Morgunblaðið - 21.05.2010, Page 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010
✝ Jóhann ÁgústGuðlaugsson
fæddist á Kolsstöðum
í Miðdölum, Dala-
sýslu hinn 7. ágúst
1930. Hann lést á
heimili sínu í Kópa-
vogi laugardaginn 8.
maí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Guðlaugur Magn-
ússon, f. 31. ágúst
1893, d. 8. júní 1990,
bóndi á Kolsstöðum í
Dölum, og kona hans
Einbjörg Jóhanna
Magnúsdóttir, f. 3. sept. 1898, d.
23. okt. 1979. Jóhann átti eina syst-
ur, Mögnu Ingiríði, f. 16. feb. 1928,
d. 12. des 1969.
Eftirlifandi kona Jóhanns er
Steinunn Erla Magnúsdóttir, f. 5.
feb. 1937. Foreldrar hennar voru
Magnús Sigurðsson, f. 21. maí
1907, d. 17. júlí 1940, bóndi á Hól-
um í Reykhólasveit, A-Barð. og
kona hans Ingibjörg Pálsdóttir, f.
23. ágúst 1907, d. 1. mars 1973.
Synir Jóhanns eru: 1) Árni Har-
aldur Jóhannsson, f. 14. jan. 1953,
móðir Guðrún Lilja Árnadóttir, f.
6. ágúst 1934. Kona Árna (skildu)
var Þórhalla K.H. Grétarsdóttir, f.
29. nóv. 1954. Synir þeirra eru: a)
Guðmundur Viðar, f. 21. ágúst
1979, dóttir hans er Emilía Sól, f.
15. jan. 2002, móðir Guðrún Hösk-
uldsdóttir, f. 25. sept. 1981, og b)
Sigurður Jóhann, f. 14. des. 1982.
Eiginkona Árna er Sigrún Elfa
Ingvarsdóttir, f. 27. des. 1961. 2)
Bjarni Jóhannsson, f. 15. jan. 1958,
móðir Sigurbjörg Bjarnadóttir, f.
12. ágúst 1937, d. 10. feb. 2005.
Eiginkona Bjarna er Ingigerður
Sæmundsdóttir, f. 16. jan. 1969.
Börn þeirra eru: a) Bryndís, f. 19.
sept. 1990, b) Brynja, f. 19. sept.
1990, sonur Brynju er Jökull, f. 18.
nóv. 2008, faðir Ólafur Aron Ingva-
son, f. 6. jan. 1984, og
c) Sigurbergur, f. 28.
feb. 1999. Synir Jó-
hanns og Steinunnar
Erlu eru: 3) Gunn-
björn Óli Jóhannsson,
f. 13. des. 1962, sam-
býliskona hans (slitu
samvistir) var Erla
Björk Stefánsdóttir,
f. 16. nóv. 1969. Börn
þeirra: a) Steinunn
Margrét, f. 9. ágúst
1991, og b) Jóhann
Óli, f. 29. nóv. 1993.
Sambýliskona Gunn-
björns Óla er Freyja Ólafsdóttir, f.
8. ágúst 1969. Börn hennar eru:
Sveinn Ingi, f. 1990, og Ólafur
Andri, f. 1994. 4) Jóhann Guð-
laugur Jóhannsson, f. 31. jan. 1964,
börn: a) Arnar Steinn, f. 13. des.
1988, b) Jóhann Gunnar, f. 8. okt.
1995, c) Tómas Ingi, f. 16. des.
1999, og d) Eva María, f. 17. ágúst
2004.
Jóhann vann meðal annars við
vegagerð á sínum yngri árum. Árið
1955 stofnaði hann ásamt fjórum
öðrum Vestfjarðaleið. Vestfjarða-
leið var á sínum tíma frumkvöðull í
ferðaþjónustu og hafði sérleyfi á
fólksflutningum frá Reykjavík í
Dali og á Vestfirði ásamt því að
stunda hópferðaakstur víða um
land. Árið 1960 sagði Jóhann skilið
við fólksflutningaakstur og stofn-
aði ásamt 14 öðrum Vöruflutninga-
miðstöðina hf. sem var fyrsta fyr-
irtæki sinnar tegundar á Íslandi.
