Morgunblaðið - 12.06.2010, Qupperneq 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010
Kópavogur
15. júní 2010
Deloitte-turninn, 20. hæð
Kl. 16–18
Reykjanesbær
14. júní 2010
Ráin
Kl. 16–18
Ólafsvík
15. júní 2010
Hótel Ólafsvík
Kl. 16–18
Ísafjörður
14. júní 2010
Hótel Ísafjörður
Kl. 15–17
Akureyri
15. júní 2010
Hótel Kea
Kl. 16–18
Egilsstaðir
14. júní 2010
Hótel Hérað
Kl. 16–18
Hella
14. júní 2010
Árhús
Kl. 16–18
www.deloitte.is
Vertu betur læs
á rekstur
þíns sveitarfélags
Deloitte hefur sérhæft sig í ráðgjöf og þjónustu fyrir sveitarfélög.
Rekstur sveitarfélaga er um margt frábrugðinn öðrum rekstri. Á næstu dögum býður
Deloitte sveitarstjórnarfulltrúum og starfsfólki bæjar- og sveitarstjórnarskrifstofa á
kyningarfundi þar sem sérfræðingar Deloitte í sveitarstjórnarmálum fjalla um mörg
áhugaverð málefni sem mikilvægt er fyrir sveitarstjórnarfulltrúa að kunna skil á.
Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
Meðal þess sem fjallað verður um á fundunum er
ábyrgð sveitarstjórnarfulltrúa, lestur og greining
ársreikninga, meðferð leigusamninga lóða og lendna,
virðisauka- og fjármagnstekjuskattur sveitarfélaga,
fjármögnun og endurskipulagning á rekstri sveitar-
félaga og helstu áherslur endurskoðunarnefnda.
Skráning á fundina fer fram á netfanginu
bbergthorsdottir@deloitte.is.
Aðgangur er ókeypis.
Akureyri
21. júní 2010
Hótel Kea
Kl. 16–18
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
10
15
52
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Landsvirkjun auglýsti útboð á upp-
hafsverki Búðarhálsvirkjunar í byrjun
febrúar á þessu ári. Alls voru bjóðend-
ur í verkið sjö en lægstbjóðandi var
Verktakafélagið Glaumur ehf. og Árni
Helgason ehf. Landsvirkjun hafnaði
tilboði fyrirtækjanna á grundvelli þess
að þau uppfylltu ekki kröfur sem sett-
ar voru eftir að útboðið fór fram.
Fyrirtækin kærðu Landsvirkjun og
var meðal annars gerð sú krafa að út-
boð Landsvirkjunar yrði ógilt á þeim
forsendum að bjóða hefði átt verkið út
á Evrópska efnahagssvæðinu. Kæru-
nefnd útboðsmála birti í fyrradag úr-
skurð í málinu og var meginniðurstaða
hennar sú að fallist var á þá kröfu kær-
enda að auglýsa hefði átt útboðsverkið
á Evrópska efnahagssvæðinu.
Einnig voru kröfur um hæfni taldar
ólögmætar þar sem þær hefðu ekki
verið skýrar í upphafi útboðsins og því
erfitt fyrir bjóðendur að átta sig á
þeim. Þá var álit kærunefndar að
Landsvirkjun hefði brotið lög þar sem
útboð var ekki í samræmi við ákvæði
laga um opinber innkaup og veitutil-
skipun. Landsvirkjun var gert að aug-
lýsa á ný innkaup á upphafsverki Búð-
arhálsvirkjunar og greiða kærendum,
Verktakafélaginu Glaumi ehf. og Árna
Helgasyni ehf., vegna kostnaðar við að
hafa kæruna uppi. Ennfremur var það
álit kærunefndar að Landsvirkjun
væri skaðabótaskyld gagnvart kær-
endum vegna kostnaðar þeirra við að
undirbúa tilboð og taka þátt í útboð-
inu.
Landsvirkjun sendi frá sér yfirlýs-
ingu á heimasíðu sinni í fyrradag varð-
andi málið. Þar kemur fram að nið-
urstaðan sé nokkurt áfall fyrir
Landsvirkjun, einkum vegna þess að
hún muni hafa í för með sé tafir á upp-
hafi framkvæmda við Búðarhálsvirkj-
un en framkvæmdin átti að fara í gang
í sumar.
„Við gáfum út í yfirlýsingu að þessi
niðurstaða væri vonbrigði fyrir
Landsvirkjun, vegna þess að það
verða ákveðnar tafir á framkvæmd-
um,“ segir Ragna Sara Jónsdóttir, yf-
irmaður samskiptasviðs Landsvirkj-
unar. Líklegt er, í ljósi úrskurðarins
og þess tíma sem útboðsferli innan
Evrópska efnahagssvæðisins tekur,
að framkvæmdir við Búðarháls hefjist
í fyrsta lagi í haust. Ragna segir
Landsvirkjun nú skoða með hvaða
hætti verkið verði boðið út. „Við erum
að undirbúa útboð að nýju og munum
gera það við fyrsta tækifæri,“ segir
hún.
Tafir verða á framkvæmd-
um við Búðarhálsvirkjun
Vonbrigði fyrir
Landsvirkjun
» Umtalsverðar tafir verða á
upphafi framkvæmda við Búð-
arhálsvirkjun.
» Kærðu Landsvirkjun vegna
synjunar á tilboði í upphafs-
verk Búðarhálsvirkjunar.
» Útboð Landsvirkjunar ekki í
samræmi við ákvæði laga um
opinber innkaup og veitu-
tilskipun.
