Morgunblaðið - 12.06.2010, Page 26
26 Umræðan
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010
Nokkur umræða
hefur verið í fjöl-
miðlum að und-
anförnu um detox-
meðferð þá sem ég
gengst fyrir á Mið-
nesheiði og í Póllandi.
Nú hefur lyflæknirinn
Svanur Sigurbjörns-
son enn eina ferðina
varið lyfjageirann
þannig að ég get ekki
lengur við unað án aðgerða.
Mér er ekki kunnugt um nokk-
urn sem hefur endað á neyðar-
móttöku vegna detoxmeðferð-
arinnar en ég veit um þónokkra
sem látist hafa af læknadópi. Eitt
slíkt mál er mér nátengt.
Detox-meðferð þessi hefur verið
þróuð um áratugaskeið af pólskum
læknum. Það einkennir hinsvegar
ofstækisfullan huga Svans að ekk-
ert virki nema það sé sannað vís-
indalega. Slík hugsun lýsir að-
komu hans að Vantrú, félagi
trúleysingja þar sem hann í lang-
lokum sínum ræðst að biskupi Ís-
lands og öðrum þeim sem trúa á
Guð.
Tugir þúsunda hafa fari í gegn-
um detox-meðferðina með eða án
minnar aðstoðar og þar af þús-
undir Íslendinga. Árangurinn hef-
ur verið góður og í sumum til-
fellum undraverður. Enginn
munur er á meðferðinni hjá mér
og í Póllandi nema að ég tek inn
sálfræðilega þáttinn með aðstoð
sálfræðinga og presta.
Markmið meðferðarinnar er ein-
falt: að vinna gegn og fyrirbyggja
lífsstílssjúkdóma. Í framhaldi af
meðferðinni hafa margir losnað við
lyf og náð að end-
urheimta heilsu og
lífsgæði. Einnig vil ég
geta þess að í öllum
tilvikum, ef vafi leikur
á um að einstaklingar
þoli meðferðina, leita
ég ráða lækna í
Reykjanesbæ og
margoft sendum við
fólk í burtu ef við telj-
um að meðferðin sé of
erfið.
Landlæknir hefur
látið frá sér heyra og
ég undrast þann neikvæða tón sem
er í viðbrögðum hans. Ég hélt að
nú þyrftu allir að leggjast á eitt til
að efla heilsu landans og sér-
staklega með þeim hætti sem
heldur kostnaði í lágmarki.
Ég hlýt að spyrja: hverra erinda
gengur landlæknir í þessu efni?
Svanur nýtur ekki trausts margra
lækna því ítrekað hef ég fengið
hvatningu um að láta orð hans
sem vind um eyru þjóta. Málið er
hinsvegar grafalvarlegt fyrir starf-
semina mína og neyðist ég til þess
að bera hönd fyrir höfuð mér.
Nú er öllum ljóst að afar mikil
spilling hefur verið í íslensku fjár-
málalífi. Við undrumst að sjá að
hver glansmyndin af annarri hefur
fallið og spillingin er víðtækari en
flesta óraði fyrir.
Í lyfjageiranum skipta tugir
milljarða um hendur á hverju ári.
Verðum við ekki, í ljósi þess sem á
undan er gengið, að spyrja okkur
hvernig ástandið er þar? Hve
margar ferðir hefur Svanur Sig-
urbjörnsson þegið af lyfjafyrirtæki
og hverja er hann að verja?
Hvernig stendur á því að þegar
unnið er að því á faglegum for-
sendum að auka lífsgæði og fá fólk
til þess takmarka lyfjaneyslu, sem
er hér mun meiri en í þeim lönd-
um sem við berum okkur saman
við, þá eru viðbrögðin afar und-
arleg.
Ég legg til að við breytum hug-
arfari okkar og áttum okkur á því
að ef við ætlum að vinna okkur út
úr ríkjandi ástandi verðum við að
leita nýrra og óhefðbundinna úr-
ræða. Við megum ekki láta ann-
arlega hagsmuni og þröngsýni
ráða ferðinni lengur.
