Morgunblaðið - 06.07.2010, Page 15
Fréttir 15ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010
Einhverjum kynni að þykja illa far-
ið með nautið sem æst var upp í að
elta tvo spænska fullhuga fram af
hafnarbakka í strandbænum Denia.
Það fylgir þó sögunni að nautinu
hafi verið komið á þurrt eftir að
blóðheitur skrokkurinn fékk að
kæla sig niður um stundarsakir.
Hátíðin „Bous a la Mar“ fer nú
fram í bænum en hápunktur hennar
er einmitt þegar óhræddir piltar
gefa sig fram til að espa nautin.
Á ferð og flugi
Með vatn á hornum sér
Reuters
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kosningavakan í Póllandi í fyrrakvöld
var sérstaklega dramatísk fyrir Jaro-
slaw Kaczynski, fyrrverandi forsætis-
ráðherra.
Efnt var til kosninganna í kjölfar
flugslyssins í nágrenni borgarinnar
Smolensk í Rússlandi í apríl, þegar
rjóminn af stjórnarelítunni í Póllandi
beið bana eftir að aðflug farþegaþotu
mistókst. Hátt í hundrað manns fór-
ust, að Lech Kaczynski, bróður Jaro-
slaws og þáverandi forseta, og eigin-
konu hans meðtöldum. Bræðurnir
voru lykilmenn í íhaldsflokknum Lög
og réttur (PiS), um leið og þeir veittu
landi sínu forystu á sínum tíma.
Skoðanakannanir höfðu bent til
sigurs Bronislaws Komorowski, for-
seta þingsins og fulltrúa Borgaravett-
vangsins (PO) í forsetakosningunum,
en þar fer íhaldsflokkur með frjáls-
lyndu ívafi. Aðra umferð þurfti þó til
að tryggja Komorowski meirihluta
atkvæða en hann naut stuðnings
41,2% kjósenda í fyrri umferðinni 22.
júní. Kaczynski fékk 36,7% atkvæða
og gekk betur en spáð hafði verið.
Jók muninn í 2. umferðinni
Bilið á milli frambjóðendanna
minnkaði í 2. umferðinni en Komo-
rowski fékk 53,01% atkvæða og Kacz-
ynski 46,99%. Kjörsókn var 55,31%.
Úrslitin sæta tíðindum í evrópskum
stjórnmálum en kjör Komorowskis
þykir líklegt til að styrkja tengslin við
einstök nágrannaríki, einkum Þýska-
land og Rússland, eftir tíða árekstra í
stjórnartíð Kaczynski-bræðranna.
Komorowski varð bráðabirgðafor-
seti eftir slysið en með kjöri hans eru
tvö valdamestu embætti landsins í
höndum frjálslyndra en fyrir er Don-
ald Tusk í sæti forsætisráðherra.
Þessi kjörstaða fyrir Borgaravett-
vanginn þýðir að frjálslyndir hafa nú
aukið svigrúm til að hrinda stefnu-
málum sínum í framkvæmd.
Pólverjar hafa ekki farið varhluta
af kreppunni og hélt Borgaravett-
vangurinn því á lofti í kosningunum
að sigur Kaczynski myndi verða til að
tefja nauðsynlegar aðgerðir til að
reisa við efnahagslíf landsins.
Gæti lægt öldurnar í bili
Kjörstaða frjálslyndra þykir líkleg
til að lægja öldurnar í pólskum stjórn-
málum en þau hafa einkennst af harð-
vítugum deilum fylkinganna tveggja.
Pólska götublaðið Fakt sló þessu
upp á forsíðu sinni í gær en þar sagði
að Komorowski og Tusk hefðu ár til
að sýna hvað í þá væri spunnið.
Vísaði blaðið til þess að þingkosn-
ingar verða að fara fram í síðasta lagi
á næsta ári en Kaczynski er kok-
hraustur og segir forsetakjörið aðeins
„æfingu“ fyrir komandi kosningar.
Komorowski er Póllandsforseti
Vann öruggan sigur á Kaczynski Fyrstu kosningarnar í landinu í kjölfar harmleiksins í Smolensk
Borgaravettvangurinn í lykilstöðu Flokkurinn hefur ár til að hrinda efnahagsstefnu í framkvæmd
Bronislaw
Komorowski
Jaroslaw
Kaczynski
Tyrknesk stjórnvöld hóta að slíta
stjórnmálasambandi við Ísrael vegna
áhlaups ísraelskra hermanna á flutn-
ingaskip nýverið. Skipið var að flytja
vörur til Gaza, þar sem um ein og hálf
milljón Palestínumanna býr, og krefst
stjórnin í Tyrklandi þess að Ísraels-
stjórn biðjist afsökunar á áhlaupinu,
fallist á alþjóðlega rannsókn Samein-
uðu þjóðanna á því og greiði ættingj-
um hinna látnu bætur.
Stjórnin í Ankara hefur ekki látið
þar við sitja heldur hefur hún einnig
kallað sendiherra sinn í Ísrael heim.
Einn helsti bandamaður Ísraels
Tyrkland hefur verið einn helsti, ef
ekki helsti, bandamaður Ísraels í
múslímaheiminum. Þrátt fyrir það er
fátt sem bendir til að Ísraelsstjórn
telji tilefni til að koma til móts við
kröfur Tyrkja en haft er eftir hátt
settum embættismönnum að hún sjái
ekki ástæðu til afsökunarbeiðni.
Fá ekki að lenda á flugvöllum
Ahmet Davutoglu, utanríkisráð-
herra Tyrklands, hefur þegar lýst því
yfir að lokað hafi verið fyrir aðgang
ísraelskra flugvéla að flugvöllum
landsins, skref sem undirstrikar
hversu alvarlegum augum stjórnin
lítur atvikið sem 9 Tyrkir féllu í.
