Morgunblaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010 og komst það ekki síður en hinir sem tóku lánin. Jón horfði alltaf fram á veginn og var að hugsa um nýjungar í búskap eða atvinnulífi. Þau Emelía ráku lít- ið en snoturt bú í Vorsabæ, höfðu áhuga á að auðga búskapinn, áttu sinn skógræktarreit og bjuggu með angórukanínur með hefðbundnum búskap og garðrækt. Jón var mjög athugull, víðlesinn og fróður á mörgum sviðum, var alltaf að fylgjast með og fræðast og áhugasviðin voru mörg. Hann hikaði aldrei við að segja meiningu sína, þakka góð verk en gagnrýna það sem hann efaðist um. Í eðli sínu var Jón fræðimaður og hann unni sögunni og naut þess seinni árin að gefa sér tíma til slíkra hluta. Hitt er svo undrunarefnið í lífi þessa manns að hann var alltaf og alls staðar að sinna því hlutverki að varðveita myndir og minningar samtímans. Fyrir tveimur árum lauk hann við að gefa út Jarðabók Skeiðahrepps sem vitnar um hann sem fræðimann í fremstu röð. Jón var að vinna úr mörgu því sem hann safnaði á lífsleiðinni, þar er mynda- safnið dýrmætt, hljóðupptökur og raddir samferðamanna, úrklippur og sögur. Á stundu sem þessari er manni efst í huga þakklæti til þessa trygga vinar sem lagði manni til mörg heil- ræði. Ég kveð Jón í Vorsabæ með virð- ingu og þökk. Guðni Ágústsson. Jón bóndi og fyrrverandi oddviti til margra ára í Skeiðahreppi er fallinn frá. Þegar við hjón fluttum í Hrunamannahrepp og samstarf Hreppa- og Skeiðamanna hófst í skólamálum fann ég á bónda mín- um, sem þá var nýráðinn skólastjóri Flúðaskóla, hve vel honum líkaði samstarfið við Jón. Þegar ég tók við starfi skólastjóra Brautarholtsskóla haustið 1998 kom Jón til mín og bauð mig velkomna til starfa. Ég fann strax hve mikinn áhuga hann hafði á skólastarfinu og að vel væri búið að menntun barnanna bæði í leik og starfi. Hann unni sveitinni sinni þar sem hann þekkti hverja þúfu. Ég fékk að njóta þess hve mikill viskubrunnur hann var þar sem hann var óspar á að fræða mig um náttúruna og mannlífið frá fyrri tíð. Jón lét sig ekki vanta á fundi eða hátíðir sem haldnar voru á veg- um skólans. Hann tók hina ýmsu at- burði upp á band ásamt því að taka ljósmyndir við öll tækifæri. Hann gaf okkur myndir og lagði ríka áherslu á merkingu þeirra þannig að þær væru góðar heimildir til framtíðar. Ég þakka Jóni samfylgd- ina. Í honum fann ég góðan vin sem veitti mér mikla hvatningu í starfi mínu. Blessuð sé minning Jóns í Vorsabæ. Ég sendi Emelíu og fjöl- skyldunni allri innilegar samúðar- kveðjur. Rut Guðmundsdóttir. Öðlingarnir sem leiddu íslenska þjóð til tæknivæðingar nútímans hverfa nú sjónum okkar einn af öðr- um. Jón Eiríksson, sem hér er kvadd- ur, hefur þá sérstöðu að skila þeim breytingum til komandi kynslóða flestum betur. Með ljósmyndavél hóf hann að festa atburðasögu hversdagsins á filmu árið 1941 og hélt því áfram til loka eða í nær sjö áratugi. Þar má m.a. sjá allar helstu breytingar á verkháttum sveitanna allt frá hand- og hestverkfærum til nútíðar. Jón varð oddviti í Skeiðahreppi eftir föður sinn árið 1950 og gegndi þeirri stöðu í 40 ár. Nokkru eftir þau verklok kom hann í heimsókn á Héraðsskjalasafn Árnesinga til þess að leita ráða um afhendingu og frá- gang skjala hreppsins. Hann afhenti þau skjöl á héraðsskjalasafnið vel frágengin með afhendingalista þannig að tæpast varð betur gert. Á aðalfundi Héraðsnefndar Árnesinga vorið 1997, þar sem fulltrúar allra sveitarstjórna í Árnesþingi voru mættir, var fjallað um skjalavörslu sveitarfélaga. Þar lét undirritaður þau orð falla að einn Jón Eiríksson þyrfti að vera í hverri