Hann stundaði um árabil, í eigin
nafni, vöruflutningaakstur í Dali
og á Barðaströnd. Einnig rak hann
fyrirtæki til fjölda ára sem starfaði
við verktakavinnu, vega- og mann-
virkjagerð, snjómokstur og fleira
allt til dauðadags.
Útför Jóhanns fer fram frá Nes-
kirkju í dag, 21. maí 2010, og hefst
athöfnin kl. 15.
Fyrstu minningar mínar um
pabba minn eru frá bernskuárum
vestur í Dölum en þá var hann í
fólksflutningum hjá Vestfjarðaleið
og var þetta svo mikilfenglegt í mín-
um barnsaugum að pabbi væri að
keyra rútu. Ég fékk oft að sitja í rút-
unum hans pabba og fékk einnig að
fara í braggana í Laugarnesinu en
þar var bækistöð Vestfjarðaleiðar og
þar gat ég verið í alvörubílaleik. Það
var alltaf svo gaman að hitta pabba
því ég leit svo upp til hans og þegar
ég var í Brautarholti í Dölum sem
snáði hljóp ég oft út á hlað þegar ég
heyrði í stórum bílum til að kíkja eft-
ir hvort pabbi væri á ferðinni. Ég
spurði gjarnan þá sem komu í hlaðið
hvort þeir hefðu nokkuð séð pabba
minn á leiðinni og spurðu þeir til
baka hver er pabbi þinn og sagði ég
þá með stolti, hann heitir Jóhann og
keyrir flutningabíl og þá var svarið,
ert þú sonur hans, hann er á leiðinni
við urðum samferða úr bænum.
Pabbi gat tafist á leiðinni vegna þess
að hann þekkti svo marga og kom við
á mörgum bæjum til að heilsa upp á
sína Dalamenn og skila af sér vörum.
Árin liðu og ég var mikið með pabba
eftir að hann kynntist Lillu og þau
eignuðust sitt heimili á Víðimelnum.
Þangað fór ég oft í heimsókn sem
endaði með því að hjálpa honum að
ferma vöruflutningabílana og fór síð-
an óteljandi ferðir með honum vest-
ur. Við komum alltaf við á Hreða-
vatni til að fá okkur hressingu og þar
voru höfðinglegar móttökur og mikið
fjör í eldhúsinu þegar pabbi birtist
og magnaðist þegar hann tók hlát-
urinn sinn. Ég fór mína fyrstu ferð á
Ísafjörð 10 ára gamall, en pabbi sá
um ölflutninga þangað. Þvílík leið,
þetta voru svo margir klukkutímar
og oft var ekki hægt að tala saman í
bílnum því hávaðinn í vélinni var svo
mikill þegar lagt var á heiðarnar, en
það var allt í lagi ég horfði bara stolt-
ur á pabba halda um stóra Benz-
stýrið öruggum höndum því hann
var flottasti bílstjórinn á Íslandi.
Næstu árin kom ég oft við á Víði-
melnum til að hitta Lillu, konu
pabba, og bræður mína og athuga
hvort ég fengi ekki að skreppa vest-
ur einn og einn túr. Þá fór að bera á
því að þegar við komum á bæina fyr-
ir vestan og stúlkur á mínu reki áttu
þar heima að foreldrar þeirra spurðu
kímnir á svip hvort þetta væri
tengdasonurinn. Þá brosti pabbi
bara sínu breiðasta, en hann kallaði
margar stúlkur á mínum aldri í þá
daga tengdadætur sínar þegar hann
hitti þær, en það var nú bara til gam-
ans gert.
Árið 1984 vorum við saman í tæpa
tvo mánuði við vegavinnu hjá Gunna
bróður vestur í Dölum og var hver
dagur ein skemmtun því þar sem bíl-
stjórar koma saman þar er gaman og
er þessi tími ógleymanlegur hjá okk-
ur. Pabbi fann upp á því seinni árin
að við bræðurnir og hann yrðum að
koma saman eina helgi að hausti og
fórum við víða í þeim helgarferðum.
