Morgunblaðið - 12.06.2010, Síða 22

Morgunblaðið - 12.06.2010, Síða 22
22 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010 ingum næsta árs. Hún segir breyt- ingu endurgreiðslubyrði milli ára „vissulega gríðarlega aukningu.“ Hins vegar sé gert ráð fyrir henni í öllum útreikningum. Sú staðreynd að hægt sé að mæta hinum auknu skuldbindingum er að miklu komin til vegna nýlegra samn- inga Seðlabanka Íslands við Avens, félags í eigu Landsbankans í Lúxem- borg, og lána frá Norðurlöndunum. Síðarnefndu lánin eru hluti af efna- hagsáætlun AGS og koma til í kjölfar annarrar endurskoðunar sjóðsins sem lauk fyrir skömmu. „Þessir tveir samningar veita okkur svigrúm til þess að greiða inn á þessi lán [sem gjaldfalla á næsta ári],“ segir Rósa. Meðfylgjandi skýringarmynd sýnir endurgreiðsluferil lána ríkissjóðs sem hlutfall af heildartekjum. Gert er ráð fyrir tveggja prósenta tekjuaukningu á hverju ári, en sú spá er óvísindaleg og sennilega of bjartsýnisleg. Líkt og sjá má er greiðslubyrðin mikil í ár og á næsta ári. Hún lækkar síðan snar- lega áður en hún rís mikið árið 2014. Þessi mynd segir þó ekki alla söguna, þar sem til stendur að mæta skuld- bindingum næsta árs að hluta til með frekari lántöku, eins og áður kemur fram. Þannig er endurgreiðsluferlin- um hliðrað og háu skuldahlutfalli rutt áfram á meðan ekki verður hjá frek- ari lántöku ríkissjóðs komist. Trúverðugleiki lykillinn Samfara annarri endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands sendi AGS frá sér skýrslu um stöðu mála. Sjóð- urinn leggur áherslu á að greiðslu- byrði lána sé dreift yfir lengri tíma. Miklar skuldir þjóðarbúsins draga úr vexti og auka líkur á atgervisflótta. Því sé forgangsatriði að vinna á þeim með markvissum hætti. Samhliða miklum niðurskurði í ríkisfjármálum skipti miklu máli að afla trausts al- mennings og efla trúverðugleika á að- gerðum stjórnvalda. Mikilvægt sé að koma almenningi í skilning um að efnahagsleg umskipti taki talsverðan tíma. Skuldbindingar á gjalddaga aukast um 80% á milli ára  Ríkissjóður þarf að standa skil á lánum að andvirði 250 milljarða á næsta ári Endurgreiðsluferill ríkissjóðs sem hlutfall af heildartekjum * Miðað við áætlaðar tekjur ríkissjóðs árið 2010 og 2% aukningu á ári. Tölur í milljónum króna. Heimild: Lánamál ríkisins og fjarlog.is 600.000 500.000 400.000 300.000 200.000 100.000 0 milljónir kr. 60 50 40 30 20 10 0 %Tekjur ríkissjóðs Endurgreiðslubyrði lána 47 9. 0 0 0 48 8. 58 0 49 8. 35 2 50 8. 31 9 51 8. 48 5 52 8. 85 5 53 9. 43 2 55 0. 22 0 56 1. 22 5 57 2. 44 9 58 3. 89 8 59 5. 57 6 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 29,2% 8,0% 36,6% 0,9% 34,7% 3,4% Skatttekjur » Staðgreiðsla af tekjuskatti og útsvari nam 47,2 millj- örðum króna á tímabilinu febr- úar til apríl. Þetta er 3,5% aukning frá sama tímabili í fyrra. » Þetta eru fyrstu þrír launa- mánuðirnir síðan þriggja þrepa tekjuskattkerfi var tekið upp um áramótin. FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Greiðslubyrði lána ríkissjóðs verður rúmir 250 milljarðar króna á næsta ári, samanborið við um 140 milljarða í ár, eða sem samsvarar um 80 pró- senta hækkun milli ára. Þetta kemur fram í Markaðsupplýsingum Lána- mála ríkisins, sem komu út nú í vik- unni. Til