sveit. Þau orð gerði Jón ekki ómerk á þeim 13 ár- um sem hann átti þá ólifuð. Skjöl Ungmennafélags Skeiðamanna, Af- réttamálafélags Flóa og Skeiða og fleira lét hann afhenda til héraðs- skjalasafnsins rétt fyrir dánardag- inn. Stærsta afrekið er þó bók hans, Jarðabók Skeiðahrepps, sem út kom í árslok 2008. Þar eru örnefnum allra jarða hreppsins gerð vönduð skil í máli, með ljósmyndum og kortum. Hann var einlægur stuðn- ingsmaður Héraðsskjalasafns Ár- nesinga og gaf allan söluhagnað af ljósmyndabók sinni, Aldahvörf á Skeiðum, til styrktar varðveislu ljósmynda þar. Sögufélagi Árnes- inga var hann einnig traustur bandamaður. Heimsóknir hans á Héraðsskjalasafn Árnesinga voru fjölmargar og erindi hans vel skipu- lögð. Þeim sem þar ráða húsum eru slíkir gestir ómetanlegir, enda gæða þeir safnið lífi og auka vinnugleði þeirra sem þar ráða húsum. Kæra Emelía! Ég þakka þér fyrir samskipti mín við ykkur Jón und- anfarin ár og votta þér og þínum innilega samúð. Hjá mér verður bjart yfir minningunni um Jón Ei- ríksson og það er von mín og trú að þannig verði það einnig í huga ykk- ar. Björn Pálsson, áður héraðsskjalavörður. Það er vor í lofti og jörðin grænk- ar þegar til moldar er borinn góður vinur, Jón í Vorsabæ, oddviti Skeiðahrepps til margra ára. Ég átti því láni að fagna að fá að starfa með Jóni að sveitarstjórnar- málum í fjölmörg ár. Jón var sérstaklega skemmtileg- ur maður að vinna með, athugull og sterkur sjórnandi. Hann vildi gera sínu sveitarfélagi sem mest gagn en átti jafnframt mjög auðvelt með að vinna að sameiginlegum verkefnum allra sveitarfélaga á svæðinu. Mér er minnisstætt þegar sveit- arfélögin í uppsveitum Árnessýslu hófu samstarf um uppbyggingu í at- vinnumálum og ákváðu að byggja Límtrésverksmiðju á Flúðum. Var Jón einn sá allra áhugasamasti um þá framkvæmd og var útsjónarsam- ur við útvegun fjármagns og alla samningagerð í sambandi við fram- kvæmdina. Jón var lengi formaður oddvita- nefndar Laugaráslæknishéraðs og formaður Heilsugæslunnar í Laug- arási. Þessi samstarfsverkefni sveit- arfélaganna voru Jóni mjög hug- leikin og lagði hann metnað sinn í að allt sem að þessum málum sneri væri í sem bestu lagi. Fáir hafa lagt eins mikla alúð við Laugaráshérað og heilsugæsluna í Laugarási og Jón. Á vettvangi sveitarfélaga á Suð- urlandi og í Héraðsnefnd Árnesinga lagði Jón ætíð gott til málanna og var manna bestur við að sætta ólík sjónarmið. Jón var mjög fróður og setti sig vel inn í öll mál. Jón var formaður afréttamála- félags Flóa og Skeiða og stóð fyrir uppbyggingu Reykjarétta, afréttar- húsa og vegagerðar um afréttinn. Sem félagi var Jón gamansamur og hrókur alls fagnaðar. Kom það vel í ljós þegar tóm gafst til að setj- ast niður eftir langa og þreytandi fundi, lá þá gjarnan vel á Jóni og sló hann á létta strengi með félögunum. Það er mikils virði fyrir menn sem eru að stíga sín fyrstu skref í störfum við sveitarstjórnarmál að fá að vinna með jafn reyndum og glöggum manni og Jón var. Ég þakka Jóni ógleymanlegar samverustundir í leik og starfi á liðnum árum. Við Hanna sendum Emilíu og allri fjölskyldu Jóns innilegar sam- úðarkveðjur. Loftur Þorsteinsson. Að vera öðrum verðug fyrirmynd er ekki öllum gefið. Hefðu áhrifamenn undanfarinna ára haft svipaða lífssýn og Jón í Vorsabæ væri málum okkar Íslend- inga betur komið en raun ber vitni. Jón í Vorsabæ var kosinn í sveit- arstjórn í Skeiðahreppi árið 1950 og varð strax oddviti, hann sat óslitið sem oddviti í 40 ár. Ég átti því láni að fagna að sitja með Jóni í sveit- arstjórn síðustu fjögur árin. Þó að við værum ekki alltaf