Morgunblaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 36
36 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010 Sudoku Frumstig 8 3 3 2 2 1 5 6 8 8 4 3 5 8 4 2 1 3 9 4 6 9 8 1 1 7 7 6 9 3 4 6 1 6 7 8 2 1 8 4 6 7 9 2 1 3 2 4 9 3 7 7 3 9 6 7 4 1 3 4 5 1 2 9 6 3 2 8 7 4 8 5 9 1 5 2 7 8 4 3 6 3 4 2 5 6 1 9 7 8 7 6 8 4 3 9 1 2 5 6 8 9 7 1 3 5 4 2 4 2 7 6 9 5 3 8 1 1 5 3 8 2 4 7 6 9 5 3 6 1 8 7 2 9 4 8 7 1 9 4 2 6 5 3 2 9 4 3 5 6 8 1 7 8 5 7 6 1 4 3 2 9 2 9 4 3 7 5 8 1 6 1 3 6 8 2 9 5 4 7 3 6 2 4 5 8 9 7 1 9 1 5 2 3 7 6 8 4 7 4 8 9 6 1 2 5 3 5 8 9 7 4 3 1 6 2 6 7 1 5 9 2 4 3 8 4 2 3 1 8 6 7 9 5 8 1 5 9 6 7 2 3 4 9 7 3 4 5 2 8 6 1 6 4 2 1 8 3 9 5 7 3 5 6 7 2 1 4 8 9 1 2 4 8 9 5 6 7 3 7 8 9 6 3 4 1 2 5 5 6 8 3 4 9 7 1 2 2 9 1 5 7 8 3 4 6 4 3 7 2 1 6 5 9 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 12. júní, 163. dag- ur ársins 2010 Orð dagsins: Og þótt þér elskið þá, sem yður elska, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar elska þá líka, sem þá elska. (Lk. 6, 32.) Víkverji er ekki búinn að ákveðameð hverjum hann ætla að halda á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Í fyrstu tveimur leikjunum verða það þó Suður-Ameríka og Úrúgvæ sem fá stuðning Víkverja, en framhaldið er óljóst enn sem komið er. x x x Víkverji er reyndar ekki mikillknattspyrnuaðdáandi almennt og hefur aldrei skilið hvernig Íslend- ingar geta í alvöru látið sig varða ein- hver deildarlið í Bretlandi og jafnvel látið það stjórna skapi sínu þann dag- inn hvort eitthvert lið frá einhverjum bæ sem viðkomandi hefur jafnvel aldrei komið til vinnur eða tapar í ein- hverjum leik. Það er margt skrýtið í kýrhausnum og þetta án efa eitt það alskrýtnasta. x x x Þegar kemur að stórmótum, EMog HM, þá vaknar Víkverji hins- vegar til lífsins og fylgist spenntur með. Andrúmsloftið á svoleiðis at- burðum er einfaldlega allt öðruvísi og magnaðara en í deildarkeppnunum. Víkverji á það gjarnan til að halda með lítilmagnanum, allavega svona framan af keppni. Það verður reyndar til þess að þegar í undanúrslit kemur þarf Víkverji oftast að velja sér nýtt og öflugra lið því hin smærri eru dott- in út. x x x Vinur Víkverja hefur ákveðið aðhalda með Argentínu á heims- meistaramótinu í ár af einni einfaldri ástæðu: Hann er heillaður af persónu- töfrum Diego Maradona, þjálfara liðs- ins. Víkverji getur vel skilið þessa af- stöðu, því Maradona er skrautegur og það er nú þannig að eitt hið skemmti- legasta við HM og íþróttaleiki al- mennt er að fylgjast með þeim ótrú- legu karakterum sem mörg liðin hafa að geyma og viðbrögðum þeirra við sigrum og ósigrum. Það er ástæða fyrir því að sumir verða stjörnur en aðrir ekki og það hefur ekki bara með hæfileika að gera því persónuleikinn skiptir ekki minna máli, hvort sem áhorfendur elska hann eða elska að hata hann. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 mergð, 4 önuga, 7 afrennsli, 8 huldumenn, 9 hagnað, 11 nytjalanda, 13 spil, 14 nær í, 15 klöpp, 17 far, 20 aula, 22 kvendýr, 23 kjaftarnir, 24 ham- ingjan, 25 sigar. Lóðrétt | 1 berast með vindi, 2 storkar, 3 stynja lágt, 4 rík, 5 efstu hæð- ar, 6 hinir, 10 renning- urinn, 12 nöldur, 13 tímabils, 15 rúmstokks, 16 flokk, 18 kvenmenn, 19 kvelur, 20 geislahjúp- urinn, 21 sníkjudýr. