Morgunblaðið - 12.06.2010, Side 48
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 163. DAGUR ÁRSINS 2010
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Þetta er allt að koma. Það er byrjað
að byggja tvö hús hérna við hliðina á
okkur og svo vitum við ekkert hvort
meira bætist við. Vonandi bætast
fleiri íbúar við, en okkur líður mjög
vel hérna,“ segir Hafsteinn Guð-
mundsson bifvélavirkjameistari sem
í vor flutti ásamt fjölskyldu sinni inn
í neðri hæðina á einbýlishúsi þeirra í
Urriðaholti í Garðabæ. Eru þau þar
með fyrstu íbúar hverfisins sem ver-
ið hefur óbyggt sl. tvö ár.
Hafsteinn segir fjölskylduna una
hag sínum vel í Urriðaholtinu, í ró og
næði með útsýni til allra átta og
stutt að fara í golf, í Heiðmörk eða
ganga kringum Urriðavatnið. Eftir
er að malbika götuna og að sögn
Hafsteins standa þær framkvæmdir
til í sumar. Búið var að leggja ljósa-
staura í götuna, að vísu eru þeir ekki
tengdir enn en fjölskyldan lætur það
ekki á sig fá um bjartar sumarnætur
og vonast til að lýsingin verði komin
í haust. Einnig var búið að leggja all-
ar vatns- og raflagnir í hverfið en fá-
ir dagar eru síðan þau fengu net- og
símatengingu í hús með ljósleiðara.
„Við létum okkur farsímana duga og
fengum kærkomna hvíld frá tölv-
unum fyrstu vikurnar,“ segir Haf-
steinn og kímir. Annars bera þau
þjónustunni vel söguna sem þau
hafa fengið frá Garðabæ, miðað við
aðstæður. Um leið og tilkynnt var
um flutninginn komu t.d. sorphirðu-
bílar í Urriðaholtið.
Fjölskyldan átti áður heima í
Krókamýri í Garðabæ en þurfti að
stækka við sig. Þau vildu ekki fara
úr Garðabænum og úr varð að þau
keyptu lóð í Urriðaholti og byrjuðu
að byggja í Keldugötu 7. Þeim tókst
að selja húsið í Krókamýri rétt fyrir
bankahrunið og bjuggu þar til í vor í
leiguhúsnæði.
„Við höfum alltaf ætlað okkur að
eiga heima hérna og reyndum ekk-
ert að selja lóðina eða húsið eftir að
kreppan skall á. Við tökum þetta í
jöfnum og hægum skrefum, búin að
koma okkur ágætlega fyrir á neðri
hæðinni og vinnum um leið í að
standsetja efri hæðina. Þetta er allt
á áætlun,“ segir Hafsteinn sem vinn-
ur eins mikið sjálfur í húsinu og
hann getur, auk þess að kaupa vinnu
af iðnaðarmönnum.
Hann segir börnin hafa tekið
flutningnum vel. „Þetta þýðir auðvit-
að töluverðan akstur á milli staða,
eins og til vinnu, í skóla, tómstunda-
starf og til vinanna, en við látum
okkur hafa það,“ segir húsbónd-
inn Hafsteinn að endingu.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Frumkvöðlar Fyrsta fjölskyldan sem flytur inn í Urriðaholtinu í Garðabæ; Hafsteinn Guðmundsson og Steinunn Bergmann ásamt börnum sínum fjórum,
tengdasyni og hundunum Lúkasi og Lovísu. Byrjað er að byggja tvö hús við Keldugötu og vonast þau eftir að íbúum hverfisins fari að fjölga.