Æskuslóðir í Dölunum, vestur á
firði, norður á æskuslóðir forfeðra
okkar í Víðidalnum svo eitthvað sé
nefnt og voru þessar ferðir nefndar
pabbahelgar af gárungum í Dölum.
Pabbi var alltaf mikið hraustmenni
og borðaði ekta íslenskan mat og sá
ég fyrir mér að hann yrði fjörgamall
eins og pabbi hans. En við vitum
aldrei hvenær kallið kemur og þegar
ég talaði við pabba fjórum dögum
fyrir andlátið var hann staðráðinn í
að ná heilsu á ný og drífa sig vestur
að vinna.
Elsku pabbi, ég kveð þig og bið
góðan Guð að geyma þig.
Árni Haraldur.
Kæri pabbi, gott er að minnast
allra góðu stundanna okkar í gegn-
um lífið. Þú hafðir alltaf mikið að
gera og vinnan var oft ofarlega í þín-
um huga en þrátt fyrir það varst þú
alltaf til staðar fyrir okkur strákana
þegar á þurfti að halda.
Þegar við uxum úr grasi minnk-
uðu samskiptin eins og gengur og
gerist en þú fylgdist samt alltaf vel
með okkur. Fyrir um tíu árum hóf-
um við að fara hinar árlegu feðga-
ferðir sem einnig gengu undir nafn-
inu pabbahelgar. Ferðirnar skiptu
þig miklu máli og þú lagðir ríka
áherslu á að fara þessar ferðir og
skipulagðir þær jafnan í þaula. Ferð-
irnar voru yfirleitt farnar um slóðir
ættfeðra okkar, en þar undir þú þér
best. Stundum voru ferðirnar tengd-
ar laxveiði í einhverja nærliggjandi
á. Veiðin var þó aldrei mikil en það
gerði ekkert til þar sem samveran og
félagsskapurinn skipti öllu máli .
Þú varst jafnan mjög duglegur og
vinnusamur. Vinnan og sveitin
skiptu þig miklu máli. Þú áttir far-
sælan starfsferil og naust mikillar
hylli meðal samherja og sveitunga.
Þú varst jafnan heilsuhraustur og
hélst góðu vinnuþreki alla tíð. Hin
síðari ár þurftir þú þó að láta laga
slitna liði enda búið að mæða mikið á
þeim alla tíð. Þú varst mjög meðvit-
aður heilsuna og lést laga það sem úr
sér var gengið að vetri og varst kom-
inn aftur í vinnu þegar verktakaver-
tíðin byrjaði að vori.
Fyrirtækin þín rakstu af alúð og
stolti. Starfsemin óx og óx sem og
tækin og fjöldi starfsmanna. Fyrr í
vetur lentir þú í umferðaróhappi
vestur í Dölum. Í fyrstu leit út fyrir
að þú hefðir ekki orðið fyrir alvar-
legum meiðslum. Því miður varstu
óheppinn í þetta skiptið og þú veikt-
ist heiftarlega í kjölfarið. Þú sagðir
okkur frá þeirri upplifun þinni að
þegar þú varðst sem veikastur hefðir
þú fengið að skoða aðstæður á æðri
stöðum en þér var þó leyft að snúa
aftur til baka til okkar. Þú varst
greinilega ekki tilbúinn að yfirgefa
þetta líf í það skiptið en þú lýstir því
gjarnan fyrir okkur hvað fyrir augu
og eyru bar. Það var ekki að finna
fyrir ótta hjá þér um það er koma
skyldi og þú tókst hlutunum af miklu
æðruleysi. Þú virtist sáttur. Með það
í huga kveðjum við þig vissir um að
þú hafir það gott í faðmi ættingja og
vina og hafir fengið jafn höfðingleg-
ar og skemmtilegar móttökur og þú
lýstir fyrir okkur í fyrri ferð þinni í
vetur.
Elsku pabbi, við þökkum fyrir
okkur.
Bjarni, Gunnbjörn og Jóhann.
