Morgunblaðið - 06.07.2010, Síða 1

Morgunblaðið - 06.07.2010, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 6. J Ú L Í 2 0 1 0  Stofnað 1913  155. tölublað  98. árgangur  ÆTLAR AÐ KLIFRA ÍSFOSSA FRAM YFIR SJÖTUGT BREYTTU SVEITABÆ Í HLJÓÐVER MARKAKÓNGAR FÓRU FLATT ANNA MEÐ NÝJA PLÖTU 28 VONBRIGÐI ÍÞRÓTTIRHREYFING OG ÚTIVIST 10 Skoruðu 114 mörk í vetur en aðeins eitt á HM Morgunblaðið/Golli  Endurnýjun í brids hér á landi hefur minnkað á undanförnum ár- um og helst í hendur við auknar vinsældir pókers. „Markaðs- setningin í pókernum er bara svo svakaleg. Hann tekur alla sem eitt- hvað eru að leika sér,“ segir Jón Baldursson, landsliðsmaður í brids. Hann tekur auk þess fram að aðeins þurfi nokkra mánuði til að verða góður í póker en þrotlausa þjálfun í sex til sjö ár til að verða topp- bridsspilari. Innan Bridgesambandsins vona menn að góður árangur landsliðs- ins á Evrópumótinu og þátttaka á heimsmeistaramótinu sem fram fer á næsta ári verði til þess að auka áhuga ungra Íslendinga á brids á nýjan leik. »13 Vinsældir pókers hafa áhrif á end- urnýjun í brids Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is „Við báðum fjármálafyrirtækin um upplýsingar tengdar þessu strax í febrúar. Það hefur gengið hægar en við hefðum viljað að ná þessu út úr kerfum bankanna,“ segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlits- ins. Hann samþykkir ekki þá gagn- rýni Birkis Jóns Jónssonar, varafor- manns Framsóknarflokksins, að stjórnvöld hafi verið algerlega óund- irbúin fyrir dóm Hæstaréttar um gengistryggingu lána. Samkvæmt upplýsingum úr Seðlabankanum var einnig byrjað að undirbúa þetta þar í ársbyrjun. Gunnar segir að í maí hafi komið grófar upplýsingar út úr bönkunum um gengislánin og þá verið óskað eftir ýtarlegri gögnum. Þau hafi svo borist eftir að dómur féll í júní og séu enn að berast. „Við erum enn að bíða eftir gögnum en reiknum með að fá loka- upplýsingar í lok vikunnar, þannig að við fáum eins skýra mynd af þessu og við getum fengið.“ Það hefur því tekið banka landsins um hálft ár að útvega upplýsingar sem gefa heildarmynd af þeim hluta eignasafns þeirra, sem felst í gengis- tryggðum lánum og vekur það spurn- ingar um hversu vel fjármálakerfið er í stakk búið til að meta ástand sitt og eignir í ólgusjó markaðanna. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru upplýsingakerfi bankanna um þetta ekki mjög góð, fara ekki öll vel saman heldur og getur reynst erfitt að tengja upplýsingar úr einu þeirra við upplýsingar úr öðru. Bankarnir lengi að svara  Bankar hálft ár að senda upplýsingar um gengistryggð lán  Tilmæli SÍ og FME ekki borin undir AGS til samþykkis Rándýr Minkur ógnar bæði fuglum og fiskum og truflar veiði í ánum. Veiðiverðir og veiðimenn í Elliðaám hafa staðið boðflennur að því að stel- ast í veiðisvæði ánna upp á síðkastið. Bæði hefur sést til veiðiþjófa og minka á bökkum ánna. Þorsteinn Húnbogason, veiðivörður og leið- sögumaður í Elliðaám, kveðst hafa séð og heyrt af tveimur tilvikum veiðiþjófnaðar um liðna helgi. Ann- ars vegar hafi hann komið að tveim- ur mönnum við veiðar við ósasvæði ánna og hins vegar hafi honum bor- ist tilkynning um veiðiþjófnað tveggja manna við Teljarastreng. Ekki bar vel í veiði hjá þjófunum og segir Þorsteinn að veiðiaðferðirnar hafi ekki verið líklegar til árangurs. Veiðimenn hafa einnig orðið varir við mink á veiðum í ánni. Einn veiði- hópur horfði á eftir mink synda í átt- ina að andarungum úti í miðri á með miklum ærslagangi. „Það er bagalegt að minkur sé að trufla veiðar,“ segir Þorsteinn og bætir við að fuglalífið á svæðinu hafi einnig skaðast vegna minksins. Þor- steinn kann einfalda skýringu á upp- sveiflu minkastofnsins. „Mink fjölg- ar þegar náttúran blómstrar og hér hefur lífríkið styrkst.“ »12 Staðnir að verki í Elliðaám  Aðferðirnar ekki burðugar  Minkur leikur lausum hala Blásið var í vúvúsela, búsáhöldum klingt og reynt að þvinga upp hurð Seðlabankans í há- deginu í gær. Hátt í fimm hundruð manns mótmæltu þar framferði Seðlabanka og Fjár- málaeftirlits gagnvart lánþegum gengis- tryggðra lána. Einn var handtekinn eftir að hafa neitað að hlýða fyrirmælum lögreglu, sem greip inn í þegar fólkið var byrjað að bera eldsmat að aðalinngangi bankans og far- ið að skvetta á hann vökva. „Þetta leit út eins og bálköstur,“ segir Arnar Rúnar Marteins- son, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu. Þá taldi lögregla sér ekki lengur til setunnar boðið. Að sögn mótmæl- enda var lögregla harðhent. »6 Höfðu áhyggjur af eldsmat við Seðlabankann Morgunblaðið/Ómar  Tilkynningar um andlegt of- beldi gegn börn- um voru næst- um tvöfalt fleiri á fyrsta árs- fjórðungi þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í skýrslu Barnaverndar- stofu. Samkvæmt skýrslunni hef- ur tilkynningum um vímuefna- neyslu barna fjölgað um rúman helming. Aukin harka hefur færst í barnaverndarmál á undanförnum árum að sögn forstöðumanns Barnaverndar Reykjavíkur. »16 Andlegt ofbeldi til- kynnt tvöfalt oftar „Við höfum ekki borið neitt undir AGS og tökum sjálfstæðar ákvarðanir sem sjálfstæðar stofnanir,“ segir Gunnar um það hvort tilmæli FME og Seðla- bankans um gengistryggð lán hafi verið borin undir AGS og hann sé í raun skuggastjórnandi í þessum stofnunum. „AGS hef- ur ekki sagt okkur fyrir verk- um,“ segir Gunnar. AGS réð ekki FME OG SEÐLABANKINN:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.