Morgunblaðið - 12.06.2010, Síða 6

Morgunblaðið - 12.06.2010, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010 Útför Péturs Sigurgeirssonar biskups var gerð frá Hallgrímskirkju í gær. Séra Kristján Valur Ingólfsson og Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís- lands, jarðsungu, en dr. Pétur Pétursson las ritn- ingarlestur. presta alla í sinni biskupstíð. Pétur gegndi emb- ætti biskups Íslands frá árinu 1981 til 1989, en þar á undan var hann vígslubiskup Hólabisk- upsdæmi í 12 ár. Pétur var vígður prestur á Ak- ureyri og starfaði þar uns hann varð biskup. Líkmenn voru prestarnir Örn Bárður Jónsson, Yrsa Þórðardóttir, Þórhildur Ólafs, Pálmi Matt- híasson, Gunnlaugur Garðarsson, Solveig Lára Guðmundsdóttir, Karl V. Matthíasson og Jón Helgi Þórarinsson. Pétur biskup vígði þessa Morgunblaðið/Eggert Prestar báru kistu Péturs Sigurgeirssonar Metfjöldi sótti um nám við Háskóla Ís- lands fyrir næsta vetur. Á níunda þús- und umsóknir bárust Háskólanum, samkvæmt tölum sem birtar voru í gær, og fjölgar umsóknum um 18% á milli ára. Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, segir fjölgunina koma á óvart, sér í lagi í ljósi þess að nýstúdentaárgang- urinn er heldur minni en í fyrra. Þá bendir hún á að síðasta haust fjölgaði umsóknum um 20% frá árinu áður, en áramótin þar á undan hafði nem- endum einnig fjölgað talsvert í kjölfar þess að bankakerfið íslenska hrundi. Umsóknum fjölgaði á flestum svið- um, en mest á heilbrigðissviði. Um- sóknum um meistaranám fjölgaði um 32%, en umsóknum um grunnnám um 12%. Svipaða sögu er að segja af Háskól- anum á Akureyri, en skólanum hafa borist 1.100 umsóknir fyrir næsta skólaár. Aldrei hafa fleiri sótt um nám við skólann, en um 1.500 nem- endur voru við skólann síðasta vetur. hlynurorri@mbl.is Mikil fjölgun um- sækjenda kemur rektor á óvart Fjölgun umsókna í HÍ 20% 2009: 18% 2010: Háskóli Íslands, Íslensk erfðagrein- ing og Landspítali hafa gert með sér samkomulag um stofnun Mannerfða- fræðistofnunar, nýrrar rannsókn- arstofnunar sem ætlað er að verða vettvangur rannsókna á sviði mann- erfðafræði og stuðla að aukinni sam- vinnu innan vísindasamfélagsins. Þegar hefur verið hafist handa við undirbúning að fyrsta langtímaverk- efninu sem unnið verður innan hinn- ar nýju rannsóknarstofnunar þar sem könnuð verða kerfisbundið tengsl milli arfgerða og hinna ýmsu svipgerða (eiginleika) mannsins, s.s. erfðastjórnar minnis, hlutfallslegs vægis erfða og umhverfis í tjáningu þess. Stefnt er að því að stofnunin verði leiðandi á sínu sviði á hér á landi sem og á heimsvísu. Hún byggir á þeim orðstír sem Íslensk erfðagreining hefur skapað sér í samvinnu við vís- indamenn Háskóla Íslands og Land- spítala og mun leitast við að vernda hann og efla, segir í fréttatilkynn- ingu. Stofnun um rannsóknir í mannerfðafræði Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Við höfum af þessu miklar áhyggjur. Þetta mun leggjast þungt á sveitarfélögin,“ segir Hall- dór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, um þann aukna fjölda fólks sem missir rétt til atvinnuleysisbóta, eftir þrjú ár á slíkum bótum samfellt, og á þá rétt á fjárhags- aðstoð frá sveitarfélögunum. Sú grunnfjárhags- aðstoð er mismikil eftir sveitarfélögum en er þó í öllum tilvikum nokkru lægri en atvinnuleysis- bætur eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær. Með auknu langtímaatvinnuleysi er hætt við að æ fleiri missi rétt á atvinnuleysisbótum og þurfi þá á meiri aðstoð sveitarfélaganna að halda. „Stærsti hluti af rekstrarkostnaði sveit- arfélaga er launakostnaður. Þar af leiðir að sú gríðarlega hækkun sem hefur orðið á trygging- argjaldinu lendir hlutfallslega mjög þungt á sveitarfélögunum. Hækkun á tryggingargjald- inu varð svo til þess að greiða þurfti hærri at- vinnuleysisbætur. Sveitarfélögin hafa verið að hagræða í rekstri hjá sér með því að verja grunnþjónustuna. Með þessu er verið að færa aukinn hluta grunnþjón- ustunnar til sveitarfélaga. Það er algjör grunn- þjónusta að fólk hafi framfærslu,“ segir Halldór og bendir á að þessi mál hafi komið til tals í við- ræðum við ríkisstjórnina um stöðugleikasátt- málann. Samkvæmt nýlegri skýrslu Hagstofunnar fengu nærri sex þúsund manns fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögunum á síðasta ári. Þar af voru um 2.300 á atvinnuleysisskrá og af þeim fjölda um 1.300 manns án bótaréttar. Heildarútgjöld sveitarfélaganna vegna fjárhagsaðstoðar námu um 2,2 milljörðum króna árið 2009, borið saman við 1,7 milljarða árið 2008. Ef fram heldur sem horfir gæti kostnaðurinn aukist um rúman millj- arð króna á næsta ári. