Morgunblaðið - 12.06.2010, Side 11
var óralöng. Í minningunni eyddi ég
næstum því allri leikjanámskeiðs-
ferðinni í að bíða í þessari röð. Svo
loksins þegar biðin var á enda og ég
fékk að kitla aðeins bensíngjöfina
reyndist þetta vera hundleiðinlegt
dæmi. Hvílík vonbrigði.
Nú 19 árum síðar eða svo ákvað
ég að bæta sjálfri mér upp þessa
löngu bið sem ennþá situr í mér.
Kjóllinn ekki alveg við hæfi
Lausnin var go-kart. Í Korp-
utorgi í Grafarvogi er að finna innan-
húss go-kart-braut, þá einu á Íslandi,
með talsvert hraðskreiðari bílum en
voru í Fjölskyldugarðinum forðum.
Þar tók á móti mér afskaplega
vinalegt starfsfólk sem leiddi mig í
allan sannleik um það að go-kart-
bílar krefjast ekki mikillar kúnstar í
keyrslu enda eru þeir alls ekkert
flóknari að gerð en barnabílarnir,
þeir komast bara miklu hraðar.
Ég var sumarleg og hvítklædd
þennan dag, ekki beinlínis í kapp-
akstursgallanum svona eftir á að
hyggja, en það kom ekki að sök því
mér stóð til boða að dressa mig upp í
þennan fína samfesting sem kom mér
strax í réttu stemninguna og hlífði
auk þess fína kjólnum mínum frá öllu
steinolíuklístri. Þegar ég var komin
með hjálminn á höfuðið að auki leið
mér eins og ég væri mætt á form-
úlubrautina, það er merkilegt hvað
smábúningaleikur getur gert mikið
fyrir mann. Ég mæli því eindregið
með því að go-kartarar þiggi boðið og
klæðist samfestingnum og svo er
hjálmurinn auðvitað skylda.
Keppinautar við hæfi
Með mér á brautinni þennan dag
voru aðrir óþreyjufullir spennufíklar
eins og ég, nefnilega hjarðirnar af 15
ára unglingsstrákum.
Mig langaði svolítið til að vingast
við þá til að geta „reisað“ við þá, það
er að segja tekið einn kappakstur. Ég
held nefnilega að það sé aðalfúttið í
go-kartinu; að keppa við einhvern á
brautinni og helst reyna að svína að-
eins á keppinautnum í kröppustu
beygjunum. Go-kart-brautin á Korp-
utorgi býður upp á tvenns konar
„race“, annað tekur um 30 mínútur í
heild sinni og hitt um klukkutíma.
Svoleiðis go-kart-keppnir eru
vinsælar hjá hópum, t.d. í gæsa- og
steggjaveislum, hvataferðum hjá fyr-
irtækjum eða jafnvel saumaklúbbum.
Það er auðvelt að ímynda sér að 30
mínútur á go-kart-brautinni geti ger-
breytt dínamíkinni í hópnum og hrist
upp í fólki ef það gefur sig allt í
keppnina og stígur bensínið í botn.
Ég fékk hins vegar að hafa
brautina alveg fyrir mig og náði því
ekki að kveikja upp í keppnisskapinu
en hafði hins vegar nóg rými til að
þenja bílinn og hliðarskrensa svolítið
hressilega utan í hjólbarðana sem af-
marka brautina.
Setið á jörðinni á 60 km hraða
Til að byrja með var ég svolítið
óörugg, í fyrsta lagi hafði ég áhyggj-
ur af því að brjóta bílinn þegar ég
klöngraðist ofan í hann. Hann var
nefnilega einhvern veginn miklu
lægri en ég hafði áttað mig á, maður
situr nánast alveg á brautinni.
Svo tekur það alltaf smátíma að
fá tilfinningu fyrir bílnum í akstri og
átta sig á hvað hann getur. Og hvað
ég get! Sennilega hef ég farið heldur
hægt og varlega á brautinni fyrsta
hringinn. Allavega fannst mér 15 ára
strákarnir sem biðu á hliðarlínunni
horfa á mig með frekar mikilli upp-
gjöf í augunum. Ég reyndi því að
gera þeim til geðs og gefa aðeins í
þegar ég vandist þessu og í lokin var
ég kannski farin að gefa fullmikið í
því ég náði varla beygjunum. Maður
þarf að finna taktinn.
Hámarkshraði go-kart bílanna
er 60 km/klst. Vegna smæðar þeirra
og nánd við jörðina finnst manni þeir
samt fara miklu hraðar. Ekkert hefur
þó enn náð að toppa þá reynslu þegar
ég fékk í fyrrasumar að taka aðeins í
Tesla Roadster rafmagnssportbíl. Sá
fer á 3,9 sekúndum í hundraðið og
heyrist ekki múkk í honum á meðan.
En það er auðvitað ekki hægt að líkja
þessu saman.
Go-kartið var samt hressandi og
með hjálp þess hefur mér nú loksis
tekist að komast yfir vonbrigðin í
Fjölskyldugarðinum. En eins og áður
segir held ég að það sé langskemmti-
legast að taka alvörukeppni í þessu.
Fágun Ég vissi ekki alveg hvernig ég ætti að umgangast þessa græju fyrst.
