Morgunblaðið - 12.06.2010, Side 29

Morgunblaðið - 12.06.2010, Side 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010 fengið að vera honum samferða í lífinu svona lengi. Takk fyrir okkur afi. Birgir, Berglind, Davíð og Hilmar. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Svo hljóðar erindi 76 úr Háva- málum og á seinni hluti þess sér- staklega vel við um þig. Þú varst margfróður maður sem deildir visku þinni um liðna tíma og sagðir okkur barnabörnum þínum sögur úr sveitinni frá því land byggðist og frá þinni eigin æsku. Við urðum þess aðnjótandi að alast upp með þig við hlið frá blautu barnsbeini. Oft sátum við spennt við eldhús- borðið eða í stofunni full af áhuga þegar þú sagðir okkur sögur af draugum og huldufólki eða hvernig hlutum var háttað við störf og fleira í uppvexti þínum. Það var alltaf sjálfsagt og gaman að skottast með þér að planta trjám, setja niður og taka upp kartöflur, vinna í garð- inum og önnur tilfallandi störf sem þig vantaði aðstoð okkar við og sát- um við oft aftan á rauða traktorn- um þínum áleiðis og drógum fæt- urna eftir mölinni á veginum. Svo fræddir þú okkur á meðan um ýmsa staði í Vorsabæ, sögur þeirra og heiti, og um plöntur og fugla sem urðu á vegi okkar. Nær hvað sem þú varst spurður að vissir þú um jörðina sem þú ólst upp á og unnir svo mjög. Það er kannski ekki skrítið hve langlífur þú varst og heilsuhraustur mestalla þína tíð. Á morgnana saupstu af mysubrúsanum á úti- tröppunum og af lýsisflöskunni úr ísskápnum. Svo predikaðir þú við okkur um hollustu ýmiss matar sem var á borðinu hverju sinni og fussaðir yfir kjúklingi og pítsum þótt þú borðaðir það svo sjálfur með bestu lyst. Eitt skiptið eftir ar- fatínslu úr blómabeðunum í garð- inum léstu eitt okkar borða arfa út á skyrið sem var á boðstólum þegar inn var komið um hádegið. Sagðir arfann hollan og gera mann sterk- an. Hvort það var satt eða hrekkur gildir einu, maður trúði alltaf afa gamla. Sem börn sáum við oft þaðan sem við sátum í stofusófanum inn á skrifstofuna þína þar sem þú sast við að skrifa í bækur, merkja og raða ljósmyndunum þínum eða pikka á ritvélina. Svo sat amma við skrifstofuna í stólnum sínum að prjóna meðan hún horfði á barna- efnið með okkur barnabörnunum. Þannig viljum við alltaf muna eftir þér. Að sjá inn á skrifstofuna til þín sitjandi við rit þín og aðrar iðjur þínar sem þú unnir svo, með tví- skiptu gleraugun á nefinu og stund- um laumandi að okkur nammimola. Þú munt alltaf lifa í minningu okkar með sögum þínum og fróð- leik sem við munum deila með okk- ar eigin börnum og barnabörnum í framtíðinni. Við erum stolt og þakklát fyrir að hafa átt þig sem afa okkar. Megir þú hvíla í friði, elsku afi. Margrét, Jón Emil og Sigurbjörg Bára. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson) Þetta fallega vers var eitt af kvöldversunum sem við systkin lærðum í æsku. Þegar við systur kveðjum Jón, síðastan af bræðrum okkar, koma gömlu versin upp í hugann. Þetta verða fáein kveðju- orð frá okkur systrunum. Þegar horft er til baka yfir ævi Jóns er það atorkan og vinnusemin við stofnum heimilis, nýbýlis og við búskapinn sem koma fyrst upp í hugann. Hann var svo lánsamur að lifa sín bestu starfsár á miklu fram- faraskeiði í þjóðfélaginu og í því tók hann sannarlega þátt bæði hér heima og við ýmis félagsstörf. Þar ber oddvitastarfið hæst. Við því starfi tók hann af föður okkar að- eins 28 ára. Þá héldu margir að fað- ir okkar myndi leiðbeina „strákn- um“, hann taldi þó ekki þörf á því og „strákurinn“ stóð sig vel í 40 ár. Við systur munum föður okkar sitj- andi við skrifborðið á kvöldin eftir langan vinnudag. Þá voru ekki tölv- ur, allt handskrifað, eins var með Jón, hann sat við skrifborðið fram á kvöld. Hann var þó kominn með rit- og reikningsvél. Báðir þóttu talnag- löggir. Vegna ýmissa félagsmála þurfti Jón oft að bregða sér af bæ. Þá kom sér vel að eiga duglega konu og seinna börn til að sjá um búskapinn. Jón var góður garðyrkjumaður, byrjaði á kálrækt og var þar á und- an sinni samtíð. Við munum eftir útplöntuninni á vorin. Þá var líf og fjör í krakkahópnum. Á