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fjandskap, 8 gætin, 9 orkan, 10 nót, 11 terta, 13 turni, 15 tafls, 18 sterk, 21 kát, 22 skoða, 23 eigur, 24 skeleggar. Lóðrétt: 2 játar, 3 nunna, 4 skott, 5 akkur, 6 ágæt, 7 unni, 12 tel, 14 urt, 15 Tass, 16 flokk, 17 skafl, 18 stegg, 19 eigra, 20 kort. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. g3 dxc4 5. Bg2 c6 6. Re5 Bb4+ 7. Bd2 Dxd4 8. Bxb4 Dxe5 9. Ra3 b5 10. Bd6 Dxb2 11. 0-0 Rd5 12. e4 Rc3 13. Dg4 h5 14. Dg5 Re2+ 15. Kh1 Df6 16. Dd2 e5 17. Bxb8 Rd4 18. Bxe5 Dxe5 19. Had1 Re6 20. f4 Dc5 21. Rc2 h4 22. f5 hxg3 23. h3 De7 24. e5 Rd8 25. f6 gxf6 26. exf6 Dc7 27. Hfe1+ Re6 28. Rd4 Bd7 29. Rxe6 Bxe6 30. Dg5 Hf8 Staðan kom upp á Sigeman- mótinu sem lauk fyrir skömmu í Málmey í Svíþjóð. Hollenski stór- meistarinn Anish Giri (2.642) hafði hvítt gegn sænska alþjóðlega meist- aranum Nils Grandelius (2.476). 31. Hxe6+! fxe6 32. Dg6+ Df7 33. Bxc6 mát! Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Yarborough. Norður ♠Á ♥ÁKD7 ♦ÁKD754 ♣ÁG Vestur Austur ♠DG52 ♠K10764 ♥10852 ♥G94 ♦10 ♦G ♣KD96 ♣10542 Suður ♠983 ♥63 ♦98632 ♣873 Suður spilar 7♦. Charles Anderson-Pelham, annar jarlinn af Yarborough (1809-1862), er kunnur fyrir veðmál sem hann bauð vist-spilafélögum sínum: gegn einu pundi þeirra skyldi hann greiða þús- und ef viðkomandi fengi hönd án há- spila og tíu. Nú vita menn að líkur á yarborough eru 1 á móti 1827. Venjulega er handhafi yarborough- spila í ómerkilegu aukahlutverki, en hér haga örlögin því svo til að suður verður sagnhafi í alslemmu – skýringin liggur í 2ja tígla afmeldingu við alkröfu norðurs. Útspilið er ♣K. Með góðri nýtingu kemst sagnhafi þrisvar heim á tígul. Tvær innkomur notar hann til að stinga spaða hátt og „snúa þannig við blindum“. Þriðju inn- komuna notar hann til að þjarma að vestri, sem þolir ekki þrýstinginn með ♣D og lengdina í hjarta. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Að einblína á smáatriði hjálpar þér ekki með vandamálið sem þú glímir við. Sinntu starfinu af kostgæfni og einka- málunum utan þess. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er erfitt að mynda sér einhverja skoðun þegar aðeins liggur fyrir brot af upplýsingum. Bréf og símtöl auðvelda leiðina að ákvörðunartöku. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Umfram allt verður þú að gæta þess að halda hlutunum í jafnvægi í dag. Hættu allri góðsemi, hristu afætur af þér. Hjartað má ráða um stund. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Dagurinn hentar engan veginn til innkaupa. Vinur þinn er hreinskilinn við sjálfan sig og opinn fyrir öðrum og alveg sama hvort öðrum finnst hann skrýtinn eða ekki. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Ástvinir fara yfir mörk og telja sig gera það í þína þágu. Mundu að ekkert er þess virði ef heilsan fer. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er hægt að leiða öðrum sann- leikann fyrir sjónir án þess að beita ráð- ríki. Mundu þó að börnin fara ekki eftir því sem þú segir, heldur því sem fyrir þeim er haft. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þetta er tilvalinn dagur til að ræða við yfirmenn og þá sem ráða. Vertu var- kár í orðum og gerðum og þá þarftu ekki að hafa neinar áhyggjur. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þegar þú leyfir andagiftinni að ráða för, lendirðu á óvæntum stað þar sem galdrar gerast. Vinur gæti boðið þér út eða fært þér gjöf sem gleður þig. