Morgunblaðið - 06.07.2010, Side 14

Morgunblaðið - 06.07.2010, Side 14
Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Tap SP Fjármögnunar á rekstrar- árinu 2008 var rúmlega 30 millj- arðar króna. Hið gríðarlega tap skýrist að mestu leyti af virðisrýrn- un útlána. Uppgjör þess árs var ekki samþykkt fyrr en í apríl á þessu ári, rúmum 16 mánuðum eftir að reikningstímabilinu lauk. Þar kemur fram að eigið fé félagsins hafi verið neikvætt um 26 milljarða og það því tæknilega gjaldþrota. Í kjölfarið breyttist eignarhald fé- lagsins, og er það nú alfarið í eigu NBI sem jafnframt lagði því til nýtt eigið fé. Samkvæmt uppgjörinu hækkuðu þær myntkörfur sem SP Fjármögnun lánaði mest af að meðaltali um 100% á árinu 2008. Á sama tíma fór markaður með bíla og vinnuvélar, veðtryggingar lán- anna, svo gott sem í frost. Útlána- áhætta félagsins jókst þannig gríðarlega. Heildarútlán félagsins, í formi leigusamninga og skulda- bréfa, voru í lok uppgjörstímabils- ins ríflega 58 milljarðar króna á gengi þess tíma, þar af 55 millj- arðar á breytilegum vöxtum. Lán til einstaklinga, einkum leigusamn- ingar til bílakaupa, námu tæpum 28 milljörðum króna. Reikningur fyrir síðasta rekstrarár liggur ekki fyrir, og þar sem félagið er ekki með skuldabréf skráð í Kauphöll Íslands er það ekki skuldbundið til að birta ársreikninga sína þar. Því er óljóst hvernig þróun útlánasafns félagsins hefur verið undanfarin misseri, með tilliti til mögulegrar virðisrýrnunar sem metin er reglulega, út frá þátt- um á borð við vanskil og almennt efnahagsástand. Virðisrýrnun lána mikil  Útlánaáhætta SP Fjármögnunar hefur aukist gríðarlega frá hruni  Virðis- rýrnun árinu 2008 yfir 30 milljarðar króna  Geta ekki varist gengissveiflum Geta ekki varið sig » Þar sem stór hluti útlána og skulda SP Fjármögnunar er í erlendum gjaldmiðlum hefur fyrirtækið varið sig fyrir gengisáhættu með framvirkum gjaldmiðlasamningum. » Félagið hefur ekki getað var- ið sig með þessum hætti frá því í október 2008. Skv. árs- reikningi hefði 1% styrking krónunnar í árslok 2008 haft 250 milljón króna jákvæð áhrif á afkomu félagsins. Reuters Erlend lán Reynast þungbær. 14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010 Fasteignaskattur Núverandi Nýtt hlutfall til að halda tekjum* *miðað við 10% lækkun heildarálagningarstofns Reykja- víkurborg Kópa- vogsbær Seltjarnarnes- kaupstaður Garða- bær Hafnarfjarðar- kaupstaður Sv.fél. Álftanes Mosfells- bær 0, 21 4% 0 ,2 59 % 0, 18 0 % 0, 22 0 % 0, 24 0 % 0, 28 0 % 0, 22 0 % 0, 23 8% 0 ,2 92 % 0, 20 0 % 0, 24 4% 0, 27 0 % 0, 31 1% 0, 24 4% Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Reykjavíkurborg þyrfti að hækka fasteignaskatt á íbúðarhúsnæði úr 0,214% í 0,24% til að halda sömu tekjum og á síðasta ári, samkvæmt útreikningum blaðsins. Álagningar- stofn A-flokks fasteigna, sem er íbúðarhúsnæði, var ríflega 1.200 milljarðar króna í fyrra. Fasteigna- mat ríkisins hefur tilkynnt að fast- eignamat á landinu öllu verði fært niður um 