnsdóttir dýralæknir
segir erfitt að spá um það hver endirinn verði á far-
aldrinum. Ekki er búið að taka ákvörðun um hvort
fresta þurfi Landsmóti hestamanna 26.-28. júní nk.
Hestamenn eru áhyggjufullir
Morgunblaðið/Ómar
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Styrktarsjóður Baugs Group, sem
styrkt hefur fjölmörg verkefni á síð-
ustu árum er tómur. Samkvæmt árs-
reikningi sem sjóðurinn skilaði til
Ríkisendurskoðunar skuldaði hann
22,5 milljónir í árslok 2008. Ekkert
var greitt í sjóðinn á árinu, en hins
vegar greiddi hann út 40,5 milljónir í
styrki á því ári.
Styrktarsjóður Baugs hefur
styrkt fjölmörg verkefni hér á landi,
aðallega á sviði velferðar- og menn-
ingarmála. Hann styrkti einnig á
árinu 2008 verkefni í Afríku.
Allt önnur og betri staða er hjá
Aurora velgerðarsjóði sem stofnaður
var 2007 að frumkvæði hjónanna
Ingibjargar Kristjánsdóttur lands-
lagsarkitekts og Ólafs Ólafssonar,
stjórnarformanns Samskipa. Hrein
eign sjóðsins í árslok 2008 nam 1.639
milljónum. Sjóðurinn veitti styrki fyr-
ir 130 milljónir á árinu 2008.
Velferðarsjóður barna sem var
stofnaður í febrúar árið 2000 af Ís-
lenskri erfðagreiningu og heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu stend-
ur líka vel. Í árslok 2008 átti hann 738
milljónir í hreinni eign. Hann veitti
styrki fyrir 51 milljón á því ári.
Bæði Velferðarsjóður barna og
Aurora voru með talsvert miklar fjár-
magnstekjur á árinu 2008. Því var
hins vegar ekki fyrir að fara hjá Há-
skólasjóði Eimskipafélags Íslands, en
hann tapaði tæplega 700 milljónum á
árinu 2008 á hruninu. Staða sjóðsins
er eftir sem áður sterk því að hrein
eign hans er um tveir milljarðar.
Styrktarsjóður Baugs
skuldar um 22 milljónir
Baugur Styrktarsjóðurinn skuldar
22 milljónir skv. ársreikningi.
Rúmlega 1,6 milljarðar króna eru í Aurora velgerðarsjóði
„Ég óttast að hér
sé verið að taka
ákvörðun án þess
að fullnægjandi
upplýsingar um
raunverulega
þörf liggi fyrir,“
segir Svanur
Kristjánsson
talsmaður Geð-
hjálpar.
Einni af fjórum
deildum á geðsviði Landspítalans við
Hringbraut í Reykjavík verður lokað
dagana 10. júlí til 3. ágúst í sumar í
þrjár vikur í sparnaðarskyni.
„Starfsfólk geðsviðsins hefur bent á
að álag á bráðadeildirnar í fyrrasum-
ar hafi verið minna en gert var ráð
fyrir og því sé þetta óhætt. Mig
grunar hins vegar að enginn viti í
raun hve margir eru raunverulega í
andlegri nauð og gætu þurft á aðstoð
að halda,“ segir Svanur.
Á deildinni sem lokað verður í
sumar eru sextán sjúkrarúm og
verður starfseminni þar deilt á hinar
deildirnar þrjár sem opnar verða.
Áætlað er að lokunin skili 5 til 6 millj.
kr. sparnaði. „Við höfum farið yfir
tölfræðina og þar sést að júlí er ró-
legasti tíminn hér. Álagið eykst í
ágúst,“ segir María Einisdóttir stað-
gengill framkvæmdastjóra geðsviðs.
Hún leggur hins vegar áherslu á að
öryggi verði ekki ógnað með lokun-
um enda verði aukafólk kallað á
vaktir og brugðist við með öðru móti,
gerist þess þörf. sbs@mbl.is
Óttast
lokun geð-
deildar
Geðdeildarhús
Landspítalans.
Landspítalinn ætlar
að spara 5 milljónir
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
144.900
Uppþvottavél - SN 45M200SK
Tilboðsverð:
kr. stgr.
(Verð áður: 169.900 kr.)
119.900
Uppþvottavél -SE 45E234SK
Tilboðsverð:
kr. stgr.
(Verð áður: 139.900 kr.)
tilboðsverði
Uppþvottavélar
nú á
A
T
A
R
N
A
Útför Kristófers
Darra Ólafssonar,
þriggja ára
drengs sem lést af
slysförum á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans 17. maí,
fer fram frá Graf-
arvogskirkju í
dag klukkan 13.
Kristófer Darri
fæddist 11. sept-
ember árið 2006, sonur Maríu
Magdalenu Steinarsdóttur og Ólafs
Hauks Hákonarsonar. Hann lést eft-
ir slys sem varð í leiktæki við fjöl-
býlishús í Grafarvogi sl. laugardag.
Lést af
slysförum
Kristófer Darri
Ólafsson
Hæstiréttur
dæmdi í gær Jón
Sverri Bragason,
55 ára, í þriggja
og hálfs árs fang-
elsi fyrir kynferð-
isbrot gegn
þroskaskertum
pilti. Brotin voru
framin þegar pilt-
urinn var 13-15
ára gamall.
Málið komst upp þegar grunsemd-
ir vöknuðu um ferðir piltsins að
heiman á kvöldin. Við skoðun á
MSN-samtölum hans komu í ljós
bersögul samskipti hans og Jóns
Sverris eða „Nonna“. Brotamaður-
inn greiddi piltinum fyrir kynmök í
reiðufé og tölvuleikjum og nýtti sér
tölvufíkn hans og þroskaskerðingu.
Þá staðfesti Hæstiréttur 1,5 millj-
óna króna bætur til piltsins. Fang-
elsisdómur sem afbrotamaðurinn
hlaut í héraðsdómi var mildaður um
hálft ár. Af dómi Hæstaréttar má
ráða að refsingin hafi m.a. verið
milduð sökum þess hve lengi var ver-
ið að ljúka við gerð málsgagna og
senda Hæstarétti.
Kynferð-
isbrot
gegn pilti
Nýtti sér þroskaskerð-
ingu og tölvufíkn
Hæstiréttur
Íslands.