Morgunblaðið - 12.06.2010, Síða 2

Morgunblaðið - 12.06.2010, Síða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Ný og endurbætt útgáfa Handhæg t ferðakort Hljóðbók Arnar Jón sson les 19 þjó ðsögur Nýr ítarle gur hálendisk afli Hafsjór af fróðleik um land og þjóð Gamla bókin tekin upp í á kr. 1.000 Aðeins í bókaverslunum - Ekki á bensínstöðvum Vegahandbókin sími: 562 2600 Egill Ólafsson egol@mbl.is Sigurður Kári Kristjánsson og 15 aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um rannsókn á embættisfærslum og ákvörðunum íslenskra stjórnvalda og samskiptum þeirra við bresk og hollensk stjórnvöld vegna innstæðna í útibúum Landsbanka Íslands hf. á Evrópska efnahagssvæðinu. Tillagan gerir ráð fyrir að þremur sérfræðingum verði falið að rannsaka málið og að þeir skili skýrslu um næstu áramót. Sigurður Kári sagði í samtali við Morgunblaðið að flutningsmenn væru ekki þeirrar skoðunar að ekki mætti semja um lyktir Icesave-máls- ins. „Hins vegar teljum við að stjórn- völd hafi í þeim samningum sem gerðir voru hvorki gætt hagsmuna íslenska ríkisins með þeim hætti sem þeim bar né hafi þau virt þau sam- eiginlegu viðmið sem þingsályktun- artillagan frá 5. desember 2008 mælti fyrir um að ætti að vera grundvöllur samningsniðurstöðu.“ Sigurður Kári sagði óumdeilt að Icesave-málið varðaði einhverja mestu þjóðarhagsmuni sem þjóðin hefði staðið frammi fyrir. Skoða þarf það sem gerðist eftir hrun Fjallað er um Icesave-málið í rannsóknarskýrslu Alþingis. Sigurð- ur Kári sagði að sú umfjöllun væri góð og gild. Nefndin færði með kerf- isbundnum lögfræðilegum hætti röksemdir fyrir því að íslenska rík- inu bæri engin lagaleg skylda til þess að ábyrgjast þessar kröfur. Hann sagði að það væri hins vegar ástæða til að skoða ítarlega það sem gerðist eftir hrun og hvernig stjórnvöld gættu hagsmuna Íslands. Rannsaka þyrfti hvers vegna íslensk stjórnvöld hefðu, þrátt fyrir allt sem kæmi fram í skýrslunni, undirritað lánasamn- inga í tvígang og lagt fram frumvörp til að afla sér ríkisábyrgðar á þeim. Sigurður sagði einnig ástæðu til að skoða ummæli sem féllu opinberlega og á Alþingi sem bentu til þess að lánasamningarnir hefðu verið undir- ritaðir þrátt fyrir að fyrir hefði legið að ekki væri þingmeirihluti fyrir málinu. Tillagan gerir ráð fyrir að nefndin fái aðgang að öllum gögnum stjórnvalda, þ.m.t. fundargerðum, minnisblöðum og greinargerðum, sem varpað geta ljósi á rannsókn- arefnið. Jafnframt er gert ráð fyrir að allir sem að málinu komi skuli verða við kröfum nefndarinnar um að láta henni í té upplýsingar. Rannsókn á Icesave-málinu  Sextán alþingismenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram þingsályktunartillögu um rannsókn á Icesave-málinu og samskiptum við bresk og hollensk stjórnvöld Gagnrýna stjórnvöld » Flutningsmenn telja að með undirritun lánasamnings hafi stjórnvöld farið út fyrir umboð sitt. » Þeir telja líka að stjórn- völd hafi fallið frá lagalegum rétti sínum og þannig skaðað hagsmuni þjóðarinnar. Tjaldborg var sett upp á Austurvelli í gær en samskon- ar tjaldborg reis þar á sama degi fyrir ári. „Það er súr- realískt að mótmæla því sama með ársmillibili. Ári seinna er staðan eins, ef ekki verri,“ segir Arndís Ein- arsdóttir, einn mótmælenda. Markmiðið hafi verið að mótmæla úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar í málefnum heimilanna. Helga Þórðardóttir sem var efst á lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík í nýafstöðnum kosn- ingum var á Austurvelli. „Tjaldborgin er 51. úrræðið hennar Jóhönnu,“ segir Helga og vísar þar til orða for- sætisráðherra sem hefur sagt að gripið hafi verið til 50 úrræða fyrir heimilin. „Tjaldborgarstaðan er tekin vegna þess að engin úrræði hafa komið fram sem eru varanleg eða nýtanleg. Og á fjórum dögum ætlar þing- ið að húrra í gegn ársvinnu af úrræðum, segir Ásta Hafberg mótmælandi. Nokkrir tugir mótmælenda tjölduðu á Austurvelli í gær og er ætlunin að reisa tjald- borgina að nýju í dag. Tjaldað á Austurvelli á ný Morgunblaðið/Golli Af þeim 500 milljónum sem ríkis- stjórnin áformar að fari til viðhalds opinberra fasteigna fara 200 millj- ónir til stofnana sem heyra undir menntamálaráðuneytið og 200 milljónir til stofnana heilbrigðis- ráðuneytisins. Ekki er búið að ákveða nákvæm- lega hvaða fasteignir verða lag- færðar í þessu átaki sem öðrum þræði er hugsað til að skapa vinnu fyrir iðnaðarmenn. Ekki liggur heldur fyrir hvenær hægt verður að ráðast í þessi verkefni. