Morgunblaðið - 12.06.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010
Ríkisútvarpið sendi yfirvöldumbréf á dögunum. Um það segir
AMX: „Stjórn Ríkisútvarpsins ber
sig nú illa yfir kröfum um niður-
skurð hjá stofnuninni og kveðst vera
komin „að ystu mörkum“. Stjórnin
kveðst vart geta sinnt „lýðræðis-
legum öryggisjónarmiðum“ vegna
sparnaðar og niðurskurðar.
Smáfuglarnirálíta að þeir
sem eyði á hverju
ári nokkrum tug-
um milljóna
króna í að senda
út vikulegan
áróðursþátt bar-
áttumannsins Eg-
ils Helgasonar,
sem hikar ekki við að fylla þáttinn af
skoðanabræðrum sínum helgi eftir
helgi eftir helgi eftir helgi – og stýr-
ir þar umræðum um sömu menn og
hann hefur áður rægt dag eftir dag
á vefsíðu sinni – geti varla haft mikl-
ar áhyggjur af „lýðræðislegum ör-
yggissjónarmiðum“ eða peninga-
leysi.
Af einhverjum óskiljanlegumástæðum fær Egill Helgason að
valsa um Ríkisútvarpið eins og hann
eigi það og boða kenningar sínar
vikulega ár eftir ár, án nokkurs að-
halds eða mótvægis. Það er ekki að
ástæðulausu sem sumir kalla Út-
varpshúsið Egilshöll.
Páll Magnússon hreyfir auðvitaðhvorki legg né lið til að hemja
Egil enda mun Páll ekki hafa hreyft
annað en barkakýlið eftir að hann
hóf störf sem þjónn hjá starfs-
mannafélagi Ríkisútvarpsins.
Ríkisútvarpið er vissulega komið
„að ystu mörkum“ að því er „lýð-
ræðisleg öryggissjónarmið“ varðar.
En það er ekki af sömu ástæðum og
það lætur.“
Staksteinum þykja smáfuglar talaóvarlega til Páls Magnússonar.
Ekki má gleyma því að hann er eina
sjónvarpsþulan sem eftir er.
Við ystu mörk
Veður víða um heim 11.6., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 13 léttskýjað
Akureyri 12 heiðskírt
Egilsstaðir 9 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 17 léttskýjað
Nuuk 9 skýjað
Þórshöfn 9 alskýjað
Ósló 12 skúrir
Kaupmannahöfn 14 skýjað
Stokkhólmur 13 skýjað
Helsinki 13 skúrir
Lúxemborg 24 heiðskírt
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 18 skýjað
Glasgow 16 léttskýjað
London 18 léttskýjað
París 24 léttskýjað
Amsterdam 14 skýjað
Hamborg 23 léttskýjað
Berlín 27 heiðskírt
Vín 32 skýjað
Moskva 15 þoka
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 17 skýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 28 heiðskírt
Aþena 29 heiðskírt
Winnipeg 15 alskýjað
Montreal 17 alskýjað
New York 19 alskýjað
Chicago 28 alskýjað
Orlando 32 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
12. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:00 23:56
ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:16 23:39
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Baldvin Oddsson er einn yngsti
nemandi sem lýkur einleikaraprófi
hér á landi, en hann er aðeins 15
ára gamall. Vanalega eru þeir
nemendur um tvítugt sem ljúka
slíku prófi. Baldvin fékk hæstu ein-
kunn þegar hann lauk 6. stigi í
trompetleik fyrir skemmstu og
ákváðu kennarar hans við Tón-
skóla Sigursveins í kjölfar þess að
bjóða honum að þreyta burtfar-
arpróf.
Baldvin fékk þrjár vikur til und-
irbúnings en venjulega tekur slíkur
undirbúningur um ár.