15 ára strákarnir
á hliðarlínunni
horfðu á með upp-
gjöf í augunum
Í sumar gefst áhugasömum Njáluunn-
endum færi á að hlýða á fyrirlestra úr
Njálu alla laugardaga í júní og júlí í Ás-
garði á Hvolsvelli með Bjarna E. Sig-
urðssyni og vel völdum gestum. Erind-
in eru öll myndskreytt með myndum
af persónum sögunnar eftir listakon-
una Þórhildi Jónsdóttur frá Lambey.
En jafnframt munu þær prýða veggi
gamla skólans þar sem erindin eru
flutt.
Fyrsta erindi sumarsins verður
haldið í dag, 12. júní, kl. 15. Í því verða
helstu persónur Njálu kynntar, rifjuð
upp átök þeirra og ástir. Hverjar voru
raunverulegar aðalpersónur sögunnar,
hverjar voru baksviðspersónur og
hverjir voru helstu
örlagavaldar?
Þessum spurn-
ingum leitast
Bjarni við að svara
í erindi sínu í dag.
Erindin í sumar
hefjast öll kl. 15 og
verða vöfflur úr
rangæsku eðal-
hráefni á boð-
stólum með
kaffinu.
Endilega …
… fræðist um
Njálu með síð-
degiskaffinu
Kappi Persóna úr
Njálu eftir Þórhildi
Jónsdóttur.
Í dag hefst Íslandsmót í bréfdúfna-
keppni en keppt verður tíu sinnum
yfir sumarið. Dúfunum er sleppt kl.
10 að morgni frá Hvammi og eiga
þá fyrstu fuglarnir að skila sér
heim um tveimur til fjórum tímum
síðar.
Það er Bréfdúfnafélag Íslands
sem stendur fyrir Íslandsmótinu.
Samkvæmt upplýsinga- og fræðslu-
riti Bréfdúfnafélagsins fer kappflug
þannig fram að kvöldið fyrir keppni
koma keppendur með sína fugla í
móttöku, þar er tekið við fugl-
unum, þeir skráðir og settur er
gúmmíhringur á annan fótinn.
Morguninn eftir er farið með
fuglana á einhvern fyrirfram ákveð-
inn stað og ef veður leyfir er þeim
sleppt þar, fuglarnir fljúga heim og
við heimkomuna tekur eigandinn
gúmmíhringinn af fætinum og set-
ur hann í sérstaka klukku sem
skráir tímann. Til að finna út hvaða
fugl er fljótastur, er tíminn og
vegalengdin reiknuð út til að fá
meðalhraða. Sá fugl sem hefur
mestan meðalhraða er að sjálf-
sögðu sigurvegari keppninnar.
Fuglar
Íslandsmót í bréfdúfnakeppni
Morgunblaðið/Kristinn
Daglegt líf 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010
Vefsíðan Ganga.is var formlega opn-
uð 23. júní 2005, það eru Ferða-
málaráð Íslands, Ungmennafélag Ís-
lands og Landmælingar Íslands sem
halda henni úti en þessi félög gerðu
með sér samstarfssamning er lýtur
að gerð og rekstri gagnagrunns um
gönguleiðir á Íslandi.
Gönguleiðir þessar eru skil-
greindar í þessu verkefni sem leiðir
er tekur a.m.k. tvær klst. að ganga og
geta þær verið merktar eða ómerktar.
Upplýsingar um 500 lengri leiðir og
tæpar 300 styttri leiðir eru í gagna-
grunninum og birtast þær hér á þess-
ari heimasíðu ásamt öðrum upplýs-
ingum er tengjast slíkum
ferðalögum.
Fyrir þá sem hafa í huga að ganga
svolítið um landið í sumar er tilvalið
að skoða gönguleiðir á vefsíðunni.
Þar eru líka ýmsar fréttir um
göngu- og hlaupaviðburði, t.d er ný-
lega frétt um verkefnið Hættu að
hanga, komdu að hjóla, synda eða
ganga, sem hóf göngu sína með fjöl-
skylduhátið UMFÍ að Miðfelli í Hruna-
mannahreppi um síðastliðna helgi.
Allar upplýsingar um það verkefni eru
að finna á síðunni.
Gott yfirlit er yfir ferðir á næst-
unni, t.d. er heilmikið um að vera nú
um helgina; Heilsuþristurinn í Hvera-
gerðisbæ og ganga á Óttar í Þistil-
firði. Hægt er að senda inn upplýs-
ingar um nýjar gönguleiðir til
vefstjóra síðunnar.
Hættu að hanga, farðu að ganga.
Vefsíðan www.ganga.is
Gönguferð Gamen er að skoða Litla-Gullfoss í syðri Ófæru.
Ekki hanga, farðu að ganga
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
20% afsláttur af öllum buxum *
Sparibuxur
Vinnubuxur
Kvartbuxur
Gallabuxur
Hörbuxur
*Ath! Enginn afsl. af Gino buxum
Stærðir 36-52
Kjólar
við öll tækifæri
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Opið kl. 10-16
Eddufelli 2, sími 557 1730
Opið kl. 10-14
www.rita.is
Dansk - íslenska félagið
efnir til samkomu í Norræna húsinu sunnudaginn 13.
júní kl. 14.00 til að bjóða dönsku sendiherrahjónin,
Karen og Sören Haslund, velkomin.
Sendiherrann spjallar við gesti.
Kórsöngur: Graduale Nobili undir stjórn Jóns
Stefánssonar
Almennur söngur - Kaffiveitingar
Allir velkomnir
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200