samanburðar má benda á það að áætlaðar heildartekjur ríkis- sjóðs árið 2009, samkvæmt tölum Hagstofunnar, voru 463 milljarðar króna. Á tímabilinu janúar til apríl nú í ár drógust tekjur ríkissjóðs saman um 4,2 milljarða frá því í fyrra. Á sama tíma jukust gjöldin um 3,5 milljarða. Mikill niðurskurður í ríkisfjármálum og stóraukin skattlagning bera bág- um fjárhag ríkissjóðs glöggt vitni. Samkvæmt efnahagsáætlun Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins er markmiðið að hallarekstur ríkissjóðs árið 2011 verði einungis 2,7%. Það verður því þrautin þyngri að mæta þeirri miklu aukn- ingu endurgreiðslubyrði sem fram- undan er. Gjaldeyrisforðinn er til Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upp- lýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins, segir ríkissjóð hafa þann gjaldeyris- forða sem þarf til að mæta skuldbind- Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Fari svo að Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um ólögmæti gengistryggðra lána mun það augljóslega kalla á viðbrögð rík- isins, segir Gylfi Magnússon, efna- hags- og viðskiptaráðherra. Verði gengistryggðu lánin dæmd ólögmæt er einsýnt að það mun hafa áhrif á eiginfjárstöðu nýju bankanna. Innt- ur eftir því hvort ríkið hyggist koma bönkunum til aðstoðar segir Gylfi: „Ég held að það væri óhjákvæmilegt að ríkið væri reiðubúið til þess ef þörf krefði, en ég ætla ekki að gefa mér að sú þörf verði,“ segir hann. Ný nefnd stofnuð Í gær kynnti efnahags- og við- skiptaráðherra ríkisstjórninni sam- komulag um samráð varðandi fjár- málastöðugleika og viðbúnað. „Þetta er nefnd sem hefur starfað undir ýmsum heitum í langan tíma,“ segir Gylfi, en í gær var endanlega gengið frá hverjir eiga aðild að þeim sam- ráðsvettvangi. Efnahags- og viðskiptaráðuneytið, forsætisráðuneytið og fjármálaráðu- neytið munu stýra starfi nefndarinn- ar, en Fjármálaeftirlitið og Seðla- bankinn munu einnig eiga aðild að nefndinni. Félagsmálaráðuneytið mun einnig koma að borðinu þegar málefni Íbúðalánasjóðs eru til um- ræðu. Kerfisáhætta kortlögð Gylfi segir hlutverk nefndarinnar vera almenns eðlis, en henni er með- al annars ætlað að setja upp viðbún- aðaráætlanir og kortleggja áhættu í fjármálakerfinu. Gylfi segir að nefndin hafi þegar rætt um mögu- lega staðfestingu Hæstaréttar á áð- urnefndum dómi: „Þetta mál er af slíkri stærðargráðu að það hlýtur að koma til umfjöllunar nefndarinnar. Þetta hefur verið skoðað og kortlagt hvað geti gerst og hvernig skuli brugðist við,“ segir hann. Mun bregðast við myntkörfudómi  Verði gengistryggð lán dæmd ólög- mæt bregst ríkið við, segir ráðherra Morgunblaðið/Ernir Viðbrögð Ríkið mun bregðast við ef efnahagur bankanna skaðast. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankan- um er skuldin að baki gjaldeyrislánunum frá Norðurlöndunum, fyrir utan norska lánið, færð til bókar á ríkissjóð. Þetta þýðir að ónotað andvirði lánanna er sett á innlendan gjaldeyrisreikning í Seðlabankanum og er því skuldfært sem innlend skuld við ríkissjóð en ekki erlend í efnahagsreikning bankans. Sam- kvæmt efnahagsreikningi Seðlabankans námu bundnar gjaldeyrisinnstæður ríkissjóðs í bankanum ríflega 161 milljarði við lok maí. Við það bætist að aðrar bundnar gjaldeyris- innstæður