Morgunblaðið - 06.07.2010, Side 10

Morgunblaðið - 06.07.2010, Side 10
VIÐTAL Rúnar Pálmason runarp@mbl.is M ér hafði alltaf fund- ist klifur og fjalla- mennska heillandi en ég hafði ekkert stundað þetta. Fór kannski í eina og eina fjallgöngu, á Esjuna og Vífilsfell,“ segir Viðar Helgason sem var nýskriðinn yfir fertugt þegar hann byrjaði á vetr- arfjallamennsku og ísklifri. Hann hefur síðan aflað sér mikillar reynslu og starfar í hlutastarfi sem leiðsögumaður hjá Íslenskum fjalla- leiðsögumönnum. Allt byrjaði þetta veturinn 2005 þegar Viðar rak augun í aug- lýsingu um námskeið hjá Íslensk- um fjallaleiðsögumönnum. Fyrst fór Viðar á námskeið í vetrar- fjallamennsku, á ísklifurnámskeið 1 og 2 og loks námskeið í sprungu- björgun á jökli. Viðar og félagi Byrjaði fertugur að klifra ógnandi ísfossa Sú skoðun að ísklifur sé stórhættuleg íþrótt sem aðeins sé á færi fjalla- manna með margra ára reynslu er ekki á rökum reist, eins og Viðar Helgason veit manna best. Viðar var fertugur þegar hann fór á sitt fyrsta ísklifurnámskeið veturinn 2005-2006 og náði svo góðum tökum á ísnum að hann telst nú meðal öflugustu ís- klifrara landsins. Ljósmynd/Páll Sveinsson Ístækni Besti ísinn verður til er skiptast á frostakaflar og hæfilega miklar leysingar. Þá hlaðast ný lög af ís utan á eldri ís. Ísinn í leiðinni „Álið er mál- ið“ í Fljótshlíð var í þunnum aðstæðum þegar Viðar klifraði þar í 2008. HREYFING OG ÚTIVIST MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010 Hótel í miðbænum. Góður aðbúnaður. 295 dkr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V. Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk Sofðu vel! Í Kaupmannahöfn 10 Daglegt líf Aldrei er góð vísa of oft kveðin og því um að gera að hvetja sprækt fólk til að ganga upp og niður stiga í staðinn fyrir að taka lyftu þar sem slíkt býðst. Öll hreyfing hefur sitt að segja en til að auka púlið er ráð að taka tvær tröppur í einu og spretta dálítið úr spori. Það er þá ekki verra að vera með innkaupapoka í sitthvorri hendi eins og handlóð upp stigann. Ef þú kemur því við er gott að nota stiga eins mikið og hægt er. Það nægir ekki eitt og sér en er góð viðbót við að skokka, hjóla, synda eða hverja þá líkamsrækt sem reglulega er stund- uð. Endilega … … notið stigann sem heilsubót Púl Betra er að nota tröppurnar. Skráning í Ármannshlaupið 2010 er nú hafin á vefsíðunni www.hlaup- .com. Ármannshlaupið fer fram þann 13. júlí næstkomandi í Laugardalnum og nágrenni og er ræsing klukkan 20. Um er að ræða 10 km hlaup en hlaupaleiðin er hröð og skemmtileg. Jafnframt fer fram í hlaupinu sveita- keppni en þrír hlauparar eru í hverri sveit. Hlaupaleiðin Ármannshlaupið er í umsjón frjálsíþróttadeildar Ár- manns en það var endurvakið með góðum árangri síðasta sumar og hafði þá ekki verið haldið í nokkur ár. Ármannshlaupið Brautin býður upp á hraða Morgunblaðið/Kristinn Hlaupagarpar Sumarið er tíminn. Karen Axelsdóttir varð fjórða í kvenna- flokki og önnur í sín- um aldursflokki á Evrópumóti ETU í þríþraut sem haldið var í Athlone á Ír- landi um