Ung að árum kom móðir mín í
kaupavinnu að Kolstöðum í Miðdöl-
um til sæmdarhjónanna Jóhönnu og
Guðlaugs sem þar bjuggu og tókst
mikið og gott vinasamband sem hef-
ur færst í næsta ættlið því milli mín
og sonar þeirra Jóhanns, sem í dag
er kvaddur, hefur verið órofa vina-
samband og kveð ég góðan vin sem
alltaf fylgdist með mér sem ég mat
mikils en við vorum hjá sama sjúkra-
þjálfara og oft að bera saman árang-
urinn sem við töldum hjálpa okkur.
Við töluðum síðast saman fimmtu-
daginn 6. þ.m. um þjálfun sem hann
var í þennan dag. Ekki hvarflaði að
mér að þetta væri okkar síðasta sam-
tal en á laugardeginum kom kallið,
tímaglasið útrunnið.
Nú að leiðarlokum rifjast margt
upp, til dæmis að redda hvor öðrum
fötum ef þörf var við vissar aðstæð-
ur. Jói var afskaplega duglegur í
sínu lífsstarfi sem áætlunarbílstjóri
og meðeigandi Vestfjarðaleiða og
síðar sá hann um vöruflutninga um
Dali og A-Barð. Eina ferð fór ég með
honum ásamt Árna syni hans til Ísa-
fjarðar með hlaðinn bíll af öli og
hleðslustein til baka. Þegar við fór-
um frá Bjarkarlundi sagði Jói: „Nú
eigum við eftir að fara yfir níu heið-
ar.“ Þetta sýnir að það þurfti þrek-
skrokk í þá daga til að stunda þessi
störf. Frá vöruflutningum færði
hann sig yfir í vörubíla- og gröfuút-
gerð en nú seinni ár hefur sonur
hans Gunnbjörn komið inn í rekst-
urinn sem rekinn er af myndarskap.
Árið 1985 lenti Jói í bílslysi þegar
hann ásamt syni sínum var á leið
vestur í Dali í jarðarför móður minn-
ar. Segja má að þetta slys hafi haft
áhrif á hann sem eftir var. En áfram
var haldið; að gefast upp var ekki
hans. En einn var Jói ekki því við hlið
hans var hans trausti lífsförunautur,
hún Lilla, sem varla var hægt að
hugsa sér betri stoð og styttu í öllu
sem á mannsævi getur gerst, hin
hógværa og trausta kona.
Mikið á maður eftir að sakna gjall-
andi hláturs og hressileika þessa
heiðursmanns. Ég á svo margar ljúf-
ar og góðar minningar um mann sem
ætlaði að koma vestur á næstunni og
kíkja í kaffi og ræða um væntanlegar
sveitarstjórnarkosningar og fleira
sem í umræðuni var. Það vantaði
aldrei umræðuefni hjá okkur. En því
miður, þetta er staðan. Kallið var
komið, við verðum að sætta okkur
við það.
Ég og fjölskylda mín kveðjum
góðan vin sem setti svip á okkar
samfélag. Elsku Lilla, Hanni, Gunni,
Árni, Bjarni og aðrir ástvinir, inni-
legar samúðarkveðjur. Minningin
lifir.
Baldvin Guðmundsson.
Kær vinur okkar er látinn, Jóhann
Á. Guðlaugsson frá Kolsstöðum, allt-
af kallaður Jói Guðlaugs eða Jói Kol-
ur. Leópold lýsir þeirra fyrstu kynn-
um: „Vegavinnumenn unnu við að
fylla að nýrri brú á Miðá í Dalasýslu.
Í hópinn kom Jói, 16 ára piltur úr
sveitinni. Hann féll einkar vel inn í
hópinn. Hláturmildur, brosandi,
fjörugur og til í smágrallaraskap til
að létta lundina. Viljugur til verka,
sterkur, hraustur og alltaf tilbúinn
að rétta hönd. Hann varð mér strax
minnisstæður. Næst hittumst við
sem vélamenn á Holtavörðuheiði.