í Seðlabankanum nema tæpum 212 Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Hrein gjaldeyrisstaða Seðlabanka Íslands var tæplega 295 milljarðar króna við lok maímán- aðar. Þessi upphæð er tæplega 70% af verð- mæti alls innflutnings ársins 2009 samkvæmt tölum frá Hagstofunni. En þar sem kostnaður vegna lántöku til þess að styrkja gjaldeyrisforðann skiptist í sumum tilfellum milli ríkis og Seðlabanka þá segir þessi hreina gjaldeyrisstaða Seðlabank- ans aðeins takmarkaða sögu. milljörðum króna. Þær innstæður er í eigu skilanefnda gömlu bankanna og eru því í raun skuld Seðlabankans við erlenda kröfuhafa þegar allt kemur til alls. Neikvæð staða um 80 milljarða Þegar gjaldeyrisinnstæðum ríkissjóðs, sem eru tilkomnar vegna skuldsetningar gagnvart erlendum ríkjum, auk gjaldeyrisinnstæðna kröfuhafa hinna föllnu banka, er bætt við skuldahliðina á erlendri stöðu Seðlabankans kemur í ljós að neikvæð staða hans við útlönd er neikvæð um tæpa 80 milljarða. Gjaldeyrisstaða Seðlabank- ans neikvæð um 80 milljarða  Neikvæð staða með tilliti til allra skulda vegna gjaldeyrislána Morgunblaðið/Júlíus Seðlabanki Íslands Rautt ljós við bankann. ● Evrópskir bank- ar ráða við að taka á sig veru- legan skell vegna stöðutöku þeirra í grískum, portú- gölskum, spænsk- um og írskum verðbréfum og munu ekki þurfa að styrkja eig- infjárstöðu sína vegna rýrnandi verðmæti slíkra bréfa. Þetta er niðurstaða álagsprófs sem matsfyrirtækisins Moody’s gerði á þrjátíu evrópskum bönkum á dög- unum. Í frétt Financial Times um prófið kemur fram að Moody’s telur að eiginfjárstaða bankanna sem voru prófaðir sé það sterk að þeir gætu staðist meiriháttar áföll á evrópskum verðbréfamörkuðum. Þeir gætu til að mynda þolað að þurfa að selja evr- ópsk ríkisskuldabréf úr bókum sínum á hrakvirði án þess að það myndi grafa alvarlega undir eiginfjárstöðunni. Evrópskir bankar geta staðið af sér storminn Óreiða á mörkuðum. ● Jonathan Taplin, prófessor, segir að stafræn miðlun feli í sér álíka mikla byltingu og tilkoma flugvéla, bifreiða og fjarskiptatækni. Taplin hélt fyrirlestur á vegum auglýs- ingastofunnar Hvíta hússins í vik- unni. Hann benti á að hlutfall sjón- varpsefnis á netinu muni stóraukast á næstu árum, sem setur ákveðna pressu á netfyrirtæki vegna aukins gagnamagns. Verðlagning efnis á netinu þarf að breytast, enda gengur ekki upp til lengdar að mati Taplins að allt afþreyingarefni á netinu verði fjármagnað með auglýsingum. thg@mbl.is Meiriháttar bylting ● Verð verðtryggðra íbúðabréfa hækk- aði töluvert á skuldabréfamarkaðnum í gær. Skuldabréfavísitala Gamma fyrir verðtryggð bréf hækkaði um 0,4% en veltan á bak við viðskiptin nam 3,5 milljörðum króna. Tæplega 10 milljarða króna viðskipti voru með óverðtryggð ríkisbréf en hækkaði óverðtryggða vísitala Gamma um 0,2% í gær. Óverðtryggða vísitalan hefur hækkað um 12% áramótum en sú verðtryggða um 7%. Verðtryggt hækkar ÞETTA HELST…                     !  "   " #  " $ % & '  '  $ ()$( $ *! +,-.,/ +0-.+1 +,2.+3 ,+.422 +-.-33 +/.52 ++,.00 +.34-2 +00.01 +2/./2 +,-.21 +0-./5 +,2.2+ ,+.++1 ,4.445 +/.5-0 ++5., +.3+5/ +0-.35 +21.4- ,+5.-235 +,-.00 +-4.4- +,2.00 ,+.+1- ,4.4/, +/.33/ ++5.2, +.3+11 +0-.-- +21.25

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.