Morgunblaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 40
Fjöldinn allur af þjóðþekktum listamönnum mun starfa
saman í sumarsafnplötunni Hitaveitan: Með lögum skal
land verma sem kemur út hinn 17. júní. Til samstarfs-
verkefnanna má nefna Reykjavík! og Mugison, Retro
Stefson og Miri, Skakkamanage og Prins póló, Hjálmar
og Helga Björns. Þá taka Hjaltalín, Retron, Snorri
Helgason, Egill S og fleiri þátt í plötunni sem hefur það
að yfirlýstu markmiði að verma landið í sumar með góðri
tónlist.
„Við vildum stofna til samstarfs milli íslenskra hljóm-
sveita og búa til djúsí safnplötu,“ segir Kristján Freyr
Halldórsson hjá plötuútgáfunni Kimi en samstarf hinna
ýmsu listamanna hefur getið af sér fjórtán lög, þ. á m.
reggí-útgáfu af laginu hans Helga Björns, „Húsið og ég“.
„Markmiðið var bara að stuðla að einhverju stuði í sum-
ar, halda partíinu gangandi og svona. Hjálmar hittu
Helga Björns og þeim datt í hug að taka almennilega
reggí-útgáfu af Húsið og ég fyrir þessa plötu, svo sendi
Mugison póst á Reykjavíkur-strákana og þeir fóru vest-
ur á Flateyri og tóku upp fyrir plötuna. Á sama tíma á
Karamba hittust strákarnir í Miri og Retro Stefson og
ákváðu að gera eitthvað saman fyrir plötuna. Svo er líka
áhugavert að Skakkamanage ákváðu að gera eins konar
FM Belfast-lag og FM Belfast ákváðu að gera Skakkam-
anage lag þannig að þau eru hvort um sig svolítið í stíl
hins. Þetta eru allt frábær lög en óvæntasti smellurinn
var lag Retron-manna, þetta er náttúrleg frábær hljóm-
sveit en það sem þeir gerðu, ja, ég bara veit ekki hvað,
þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og við ætlum
að reyna að gera þetta að smelli í útlöndum, senda það til
fjölmiðla og bransakarla og svona,“ segir Kristján að lok-
um. Áhugasömum verður fært að leggja sig í sólinni í
Vestursundi á milli NASA og Havarí á þjóðarhátíðardag-
inn og hlusta á Hitaveitutónleika en ljóst er að ef mark-
mið Hitaveitunnar ganga eftir ætti landsmönnum ekki að
verða kalt á þjóðhátíðardaginn. gea@mbl.is
Morgunblaðið/hag
Mugison Einn þeirra tónlistarmanna sem koma við sögu á plötunni Hita-
veitan: Með lögum skal land verma, en hún kemur út 17. júní.
Halda partíinu gangandi
Ný sumarplata: Mugison, Hjálmar, Hjaltalín og fleiri
40 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010
Sýningin Dagbók Önnu Knúts –
Helförin mín verður sýnd í Tjöru-
húsinu á Ísafirði 17. júní kl. 22.
Dagbók Önnu Knúts er uppistands-
einleikur og fjallar um unglingsár
stelpu sem glímir við ýmis vanda-
mál. Anna Svava Knútsdóttir flyt-
ur uppistands-einleikinn.
Anna Knúts í Tjöruhús-
inu á Ísafirði 17. júní
Fólk
Í sama mund og landslið í knattspyrnu berjast um
heimsmeistaratitilinn ætlar fylking þjóðþekktra
einstaklinga að berjast fyrir mannréttindum með
knattspyrnu. Viðburðurinn verður haldinn á
sunnudaginn frá klukkan fjögur til sjö á Gervi-
grasvellinum í Laugardal og er ætlunin að styðja
ellefu manna lið einstaklinga sem barist hafa fyrir
mannréttindum víða um heim. Mikhmed Gazdiev
frá Rússlandi er einn þeirra liðsmanna en hann
hefur leitað brottnumins sonar síns í þrjú ár og
verið ötull talsmaður mannréttinda í Rússlandi.
Orrusturnar eru víðar og horfa má til Kína þar
sem Dhondup Wangcheng gerðist sekur um að
gera heimildamynd í óþökk stjórnvalda. Fleiri
áhugaverðar sögur göfuga liðsins má finna á
www.amnesty.is/heimsmeistarakeppnin-2010
Ilmur Kristjánsdóttir er ein þeirra sem hafa
lagt nafn og fótafimi við málstaðinn. „Ég horfi
eiginlega ekki á fótbolta og ég veit nú ekki hvort
ég sé mikil keppnismanneskja. Ég fer allavega
leynt með það, við getum sagt það.“ En fótasprikl
Ilmar verður ekki eina skemmtiatriði dagsins því
Ari Eldjárn og Saga Garðarsdóttir flytja uppi-
stand, DJ Maísól þeytir skífum og leika munu Gísli
Örn Garðarsson, Gunnar Hansson, Jörundur
Ragnarsson, Magni Ásgeirsson, Sigmar Guð-
mundsson, Óskar Jónasson, Þóra Karítas Árna-
dóttir, Ragnar Kjartansson, Jóhann G. Jóhanns-
son og fleiri þjóðþekktir einstaklingar. Félagið
Styrmir tekur á móti hinum frægu en enginn fót-
boltaspekingur hefur enn tekið að sér að spá nið-
urstöðu leiksins. gea@mbl.is
Spila knattspyrnu til að bæta heiminn
Morgunblaðið/Ómar
Fótbolti Ilmur Kristjánsdóttir spilar af göfgi. Í kvöld munu gáfumennin í Ljótu
hálfvitunum fagna útgáfu þriðju
hljómplötu sinnar með tónleikum í
Ýdölum, Aðaldal, S-Þingeyjarsýslu.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og munu
hálfvitarnir að mestu leika lög af
nýju plötunni en þó læða inn í flutn-
inginn eldri lögum.