kvöldin „trakteraði“ hann allan hópinn með súkkulaði og appelsíni sem ekki var algengt í þá daga. Jón var ánægður þegar hann var með hóp af fólki við uppskerustörf, og keyrði heim að kvöldi með fulla vagna af káli eða kartöflum. Þegar Björn og Stefanía tóku við búskapnum hafði Jón meiri tíma fyrir áhugamálin sem voru mörg. Þar bar þó hæst skógræktina en fræðimennska var honum einnig hugleikin og ritstörf. Þar vann hann það afrek að semja mikið fræðirit, Jarðabók Skeiðahrepps. Jón var félagslyndur og sótti vel samkomur og viðburði í sveitinni. Hann sótti líka kirkjuna sína á Ólafsvöllum þar sem hann verður lagður til hinstu hvíldar í dag við hlið ættingja sinna. Jón var bundinn tryggðaböndum við æskustöðvar sínar þar sem hann var búsettur alla tíð. Þar átti hann langa og góða ævi. Hann skil- ur eftir sig stórt skarð í tilveru okk- ar allra hér. Hann var heilsuhraust- ur fram á síðustu ár, en svo fór að halla undan fæti og síðustu mánuðir voru honum erfiðir. Emelía ann- aðist hann af alúð og dugnaði þar til yfir lauk. Við vottum henni og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúð. Við systur þökkum Jóni bróður langa og góða samveru og biðjum honum blessunar Guðs. Við áttum góða og trúaða móður og við kveðj- um bróður okkar með einu af eft- irlætisversum hennar. Oss héðan klukkur kalla, svo kallar Guð oss alla til sín úr heimi hér, þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum í húsi því, sem eilíft er. (Vald. Briem) Helga, Fríða og Sigríður. Stundum finnst mér afi minn hafa verið margir menn. Lengst af var hann bóndi að aðalstarfi og þannig kynntist ég honum. Frá því ég var smástrákur dvaldi ég heima í Vorsabæ á sumrin, ég beitti ýms- um brögðum til að vera þar sem lengst, fékk leyfi í skóla til að fara snemma á vorin og koma ekki aftur fyrr en eftir réttir. Ég elti afa út um tún og garða og mér er sagt að ég hafi snemma farið að líkja eftir honum í smáu sem stóru, gengið jafnvel með buxurnar á hælunum alveg eins og hann og þótti sumum spaugilegt að sjá okkur ganga þannig saman. Dvölin í sveitinni var sannkallaður vinnuskóli. Afi lagði ríka áherslu á að kenna okkur snúningastrákunum að vinna og að vinna vel. Hann gat verið strangur ef honum fannst við vinna verkin illa eða af lítilli skynsemi, en hann kunni líka að hrósa okkur fyrir vel unnin verk og aldrei fór ég svo heim að hausti að hann greiddi mér ekki laun fyrir sumarvinnuna, sennilega vel rífleg miðað við vinnu- framlag. Búskapurinn var afa aldrei ástríða, áhugasvið hans lágu annars staðar, félagsmál hvers konar, stjórn sveitarfélagsins og þátttaka í framfaramálum sveitarinnar voru hans raunverulegu ær og kýr. Þetta fann ég glöggt. Þegar hann fór úr vinnugallanum, setti upp hatt og fór af bæ á fundi eða sat yfir reikn- ingum og fundargerðum á skrifstof- unni, sem lengst af var líka hrepps- skrifstofa, var hann í essinu sínu. Eftir að hann hætti að búa sneri hann sér óskiptur að þessum hjart- ans málum sínum og þá kom líka í ljós að hann átti sér fleiri áhuga- mál. Síðustu árin sem hann lifði hóf hann nýtt líf sem fræðimaður. Á sjötugsafmælinu gaf hann út sína fyrstu bók, ljósmyndabók sem sýnir lífið í sveitinni, og þær byltingar í mannlífi og búskap sem hann upp- lifði á langri ævi. Þótt bókin kæmi út um það leyti sem flestir setjast í helgan stein varð hún ekki bauta- steinn heldur upphafið að frjósöm- um ferli. Fyrir tveimur árum gaf hann út stórvirki sem hann hafði unnið að með löngum hléum allt frá því á stríðsárunum. Jarðabók Skeiðahrepps er geysimikið fræði- rit um sögu sveitarinnar, örnefni, gamlar leiðir og búskaparhætti. Ég naut þeirra forréttinda að vinna með afa að ritstjórn og frágangi bókarinnar. Þótt hlutverkin hafi að einhverju leyti snúist við og ég leið- beint honum um heimildafrágang og tölvuvinnslu minntu þessar stundir mig oft á þá daga sem ég var að snúast fyrir hann í sveita- störfum í gamla daga. Þegar ég kom austur var setið við frá morgni til miðnættis, vinnusemin var söm við sig en ástríðan meiri. Þá fannst mér ég greina hvað hann hefði get- að gert og áorkað ef skyldan hefði ekki kallað