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra kynnti þetta mál á ríkisstjórnarfundi í gær en málið tengist vinnu við gerð fjárlaga næsta árs. Fjármálaráðherra stefn- ir að því að kynna stöðu ríkisfjár- mála fyrir Alþingi í næstu viku en ljóst er að skera þarf verulega nið- ur í útgjöldum ríkissjóðs ef mark- mið um hallalaus fjárlög árið 2013 á að nást. egol@mbl.is 500 milljónir til endurbóta á opin- berum húsum Hlynur Orri Stefánsson Egill Ólafsson Stjórn og stjórnarandstaða eru ná- lægt því að ná samstöðu um frum- varp um stjórnlagaþing, segir Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Annarri umræðu um frumvarpið lauk í gær og sam- komulag er um að afgreiða málið fyrir þinglok. Ólöf Nordal, þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, segir að flokk- ur sinn sé áfram á móti frumvarpinu en hann vilji þó reyna að bæta það. „Við ætlum okkur ekki að láta menn komast upp með að drepa það mál eina ferðina enn,“ sagði Stein- grímur. „Það eru miklar væntingar til þess úti í þjóðfélaginu að þjóðin sjálf komi beint að því að fjalla um nýja stjórnarskrá og það er miklu meira en löngu tímabært að við kom- umst eitthvað áleiðis með það mál.“ Frumvarpið var tekið af dagskrá þingsins á miðvikudag, eftir að stjórnarandstaðan tafði málið, en þingmenn hennar sögðu nauðsyn- legt að ræða frumvarpið betur. Sjálfstæðismenn lögðu fram til- lögu um að komið yrði á fót sjö manna stjórnskipaðri nefnd sem hefði það hlutverk að undirbúa breytingar á stjórnarskránni. Ólöf sagði að sjálfstæðismenn vildu með þessu reyna að bæta þetta mál. „Það breytir engu um það að við erum á móti þessu stjórnlagaþingi. Alþingi hefur sjálft vald til að breyta stjórn- arskránni og því ber að sinna því hlutverki og gera nauðsynlegar breytingar á stjórnarskránni.“ Eins og frumvarpið lítur út núna mun þessi nefnd undirbúa tillögur og safna gögnum um stjórnarskrár- málefni sem lögð verða fyrir stjórn- lagaþing en hlutverk þess verður að ræða breytingar á stjórnarskrá. Þingið kemur til með að starfa í tvo mánuði. Tillögur stjórnlagaþingsins fara síðan til Alþingis sem tekur endanlega ákvörðun. Breyta tillögu um stjórnlagaþing  Stjórnskipuð nefnd fari yfir tillögur Steingrímur J. Sigfússon Ólöf Nordal „Nú höfum við náð því takmarki að hafa sama rétt og allir aðrir í land- inu. Lagalega séð þá er ekkert eftir á borðinu hvað varðar samkyn- hneigða,“ segir Svanfríður Lár- usdóttir formaður Samtakanna 78. Ný hjúskaparlög sem gilda um hjúskap tveggja einstaklinga en ekki bara hjúskap karls og konu, voru af- greidd á Alþingi í gær. Alls sam- þykktu 49 þingmenn lögin en 14 voru fjarstaddir. Tilgangurinn með lögunum er að afmá mun sem felst í löggjöf vegna hjúskapar karls og konu annars vegar og stað- festrar samvistar tveggja einstak- linga af sama kyni hins vegar. Lög um staðfesta samvist verða felld úr gildi. „Við Íslendingar erum nú ein af fáum þjóðum í heiminum sem hafa náð svona langt hvað varðar mann- réttindi fyrir þennan hóp. Við erum auðvitað voðalega hamingjusöm og þakklát íslensku þjóðinni fyrir stuðninginn. Þjóðin hefur sýnt það að hún vill skipa sér á fremsta bekk í mannréttindamálum samkyn- hneigðra,“ segir Svanfríður. Ný hjúskaparlög taka gildi 27. júní á alþjóðlegum baráttudegi sam- kynhneigðra. Þann dag verður sér- stök regnbogamessa í Fríkirkjunni til að fagna gildistöku laganna. „Höfum náð takmarkinu“  Ný lög tryggja hommum og lesbíum sama rétt og öðrum  Formaður Samtakanna 78 óskar þjóðinni til hamingju Svanfríður Lárusdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.