10%, sem þýðir að skatt- stofn Reykjavíkurborgar lækkar niður í tæpa 1.100 milljarða króna. Á síðasta ári hafði Reykjavíkurborg tæplega 2,6 milljarða króna upp úr fasteignasköttum á íbúðarhúsnæði. Að óbreyttri álagningu myndi sú upphæð lækka í rúmlega 2,3 millj- arða. Einhverjir fengju aukahækkun Fasteignamat lækkar nú um 10% yfir línuna. Fram kemur í frétt Fast- eignamats ríkisins að um 94% íbúðarhúseigna á landinu lækki. Í einhverjum tilfellum hækkar fast- eignamat, meðal annars í nokkrum hverfum á höfuðborgarsvæðinu. Tækju borgaryfirvöld þá ákvörðun að hækka fasteignaskattprósentuna enn frekar, gætu því einhverjir borgað enn hærri skatt en áður í krónum talið. Þeir sem búa í Foss- vogi eða öðrum nærliggjandi hverf- um sáu þannig sitt fasteignamat hækka þegar íbúðareigendur fengu sent endurnýjað fasteignamat fyrir skömmu. Lækka í uppsveiflu Að sögn Gunnlaugs Júlíussonar, sviðsstjóra hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, hafa sveitarfélögin í heild vanalega lækkað fasteignaskatta þegar fast- eignamat hækkar, og síðan hækkað þau á ný þegar matið lækkar. Þetta gera þau, að sögn Gunnlaugs, til þess að halda tekjunum stöðugum. Fasteignamat hefur oft verið lækk- að á landsbyggðinni á undanförnum árum, enda eru fasteignaskattar ut- an höfuðborgarsvæðisins almennt mun hærri en á höfuðborgarsvæð- inu. Lægstu fasteignaskattarnir eru á Seltjarnarnesi, eða 0,18%. Næst- lægstir eru þeir í Reykjavík og því næst fylgja Garðabær og Mosfells- bær með 0,22%. Álagning þessara sveitarfélaga auk Hafnarfjarðar, Álftaness og Kópavogs nemur ríf- lega 60% af tekjum allra sveitarfé- laga af fasteignasköttum á landinu. Samkvæmt lögum geta fasteigna- skattar verið allt að 0,5% af fast- eignamati. Nokkur sveitarfélög eru þó yfir því hámarki, til að mynda Ár- neshrepur (0,625%), Mýrdalshrepp- ur (0,56%) og Djúpivogur (0,55%). Hæstu skattarn- ir hækka meira en hinir lægri  Reykjavík þyrfti að hækka fasteigna- skatt í 0,24% til að halda sömu tekjum ● MP banki var með mesta veltu á skuldabréfamarkaði í Kauphöll Íslands á fyrri helmingi ársins, samkvæmt upp- lýsingum frá Nasdaq OMXI. Velta bankans nam 774 milljörðum króna, sem er 31,76% af allri veltu skulda- bréfa í Kauphöllinni, að því er fram kemur í frétt frá MP. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði fyrstu sex mán- uði ársins nam rúmlega 2.400 millj- örðum króna. Þess má geta að viðskipti í Kauphöll Íslands samanstanda nú nær eingöngu af viðskiptum með skuldabréf. Við- skiptin eru í markflokkum ríkisbréfa, verðtryggðum bréfum útgefnum af Íbúðalánasjóði og óverðtryggðum bréfum útgefnum af Lánasýslu ríkisins. MP banki með mesta markaðshlutdeild STUTTAR FRÉTTIR ... ● Skuldabréfavísitala GAM Manage- ment, GAMMA: GBI, stóð í stað í gær, í 1,3 milljarða króna viðskiptum. Verð- tryggða vísitalan, GAMMAi: Verðtryggt, hækkaði lítillega í 0,8 milljarða króna veltu og sú óverðtryggða, GAMMAxi: Óverðtryggt, lækkaði um 0,1% í 0,4 milljarða króna viðskiptum, að því er fram