Morgunblaðið - 06.07.2010, Qupperneq 12
12 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
www.svfr.is – Sími 568 6050
Úrval veiðileyfa…
laxveiði
silungsveiði
…fyrir alla
0000
!
" ! ###$
$
%
& ' ###$
''(
###$
Landsins mesta úrval af laxa- og silungaflugum
Frí flugubox
www.frances.is
Heimsþekktar flugur
atvinnumanna
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Ég sá að þetta var stór fiskur en
hélt ekki að hann væri svona stór.
Það var ekki fyrr en Júlíus Bjarna-
son félagi minn sagði að hann kæm-
ist ekki í háfinn að ég áttaði mig á
því hvað hann var í raun stór,“ segir
Elvar Örn Friðriksson, 21 árs veiði-
maður sem landaði um helgina 103
cm löngum laxi í Kirkjuhólmakvísl á
Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal. Lax-
inn tók Skrögg flottúpu, með gáru-
bragðinu. Samkvæmt viðmiðunar-
kvarða Veiðimálastofnunar er laxinn
22 pund, en hann var nýgenginn og
ummál hans, sem einnig var mælt,
var það mikið að menn telja hann
frekar 23 pund.
„Hann velti sér þrisvar sinnum á
fluguna og tók hana í fjórða skiptið,“
segir Elvar.
Þeir Júlíus voru að veiða í opn-
unarhollinu í Nesi og veiddu sjö
laxa. Þennan dag náðu þeir þremur:
16, 18 og 23 punda. „Það var allt í
lagi,“ segir Elvar og hlær. „En þetta
er sá stærsti sem ég hef veitt.“
Þrátt fyrir ungan aldur er Elvar
reyndur veiðimaður og starfar á
sumrin sem leiðsögumaður laxveiði-
manna.
Lax er dreifður um alla Laxá í
Aðaldal og fréttist af góðri veiði
bæði á svæðum Laxárfélagsins og á
Nesveiðum, þar sem nær 50 hafa
þegar verið færðir til bókar.
Tröll í Víðidal
Laxveiðin fer ekki bara frábær-
lega vel af stað um land allt, heldur
gerast stórlaxaævintýrin víða.
Austurrískur veiðimaður, Peter
Bartembach að nafni, veiddi 107 cm
langan hæng í Dalsárósi í Víðidal á
föstudaginn var – mun það vera sá
lengsti úr íslenskri á það sem af er
sumri. Samkvæmt viðmiðunar-
kvarða Veiðimálastofnunar gæti lax-
inn hafa vegið nálægt 25 pundum.
Á vefmiðlinum Vötnogveidi.is er
greint frá því að af fyrstu 100 löx-
unum sem bókaðir voru í Víðidalsá
hafi 74 verið lengri en 74 cm, eða
laxar sem hafa verið tvö ár í sjó.
Nokkrir tuttugu pundarar eru þar á
meðal og veiðimenn hæstánægðir.
Elliðaárnar krauma af laxi
Laxinn gengur af krafti í Elliða-
árnar þessa dagana. Aðfaranótt
föstudagsins var fóru rúmlega 50
laxar gegnum teljarann, sem var
besta gangan fram að því, en aðfara-
nótt laugardags fóru síðan rúmlega
130 í gegn. Á áttunda hundrað laxa
er því komið upp á dal.
Blaðamaður var við veiðar í Ell-
iðaánum um helgina og var mikið líf
á neðri hluta svæðisins. Í Sjávar-
fossi voru tugir laxa og lentu veiði-
menn í því að húkka í fiska án þess
að ætla, slíkur var fjöldinn í hylnum.
Þá mátti telja tugi laxa í kvörnunum
þar fyrir neðan. Fjöldi laxa var í
hyljunum fyrir ofan Ullarfoss og um
70 blöstu við þeim sem gengu yfir
Árbæjarstíflu.