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir að stjórnvöldum sé vel kunnugt um þennan vanda og hann hafi verið ræddur við talsmenn sveitarfélaga og vinnumarkaðarins. Ásamt þeim aðilum verði farið yfir stöðuna í almannatrygg- ingakerfinu í sumar, m.a. reglur um missi at- vinnuleysisbóta og skerðingu á réttindum. Leggst þungt á sveitarfélögin  Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir þau misvel í stakk búin til að taka við þeim fjölda fólks sem misst hefur rétt til atvinnuleysisbóta Hlynur Orri Stefánsson hlynurorri@mbl.is „Það liggur alveg fyrir að bæði 2010 og 2011 verða okkur mjög erfið,“ segir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Eftir fund ríkisstjórnarinnar í gær sagði Katrín útlit fyrir að framlög til fram- haldsskóla yrðu skorin niður um 5,5% á næsta ári og framlög til há- skólanna um 7,5% til 8%. Niðurskurðurinn mun eflaust reynast skólunum erfiður. Útlit er fyrir metfjölda nemenda við háskóla landsins næsta vetur (sjá frétt hér til hliðar), en næsta ár verður það þriðja í röðinni þar sem þeir þurfa að mæta niðurskurðarkröfu. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há- skóla Íslands, segir að háskólinn hafi verið búinn undir að framlög yrðu áfram skorin niður. Fjölgun um- sækjenda hafi hins vegar komið stjórnendum skólans á óvart. Aðspurð hvort Háskólinn geti skorið enn meira niður, segir hún: „Það er náttúrulega orðið mjög erfitt og þetta kemur niður á starfsfólki, sem fær minni tekjur þrátt fyrir auk- ið álag. Við erum í því núna að fara í gegnum allan rekstur og skipulag skólans því við erum staðráðin í að standa þetta af okkur. Við höfum lagt allt kapp á að þetta bitni ekki á náminu, en í samtölum við nemendur kemur í ljós að þeir finna helst fyrir niðurskurðinum í því að það eru færri valnámskeið í boði.“ Í fyrra tóku stjórnvöld tillit til þeirrar fjölgunar sem varð á skráðum nemendum og endaði hagræðingarkrafan því í rúm- um 2 prósentustigum. Vonast Kristín til að slíkt hið sama verði gert í ár. Hlutfallslega verð- ur niðurskurðurinn víða enn meiri, enda þarf að stoppa í rúmlega 40 millj- arða króna fjárla- gat. Stjórnvöld hyggjast gera það með því að skera niður um rúmlega 30 milljarða og auka tekjur ríkisins um ellefu til tólf milljarða. Ekki almennar skattahækkanir Síðastnefnda markmiðinu verður að sögn Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra náð með „sértæk- um“ tekjuöflunaraðgerðum sem bitna ekki á almenningi. Með öðrum orðum verða almennir skattar ekki hækkaðir en búast má við því að t.d. álögur á atvinnulífið hækki þeim mun meira í staðinn. Ekki verður farið í flatan niður- skurð, segir fjármálaráðherra, held- ur reynt að hlífa grunnþáttum á borð við velferðar-, mennta- og löggæslu og heilbrigðismálum. „Það þýðir á hinn bóginn að aðhaldskrafan verður mjög rík á aðra,“ segir Steingrímur. Loks bendir hann á að samdráttur íslenska hagkerfisins hafi verið minni en spáð var og vaxtakostnaður lægri og því þurfi ekki að fara í eins harkalegar aðhaldsaðgerðir og búist hafði verið við. Hækka „sértæka“ skatta en vilja hlífa almenningi  Niðurskurður hjá háskólum þriðja árið í röð en nemum heldur áfram að fjölga Stærsta einstaka hagræðing- araðgerðin sem ríkið getur ráð- ist í er að samþætta velferð- arþjónustuna og stofna eitt velferðarráðuneyti úr félags- og heilbrigðisráðuneytinu, segir Steingrímur J. Sigfús- son fjármálaráðherra. Einnig má spara mikið með sameiningu annarra ráðu- neyta eins og rætt hefur verið um, segir hann, en aldrei hafi staðið til að klára þær á því þingi sem senn fer að ljúka. Einungis sé verið að kynna hug- myndirnar sem nú fari í „víðtækt samráðsferli.“ Sameiningar spara mest EKKI LOKIÐ Á ÞESSU ÞINGI Kristín Ingólfs- dóttir rektor Í umfjöllun um tímabil réttar til greiðslu atvinnuleysisbóta sem birtist á forsíðu Morgunblaðsins í gær kemur fram að rúmlega þúsund manns missi þann rétt á næstu þrjú hundruð dögum. Um er að ræða þrjú hundruð greiðsludaga, en ekki alla daga vik- unnar, að því er fram kemur í ábend- ingu frá Vinnumálastofnun. Í einum almanaksmánuði eru tæpir tuttugu og tveir greiðsludagar og tímabilið því lengra en frétt Morgunblaðsins gaf til kynna. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. Leiðrétting: Greiðslu- dagar ekki allir dagar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.