Ég er einfaldlega að bjóða upp á
annað en lyfjameðferð.
Má bjóða upp á annað en
lyfjameðferð á Íslandi?
Eftir Jónínu Bene-
diktsdóttur » Við megum ekki láta
annarlega hagsmuni
og þröngsýni ráða ferð-
inni lengur.
Jónína Benediktsdóttir
Höfundur er eigandi
Detox Jónínu Ben.
Undanfarið hefur
verið umfjöllun um
svokallaða detox-
meðferð og afstöðu
Landlæknisembætt-
isins til málsins.
Athygli skal vakin á
því að greinargerð
landlæknis má finna í
heild á vefsíðu Land-
læknisembættisins,
www.landlaeknir.is.
Um er að ræða allítarlega grein-
argerð þar sem fjallað er mál-
efnalega um það sem hér um ræðir.
Sérstaklega er greint frá ítarlegri og
vel rökstuddri kvörtun fjögurra ein-
staklinga en miklu fleiri at-
hugasemdir hafa borist. Sumir undr-
ast langlundargeð
Landlæknisembættisins.
Á heimasíðunni er einnig að finna
svarbréf Jónínu Benediktsdóttur,
sem er ekki síður fróðlegt til aflestr-
ar, en er ekki að sama skapi mál-
efnalegt. Undirritaður óskaði eftir
því við Jónínu að hún legði fram
gögn um vísindalegt gildi detox-
meðferðar en ekkert barst. Með-
ferðin var auglýst sem
læknismeðferð þótt þar
starfi enginn læknir.
Upptalning er á fjölda
langvinnra sjúkdóma
sem þessi meðferð á að
hafa áhrif á en enginn
fótur er fyrir. Á ensku
er sagt að detox sé
læknisfræðilega við-
urkennd meðferð hér á
landi sem er beinlínis
rangt.
Oft koma mér í hug
orð mætrar konu sem er velviljuð
Jónínu og fékk að skoða gögnin og
málsvörn Jónínu. Orðin voru þau
sem ég hef valið í fyrirsögn þessarar
greinar: „Ja hérna hér“.
Með kveðju,
Matthías Halldórsson
aðstoðarlandlæknir
Ja hérna hér
Eftir Matthías
Halldórsson
Matthías Halldórsson
»Meðferðin var aug-
lýst sem lækn-
ismeðferð þótt þar starfi
enginn læknir.
Höfundur er aðstoðarlandlæknir
Vegna pistils
fréttaritara í
Rangárþingi –
eystra í Morg-
unblaðinu í dag
5. júní, þar sem
fram kemur að
nú ráði ríkjum
framsóknarmenn
og óháðir allt frá
Hornafirði að
Þjórsá hið minnsta, vil ég til að fyr-
irbyggja misskilning koma eftirfar-
andi á framfæri.
Í Rangárþingi ytra náði Á-listinn
meirihluta sem er að sönnu stór-
frétt, en það er þverpólitískt afl
áhugafólks um sveitarstjórnarmál.
Án þess að ég hafi neitt á móti
framsóknarmönnum hefði mér þótt
betur orðað að segja í fréttinni að
ýmist framsóknarmenn eða óháðir
réðu nú ríkjum milli Hornafjarðar
og Þjórsár en af orðalagi fréttar-
innar mátti skilja að samsuða fram-
sóknar og óháðra réði nú ríkjum á
þessu stóra svæði.
Held ég þessu til haga vegna
þess að eftir síðustu kosningar 2006
var minnihlutinn í R-Y aldrei kall-
aður annað en B-listi þó að hann
væri samsettur úr framsókn og
óháðum.
Talaði þáverandi formaður ein-
mitt um það eftir þær kosningar að
Framsóknarflokkurinn hefði unnið
stórsigur, en minntist ekki á fram-
lag óháðra sem þó var ekki lítið.