sammála um lausnir og leiðir þá áttaði ég mig fljótlega á því að þarna var verk- stjórnin markviss og fumlaus enda byggð á yfirgripsmikilli þekkingu og einlægum vilja til að gæta hags- muna sveitarfélagsins. Jón í Vorsa- bæ reyndist mér góð fyrirmynd í fé- lagsmálum, hans sterkustu einkenni voru ósérhlífni og heiðarleiki fram í fingurgóma. Hann var orðlagður bókhaldsmaður og nákvæmur í reikningshaldi og mér eru minnis- stæðir handskrifaðir reikningar sveitarfélagsins þar sem frágangur var algjörlega hnökralaus og alúð lögð í hvern stafkrók. Jón gegndi starfi oddvita sem aukastarfi meðfram búskap, oft tímafreku og alltaf illa launuðu en sinnt af einlægum áhuga og sam- viskusemi. Eitt af áhugamálum Jóns var söfnun upplýsinga um atburði í sveitinni. Hann tók mjög mikið af ljósmyndum og sömuleiðis tók hann upp á segulband flestar samkomur sem hér hafa verið haldnar. Gefin var út bók með ljósmyndum eftir Jón þegar hann varð sjötugur, að- allega myndir sem tengjast mannlífi í Skeiðahreppi. Afréttamálafélag Flóa og Skeiða var Jóni mjög hugleikið, þar sat hann í stjórn í áratugi, fyrst með Ágústi á Brúnastöðum og síðar með Páli í Litlu-Sandvík. Haft var á orði að í stjórn félagsins sætu þrír aðilar þar sem Guð almáttugur væri odda- maður. Eftir að Jón hvarf úr sveitar- stjórn sneri hann sér að skráningu örnefna í Skeiðahreppi. Hér vann hann það þrekvirki að skrá þekkt örnefni á öllum jörðum í sveitarfé- laginu og staðsetja þau á kortum. Geta skal þess að upphafið á þessu verkefni má rekja aftur til ársins 1944, en þá var samþykkt á fé- lagsfundi Ungmennafélags Skeiða- hrepps að fela Jóni þetta verkefni. Árið 2008, 64 árum síðar, kemur út Jarðabók Skeiðahrepps eftir Jón í Vorsabæ, 600 bls. ritverk um flest Jón Eiríksson MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar bróður míns og frænda okkar, HALLGRÍMS GUÐJÓNSSONAR, Dysjum, Garðabæ. Sesselja Guðmundsdóttir, Elísabet Eygló Jónsdóttir, Jóna Gréta Jónsdóttir, Dagbjört Erla Kjartansdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, Auðbjörg Guðmundsdóttir, Illugastöðum, Vatnsnesi, lést mánudaginn 31. maí á heilbrigðisstofnun Vesturlands, Hvammstanga. Útför hennar fer fram frá Tjarnarkirkju, Vatnsnesi, mánudaginn 14. júní kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvennaband V-Hún. og hollvinasamtök heilbrigðisstofnunar Hvammstanga. Jónína Ögn Jóhannesdóttir, Birgir Jónsson, Guðmundur Jóhannesson, Bjarney G. Valdimarsdóttir, Árni Jóhannesson, Anna Olsen, Jónína Auðbjörg Sigurbjörnsdóttir, Jóhann Ingi Haraldsson, Jóhannes Óskar Sigurbjörnsson, Þorbjörg Ásbjarnardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDAR KRISTMANNSDÓTTUR, Aflagranda 40. Sérstakar þakkir og kveðjur til starfsfólksins í Sóltúni fyrir einstaka hlýju og alúð. Edda Árnadóttir, Magnús Ólafsson, Brynja Hlíðar, Jóhann, Árni, Hörður, Brynjar og fjölskyldur, Huld, Ólafur og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SKARPHÉÐINS JÓNSSONAR, frá Kringlu, Dalabyggð, síðast til heimilis að Seljahlíð, Hjallaseli 55, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Seljahlíðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÁRNA MAGNÚSAR BJARNASONAR, Öldugranda 3, áður Álakvísl 96. Sveinn Árnason, Sigurbjörg Guðjónsdóttir, Brynjar Örn Sveinsson, Eva Björk Sveinsdóttir, Anna Rún Sveinsdóttir, Kristín Árnadóttir, Stefán Melsted, Aðalheiður Ásgrímsdóttir, Ragnheiður Ásgrímsdóttir, Stefán Örn Melsted, Ágúst Viðar Árnason, Aðalheiður G. Hauksdóttir, Aðalheiður Dögg Ármann, Arna Björg Ágústsdóttir og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.