Morgunblaðið - 06.07.2010, Side 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG SAGÐI ÞÉR
AÐ VIÐ ÆTTUM
EKKI AÐ TAKA
TERMÍTANA
MEÐ, EN...
NEI...
ÞARF ANNAÐ
OKKAR AÐ KOMA
SNEMMA HEIM
ÚR VINNUNNI?
NEI, MAMMA
SAGÐI AÐ HÚN
MYNDI PASSA
KRAKKANA
FRÁBÆRT! ÞÁ
GETUM VIÐ AÐ
MINNSTA
KOSTI UNNIÐ
EINN DAG
Í KENNARA-
VERKFALLINU
ÉG VONA
BARA AÐ
KRAKKARNIR
ÞREYTI
HANA EKKI
OF MIKIÐ
ÞETTA VAR ÆÐISLEGUR DAGUR! VIÐ
FÓRUM ÚT AÐ HLAUPA... HJÓLA...
SYNDA... SPILA TENNIS...
TRÉÐ ER
ENNÞÁ SKAKKT
ÉG
VISSI AÐ
LÁSINN
MYNDI
EKKI
HALDA
MAMMA, HVAÐA
NAFN Á ÉG AÐ SETJA
Á KORTIÐ?
GETTU...
ÆTLAR ÞÚ AÐ
SEGJA LÖGREGLUNNI
AÐ ÞÚ HAFIR FRAMIÐ
ÞESSI RÁN?
EF ÉG
KJAFTA ÞÁ
DREPUR BIG-
TIME MIG!
ÞÚ
ÆTTIR
AÐ HAFA
MEIRI
ÁHYGGJUR
AF MÉR EN
HONUM!
ALLT
Í LAGI!
ALLT Í
LAGI!
Samkeppni
af því góða
Auðvitað er samkeppni
af því góða, svo langt
sem það nær, ef hún er
byggð á nærgætni,
gæðum og stundvísi.
Mikið hefur verið
auglýst undanfarið í
blöðum, sjónvarpi og
ýmsum fagritum. Ekki
veit ég hvort þeirra fé-
laga sem um ræðir,
Icelandair eða Iceland
Express, hefur vinn-
inginn. Ég held að
flestir, sem áhuga hafa
á að kynna sér farkosti
sem hugsanlegir eru til utanlands-
ferða, verði margir mjög hissa, svo
ekki sé meira sagt.
Ég veit þó eitt, að Icelandair er
með bestu farkosti sem völ er á. Mér
hefði fundist að Iceland Express
mætti kynna betur þá farkosti sem
þeir bjóða upp á til millilandaflugs.
Ég sjálfur flýg ekki með Iceland Ex-
press, og eru ýmsar ástæður fyrir
því, þ.á m. að fenginni reynslu af vél-
um þeirra í sólarlandaferðum.
Ég átti ánægjulega ferð til Kaup-
mannahafnar og til baka með Ice-
landair fyrir stuttu. Það eru mikil
þægindi að þekkja farkost sinn áður
en stigið er um borð og njóta þeirra
þæginda. Í gegnum árin hef ég
ávallt notið þess að fljúga með Ice-
landair, eða hvaða nafn það góða fé-
lag hefur borið hverju sinni, og mun
halda því áfram. Hvers vegna? Jú á
sl. ári flaug ég tvisvar til Tyrklands
t.d., þær vélar sem við flugum með
voru á vegum Iceland
Express eða (Astreus,
dótturfélags þess). Í
sem stystu máli eru
þær vélar á engan hátt
nothæfar til mann-
flutninga, heldur ein-
hverra annarra flutn-
inga, kannski
gripaflutninga! Pálmi
Haraldsson, sem eig-
andi að þeim vélum
sem um er rætt, og
sömuleiðis Iceland Ex-
press mega auglýsa
eins mikið og þeim
hentar mín vegna. Ég
get þó ekki á neinn
hátt mælt með flugi hjá
Iceland Express, því miður.
Virðingarfyllst,
Svanur Jóhannsson.
