Morgunblaðið - 12.06.2010, Síða 31

Morgunblaðið - 12.06.2010, Síða 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010 það sem máli hefur skipt fyrir sveit- arfélagið frá upphafi vega. Jón í Vorsabæ hafði mörg járn í eldinum alla sína tíð og skilur eftir sig verðmæti sem komandi kynslóð- ir munu njóta. Með Jóni í Vorsabæ er heiðursmaður genginn á vit feðra sinna. Fjölskyldu hans votta ég samúð og virðingu. Sveinn Ingvarsson í Reykjahlíð. Aldraður sveitahöfðingi er fallinn frá. Jón Eiríksson fæddist í Vorsabæ á Skeiðum og ól þar allan sinn ald- ur. Hann þótti glöggur og voru falin ábyrgðarstörf snemma. Oddviti Skeiðahrepps í 40 ár og sat í ótal nefndum og ráðum. Formaður m.a. stjórnar Heilsugæslustöðvarinnar í Laugarási í áratugi og fram- kvæmdastjóri. Öll þessi störf vann hann af mikilli samviskusemi og áhuga. Undirritaður kynntist Jóni eftir komu í Laugaráslæknishérað haust- ið 1984. Gott var að eiga viðskipti við þennan dugnaðarfork. Hvort sem það var seta á stjórnarfundum Hgst. eða skógræktarvinna á lóð- inni hér í Launrétt alltaf var Jón jafnáhugasamur. Hann var mikill hvatamaður fyrir byggingju nýju Hgst. hér í Laugarási sem tekin var í notkun 1. júlí 1997, og höfðu þeir sex hreppar, sem stóðu að heilsu- gæslunni, sinn hluta kostnaðar tilbúinn, þegar smíðin hófst. Fyr- irhyggjan gleymdist ekki og bygg- ingin stóð tilbúin skuldlaus við vígslu, ásamt öllu innbúi. Jón Eiríksson lét af flestum störf- um hinum opinberu um 70 ára ald- ur, en hóf þá fyrir alvöru vinnu við stóra ritverk sitt Jarðabók Skeiða- hrepps, sem kom út 2008. Þar er meira en 10 ára vinna fræðimanns að baki og er ritið glæsilegt. Margar ferðir áttum við hjón í Vorsabæ og eiginkona Jóns, hún Emelía, tekur gestum alltaf fagn- andi. Sjálf er hún mikil föndurkona og húsmóðir. Nú í ár hefur heilsu Jóns hrakað og talaði hann opið um að dauðinn nálgaðist, en verst væri að fá ekki að deyja heima í Vorsabæ. Að leiðarlokum þökkum við starfsfólk Heilsugæslustöðvarinnar í Laugarási Jóni góð kynni og gott samstarf. Vottum aðstandendum samúð okkar við andlát hans. Gylfi Haraldsson og Rut Meldal, Laugarási. Ég mun ekki hafa verið hár í loft- inu er ég fyrst tók eftir virðulegum manni með hatt á höfði á manna- mótum á Suðurlandi. Það hefur lík- ast til verið á sundmótum Skarp- héðins í Hveragerði eða á íþróttamótum í Þjórsártúni. Síðan hafa leiðir okkar legið saman í meira en hálfa öld. Hann sat í hreppsnefnd Skeiðahrepps frá 25 ára aldri og var oddviti í fjóra ára- tugi. Við ræddum oft saman á fund- um sunnlenskra sveitarfélaga og endranær. Við sátum saman í stjórnskipaðri nefnd sem falið var að kanna leiðir til að efla sveit- arfélögin. Þar vorum við oft ekki sammála, reyndar oftast, en við ræddum málin og reyndum að skilja hvor annan. Þannig var það einnig á öðrum sviðum er við rædd- um. Samræmdur útsvarsstigi að sunnan í öllum sveitarfélögum? Oddviti og hreppsnefnd þekktu best hagi hvers gjaldanda og væru alveg einfær um að ætla hverjum og ein- um sanngjarnt útsvar eftir efnum og ástæðum, eins og staðið hefði í lögum frá fornu fari. Sameining sveitarfélaga? Verkefnin mætti leysa með samvinnu. Þannig ætti að leysa heilsugæslumál. Hann sann- aði það í reynd með samvinnu upp- sveitanna í Árnessýslu um lækna- stöð í Laugarási þar sem hann síðar varð rekstrarstjóri og stjórnarfor- maður. Einhverju sinni var EFTA til umræðu. Jón taldi hverri þjóð best að búa að sínu og ástæðulaust væri að sækja langt að það sem heima væri best. Við virtum sjón- armið hvor annars. Best skildi ég Jón er hann við skrifborðið sitt heima í Vorsabæ horfði á skrúð- garðinn meðan dóttir mín fór á hestbak. Við ræddum möguleika sveitanna, gróðurmátt jarðar, kart- öflurækt og skógrækt sem honum var afar hugleikin. Og þá mætti ala kanínur og vinna úr fínullinni – og hann lét ekki sitja við orðin tóm en stofnaði til samvinnu um kanínu- eldi. Sveitunum væri brýn þörf á þriggja fasa rafmagni til þess að efla iðnað til sveita. Rekið á eftir því, sagði hann. Jón sá ótal tæki- færi. Hann dró upp úr skrifborðs- skúffu gömul bréf frá mér sem hann hafði haldið til haga til margra ára. Einnig sýndi hann mér ljós- myndir úr sveitinni af nýjungum er sýndu þróunina í atvinnuháttum. Hluti þeirra birtist í bókinni Alda- hvörf á Skeiðum, sem kom út árið 