helgina. Syntir voru 1500 metrar, hjólaðir 40 kílómetrar og hlaupnir 10 kílómetrar. Karen lauk þrautinni á tímanum 2 stundir, 10 mínútur og 23 sekúndur. Hún synti á 23,56 mínútum og hjól- aði 40 kílómetrana á einum klukkutíma og átta sekúndum sem jafngildir um 39,9 km meðalhraða. Ólafur Marteins- son varð 13. í aldurs- flokknum 20-24 ára á tímanum 2 stundir, 6 mínútur og 44 sekúndur. Sundtími hans var 19,54 mínútur og hann hjólaði kílómetrana 40 á 59:55 sem jafngildir 40,06 í meðalhraða. Hjóluðu 40 km á 40 km hraða Karen og Ólafur stóðu sig vel í þríþrautinni á Írlandi Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, sem varð fljótust kvenna að hlaupa Laugavegshlaupið í fyrra og var kjör- in langhlaupari ársins 2009 í flokki kvenna, skrifar um æfingar, keppnir og ýmislegt fleira á bloggsíðu sinni hvalan.blog.is. Greinilegt er á blogginu að erfitt verður að leggja Hólmfríði Völu að velli í sumar. Hún stundar nú grimm- ar hlaupaæfingar og í síðustu viku lagði hún hvorki meira né minna en 130 km að baki. Á laugardaginn vann hún sigur í Þorvaldsdalsskokkinu, 25 km utanvegahlaupi og því ekki að undra þótt komið sé að hvíldarviku. Hvalan, þ.e. Hólmfríður Vala, er skráð í Laugavegshlaupið í ár en hið sama má raunar segja um margar aðrar hlaupadrottningar og því er víst að keppni í kvennaflokki verður með fádæmum spennandi í ár. Hólmfríður Vala er ekki aðeins öfl- ugur hlaupari heldur, eins og sést á blogginu, er hún líka mikill skíða- göngu- og hjólreiðagarpur. Á bloggsíðunni er fjöldi mynda af henni og hlaupafélögum hennar, ekki síst hlaupahópnum Glennunum, þar sem þau þeysast um á göngustígum og upp um fjöll og firnindi. runarp@mbl.is hvalan.blog.is Morgunblaðið/Rúnar Kapp Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, til hægri er Ásdís Söebeck Kristjánsdóttir sem varð í 2. sæti í Laugavegshlaupinu og til vinstri er Rakel Ingólfsdóttir. Hljóp 130 kílómetra í vikunni Bandaríkjamaðurinn John Peaveler sem hugðist róa hringinn í kringum Ísland er hættur við hringróðurinn og er raunar farinn af landi brott. Morgunblaðið sagði frá fyrirhug- uðum hringróðri hans 1. júní sl., dag- inn sem hann lagði af stað. Fljótlega eftir brottför kom hins vegar í ljós að Peaveler bjó ekki yfir nægilega mikilli reynslu til að róa hringinn á kajak, hvað þá einsamall, eins og hann hugðist upphaflega gera. Að auki var veðrið honum óhag- stætt. Eftir að hafa ráðfært sig við ís- lenska kajakmenn sem reru með hon- um fyrstu áfangana tók hann þá ákvörðun að hætta við hringróðurinn. Hann hafði þá róið með Magnúsi Sig- urjónssyni og fleiri að Arnarstapa á Snæfellsnesi. Vegna veðurs var ákveðið að róa ekki fyrir nesið heldur halda af stað frá Stykkishólmi og róa yfir Breiðafjörðinn. Hann reri síðan töluvert meðfram Norðurlandi áður en hann sneri heim. Á bloggi hans mátti lesa að hann hefði komið hing- að til að leita að áskorun, ekki til að drepa sig. runarp@mbl.is Bandaríski kajakræðarinn John Peaveler Hætti snarlega við hringróður eftir að hann komst í kast við Ægi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.