Gleraugu fundust
Gleraugu fundust fyrir um það bil
viku í Elliðaárdal. Ef einhver saknar
þeirra getur hann haft samband í
síma 861-8835.
Gullkross og
bíllykar töpuðust
Gullkross með steini tapaðist senni-
lega við Hlíðarsmára 15 í Kópavogi.
Þá töpuðust einnig Mazdabíllyklar
ásamt húslyklum í Laugardalnum
eftir Jónsmessuhlaupið. Finnandi
vinsamlega hafi samband í síma 699-
0924.
Ást er…
… það sem heldur
fjölskyldunni saman.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Opið kl. 9-16, vinnu-
stofa opin og hádegismatur.
Árskógar 4 | Leikfimi kl. 9.
Félagsstarf Gerðubergi | Vegna sum-
arleyfa starfsfólks fellur starfsemi og
þjónusta niður frá og með 1. júlí. Í fé-
lagsmiðstöðinni Árskógum er hádeg-
isverður, panta þarf með dags fyr-
irvara í s. 535-2700. Nánari uppl. á
Þjónustumiðstöð Breiðholts, sími 411-
1300.
Hraunsel | Rabb kl. 9, myndmennt kl.
10, leikfimi kl. 11.30, boltaleikfimi,
vatnsleikfimi kl. 14.10. Sjá www.febh.is.
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16.
Böðun fyrir hádegi, hársnyrting. Mið-
vikudaginn 14. júlí verður farið um
Suðurland, nánari uppl. á staðnum eða
í síma 535-2720.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan er opin, félagsvist kl. 14,
matur og kaffi.
Guðmundur á Sandi kemst svoað orði í hugleiðingum sínum
um þingeyskan kveðskap um alda-
mótin 1900 að hafi einhver séð snjó-
hvítan hauk meðal fálka hafi sá
maður séð ímynd Jóns Hinriks-
sonar. Jón var fjörgamall orðinn,
faðir Jóns alþingismanns í Múla og
Sigurðar skálds á Arnarvatni,
„gigtveikur, krepptur og slitinn af
vinnu“ en „eldfimur og fleygur í
hugsun“. Síðan segir Guðmundur
um skáldskap hans, að „þótt svo
kunni að vera, að í þessum kvæðum
sé víða farið fót fyrir fót og á seina-
gangi lestamannsins á lífsins leið,
þá er ekki hinu að neita, að falleg
spor eru innan um og víða vakurt
riðið.“ Hér eru tvær vísur úr eftir-
mælum um reiðhest, sem Jón orti
rúmlega sjötugur:
Blæs um hól, en bliknar kinn,
björt þar fjólan glóði.
Autt er ból, þar blakkurinn
baðaði í sólarflóði.
Heiðin geymir Huga spor,
holtið dreymir lyngað.
Þegar gleymir vetri vor,
veran sveimar hingað.
Guðmundur segir, að Jón hafi
kvartað undan því á síðustu árum,
að hann hafi dregist aftur úr. En
víst hafi hann fundið til þess, að
þung sé færðin á lífsins leið:
Seint ég lít hin fögru fjöll
frelsis sólar landa,
þar sem treð ég möl og mjöll
mannlífs köldu stranda.
Jón veit það vel, að skáldið og
bóndinn fátæki verða ekki sam-
rýnd:
Þörfin holds er þyngsladrjúg,
þegar fjaðrir lyftast;
háfleyg sál og basl við bú
banaspjótum skiptast.
Láttu, heimur, lynda þér
lán, sem melir granda;
en virtu eins og verðugt er
viðfang göfugs anda.
Trúmaður hefur hann verið eins
og þessi vísa sýnir:
Köld eru lífsins klakaspor,
kaunin fornu dreyra.
Mun oss eigi ætlað vor
og að blómgast meira?
Lífsskoðun Jóns er mjög heilbrigð:
Ástarsamband vers og vífs
veröld enn þá dugar.
Faðirinn deyr, en framsókn lífs
frýjar börnum hugar.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Björt þar fjólan glóði