„Vonandi bætast fleiri íbúar við“
Fyrsta fjölskyldan flutt í Urriðaholt
Eftir að malbika og tengja staura
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Brátt hverfa bæturnar
2. Gaf sjúkrahúsinu 45 milljónir
3. Bjóða Hönnu Birnu að taka sæti
4. Kraftlyftingamaður ælir yfir ...
Myndlistarmennirnir Hlynur Halls-
son og Jóna Hlíf Halldórsdóttir opna í
dag sýningu sem er fyrsti hluti af
þremur í þríleiknum Áfram með
smjörlíkið! í Listasafni ASÍ. »38
Morgunblaðið/Golli
Unnu aðeins með
Ragnar í Smára
Ein af heitari
hljómsveitum
Breta af yngri
kynslóðinni,
Hurts, mun koma
fram á tónlistar-
hátíðinni Iceland
Airwaves sem
haldin verður 14.-
17. október nk.
Breska ríkisútvarpið, BBC, spáir
Hurts velgengni í ár en fyrsta breið-
skífa hljómsveitarinnar er væntanleg
í sumar. Frekari upplýsingar má finna
á icelandairwaves.is.
Hurts heldur tónleika
á Iceland Airwaves
Jónsi og félagar í hjómsveit-
inni Sigur Rós hlutu verðlaun
á tónlistarverðlaunahátíð
tímaritsins Mojo í fyrradag
fyrir stórkostlegt framlag
sitt til tónlistar. Þá hlutu
þrír þekktir gítarleikarar
einnig verðlaun fyrir fram-
lag sitt til tónlistar, þeir
Jimmy Page, Duane Eddy
og Richard Thompson.
Heildarlista yfir verð-
launahafa má finna á
mojo4music.com.
Sigur Rós hlaut tón-
listarverðlaun Mojo
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 5-13, rigning sunnan- og vestanlands en hægari vindur
og bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti 8 til 18 stig á morgun, hlýjast norðaustan til.
Á sunnudag Vestlæg átt með smásúld vestan til, en þurrt austanlands. Hiti 10 til 18 stig,
hlýjast austanlands.
Á mánudag Sunnan 8-13 og rigning vestanlands en annars hægari og skýjað með köfl-
um. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast austanlands.
Lið Leiknis úr Reykjavík er komið í
efsta sæti 1. deildar karla í fótbolta
eftir sigur á Gróttu í gær, 2:1. Fjöln-
ismenn skutu á meðan ÍR-inga af
toppnum með 4:0 sigri í Grafarvog-
inum. Skagamenn fögnuðu fyrsta
sigrinum í sumar þegar þeir unnu
Víking með marki í uppbótartíma og
þeir komust þar með úr fallsæti
deildarinnar. »4
Leiknir á toppinn og
loks unnu Skagamenn
Frakkland og Úrúgvæ gerðu
markalaust jafntefli í seinni
leik gærdagsins á heims-
meistaramótinu í knatt-
spyrnu í Suður-Afríku. Þar
með eru öll fjögur liðin í A-
riðli keppninnar með eitt
stig eftir fyrsta leikdag-
inn. Sex leikir fara fram
á HM um helgina og þá
mætast m.a. England og
Bandaríkin og einnig Arg-
entína og Nígería. »2-3
Öll liðin í A-riðli
eru með eitt stig
Handboltalandslið karla fer á morgun
til Brasilíu og mætir þar heimamönn-
um tvívegis í næstu viku. „Í þessum
leikjum er kærkomið að gefa þeim
sem hafa spilað minna með liðinu
tækifæri til að sýna sig og sanna,“
segir Guðmundur Þ. Guðmundsson
landsliðsþjálfari.
Nokkrir af lykil-
mönnum liðsins
fara ekki
með. »1
Handboltalandsliðið
leggur upp í langferð
„Börnin mín eru að byggja
þarna og ég hef verið að
hjálpa þeim eftir því sem ég
hef getað,“ segir Helgi Vil-
hjálmsson í Góu, sem einnig á
lóð í Urriðaholtinu. Aðspurður
útilokar hann ekki að byggja á
lóðinni og flytja í hverfið á efri
árum. „Það er aldr-
ei að vita hvað
maður gerir,“
segir Helgi og
hvetur fólk til að
kaupa og byggja
í dag.
Helgi útilokar
ekki að flytja
BYGGIR LÍKA Í HOLTINU