hann til búskapar. Afi kallaði mig oftast nafna, í því heiti fannst mér alltaf sérstök upp- hefð enda skynjaði ég glöggt vænt- umþykjuna sem bjó að baki því. Það kemur ennþá fyrir að ég er sagður líkur honum eða fólk úr sveitinni þekkir mig af ættar- mótinu. Það gleður mig í hvert ein- asta sinn og get ég ekki hugsað mér meira hrós en að vera sagður líkur Jóni í Vorsabæ. Jón Yngvi Jóhannsson. Þegar góðir menn hverfa á braut hrannast upp í hugann myndir og minningar um liðnar samveru- stundir. Jón í Vorsabæ brá stórum svip á dálítið umhverfi og manni fannst nærvera hans mikilvæg þar sem fundir og mannamót voru hald- in. Skeiðaréttadagurinn er einn af þessum dögum; hátíð bændanna, féð að koma af fjalli og gleðin skín af vonar hýrri brá. Jón var hluti af réttarstemningunni, mættur þar við fyrsta hanagal vel til fara með hatt- inn sinn, lögg á pelanum og mynda- vélina á maganum til að skrá sög- una. Hann fagnaði vinum og frændum og naut stundarinnar með fólkinu sínu. Réttadagurinn er hér- aðshátíð og svo hefur það verið alla tíð. Jón á mikið í réttunum sem eru þær fallegustu í landinu að mati margra. Þeir störfuðu lengi að afréttar- málunum Jón og faðir minn Ágúst á Brúnastöðum, stóðu að uppbygg- ingu réttanna á aldarafmæli þeirra en fengu að vísu réttarbóndann Ingvar í Reykjahlíð til að fara fyrir bygginganefndinni og framkvæmd- unum. Jón Eiríksson var forystumaður og leiðtogi. Hann var ungur að ár- um þegar Skeiðamenn fólu honum forustu og var hann oddviti þeirra í áratugi. Jón kom víða að félagsmál- um og ávann sér mikið traust, ekki síst fyrir það hversu vel hann fór með peninga almennings og allur rekstur varfærinn og öruggur í hans höndum, gerði mikið úr litlu. Hann sparaði ekki eigin krafta og vissulega risu mannvirki og þjónustustaðir undir hans forystu bæði í skólanum og félagsheimilinu Brautarholti og Heilsugæslunni í Laugarási. Vegir og gangnamanna- kofar í afréttinum. Sundlaugin í Brautarholti var einstakt mannvirki á sínum tíma og langt á undan í allri hugsun um ferðaþjónustu og heilsubót. Þótt Jón væri aðhaldssamur og haggaðist ekki við gagnrýni um sparlega meðferð í fjármálum og væri stundum talinn alltof tregur til að taka dýr lán að mati manna þá skilaði hann af sér góðum rekstri SJÁ SÍÐU 30 ✝ Faðir minn, RAGNAR SIGURÐSSON, Assens, Fjóni, Danmörku, lést föstudaginn 30. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Cecilia Plouvmand Sigurdsson og aðrir aðstandendur. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA BÖÐVARSDÓTTIR, Dalbraut 15, Akranesi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 9. júní. Útför hennar verður gerð frá Akraneskirkju miðvikudaginn 16. júní kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið eða Ljósið. Þórður Magnússon, Svava Huld Þórðardóttir, Jón Þór Þórðarson, Ingibjörg Harpa Ólafsdóttir, Berglind Erna Þórðardóttir, Jes Friðrik Jessen, og ömmubörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi, langalangafi, MAGNÚS ÓLAFUR JÓNSSON, Skólastíg 16, Stykkishólmi, lést mánudaginn 7. júní á St. Franciskusspítalanum Stykkishólmi, Jóna Gréta Magnúsdóttir, Bæring Guðmundsson, Erna Hólmfríður Magnúsdóttir, Eigil Rossen, Guðrún Ásta Magnúsdóttir, Ellert Sigurður Magnússon, María Eir Magnúsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ JÓHANNA HANNESDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 9. júní. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju, þriðjudaginn 15. júní kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hrafnistu í Hafnarfirði. Jóna G. Jónsdóttir Wheeler, Hannes Jónsson, Sigrún Sveinsdóttir, Haraldur H. Jónsson, Guðrún Ingólfsdóttir, Gestur Jónsson, Hulda Kristjánsdóttir, Hugrún Jónsdóttir, Sigríður Björg Jónsdóttir, Guðmundur B. Guðmundsson, Guðmundur Jónsson, Lilja Ólafsdóttir, barnabörn og langömmubörn. ✝ Eiginmaður minn, ÁRNI G. PÉTURSSON fyrrv. ráðunautur, Háaleitisbraut 36, Reykjavík, lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn 1. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. F.h. aðstandenda, Guðný Ágústsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.