Flestir veiðimenn taka kvótann í
Elliðaánum, sem er tveir laxar, bæði
á flugu og maðk. Þegar tveir laxar
hafa verið teknir má veiða og sleppa
en eingöngu beita flugu.
Ekki reyna bara veiðimenn með
leyfi við laxinn í Elliðaánum. Um
helgina þurfti veiðivörður þannig að
hafa afskipti af erlendum veiði-
mönnum við ósa ánna og þá sást
einnig til veiðimanna sem fleygðu
færi sínu í Teljarastreng. Veiðimað-
ur sem átti svæðið kom að þeim,
hringdi í veiðivörðinn og þá forðuðu
veiðiþjófarnir sér á hlaupum.
Fimmtán á stöng í Ásunum
„Þetta er allt eins og í lygasögu,
allar ár eru góðar. Nú væri helst
fréttnæmt ef ekki veiddist vel,“ seg-
ir Stefán Sigurðsson hjá Lax-á.
Hann segir að Laxá á Ásum hafi
verið opnuð um mánaðamótin og
veiddu fyrstu hollin 31 og 34 laxa.
Veitt er á tvær stangir þannig að
hvor stöng hefur veitt yfir 15 laxa.
Þar gengur lax af krafti í ána, segir
Stefán.
„Það er líka fínn gangur í Rang-
ánum,“ segir hann. „Í Ytri-Rangá er
helmingi meira veitt en á sama tíma
í fyrra og hittifyrra. Það veiðast
svona 20 laxar á dag, mest frá Ægis-
síðufossi og niðurúr, en lax er líka
farinn að veiðast á Rangárflúðum og
ofar. Á sunnudag veiddist fyrsti lax
sumarsins á efsta svæðinu.“
Ljósmynd/Júlíus Bjarnason
Kampakátur „Þetta er sá stærsti sem ég hef veitt,“ sagði Elvar Örn Friðriksson um 103 cm hænginn sem hann
veiddi í Aðaldalnum á laugardag. Þá fengu þeir félagarnir 16, 18 og 23 punda laxa á stöngina.
„Hélt ekki að hann
væri svona stór“
Laxar í yfirvigt veiðast nú víða um land 107 cm
hængur úr Víðidalsá Öflugar laxagöngur í Reykjavík
Flugan.is er ný netverslun þar
sem seldar eru veiðiflugur fyrir
lax og silung, auk annarra vara
sem tengjast stangveiðum.
Eigendurnir eru Ólafur Vig-
fússon og María Anna Clausen
sem hafa um árabil þjónustað
veiðimenn í verslunum sínum,
Veiðihorninu og Sportbúðinni.
Að sögn Ólafs eru nú um 330
tegundir af flugum í netversluninni og verða þær orðnar hátt í 400 síðar í
sumar, enn meira úrval en unnt er að hafa á boðstólum í Veiðihorninu.
„Við opnuðum netverslun Veiðihornsins árið 1999 og hún hefur gengið
vel, en flugur eru sérstök vara og ég var aldrei ánægður með uppsetn-
inguna á flugunum innan um aðrar vörur,“ segir Ólafur. Þau hafa átt lénið
Flugan.is öll þessi ár og létu nú verða af því að opna sérstaka fluguversl-
un, sem þjónustar bæði laxveiði- og silungsveiðimenn, en fyrir þá síðar-
nefndu er boðið upp á púpur, straumflugur og þurrflugur.
„Við förum út í þetta af metnaði og afgreiðum samdægurs í póst þær
pantanir sem berast fyrir hádegið. Þá erum við reglulega með opið spjall-
samband þar sem viðskiptavinir geta spjallað við okkur og leitað ráða,“
segir Ólafur. Einnig er hægt að skoða flugusafn verslunarinnar í síma.
Hátt í 400 tegundir flugna
NÝ VEFVERSLUN, FLUGUR.IS, MEÐ VEIÐIFLUGUR Á NETINU
Klassísk Jock
Scott er meðal
fjölda flugna til
sölu á Flugan.is.
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100