Avigdor Lieberman, utanríkisráð-
herra Ísraels, segir útilokað að stjórn
sín biðjist afsökunar en fram kemur á
vef Jerusalem Post að ráðherrann sé
æfur út í Davutoglu fyrir að hafa hitt
Benjamin Ben-Eliezer, ráðherra sem
fer með atvinnumál og verslun í
ísraelsku stjórninni, á fundi í Zürich í
síðustu viku, án þess að greina ísr-
aelska utanríkisráðuneytinu frá við-
ræðunum fyrirfram.
Ætlað að bera klæði á vopnin
Sagði á vef blaðsins fyrir helgi að
leynifundurinn gæti orðið til þess að
spilla sambandi Lieberman og Ben-
jamins Netanyahu, forsætisráðherra
Ísraels, en viðræðunum var ætlað að
koma samskiptum ríkjanna á réttan
kjöl eftir spennu síðustu vikna.
Netanyahu hafi gert Ben-Eliezer
út af örkinni vegna góðra tengsla
hans við Tyrki og þar með farið á bak
við samráðherra sinn Lieberman.
Tyrklandsstjórn er undir miklum
þrýstingi heimafyrir vegna málsins
en á vef ísraelska dagblaðsins Ha-
aretz er fjallað um skýrslu tyrknesku
baráttusamtakanna IHH, sem áttu
skipið sem tekið var yfir með valdi 31.
maí, en þar er Ísraelsher sakaður um
„hryðjuverk“ með áhlaupinu.
Tyrkir hóta að rifta stjórn-
málasambandi við Ísrael
Setja Ísraels-
stjórn úrslitakosti
eftir áhlaup á skip
Benjamin
Netanyahu
Ahmet
Davutoglu
Komorowski lét snemma á sér
bera í stjórnmálunum í Póllandi
og tók þátt í andófi gegn tökum
Sovétríkjanna á stjórn landsins.
Komorowski er sagnfræð-
ingur að mennt frá Háskólanum
í Varsjá. Þótt flokkur hans sé
frjálslyndur í pólskum stjórn-
málum og m.a. hlynntur einka-
væðingu er hann íhaldssamur í
mörgum samfélagsmálum.
Barðist fyrir
auknu frelsi
FORSETINN Á YNGRI ÁRUM
ALMYRKVI Á SÓLU
Heimild: NASA Grafík: Kinyen Pong/RNGS
20%
40%
60%
80%
100%
SKUGGI Á SÓLU EINS OG
HANN SÉST FRÁ ÓLÍKUM
BELTUM Á JÖRÐINNI
100%
80%
60%
1
9
.0
0
G
M
T
1
8
.3
0
G
M
T
1
9
.3
0
G
M
T
2
0.
00
G
M
T
2
0
.3
0
G
M
T
Braut almyrkvans
Sunnudaginn 11. júlí
klukkan 19.33 að
staðartíma í
Greenwich (GMT).
Sólmyrkvinn
varir í 5mín.
og 20 sek.
Braut
almyrkvans
Syðri hluti
Kyrrahafsins
Tunglið
Alskuggi
Hálfskuggi
Braut
almyrkvans
Sólin
Jörðin
Sólmyrkvar eiga sér stað þegar tungl er nýtt og gengur fyrir sólina og
varpar skugga á takmarkað svæði á yfirborði jarðar.
Mælt ermeð notkun
sérstakra sólgleraugna til að
vernda augun fyrir geislum
sólarinnar þegar húnmyrkvast.
Bob Crow, talsmaður fjölmenns
stéttarfélags launafólks í samgöngu-
geiranum í Bretlandi, sakar ráð-
herra samsteypustjórnar Íhalds-
flokksins og Frjálslyndra demókrata
um að hafa gefið út „stríðsyfirlýs-
ingu“ með hugmyndum sínum um
hvernig staðið skuli að uppsögnum
hjá opinberum starfsmönnum.
Fjallað er um málið á vef blaðsins
Guardian en þar er haft eftir fulltrú-
um verkalýðsfélaga að fram hafi
komið á fundi ráðherra stjórnarinn-
ar að til standi að segja upp 500.000
opinberum starfsmönnum, í því
skyni að stoppa upp í fjárlagagatið.
Verkfallsrétturinn skertur
Þá óttist verkalýðsfélögin að
þrengt verði að rétti opinberra
starfsmanna til að efna til verkfalla,
auk þess sem stjórnin undirbúi
breytingar á ákvæðum á uppsagnar-
rétti til að draga úr kostnaði við
brottrekstur hjá hinu opinbera.
Verkamannaflokkurinn, sem ný-
lega lét af stjórnartaumunum, hefur
gagnrýnt stjórnina fyrir aðferða-
fræðina í niðurskurðinum.
Meðal þeirra sem hafa kvatt sér
hljóðs er Yvette Cooper, ráðherra
velferðarmála í skuggaráðuneyti
Verkamannaflokksins, en hún full-
yrðir að uppsagnirnar muni öðrum
þræði bitna á konum, eða sem nemur
nærri þremur af hverjum fjórum
boðuðum uppsögnum hjá ríkinu.
Óttast um
500.000 störf
Bresk verkalýðsfélög boða hörku
40%
Niðurskurðurinn sem Osborne
fjármálaráðherra boðaði í
útgjöldum ríkisins um helgina.
11,4
Meðalgreiðslur í milljónum króna til
um 15.000 opinberra starfsmanna í
Bretlandi sem var sagt upp í fyrra.
‹ HÁAR TÖLUR ›
»