Skil ég vel að fréttaritari hafi
misst sig aðeins í sigurvímunni eftir
kosningarnar hinn 29. maí síðastlið-
inn, en maður hennar leiddi einmitt
lista Framsóknar og óháðra til stór-
sigurs í Rangárþingi eystra og færi
ég honum hér með hamingjuóskir
mínar af því tilefni.
Ég vil aðeins koma þessu á fram-
færi vegna áhuga okkar Á-listafólks
á að setja fólk í fyrsta sæti, óháð
pólitískum skoðunum.
Þessi grein er samt sem áður al-
farið á mína ábyrgð.
Þingmenn á hinu háa Alþingi
geta karpað eftir flokkslínum, við
hin höfum verk að vinna
Með kærri kveðju.
STEINDÓR TÓMASSON,
verðandi sveitarstjórnarmaður
Á-lista í Rangárþingi ytra.
Kosningar
Rangárþingi
ytra – mis-
skilningur
leiðréttur
Frá Steindóri Tómassyni
Steindór Tómasson
, ,magnar upp daginn
Virðulegt einbýlishús á
pöllum með aukaíbúð.
Hönnuður Jóhann Eyfells.
Stærð 289 fm.
Gott innra skipulag.
Frábær staðsetning.
Selvogsgrunn 10 - Reykjavík
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Dan V. S. Wiium Ólafur Guðmundsson
hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 sölustjóri s. 896 4090
jöreign ehf
OPIÐ HÚS
Sunnudag kl. 14:00 til 16:00
Furugerði v. Álmgerði - sími 588 2030 - fax 588 2033
Lögg. fasteignasali: Sigríður A. Gunnlaugsdóttir
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
HVASSALEITI VIÐ KRINGLU
Sérlega falleg ca 149 fm íbúð ásamt ca 21 fm bílskúr
í fjölbýli sem staðsett er rétt austan við Kringlu.
Fjögur svefnherbergi uppi plús herbergi í kjallara með
aðgang að snyrtingu. Tvennar svalir.
Fallegar innréttingar. 8476
FANNBERG FASTEIGNASALA ehf. Sími 487 5028
Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur
ÞRÚÐVANGI 18 -
850 HELLU
EINBÝLISHÚS Á HELLU
Til sölu er 138 fermetra einbýlishús ásamt 44 fermetra bílskúr við
Borgarsand nr. 8, á Hellu. Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1976. Eignin
telur anddyri, borðstofu, stofu, eldhús, gang, fjögur svefnherbergi, baðher-
bergi, búr, og þvottahús. Verð kr. 27.200.000. Nánari upplýsingar og
myndir á heimasíðu www.fannberg.is og á skrifstofu.
Til sölu er jörðin Pula í Rangárþingi
ytra, staðsett skammt ofan Lauga-
lands í Holtum. Landstærð er talin
vera um 108 ha, þar af ræktun um
83 ha. Jörðinni fylgir veiðiréttur í
Veiðivötnum og upprekstrarréttur
á Landmannaafrétt. Á jörðinni eru
eftirtaldar byggingar: Íbúðarhús
196 fm, hesthús 305 fm, fárhús
321 fm, hlaða 498 fm og véla-
geymsla 62 fm. Öll útihúsin eru
sambyggð. Verð kr. 90 milljónir.
Nánari upplýsingar og myndir á
www.fannb rg.is og á skrifstofu.
JÖRÐIN PULA Í HOLTUM
Húsnæði óskast
Kjarrhólma í Kópavogi staðgreiðsla í boði
Bráðvantar góða 3ja eða 4ra herb. íbúð í
Kjarrhólma í Kópavogi, fyrir ákveðin kaupanda.
Vantar góða 2ja til 3ja herb. íbúð í Grafarholt í.
Vantar gott einbýlishús í Garðabæ, til leigu eða
kaups.
Nánari upplýsingar í síma 561 3131 og 893 6363
Jón Guðmundsson lögg. fast.sali.