Menningarveisla Sólheima verður
formlega opnuð í dag. Þetta er í
fimmta sinn sem menningarveislan
er haldin og stendur hún fram til
14. águst nk. Dagskráin er með
fjölbreyttasta móti, m.a. sýningin
Dýrin mín stór og smá, ljós-
myndasýning og sýning um sjálf-
bæra byggð. Tónleikar verða alla
laugardaga í Sólheimakirkju. Mik-
ill fjöldi fyrirlestra verður í Sess-
eljuhúsi þar sem m.a. verður
fjallað um plöntur, jarðfræði og
eldgos.
Morgunblaðið/ÞÖK
Sólheimar Menningarveisla hefst.
Menningarveisla
Í dag, laugardag, verður Inter-
sporthlaupið haldið í fyrsta sinn.
Keppt verður í 25, 55 og 105 km
vegalengdum.
25 km hlaupið hefst í Krýsuvík,
55 km hlaupið á Suðurstrandar-
vegi og 105 km hlaupið hefst við
Intersport á Selfossi. Öll hlaupin
enda við Intersport í Lindum í
Kópavogi.
Hlaupið er öllum opið og er
ekkert skráningargjald. Hámarks-
skráning er 50 manns fyrir hverja
vegalengd.
Vegleg verðlaun verða í boði
fyrir sigurvegara í hverri vega-
lengd og allir sem keppa fá verð-
launapening.
Intersporthlaup
Á morgun,
sunnudag, verð-
ur Dagur villtra
blóma haldinn á
Norðurlönd-
unum. Af því til-
efni býður
Grasagarður
Reykjavíkur
upp á ókeypis
leiðsögn um Laugarnestanga
klukkan 11-13. Plöntur verða
greindar til tegunda, fjallað um
gróður svæðisins og starfsemi
Flóruvina kynnt. Mæting er við
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á
Laugarnestanga.
Skoðunarferð á
Degi villtra blóma
ÚR BÆJARLÍFINU
Óli Már Aronsson
Hella
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní
verður haldinn hátíðlegur á a.m.k.
þremur stöðum í Rangárþingi ytra
þetta árið. Við Brúarlund í Land-
sveit verður ungmennafélagið
Merkihvoll með ýmiss konar leiki og
þrautir fyrir unga fólkið og kaffiveit-
ingar verða á staðnum. Á Lýtings-
stöðum í Holtum fer fram svokölluð
„smalabúsreið“ sem felst í leikjum
og keppnisþrautum fyrir börn og
unglinga og endað með því að grilla í
mannskapinn.
Í Þykkvabæ sjá kvenfélagið Sig-
urvon og ungmennafélagið Fram-
tíðin um þjóðhátíðardaginn. Þar
verður meira lagt í hátíðahöldin en
venjulega, vegna þess að bæði þessi
félög eiga stórafmæli á þessu ári.
Framtíðin er 90 ára og Sigurvon er
70 ára. Dagskrá verður alveg frá því
kl. 10 að morgni og fram eftir degi,
kvennahlaup, skemmtidagskrá, leik-
ir, þrautir og hoppukastali verður á
staðnum. Félögin munu bjóða öllum
íbúum og gestum upp á hátíðarkaffi í
tilefni tímamótanna.
Stúlknakórinn Hekla, ung-
mennafélagið Hekla og Rang-
árvalladeild hestamannafélagsins
Geysis sjá um allt sem viðkemur há-
tíðahöldunum á Hellu, sem verða
hefðbundin. Hefjast þau með messu
á dvalarheimilinu Lundi, skrúð-
göngu þaðan og síðan verða leikir,
keppnir og fjölskyldustund á
íþróttavellinum, sundlauginni og í
íþróttahúsinu, þar sem kvenfélag
Oddakirkju sér um kaffiveitingar.
Landeyjahöfn er í augsýn,
fyrsta ferðin verður farin 21. júlí nk.
kl. 7:30 frá Vestmannaeyjum. Hald-
inn var kynningarfundur á vegum
Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands í
liðinni viku um þær breytingar og
tækifæri sem geta fylgt þessari nýju
og einu höfn á suðurströndinni frá
Stokkseyri austur að Höfn í Horna-
firði. Flutt voru nokkur mjög fróðleg
erindi um undirbúning og byggingu
hafnarinnar, breytingar á ferðatíðni
Herjólfs, hugsanleg áhrif fyrir
ferðamennsku og atvinnulíf, bæði í
Vestmannaeyjum og á Suðurlandi.
Reiknað er með allt að tvöföld-
un á fjölda þeirra farþega sem munu
nota Herjólf eftir þessa breytingu á
næstu árum. Jafnframt kom fram að
reiknað er með að sett verði „heims-
met“ í fjölda þeirra sem sækja
þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þetta
árið.
Umhverfisstofnun þurfti að
gefa leyfi fyrir því að losa mætti
sand sem er dælt upp úr nýju höfn-
inni út í sjóinn fyrir utan. Þetta voru
um 150 þúsund rúmmetrar sem
þurfti að fá leyfi fyrir. Það tók um 7
mánuði fyrir Umhverfisstofnun að
gefa út þetta leyfi. Á meðan voru 2
milljónir rúmmetra af sandi á fleygi-
ferð fram og til baka við ströndina
og Markarfljót losaði 250 þúsund
rúmmetra af sandi og gosefnum
þegar Eyjafjallajökull byrjaði að
gjósa.
Gleði og gaman
á þjóðhátíð
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Fjallið Hekla hefur verið öskugrá undanfarið.