Morgunblaðið - 06.07.2010, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.07.2010, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010 Höfuðbúnaður Hópur listamanna framdi gerning á Laugaveginum í gær, gekk með ýmsa hluti og húsmuni á borð við stóla, klukkur og útvörp á höfðinu, vegfarendum til undrunar og íhugunar. Árni Sæberg Nú stendur yfir umsóknarferli Íslands að ESB en að mörgu leyti er um að ræða aðlögunarferli frekar en samninga. Þegar horft er til þess að innganga í ESB er mál sem varðar fullveldi og sjálfstæði Íslands er mikilvægt að gera sér grein fyrir grundvall- arstærðum og hvernig málin kunna að líta út síðar á öldinni. Það er þekkt staðreynd að barn- eignir á Íslandi eru mun meiri en í ESB-löndunum. Þetta leiðir til þess að hlutfall þeirra sem verða á vinnumarkaði verður lægra og færri eru til að standa undir þyngri byrðum í framtíðinni í ESB en á Íslandi. Þessi stað- reynd hefur ekki bara áhrif á líf- eyrismál heldur skattstofna og út- gjöld. Miðað við skuldastöðu margra ESB-landa er þetta mál þannig vaxið að vandséð er hvernig dæm- ið gangi upp. Mér til glöggvunar á þessu at- riði fékk ég DataMarket til að taka saman gögn um samsetningu íbúa á Íslandi, í ESB og í Banda- ríkjunum fyrir árin 2030 og 2050. Þegar þessi gögn eru sett fram á myndrænan hátt er fljótséð að mikill munur er á stöðunni. Bandaríkin standa best en Ísland stendur líka vel. Staða ESB er bók- staflega þung þegar horft er á súluritið frá DataMarket enda þurfa sífellt færri vinnandi að standa undir þeim sem ekki eru lengur á vinnumarkaði. Þegar svo við þetta bætist versnandi samkeppn- ishæfni ESB-landanna gagnvart Asíu, skuldir og innri erfiðleikar er vandséð hvernig hægt er með góðu móti að vega upp þennan þunga vanda. Ísland er á hinn bóginn með góða aldursdreifingu, fé í lífeyrissjóðum og miklar nátt- úruauðlindir. Þegar þetta er metið er vand- séð hvernig Íslandi sé betur borg- ið innan ESB. Þar við bætist að stuðningur við aðild Íslands er hverfandi lítill. Reyndar er það svo að stuðningur við ESB hefur minnkað innan aðildarlandanna sjálfra sem glíma nú við gjaldmið- ilsvanda sem ekki sér fyrir end- ann á. Tækifæri Íslands liggja í að virkja sjálfstæðið betur og má vel sjá fyrir sér betri samskipti við Bandaríkin, aukin viðskipti við Kína og bein samskipti við lönd eins og Noreg og Þýska- land. Aðild að ESB hefur að mínu viti alltaf verið verri kostur en að standa utan sambandsins. Aldrei hefur þessi staða verið eins skýr og einmitt nú. Það er ábyrgðarhluti að halda áfram í umsóknarferli sem er dýrt og umdeilt á sama tíma og önnur mál eru látin sitja á hakanum og ljóst er að meirihluti þjóðar og þingmanna er á móti. Eftir Eyþór Arnalds » Þegar samsetning aldurs Íslendinga er borin saman við ESB kemur berlega í ljós að staðan verður mun þyngri í ESB en á Íslandi þegar líða tekur á öldina. Eyþór Arnalds Höfundur er bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri. Styrkur Íslands – veikleiki ESB Ísland 2050 80+ 75-79 70-74 65-69 60-64 55-59 50-54 45-49 40-44 35-39 30-34 25-29 20-24 15-19 10-14 5-9 0-4 20.000 15.000 10.000 5.000 0 5.000 10.000 15.000 20.000 Karlar Konur Heimild: Datamarket Evrópusambandið 2050 80+ 75-79 70-74 65-69 60-64 55-59 50-54 45-49 40-44 35-39 30-34 25-29 20-24 15-19 10-14 5-9 0-4 3,500.000 2.500.000 1.500.000 500.000 Karlar Konur Heimild: Datamarket 500.000 1.500.000 2.500.000 3.500.000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.