„Trompet var fyrsta hljóðfærið
sem ég prófaði og ég hef spilað á
hann síðan. Ég byrjaði reyndar á
cornet sem er svona lítill trompet
sem börn byrja oft með til þess að
ná betur tökum á hljóðfærinu,“
sagði Baldvin við blaðamann Morg-
unblaðsins um aðdraganda þess að
hann hóf að leika á trompet.
Baldvin á þó ekki langt að sækja
tónlistaráhugann en faðir hans,
Oddur Björnsson, er fyrsti bás-
únuleikari í Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Þá er afi hans, Björn R.
Einarsson, einnig þekktur bás-
únuleikari og sömu sögu var að
segja um langafa Baldvins. Hann
er því fjórði ættliðurinn í beinan
karllegg sem leggur fyrir sig blást-
urshljóðfæri.
Nám í Bandaríkjunum
Næst á dagskrá hjá Baldvini að
burtfararprófinu loknu er að halda
utan til Bandaríkjanna til frekara
náms, en hann kláraði grunnskól-
ann nú í vetur. Fyrst fer hann á
tveggja vikna meistaranámskeið í
Boston þar sem margir af helstu
snillingum í heimi trompetleikara
verða á meðal kennara, þ.á m. Sví-
inn Håkan Hardenberger, og flýg-
ur Baldvin út til Bandaríkjanna í
dag.
Aðdragandi þess að Baldvini var
boðið á námskeiðið var að sá sem
heldur það sá myndskeið af honum
á myndabandavefnum YouTube
þar sem Baldvin leikur á tromp-
etinn. M.a. er þar að finna upptöku
frá því þegar hann lék einleik með
Sinfóníuhljómsveit Íslands á jóla-
tónleikum sveitarinnar í desember
2008. Í kjölfarið var honum boðið á
námskeiðið. Venjulega þurfa þeir
sem sækja það að senda inn sér-
stakar umsóknir með meðmælum
og hljóðritanir en einskis slíks var
krafist í tilfelli Baldvins.
Þegar námskeiðinu í Boston lýk-
ur tekur við sex vikna námskeið í
Norður-Karólínu sem Baldvin vann
í verðlaun í fyrrasumar. Verður
hann þar á fullum námsstyrk. Að
því loknu hefur hann nám við tón-
listarmenntaskóla í Interlochen í
Michigan og verður þar í vetur.
Baldvin er að vonum mjög
spenntur fyrir því sem framundan
er og tekur undir það að um sé að
ræða ákveðinn draum sem sé að
rætast.
Smith og Hardenberger
í uppáhaldi
„Eftir að ég heyrði trompetleik-
ara að nafni Philip Smith, sem er
fyrsti trompetleikari hjá fílharm-
óníunni í New York, spila fyrst þá
ákvað ég að verða trompetleikari.
Hann er búinn að vera mín hetja
nánast alla mína ævi og mig hefur
alltaf langað til þess að hitta hann
og spila með honum eða fyrir
hann. Svo er það líka Håkan Har-
denberger,“ segir Baldvin að-
spurður hverjar séu hans helstu
fyrirmyndir af trompetleikurum.
Spurður að lokum hvert sé
markmið hans í lífinu svaraði Bald-
vin einfaldlega að hann stefndi á að
ná sem lengst.
Stefnir á að ná sem lengst
Ljósmynd / Heiða
Efnilegur Baldvin er að vonum mjög spenntur fyrir því sem framundan er.
Baldvin Oddsson lauk einleikaraprófi 15 ára gamall Hann heldur út til tón-
listarnáms í Bandaríkjunum í dag Fjórði ættliður blásara í beinan karllegg
Baldvin Oddsson
» Byrjaði ungur að leika á
trompetinn.
» Hlaut hæstu einkunn þegar
hann lauk 6. stigi í trompetleik
eða 9,7 og bauðst í kjölfarið að
þreyta burtfararpróf sem ein-
leikari og stóðst það.
» Vanalega eru þeir nemendur
um tvítugt sem ljúka slíku
prófi.