1991. Þá lagði hann mikla vinnu í að safna örnefnum og merkja á loft- mynd af hverri landareign í hreppnum. Þá er ástæða til að minnast og þakka fyrir hönd Árnes- ingafélagsins í Reykjavík þá miklu alúð sem Jón lagði við minning- arreit félagsins í Áshildarmýri. Ekki síður hollráð byggð á langri reynslu um flóðahættu úr Hvítá. „Komdu í Reykjaréttir í haust,“ sagði Jón, „og þá mun þér betur skiljast hve gamla samvinnuformið um upprekstur og smölun afrétt- arins hefur dugað bændum vel og skapað gott samfélag í sveitunum. Við verðum líklega ekki sammála,“ sagði hann, „en ég vona að þú skilj- ir mig betur síðar – að minnsta kosti þegar ég verð dauður,“ sagði hann er hann kvaddi með sínu hlý- lega brosi og glettni í augum sem verður lengi eftirminnileg. Ég votta Emelíu og fjölskyldu samúð. Með Jóni í Vorsabæ er genginn merkur fulltrúi samtíðar sinnar. Unnar Stefánsson. Það eru nú liðin rúmlega þrjátíu ár frá því ég kom fyrst til Íslands til að læra nútíma-íslensku og til að kynna mér betur tungumálið, sem Íslendingasögurnar eru skrifaðar á, og landið þar sem þær gerðust. Gæfa mín þá var sú að fyrsta sum- arið mitt á landinu dvaldist ég í Vorsabæ á Skeiðum. Þar æfði ég mig ekki einungis í tungumálinu heldur tók þátt í bústörfunum á bænum, meðal annars rúði ég fé með sauðaklippum sem voru ná- kvæmlega eins og þær sem hægt er að sjá í myndskreytingum mið- aldahandrita. (Rafmagnsklippur komu árið eftir.) Þetta var eftir- minnilegt sumar. Ég efast þó um að Jón Eiríksson hafi talið sig hafa mikið gagn af þessari bandarísku námsmey fyrr en seinna um haust- ið þegar ég kom aftur og tók þátt í því með Emelíu að sauma vambir og gera slátur. Ég hef komið í Vorsabæ og heimsótt Jón og fjölskyldu hans nærfellt á hverju ári síðan og virð- ing mín og aðdáun á heimilinu hef- ur vaxið með hverju ári. Jón hefur alltaf dregið fram ný myndaalbúm og myndir sem hann hafði tekið á árum áður til samanburðar. Á jól- unum 1991 barst mér til Banda- ríkjanna bók sem hann hafði gefið út, með myndum úr sveitinni hans, Aldahvörf á Skeiðum. Ég var af- skaplega montin af að sjá mynd af sjálfri mér í þeirri bók! Mér varð smám saman ljóst hversu mikið Jón hafði lagt af mörkum til sveitar sinnar, áratug- um saman, og þegar sonur hans Eiríkur sendi mér blaðafregn og mynd af Jóni þar sem hann er að taka við fálkaorðunni fannst mér það sannarlega verðug viðurkenn- ing á ævistarfi hans. Síðasta afrek Jóns er Jarðabók Skeiðahrepps, sem hann byrjaði á sem ungur maður, en húnkom út fyrir tveimur árum. Er mikið gagn að þeirri bók, bæði fyrir fræðimenn og íbúa hreppsins. Ég hafði gert ráð fyrir því að ná fundi Jóns í sumar. Ég vissi að hann var á sjúkrahúsi og ráðgerði að heilsa upp á hann snemma í júní. Það reyndist því miður of seint. Ég samhryggist Emelíu konu hans, fjölskyldu og vinum. Margaret Cormack. Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á for- síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður grein- in að hafa borist eigi síðar en á há- degi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í minningargreinun- um. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í inn- sendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda mynd- ina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningar- greina vita. Minningargreinar Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Allar minningar á einum stað. ÍS L E N S K A S IA .I S M O R 48 70 7 01 /1 0 –– Meira fyrir lesendur Minningar er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SIGURÐAR KARLSSONAR, Núpum, Aðaldal. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Húsavíkur, öldrunardeildar Kristnessspítala og lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akureyrar. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Sigurðardóttir, Karl Sigurðsson, Sigrún Marinósdóttir, Ásmundur K. Sigurðsson, Kolbrún Ólafsdóttir og barnabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR ELÍSU ÓLAFSDÓTTUR fyrrverandi varaformanns Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, fyrir sérstaklega góða umönnun og hlýtt viðmót. Ómar Már Magnússon, Jóhannes Rúnar Magnússon, Andrea Guðmundsdóttir, Ólafur Sævar Magnússon, Sólbjörg Hilmarsdóttir, Viðar Magnússon, Emelía Bára Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.