Morgunblaðið - 12.06.2010, Síða 19
Fréttir 19INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010
Forseti Eistlands, Toomas Hend-
rik Ilves, sem síðustu daga hef-
ur verið hér á landi í opinberrri
heimsókn, ásamt Evelin Ilves
eiginkonu sinni, skoðaði Hellis-
heiðarvirkjun í gær. Stjórn-
endur Orkuveitu Reykjavíkur
kynntu þar fyrir forsetahjón-
unum gangverk virkjunarinnar.
Í framhaldinu var efnt til mál-
þings um nýtingu hreinnar
orku, bráðnun jökla og lofts-
lagsmál þar sem færustu vís-
indamenn þjóðarinnar á því
sviði lögðu orð í belg. Í eftirmið-
daginn voru hinir eistnesku
gestir á Hellu á Rangárvöllum
þar sem fjallað var um nýaf-
staðin eldsumbrot á Fimmvörðu-
hálsi og í Eyjafjallajökli og við-
brögð vísindamanna, björgunar-
liða og heimafólks við þeim. Í
gærkvöldi voru Eistarnir á
Þingvöllum þar sem forsetinn
og Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra funduðu.
Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, sagði er hann
ávarpaði forseta Eistlands í
boði í fyrrakvöld að það væri
fagnðarefni að fyrsta opinbera
heimsókn erlends þjóðhöfð-
ingja til Íslands frá því þátta-
skilin urðu haustið 2008 skuli
einmitt vera heimsókn forseta
Eistlands. Það gefi leiðtogum
tækifæri til að meta reynsluna,
deila lærdómum og heil-
ræðum.
Forseti Eistlands
á ferð um Suðurland
Á Hellisheiði Vel fór á með forseta Eistlands og forseta Íslands þar sem þeir
röbbuðu saman í heimsókninni í Hellisheiðarvirkjun í gærdag.
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Morgunblaðinu hefur borist at-
hugasemd frá Finni Árnasyni, for-
stjóra Haga, sem er svohljóðandi:
„Morgunblaðið hefur undanfarna
mánuði ítrekað birt ósannindi um
rekstur Haga. Í upphafi vikunnar
kom fram í leiðara blaðsins að Hag-
ar hafi „verið settir á hausinn“ og í
leiðara blaðsins í dag kemur tvíveg-
is fram að félagið hafi verið „sett á
höfuðið“. Þetta er rangt. Hagar
hafa aldrei „farið á höfuðið“. Rekst-
ur Haga hefur gengið vel. Hagn-
aður var af rekstri félagsins á síð-
asta rekstrarári og eiginfjárstaða
félagsins er góð. Ítrekað hefur kom-
ið fram að Hagar hafa staðið við all-
ar sínar skuldbindingar og er eitt af
fáum félögum sem hefur greitt upp
skuldabréfaflokk að fullu, sem
skráður var í Kauphöll Íslands.
Hagar hafa ekki fengið neina eft-
irgjöf eða niðurfellingu skulda og
slíkt stendur ekki til, enda félagið í
góðum rekstri. Margítrekuð ósann-
indi Morgunblaðsins um rekstur
Haga eru alvarlegt mál fyrir rekst-
ur félagsins, ekki síst þar sem
markvisst er grafið undan orðspori
félags, sem á í samskiptum við fjöl-
marga aðila, innanlands sem utan.
Það er alvarlegt að Morgunblaðið
fari vísvitandi með rangt mál. Slíkt
er nauðsynlegt að leiðrétta, enda
um óþolandi atvinnuróg að ræða.“
Athugasemd ritstj.
Í umfjöllun Morgunblaðins um
Haga hefur því ekki verið haldið
fram að rekstur fyrirtækisins gangi
illa eða að fyrirtækið standi ekki í
skilum á eigin skuldum. Ekkert
bendir til rekstrarerfiðleika Haga í
nýjasta birta ársreikningi fyrirtæk-
isins, sem er frá árinu 2008. Fyrir-
tækið sem keypti Haga á árinu
2008, 1998 ehf., glímir þó óneit-
anlega við mikinn skuldavanda og
hefur verið tekið yfir af Arion
banka. Hagar eru eina eign 1998 en
samanlagðar skuldir fyrirtækjanna
tveggja, sem Högum var ætlað að
standa undir nema á bilinu 50-60
milljörðum króna. Fram hefur kom-
ið að ekkert hefur verið greitt af
láni 1998 ehf. Í skuldum 1998 ehf.
felst vandinn sem Morgunblaðið
hefur bent á.
Athugasemd
frá Högum
Forstjóri Haga um
skrif Morgunblaðsins
VITA er lífið
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Taktu þátt í Lukkulífi
VITA til Tyrklands
29. júní og 10. júlí
TYRKLAND
Bodrum er einn allra vinsælasti sólarstaðurinn á vesturströnd
Tyrklands við Eyjahaf þar sem sólin skín nánast allt árið um kring.
Freistandi baðstrendur, fyrsta flokks þjónusta og gnægð
veitingastaða og verslana.
Þökkum frábærar viðtökur!
Flugáætlun
19. júní Uppselt
29. júní Nokkur sæti laus
10. júlí Nokkur sæti laus
20. júlí Laust
31. júlí Uppselt
10. ágúst Uppselt
21. ágúst Örfá sæti laus
31. ágúst Uppselt
11. september Uppselt
18. september Uppselt
29. september Örfá sæti laus
06. október Nokkur sæti laus
10. júlí í 10 nætur
Verð frá 160.000 kr.
á mann m.v. 2 fullorðna og tvö
börn í tvíbýli.
Verð frá 190.000 kr. m.v. 2
í tvíbýli. Innifalið: Flug, gisting,
flugvallarskattar og íslensk
fararstjórn.
29. júní í 11 nætur
Verð frá 101.500 kr.
á mann m.v. 2 í stúdíó.
Innifalið: Flug, gisting,
flugvallarskattar og íslensk
fararstjórn.
Vinsælasti sólarstaðurinn í Tyrklandi
Tyrkland
ódýrast!
Hvergi
ódýrara
að lifa á
sólarstöðum
sumarið
2010
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
Möguleiki á
léttgreiðslum
Allt innifalið!
Lukkulíf VITA
Lukkulíf VITA gerir þér kleift að velja
áfangastað, brottfarardag og lengd
ferðar en upplýsingar um gististað
berast þér síðar.
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.IS
V
IT
50
61
1
06
/1
0
Tvö stéttarfélög hafa vísað kjara-
deilum sínum við fjármálaráðherra
fyrir hönd Landhelgisgæslunnar til
ríkissáttasemjara. Eru þetta Félag
skipstjórnarmanna og Flugvirkja-
félag Íslands.
Fyrstu fundir munu verða haldn-
ir fljótlega eftir helgi.
Kjaradeilum vísað til
ríkissáttasemjara