kemur í yfirliti GAMMA. Lítil velta í kauphöll ● Breska olíufélagið BP hefur nú var- ið 3,12 milljörðum dala, jafnvirði 392 milljarða króna, í aðgerðir vegna olíu- slyssins í Mexíkóflóa. Fram kemur í yfirlýsingu frá félaginu að um sé að ræða kostnað vegna hreinsunar á olíu, aðgerða við að stöðva lekann, boranir, bætur til ríkja við Mexókóflóa og sektir til bandarísku alríkis- stjórnarinnar. BP hefur eytt 3,1 millj- arði dala í olíuhreinsun ● Samkvæmt veð- bandayfirliti fyrir fasteignina sem hýsir 101 Hótel hef- ur hún verið kyrr- sett að beiðni skilanefndar Glitn- is. Samkvæmt upplýsingum frá hótelstjóra 101 hef- ur kyrrsetning fast- eignarinnar ekki áhrif á rekstur hótelsins þar sem rekst- urinn og fasteignin eru aðskildir þættir. Kyrrsetningin er sú þriðja í röðinni á eftir 350 milljón króna veðskuldabréfi sem Arion banki á á hótelið. Jafnframt á NBI tryggingabréf upp á sjö milljónir dollara eða sem nemur tæpum 900 milljónum króna með veði í hótelinu. Kyrrsetningarbeiðni skilanefndar Glitnis er vegna tæplega 200 milljón króna kröfu á eigendur hótelsins, þau Jón Ás- geir Jóhannesson og Ingibjörgu Pálma- dóttur. 101 Hótel var áður í eigu félagsins IP Studium, en í febrúar var það fært yfir á Jón Ásgeir og Ingibjörgu persónulega. Hvort um sig á 50% hlut í hótelinu. Alls hvíla því veð fyrir samtals 1,5 milljarða króna á húsinu, en samkvæmt fasteignamati er verðmæti hússins nokkuð undir því. thg@mbl.is Fasteign hótels kyrrsett Jón Ásgeir Jóhannesson Spænskir spari- sjóðir, svokall- aðir caja- sparisjóðir, hafa verið að breyta samsetningu sértryggðra skuldabréfa sinna til að fela vanskil á húsnæðislánum sínum. Skuldabréfin eða skuldabréfa- vafningarnir, sem um ræðir, eru tryggð með afborgunum af hús- næðislánum. Tæpur helmingur allra spænskra húsnæðislána var veittur af slíkum sparisjóðum, en vanskil á þeim hafa verið umtals- vert meiri en á lánum frá hefð- bundnum viðskiptabönkum. Samkvæmt lögum þurfa caja- sjóðirnir ekki að veita jafn ýtar- legar upplýsingar um lánasöfn sín og aðrir bankar, en þegar lánin liggja að baki sértryggðum skuldabréfum hafa matsfyrirtæki og aðrir markaðsaðilar hins veg- ar aðgang að upplýsingum um þau. Í skýrslu CreditSights segir að sjóðirnir séu nú farnir að kaupa slæm lán út úr sértryggðu bréf- unum og setja þau beint í efna- hagsreikninga sína. Með þessu móti geta þeir betur falið raunverulega stöðu sína fyr- ir matsfyrirtækjunum, en það breytir ekki því hvort vanskil eru á lánunum eða ekki. Segir í skýrslunni að því megi gera ráð fyrir að raunveruleg staða sjóð- anna sé mun veikari en hún virð- ist vera nú. bjarni@mbl.is Spænskir sparisjóðir fela vanskil á lánum                      !  "   " #  " $ % & '  '  $ ()$( $ *! +,-./, +//.0/ ++1.+1 ,2.0/- +0.344 +5.,51 ++1.-/ +.-,2/ +/5.+4 +45.31 +,4.+, +/0.-- ++1.4+ ,+.2-4 +0.-+, +5.3+4 ++1./+ +.-,4 +/5.1 +45./+ ,+,.+,/, +,4.-, +/0.0 ++1./4 ,+.+25 +0.-50 +5.353 ++/.+- +.-,/, +/1.,4 +41.,4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.