Morgunblaðið - 06.07.2010, Page 13

Morgunblaðið - 06.07.2010, Page 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010 BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is Góður árangur íslenska landsliðsins í brids á Evrópumótinu sem lauk í Belgíu á laugardag tryggði því sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Eindhoven í Hollandi í október á næsta ári. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland á möguleika á Bermúda- skálinni eftirsóttu síðan landsliðið vann eftirminnilegan sigur á Pól- verjum í japönsku borginni Yoko- hama í október 1991. Tveir liðsmenn landsliðsins sem náði fjórða sætinu í Belgíu um liðna helgi áttu sæti í heimsmeistaraliði Íslands árið 1991, þ.e. Þorlákur Jónsson og Jón Baldursson sem einnig varð heimsmeistari í ein- menningi árið 1994. Í samtali við Morgunblaðið sagðist Jón reikna fastlega með því að gefa kost á sér í liðið. Hann tók hins vegar fram, að það var þjóðin sem vann sér keppnis- rétt á heimsmeistaramótinu ekki leikmennirnir „svo það verður gífur- leg samkeppni um sæti í liðinu“. Alla vega tvennt er líkt með undanfara heimsmeistaramótsins 1991 og 2011, þ.e. hvað varðar ís- lenska liðið. Í báðum tilvikum náði liðið fjórða sæti á Evrópumóti sem tryggði því keppnisrétt en einnig var ástandið í ríkisfjármálum afar bág- borið árin 1990 og 1991. Þáverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson, gerði þetta að umtalsefni í ræðu sinni þegar hann fagnaði brids- heimsmeisturunum í Leifsstöð. „Á meðan þið voruð úti að spila, þá var haust hér á Íslandi og þá voru allir verstu spádómar sem gengu yfir Ís- land, sem ganga yfir á haustin. Allir spádómar og spástofnanir Íslend- inga voru þá að berja frá sér haust- verkunum, svartagallsrausinu um að allt væri að fara til helvítis. Það var afskaplega gott að fá bros frá Japan á þeim tíma.“ Árangurinn engin tilviljun Spurður hvort íslenska þjóðin megi eiga von á að liðið hugsanlega vinni Bermúdaskálina á ný og færi með því bros á varir kreppubarinnar þjóðar segir Jón: „Allt getur gerst og við erum með 100% árangur á HM. Við erum með öflugt lið og árangurinn á Evrópumótinu var engin tilviljun. Við undirbjuggum okkur vel og það er gríðarlega mikilvægt.“ Hann bætir við að mjög bráðlega verði að fara að huga að und- irbúningi enda ekki nema fimm- „Erum með 100% árangur á HM“  Kemur landsliðið í brids heim með Bermúdaskálina á ný? Morgunblaðið/GSH Fagnað Íslendingar voru aðeins sjötta þjóðin til að vinna heimsmeistaratitil í brids í fjörutíu ára sögu keppninnar. Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Þriðja strandveiðitímabilið er hafið og miðast það við júlímánuð. Alls eru tímabilin fjögur í sumar. Heildarafl- inn í strandveiðum á síðasta tímabili var rúm 2.173 tonn samkvæmt upp- lýsingum frá Fiskistofu. Lönduðu þá 636 bátar í alls 4.143 löndunum. Landinu er skipt í fjögur veiði- svæði samkvæmt reglugerð sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra. Leyfi til strandveiða eru veitt á því svæði þar sem heimilisfesti útgerð- araðila viðkomandi báts er skráð. Fiskistofa hefur gefið út 710 leyfi til strandveiða á þessu ári og 652 þeirra hafa þegar hafið veiðar. Til saman- burðar voru útgefin veiðileyfi alls 595 á síðasta ári. Á þriðja tímabilinu er heimilt að veiða 599 tonn á svæði A, 426 tonn á svæði B, 461 tonn á svæði C og 157 tonn á svæði D. Í gær höfðu 211 bátar hafið veiðar á svæði A, en þar voru flest veiðleyfi gefin út eða alls 230. Svæðið nær frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súða- víkurhrepps. Aflaheimildir voru full- nýttar á svæðinu í maí og í júní. Sam- kvæmt upplýsingum Fiskistofu var 97% hlutfallsnýting á svæði B og D en 88 prósenta nýting á svæði C. Fullnýtist aflaheimildir ekki á hverju tímabili flytjast ónýttu heim- ildirnar á milli mánaða. Þannig munu 104 tonn flytjast til júlítíma- bilsins á svæði C, 22 tonn á svæði B og 20 tonn á svæði D. Mest hefur veiðst af þorski en hann er 76,1 prósent heildaraflans. Tæp 22 prósent aflans var ufsi. Ef litið er til einstakra svæða þá er teg- undasamsetningin breytileg. Þannig var þorskaflinn tæp 93 prósent á svæði A en aðeins rúm 58 prósent á svæði D samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu. Almenn ánægja með veiðarnar Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir lítið hafa veiðst fyrsta dag tímabilsins vegna slæms veðurs en horfur séu þokkalegar framundan. Ekki er heimilt að veiða um helgar né á föstudögum og því hafði aðeins fengist reynsla af einum degi þegar fréttin var unnin. „Mér sýnist að flestir ættu að geta komist á sjó í vikunni og þá er aflinn fljótur að koma,“ segir Örn. Hann segir almenna