Hálfvitarnir ætla að fá sér til að-
stoðar ýmsa þá tónlistarmenn sem
lögðu hönd á plóg við gerð plöt-
unnar nýju og segjast reikna með
nokkurri ringulreið á sviðinu vegna
þess. Þriðja platan heitir einfald-
lega Ljótu hálfvitarnir, líkt og þær
fyrri.
Ljótu hálfvitarnir valda
ringulreið í Ýdölum
Í dag kynnir starfsfólk Ókeibóka
í Bókabúð Máls og menningar á
Laugavegi landakort af Íslandi sem
Hugleikur Dagsson teiknaði og
nýja boli með teikningum úr bók
hans Popular Hits. Jóhann Krist-
insson flytur nokkur lög og Ingi-
björg Hjartardóttir les upp úr bók
sinni Hlustarinn.
Nýtt Íslandskort Hug-
leiks, lestur og tónar
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Fjórmenningarnir fræknu í rokk-
sveitinni For a Minor Reflection
sendu frá sér breiðskífu í vikunni,
sína aðra plötu, og stefna á tónleika-
hald til að kynna hana hér heima áð-
ur en lagst verður í ferðalög að
fylgja eftir áhuga að utan. Platan
nýja, sem hefur fengið heitið Höld-
um í átt að óreiðu, er önnur breið-
skífa þeirra pilta, en sú fyrsta,
Reistu þig við, sólin er komin á
loft …, kom út fyrir þremur árum.
Segja má að starf sveitarinnar
hafi að mestu leyti verið erlendis frá
þeim tíma með stopulu tónleikahaldi
hér heima. Síðasta haust léku þeir
félagar á tónlistarhátíðinni Réttum
og þá nýtt efni nánast eingöngu,
enda komnir á kaf í að hljóðrita skíf-
una sem skilaði sér í vikulokin.
Höldum í átt að óreiðu var hljóð-
rituð í ágúst síðastliðnum í Sund-
lauginni og síðan unnin frekar í sept-
ember af upptökustjóranum Scott
Hackewith í Los Angeles, en þar
hljóðrituðu þeir félagar líka slatta til
viðbótar, enda hljóðverið svo gott.
Guðfinnur Sveinsson segir að platan
nýja sé nokkuð frábrugðin frumraun
þeirra félaga og þá aðallega fyrir
það að hljómur er talsvert breyttur.
„Þetta hljómar allt öðruvísi og í raun
má segja að við séum að þróast í
báðar áttir, bæði í átt
að rólegri tónlist og
svo líka í átt að
harðari. Lögin
eru líka styttri
og aðeins meiri
pælingar á bak
við þau. Hina plöt-
una tókum við upp
á einum degi og
bara ein taka
hvert lag en núna
tókum við okkur meiri tíma.“
Upphaflega stóð til að klára plöt-
una alveg ytra, en Guðfinnur segir
að það hafi verið svo gaman að kom-
ast í svo gott hljóðver að þeir gátu
ekki stillt sig um að taka upp heil-
mikið til viðbótar og því lögðu menn
lokahönd á skífuna síðar en ætlað
var.
Útgáfutónleikar plötunnar verða
ekki haldnir fyrr en í lok júlí í Iðnó
sem skýrist af því að þeir félagar
vildu halda tónleikana þar og þurftu
að bíða eftir því að húsið væri laust á
hentugum degi. Frekari spila-
mennska er í pípunum hér heima,
16. júní hyggjast þeir leika í Venue á
vegum Record Records, sem dreifir
skífunni hér heima, og daginn eftir,
þjóðhátíðardaginn, stefna þeir að því
að spila á Sódómu. Lokatónleikar í
þessari hrinu verða svo 19. júní á
MúsMos-útitónleikunum í Mos-
fellsbæ.
Breytingar Félagarnir í For a Minor Reflection sendu frá sér sína aðra breiðskífu í vikunni, plötuna Höldum í átt að óreiðu.
Fjórir fræknir félagar
Önnur breiðskífa For a Minor Reflection komin út og tónleikar framundan
For a Minor Reflection varð til
sumarið 2006, skipuð þeim
Kjartani Holm, Guðfinni Sveins-
syni, Elvari Jóni Guðmundssyni
og Jóhannesi Ólafssyni,
en Andri Freyr Þorgeirs-
son settist á tromm-
arastólinn í stað Jó-
hannesar á síðasta
ári. Fyrsta skífan
kom út 2007 og ári
síðar var þeim fé-
lögum boðið að hita
upp fyrir Sigur Rós á
þrettán tónleikum
víða í Evópu.
Út í heim
FJÖGURRA ÁRA
FJÓRMENNINGAR
Fyrsta gerð
For a Minor
Reflection.