Grunnur var lagður að ævilangri,
traustri og hlýrri vináttu“. 10. apríl
1960 fluttum við Leópold með aleig-
una í Hreðavatnsskála á litlum láns-
vörubíl, með tvö lítil börn í framsæt-
inu. Undir Hafnarfjalli mættum við
vörubíl. Hann stöðvaði, rúður voru
skrúfaðar niður og bílstjórarnir
spjölluðu saman í rólegheitum. Vel
greiddur gæi varaði okkur við kulda
í Norðurárdalnum og í Skálanum,
sem var búinn að vera mannlaus um
tíma. Hann óskaði okkur síðan alls
góðs með fyrirtækið og kvaddi með
gamanyrðum og hlátri. Þarna sá ég
og heyrði í Jóa Guðlaugs í fyrsta sinn
og er það mér minnisstætt. Ævistarf
Jóa var akstur eigin vörubíla í vega-
vinnu og vöruflutningum vestur í
Dali og um Vestfirði eftir að akvegur
kom. Hann var einstakur greiðamað-
ur og lipur í samskiptum og naut
þess í sínu starfi. Starf langferðabíl-
stjóra var ekki alltaf auðvelt. Hlaða
þurfti bílana og afferma með hand-
afli og afgreiða vörur á marga bæi og
í mörg þorp. Menn voru yfirleitt ein-
ir á ferð og dagleiðir voru langar.
Vetrarferðir voru oft miklar þrek-
raunir. Vond veður, hálka og snjó-
mokstur enginn eða óviss. Þegar
hlýtt var orðið í Hreðavatnsskála,
heitt á könnunni og matur til reiðu
fyrir svanga urðu margir bílstjórar
heimagangar hjá okkur. Jói var einn
þeirra. Hann var hrókur alls fagn-
aðar og hló hátt og smitandi. Allur
gleðskapur og allar veislur þóttu
betri ef hann var mættur. Honum
fylgdu margir Dalamenn sem urðu
tryggir viðskiptavinir Skálans. Frá
stóra eldhúsborðinu barst oftar en
ekki fullt af ferðasögum og upplýs-
ingum um færð, mannlíf, landshætti
og framkvæmdir. Margar sögur
sagði Jói af erfiðum ferðum yfir
Bröttubrekku: Eitt sinn var hann á
vesturleið. Óvíst var um færðina en
hann fór samt. Eftir góðan tíma
sagði Leópold: „Ég ætla að athuga
hvort Jói hefur komist yfir.“ Upp
undir Bjarnadalsárbrú sá hann Jóa
koma gangandi niður hlíðina á móti
sér. Hann hafði misst bílinn út af. Er
þeir mættust sagði Jói: „Ég vissi al-
veg að þú kæmir.“ Stundum voru
þeir svo samhuga. Eftir að við hætt-
um veitingarekstri kom Jói oft við.
Hann sagði okkur fréttir – aldrei
ljótt um neinn heldur létt grín um
sjálfan sig og aðra. Eftir að við flutt-
um suður var síminn notaður til að fá
fregnir af líðan okkar. Óvenjutrygg-
ur og ljúfur vinur hefur kvatt. Við er-
um þakklát fyrir langa samfylgd. Við
óskum honum góðrar ferðar í hans
hinstu för. Nú ekur hann á Guðs veg-
um þar sem engin er Brattabrekka,
snjór eða hálka – aðeins bros og
hlýja.
Samúðarkveðjur frá fjölskyldu
okkar.
Olga og Leópold.
Mín kynni af Jóhanni Á. Guðlaugs-
syni frá Kolsstöðum í Miðdölum, eða
Jóa kol í Búðardal eins og hann er
betur þekktur eru ekki áratuga löng
enda ég ekki margra áratuga gamall.
Það truflaði hinsvegar ekki Jóa að
ræða málin við mig, unga manninn,
fyrir honum vorum við jafnir.
Ég man fyrst eftir Jóa Kol á ferð-
inni í Reykjavík, á Volvo-vörubíl
þegar ég var lítill patti. Þá bjuggu
þau Steinunn á Dunhaganum. Jói
lagði alltaf vörubílnum rétt hjá heim-
ili mínu vestur í bæ. Þá þótti mér,
ungum bílaáhugamanni, alltaf
spennandi að hjóla til að skoða bílinn
sem stóð í hverfinu og var venjulega
hlaðinn af timbri, áburði eða öðrum
varningi fyrir bændurna fyrir vest-
an. Þurfti að sjálfsögðu að rannsaka
hann nákvæmlega og spjalla við eig-
andann.
