Morgunblaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 41
Leikkonan January Jones, þekktust fyrir leik sinn í þáttaröð-
unum Mad Men, keyrði utan í þrjá kyrrstæða bíla í Los Angeles í
gær og yfirgaf svæðið gangandi, að því er fram kom á vef Fox
News í gær. Lögreglan í LA greindi slúðurvefnum TMZ frá þessu,
að Jones hafi keyrt Range Rover-bifreið sinni utan í bílana um níu-
leytið að kvöldlagi.
Jones mun ekki hafa verið ölvuð eða undir áhrifum eiturlyfja,
skv. upplýsingum frá lögreglu. Hún mun hafa sagt lögreglu að
ljósmyndarar hafi elt hana frá The London West Holly-
wood hótelinu en hún var á leið heim til sín. Ljósmynd-
ararnir trufluðu hana svo mikið að hún missti stjórn á
bílnum og keyrði á. Hún gekk þvínæst heim til sín,
hringdi þar í neyðarlínuna 911 og tilkynnti um
óhappið.
Reuters
Jones Ofsótt af
ljósmyndurum.
Menning 41FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010
Víkingaheimar
422 2000 | info@gudridur.com
Ferðasaga Guðríðar - aukasýningar í júní
Lau 12/6 aukas. kl. 20:00 Ö
Víkingaheimar, Víkingabraut 1, 260 Reykjanesbæ
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Bæjar-, fjölskyldu- og tónlistarhá-
tíðin Kótelettan verður haldin á
Selfossi um helgina og verður af
nægu að taka í bænum í tilefni
þess. Lögð verður áhersla á fjöl-
breytta dagskrá fyrir unga sem
aldna og sunnlensk framleiðslufyr-
irtæki ætla að bjóða upp á vörur
sínar. Í kvöld koma svo fram Páll
Óskar, Sálin hans Jóns míns,
Karma og Sumargleðistrákarnir
Raggi og Hemmi ásamt vel völdum
plötusnúðum. Frítt er á tjaldsvæði í
bænum fyrir fjölskyldufólk og einn-
ig verður frítt í Sundhöll Selfoss
alla helgina.
Fyrir austan, nánar tiltekið á
Egilsstöðum, fer fram rokkveislan
vegaREIÐI í Bragganum við slát-
urhúsið. Þar koma fram hljómsveit-
irnar Mammút, Miri, Chino, Romeo
must die, Brönd, Buxnaskjól ásamt
Per Nic. Gundersen frá Noregi.
Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn
og hefur hún farið stækkandi með
hverju árinu. Meira en þrjátíu
hljómsveitir hafa komið við sögu á
þessum tónleikum gegnum árin.
Bragginn verður opnaður kl. 19 og
lýkur tónleikunum upp úr mið-
nætti. Ekkert aldurstakmark er á
tónleikana og frítt er inn.
Uppi á Skipaskaga verður haldin
í fyrsta sinn tónlistarhá-
tíðin Villta vestrið og
verða haldnir tón-
leikar víðsvegar
um bæinn.
Skipuleggjendur hátíðarinnar
segja að hátíð af þessu tagi hafi
vantað í tónlistarlífið á Akranesi í
nokkurn tíma og vona að þessi há-
tíð í ár verði sú fyrsta af mörgum.
Tónleikarnir hefjast í Tónbergi kl.
13 og þar koma m.a. fram hljóm-
sveitirnar Útidúr, Bróðir Svartúlfs
og sigurvegarar Músíktilrauna, Of
Monsters and Men. Stuttu
seinna hefjast svo tónleikar
í skrúðgarðinum og spila
þar sveitir á borð við
Blues Willis, Klassart
og Ferlegheit og eru hvorir tveggja
þessir tónleikar opnir öllum aldurs-
hópum. Um kvöldmatarleytið fær-
ist svo hátíðin í Bíóhöllina þar sem
Bolywool frá Svíþjóð, Ólafur Arn-
alds og Leaves skemmta gestum
ásamt fjölda annarra hljómsveita.
Villta vestrið nær svo hámarki í
Gamla kaupfélaginu þar sem
hljómsveitirnar Cosmic Call, Sykur
og stuðboltinn Berndsen ásamt
fleiri hljómsveitum munu halda
uppi fjörinu langt fram á nótt.
matthiasarni@mbl.is
Morgunblaðið/Ernir
Páll Óskar Verður á Kótelettunni í kvöld.
Seyðfirðingar Hljómsveitin Miri spilar á vegaREIÐI í kvöld.
Kótelettan, vegaREIÐI
og Villta vestrið
Morgunblaðið/Ernir
Vilta Vestrið Berndsen verður á Skipaskaga í kvöld.
Tónlistahátíðir verða haldnar víðsvegar um land í dag
Jones keyrði á þrjá bíla
IÞ, Mbl
IÞ, Mbl
EB, FblEB, Fbl
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Gauragangur, tryggðu þér miða í haust
Gauragangur (Stóra svið)
Lau 12/6 kl. 20:00 Lau 4/9 kl. 20:00 Lau 11/9 kl. 20:00
Fös 3/9 kl. 20:00 Fös 10/9 kl. 20:00
Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk
Dúfurnar (Nýja sviðið)
Lau 12/6 kl. 20:00
Rómeó og Júlía Vesturports (Stóra svið )
Sun 13/6 kl. 20:00 aukas Lau 19/6 kl. 20:00 aukas Mið 30/6 kl. 20:00 aukas
Þri 15/6 kl. 20:00 aukas Sun 20/6 kl. 20:00 aukas
Fös 18/6 kl. 20:00 aukas Þri 29/6 kl. 20:00 aukas
Í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports.
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Lau 12/6 kl. 19:00 Aukas. Lau 18/9 kl. 19:00 Lau 25/9 kl. 19:00
Fim 9/9 kl. 19:00 Sun 19/9 kl. 19:00 Fös 1/10 kl. 19:00
Fös 10/9 kl. 19:00 Fös 24/9 kl. 19:00 Lau 2/10 kl. 19:00
Haustsýningar komnar í sölu! Sýningarnar hefjast kl. 19:00
Miðasala » www.sinfonia.is » Sími 545 2500 » Miðasala í Háskólabíói frá kl. 9-17
Mið. 16.06.10 » 20:00
Fös. 18.06.10 » 20:00
Lau. 19.06.10 » 20:00
UPPSELT
UPPSELT