Morgunblaðið - 06.07.2010, Síða 8

Morgunblaðið - 06.07.2010, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010 Ríkisstjórn opinnar stjórnsýsluog gegnsæis hefur skýrt frá því að viðræður við Breta og Hollendinga séu hafnar á ný.     Þjóðinni var ekki sögð sú fréttfyrr en eftir á.     Ríkisstjórninvirðist enn telja að það sé í raun og veru ekki mál þjóð- arinnar þótt ítrekað sé reynt að hengja ann- arra manna skuldbindingar á hana.     Í tilefni fundarins, sem sagtvar frá eftir að hann var um garð genginn, sagði Stein- grímur J. Sigfússon frá því að ekki hefði verið létt að koma fundinum á.     Þetta gladdi margan.     Loksins stendur ríkisstjórnin ílappirnar og lætur ekki hina óbilgjörnu kröfuhafa vaða inn á sig á skítugum skónum hvenær sem þeim þóknast.     Gamanið fór að kárna þegarþað rann upp fyrir mönnum að Steingrímur J. hafði átt við að hann hefði átt fullt í fangi með að fá Breta og Hollendinga til að fara að rexa í honum aft- ur með sínar löglausu rukkanir.     Með harðfylgi sínu hefðihann þó haft þá af stað.     Það er skiljanlegt að ekki séafl til að vinna að þjóð- arhagsmunum þegar kraftarnir eru nýttir svona. Steingrímur J. Sigfússon Steingrímur hóar á rukkarana Veður víða um heim 5.7., kl. 18.00 Reykjavík 14 skýjað Bolungarvík 10 skýjað Akureyri 11 alskýjað Egilsstaðir 10 skýjað Kirkjubæjarkl. 18 skúrir Nuuk 13 léttskýjað Þórshöfn 12 skýjað Ósló 20 léttskýjað Kaupmannahöfn 23 skýjað Stokkhólmur 25 heiðskírt Helsinki 25 heiðskírt Lúxemborg 24 léttskýjað Brussel 22 léttskýjað Dublin 16 skúrir Glasgow 15 léttskýjað London 23 heiðskírt París 24 skýjað Amsterdam 21 léttskýjað Hamborg 19 skúrir Berlín 26 heiðskírt Vín 26 skýjað Moskva 28 heiðskírt Algarve 30 heiðskírt Madríd 35 léttskýjað Barcelona 27 heiðskírt Mallorca 29 léttskýjað Róm 30 léttskýjað Aþena 28 léttskýjað Winnipeg 24 léttskýjað Montreal 28 léttskýjað New York 34 heiðskírt Chicago 30 léttskýjað Orlando 26 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR 6. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:17 23:49 ÍSAFJÖRÐUR 2:23 24:53 SIGLUFJÖRÐUR 2:02 24:40 DJÚPIVOGUR 2:35 23:30 Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að styðja framboð Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi seðlabankastjóra og ráð- herra, til embættis stjórnarfor- manns Þróunarbanka Evrópuráðs- ins. Þetta er gert í samráði við stjórnvöld á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum og vegna hvatningar frá fleiri aðildarríkjum, að sögn Urðar Gunnarsdóttur, fjöl- miðlafulltrúa utanríkisráðuneytis- ins. Kjörið er í embættið til þriggja ára og formaður bankaráðsins stjórnar reglulegum fundum ráðsins en ráðinu er ætlað að móta meginlínur um starfsemi bankans. Auk þess á formaðurinn að vera tengiliður á milli framkvæmdastjórnar bankans og bankaráðsins milli funda ásamt því að funda reglulega með fasta- fulltrúunum í Strassborg. Þá hefur Jón Baldvin Hannibals- son tekið sæti sem fulltrúi Íslands í framkvæmdastjórn bankans. Jón Sigurðsson kveður menn sem til hans þekkja, fulltrúa ríkja í bank- anum og fyrrverandi forystumenn í bankaráði og bankanum, hafa hvatt hann til að gefa kost á sér til þessa starfs. Bankaráðið kýs stjórnarfor- mann en það er skipað fjörutíu fulltrúum jafnmargra aðildarríkja. Tveir eftir í kjöri „Þessi tilmæli komu til mín í febrúarmánuði og það varð úr að ut- anríkisráðherra tilkynnti um mitt framboð. Upphaflega voru nú fimm frambjóðendur, frá fjórum öðrum löndum. Nú hafa farið fram nokkrar atkvæðagreiðslur um kjörið í þess- um hópi og þá standa eftir tveir. Ég er annar en hinn er frá Möltu og er fastafulltrúi í Evrópuráðinu í Strass- borg,“ segir Jón sem kveður ýmis ríki styðja framboð sitt. „Mitt fram- boð er stutt af Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum en líka nokkrum öðrum ríkjum sem hafa hátt eignar- hlutfall í þessum banka. Lönd eins og Frakkland, Spánn og Tyrkland get ég talið til minna stuðningslanda.“ Snúin kosning Til þess að ná kosningu þarf auk- inn meirihluta. Það þarf að minnsta kosti tvo þriðju hluta miðað við eignarhlutfall í bankanum og ein- faldan meirihluta aðildarríkja fjöldans. „Hvorugum frambjóðenda hefur tekist að ná þessum tilskilda meiri- hluta en næsta atkvæðagreiðsla fer fram í haust. Það er hins vegar al- gengt í kosningum innan ráðsins að það þurfi margar kosningaumferðir og fundi áður en niðurstaða næst,“ segir Jón. Jón Sigurðsson í kosningabaráttu við fastafulltrúa í Evrópuráðinu  Gefur kost á sér til embættis stjórnarformanns Þróunarbanka Evrópuráðsins Jón Sigurðsson Jón Baldvin Hannibalsson Samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup um áhorf á sjónvarp kemur fram að Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu nýtur mikilla vin- sælda. Keppnin hreppir níu af tíu efstu sætunum. Páll Magnússon, útvarpsstjóri RÚV, telur niður- stöður framar vonum. „Ég held að þetta hljóti að telj- ast ótrúlega gott áhorf. Örugglega eitthvað meira en við gerðum ráð fyrir,“ segir hann. „Mótið er af- skaplega skemmtilegt og leikirnir áhugaverðir. Undanúrslitin og úr- slitin eru eftir og því miklar líkur á því að tölurnar verði ennþá hærri.“ Fréttir ná ekki inn á topp tíu- listann lengur og Páli finnst það ekki skrítið. „Í fyrsta lagi minnkar fréttaáhorf alltaf á sumrin, svo minnkar það líka núna út af HM en einnig hafa þær verið fluttar um klukkustund og eru því á óvenju- legum tíma,“ segir Páll. „Það er mjög athyglis- vert að sjá þenn- an ofboðslega mikla áhuga á fótbolta. Því ef horft er til venjulegs áhorfs á fótboltaleiki, þá er það ekki nema brot af því sem er á þessa heims- meistarakeppni. Þetta hreyfir við þeim sem myndu örugglega ekki segja dagsdaglega að þeir væru áhugamenn“. Í niðurstöðum könnunarinnar kemur einnig fram að heildaráhorf á RÚV er 64,4% en Stöð 2 er með 17,5% áhorf og telur Páll það ótrú- lega yfirburði. gunnthorunn@mbl.is Meira horft á HM en reiknað var með Páll Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.