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Skapandi áhætta er ferli, óreynt og yndislega óvænt. Allt hefur sinn tíma og þú færð að ræða málin, þann- ig að öll kurl komi til grafar. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Nú er hvorki staður né stund til að vera tilfinningalega lokaður/lokuð. Ekki láta skipulagningaráráttu annarra pirra þig. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það hefur ekkert upp á sig að leika einleik þegar liðsheildin þarf að ráða. Gefðu þeim tíma til að vera til. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Allt samstarf byggist á sam- komulagi og málamiðlunum. Að vissu leyti óttast maki það að valda þér von- brigðum, en helst vill hann að reynsla sín nýtist þér sem best. Stjörnuspá 12. júní 1939 Jónas Halldórsson setti fimm- tugasta sundmet sitt á tíu ár- um, daginn áður en hann varð 25 ára. „Glæsilegur íþróttafer- ill,“ sagði Morgunblaðið. 12. júní 1976 Benny Goodman klarinettu- leikari, konungur sveiflunnar, hélt tónleika í Laugardalshöll. Morgunblaðið sagði að hann hefði unnið hug og hjörtu áheyrenda. „Þvílíkir tónar,“ sagði í Alþýðublaðinu. 12. júní 1999 Sigurrós efndi til tónleika í til- efni af útgáfu geisladisksins Ágætis byrjun. Rúmu ári síðar var diskurinn valinn „plata aldarinnar“. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Antonía Sigurðardóttir, Ólöf Ósk Þorgeirsdóttir, Karolína Rós Ólafs- dóttir, Kristbjörg Ásta Böðvars- dóttir, Dagmey Björk Kristjáns- dóttir og Ásgerður Jana Ágústs- dóttir héldu tombólu við verslun 10-11 í Kaupangi á Akureyri. Þær söfnuðu 11.161 krónu sem þær styrktu Rauða krossinn með. Á myndinni eru Ólöf og Antonía, sem afhentu styrkinn. Hlutavelta „Það er talsverður áfangi í tilverunni að verða 35 ára og við fjölskyldan höldum að sjálfsögðu upp á þessi tímamót með vinafólki okkar. Ætlum að grilla og gera okkur góðan dag. Enda ástæða til, lífið hefur verið gott við mig,“ segir Þórunn Elsa Bjarnadóttir, viðurkenndur bókari. Hún hefur starfað við bókhald í meira en áratug og starf- rækir eigin stofu. Þórunn og fjölskylda hennar settu núna í byrjun júnímánaðar á stofn tískuvöruverslunina Basic Streetwear sem er í Hólagarði í Breiðholti í Reykjavík. „Við komumst í samband við góðan birgi erlendis sem var með fínar vörur og ákváðum því að fara af stað með verslunina sem hefur fengið mjög góðar viðtökur. Við erum með þekkt merki í tískuvörum fyrir unglinga sem eru mjög kröfuharðir kaupendur. Krakkar vilja ekki klæðast hvaða fötum sem er,“ segir Þórunn sem kveðst eiga fjölmörg áhugamál svo sem badminton, veiði- skap og útiveru hverskonar. Hún fæddist í Vestmannaeyjum en hefur búið í Reykjavík síðan á barnsaldri. Eiginmaður Þórunnar er Egill Gómez og eiga þau tvö börn, Guðrúnu Svövu og Bjarna Þór, sem bæði eru á unglingsaldri. sbs@mbl.is Þórunn Elsa Bjarnadóttir er 35 ára í dag Lífið verið gott við mig Nýirborgarar Svíþjóð Ívar Þór fædd- ist 8. maí kl. 13.29. Hann vó 3.580 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Freya Magnús- dóttir og Sindri Már Elfarsson. Akranes Klara Rós fædd- ist 16. mars kl. 4.05. Hún vó 3.030 g og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Arndís Oddfríður Jónsdóttir og Heiðar Val- ur Bergmann. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.