ánægju ríkja með veiðarnar meðal smábátasjómanna. „Strandveiðiheimildirnar svara kalli margra sem voru ósáttir með að geta ekki stundað veiðar án kvóta,“ segir Örn. Hann segir mikinn kostn- að fylgja því að eiga bát og því gagn- ist strandveiðarnar mörgum. Örn segir veiðarnar einnig hafa gengið vel þegar litið sé til öryggismála. Miklar kröfur séu gerðar til sjó- manna og vel sé haldið utan um ör- yggismál. Nokkur nýliðun hefur átt sér stað meðal strandveiðimanna að sögn Arnar. Þannig voru nýir aðilar um 20 prósent þeirra sem stunduðu strandveiðar í fyrra. Þótt ekki séu til tölur um nýliða í ár segir Örn þá vera fjölmarga. Þriðja strand- veiðitímabilið farið af stað  2.173 tonn veiddust á öðru tímabili Morgunblaðið/Heiddi Sjómannslíf Hér má sjá löndun eft- ir vel heppnaða veiðiferð. Strandveiði » Fiskistofa hefur gefið út 710 leyfi til strandveiða á þessu ári. » Veiðitímabilin eru fjögur: Maí, júní, júlí og ágúst. » Í júní lönduðu 636 bátar í alls 4.143 löndunum. » Ef vel viðrar verða sjómenn fljótir að landa heimiluðum afla í júlí. » Þorskur er 76,1% heildarafl- ans. Gríðarlegur kostnaður fylgir því fyrir Bridgesamband Íslands að taka þátt á heimsmeistara- mótinu, segir Ólöf Þorsteins- dóttir, framkvæmdastjóri sam- bandsins. Hún á von á að sótt verði um sem flesta styrki. Þrátt fyrir niðurskurðartíma þegar landsliðið keppti síðast um Bermúdaskálina féllst ríkis- stjórnin á styrkbeiðni Bridgesambandsins en það þýddi að hægt var að staðfesta þátt- töku Íslands. Katrín Jakobs- dóttir, mennta- málaráðhera, segir það að sjálfsögðu koma til álita að styrkja sam- bandið að þessu sinni þrátt fyrir niðurskurð, beiðni þess efnis hafi þó ekki enn borist. Tekur vel í styrkbeiðni KOSTNAÐARSÖM FÖR ÚR BÆJARLÍFINU Björn Björnsson Sauðárkrókur Skagfirðingar, og vafalaust Norðlendingar allir, geta verið ánægðir með sumarið, enda það sem af er einmuna gott og hefði einhvern tíma þótt einstakt.    Eftir sveitarstjórnarkosningar í vor var myndaður í Skagafirði meirihluti Fram- sóknarflokks og Vinstri grænna. Stefán Vagn Stefánsson yfirlögregluþjónn leiddi lista Framsóknarflokksins, og aðspurður sagði hann að ný sveitarstjórn væri nú að vinna í því að koma sér inn í stöðu mála. Enn hefur ekki verið ráðinn sveitarstjóri en gerir Stefán frek- ar ráð fyrir að mál mundu skýrast í vikunni.    Um allt land eru nú haldnar bæjarhátíðir. Hér í Skagafirði eru tvær slíkar, Jóns- messuhátíð á Hofsósi og Lummudagar á Sauð- árkróki. Jónsmessuhátíðin hefur fest sig ræki- lega í sessi og nú í lok júní var gríðarlega vel heppnuð hátíð á Hofsósi og hefur sjaldan eða aldrei verið viðlíka fjöldi fólks sem naut sam- vista og skemmtunar í eindæma veðurblíðu.    Lummudagarnir á Sauðárkróki voru nú haldnir í annað sinn og virðast líka ætla að verða að árvissri hátíð, enda mikið um að vera. Þá skemmdi ekki fyrir að haldið var einnig um þessa helgi árlegt Landsbankamót í knatt- spyrnu, þar sem yngri flokkar stelpna víða að af landinu voru á skotskónum og af þeim sök- um einnig gríðarlega gestkvæmt í bænum.    Nýjung í ferðaþjónustu á Sauðárkróki er „Gestastofa sútarans“ í húsnæði Sjávarleðurs. Það eru hjónin Sigríður Káradóttir og Gunn- steinn Björnsson sem eiga og reka fyrirtækið Sjávarleður og dótturfyrirtæki þess Loðskinn. Sagði Gunnsteinn að opnun gestastofunnar hefði mælst mjög vel fyrir og væri reynsla þessa fyrsta mánaðar framar vonum. Einu sinni á dag væri boðið upp á skoðunarferð meðfram vinnslulínu skinnanna og nú þegar hefðu á milli 500 og 1000 gestir nýtt sér þetta, en auk þess væri svo alltaf tekið á móti hópum á öðrum tímum.    Þá sagði Gunnsteinn að aftur væri kom- in full vinnsla á lambsskinnum, og nú þegar í haust yrði í París sýnd heildstæð vörulína frá Loðskinni-Sjávarleðri í bæði mokkaskinnum og fiskroði. Sagðist hann vænta þess að ef vörulínum verksmiðjunnar yrði vel tekið mundi störfum fjölga í framleiðslunni.    Innan við Suðurgarðinn við Sauð- árkrókshöfn hafa félagar í Siglingaklúbbnum Drangey komið sér fyrir með flotbryggju og þegar hafgolan kemur svolítið hryssingsleg inn með Stólnum má sjá hvít segl sem lóna allt austur undir Hegranes og koma svo svífandi yfir hafflötinn til baka. Þarna eru ungir sigl- ingamenn að læra að aka seglum eftir vindi og það eru gamalreyndir siglarar, Jakob Frímann Þorsteinsson og Hallbjörn Ægir Björnsson, sem standa fyrir kennslunni. Klúbburinn var stofnaður 2009 og hefur nú á sínum snærum átta seglbáta, tvo kanóa og fimm kajaka. Gestkvæmt í bænum og hjá vinsælum sútara Morgunblaðið/Björn Björnsson Vinsæl Sigríður og Gunnsteinn, eigendur Gestastofu sútarans, taka á móti gestum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.