Jói kolur var alla sína tíð viðloð-
andi bílaútgerð en hann var meðal
annars einn af stofnendum Vest-
fjarðaleiðar árið 1955. Þá var ekið
frá Reykjavík vestur á firði sem var
nú ekki fyrir hvern sem er á þeim
tíma. Síðar gerði Jói út flutningabíla
vestur í Dali og Austur-Barða-
strandarsýslu. Jói var meðal annars
einn af stofnendum Vöruflutninga-
miðstöðvarinnar í Borgartúni sem
rekin var þar í hartnær 40 ár.
Þrátt fyrir að vera kominn fast að
áttræðu þreyttist Jói ekki á að taka
þátt í daglegum rekstri síns fyrir-
tækis enda hress og kátur, sama
hvernig stóð á. Alltaf var hann á
vaktinni að finna ný verkefni, sama
hvort þau voru í flutningum eða jarð-
vinnu. Stundum fannst honum við
ungu mennirnir vera fullrólegir í tíð-
inni að þefa uppi verkefni.
Við Jói töluðum oft saman og þá
helst að spjalla um hvernig væri best
að nýta tækin í tengslum við verk-
efnin sem lágu fyrir hverju sinni.
Marga hringi gat sú umræða tekið,
við verið gjörsamlega ósammála til
að byrja með en alltaf enduðu okkar
samtöl á því að öðrum okkar tókst að
sannfæra hinn um ágæti hugmynd-
arinnar. Svo má aftur deila um það
hvort allar hugmyndirnar hafi verið
góðar hjá okkur. En aldrei upplifði
ég kynslóðabil enda bar Jói fulla
virðingu fyrir mínum hugmyndum
og reyndi heldur að koma með at-
hugasemdir hins reynda manns þeg-
ar honum fannst nóg um.
Ég læt þessi fáu orð um vin minn
frá Kolsstöðum nægja. Ég votta ást-
vinum hans mína dýpstu samúð. Guð
blessi minningu Jóhanns Á. Guð-
laugssonar.
Böðvar Sturluson
Mig langar að heiðra minningu Jó-
hanns í örfáum orðum. Jóhanni og
Steinunni konu hans kynntist ég fyr-
ir rúmum 22 árum þegar við Bjarni
fórum að vera saman. Jói var ávallt
hress, talaði hátt og hló með hvellum
hlátri. Hann fór sínar eigin leiðir og
var sjálfstæður maður. Jói var stolt-
ur af uppruna sínum í Dölunum og
var gaman að heyra hann rifja upp
gamla tíma og segja frá mönnum og
af ævintýrum sem hann hafði lent í.
Í fyrrasumar fór fjölskyldan á
ættarmót fyrir vestan sem var mjög
skemmtilegt. Jói var þar hrókur alls
fagnaðar og naut sín vel á meðal ætt-
ingja.
Við Jói fórum um Suðurlandið í
tengslum við prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins 2009 að hitta sjálfstæðis-
menn sem hann þekkti. Það var
skemmtilegur rúntur í kringum
Hveragerði, Selfoss og nágrenni.
Honum fannst gaman að hitta vini og
kunningja og var vel tekið á móti
okkur.
Áætlað var að halda upp á 80 ára
afmælið hans í sumar og vera saman
heila helgi. Því miður verður Jói ekki
meðal vor en minning hans lifir.
Undir Dalanna sól, við hinn einfalda óð
hef ég unað við kyrrláta för,
undir Dalanna sól hef ég lifað mín ljóð,
ég hef leitað og fundið mín svör,
undir Dalanna sól hef ég gæfuna gist,
stundum grátið en oftast í fögnuði
kysst.
Undir Dalanna sól á ég bú mitt og ból
og minn bikar, minn arin, minn svefn-
stað og skjól.
(Hallgr. Jónsson frá Ljárskógum.)
Elsku Steinunn, Árni, Bjarni,
Gunni og Hanni, ég votta ykkur sam-
úð mína, minning um góðan dreng
lifir.
Ingigerður.
Jóhann Ágúst
Guðlaugsson