Morgunblaðið - 06.07.2010, Page 27

Morgunblaðið - 06.07.2010, Page 27
Menning 27FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010 Listasafn Einars Jónssonar býður gestum sínum að taka þátt í verkefninu Nýtt sjón- arhorn á list Einars Jónssonar nú í júlí. Þar gefst gestum kostur á að skrifa niður hug- renningar sínar um tiltekin verk í sölum safnsins. Með hjálp safngesta verður safn- kosturinn gerður aðgengilegri og von aðstandenda að út frá verkefninu spretti upp nýtt sjónarhorn á list Einars. Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði náms- manna og unnið af Sigurði Trausta Traustasyni sagnfræðingi í samstarfi við Listasafnið. Niður- stöður verða birtar á vefsíðu safnsins. Myndlist Nýtt sjónarhorn á list Einars Eitt verka Einars Jónssonar Anna Leós opnar myndlistar- sýningu í veitingahúsinu Kaffi Hafnarfjörður við Strandgötu 29 í Hafnarfirði á morgun kl. 14. Yfirskrift sýningarinnar, sem er sjöunda einkasýning Önnu, er Hamingja í þessum heimi. Anna Leós er sjálfmenntuð í myndlist, en hún hefur fengist við myndlist í þrjá áratugi. Í tilefni af opnun sýningarinnar gefur Anna út sína fyrstu ljóðabók, Skúm, sem hefur að geyma minningabrot úr ævi hennar. Sýningin stendur til 27. júlí og er opin alla daga frá klukkan 11 til 21. Myndlist Anna Leós sýnir í Kaffi Hafnarfirði Anna Leós Síðustu tónleikarnir í tónleika- röðinni Þriðjudagskvöld í Þing- vallakirkju verða haldnir í kvöld. Þá mun tréblásaratríó þeirra Peters Tompkins, óbó, Rúnars Vilbergssonar, fagott, og Einars Jóhannessonar, klarínett, sem jafnframt er stjórnandi hátíðarinnar, flytja tríó eftir Mozart og Ibert. Einnig mun Peter Tompkins leika Ummyndanir eftir Ovid fyrir einleiksóbó eftir Benjamin Britten. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er ókeypis að- gangur en tekið við framlögum við kirkjudyr. Tónleikagestir eru beðnir um að leggja bifreiðum við Flosagjá og ganga þaðan til kirkju. Tónlist Síðasti Þriðjudagur í Þingvallakirkju Peter Tompkins Kórinn Collegium Cantorum frá Uppsala í Svíþjóð heldur þrenna tónleika hér á landi í júlí og þeir fyrstu verða í kvöld kl. 20.00 í Akureyrarkirkju. Á morgun heldur kórinn svo tónleika í Reykjahlíðar- kirkju kl. 21.00 og þá seinustu í Langholtskirkju kl. 20.00 á föstu- daginn, 9. júlí. Á efnisskrá kennir ýmissa grasa, á henni má finna allt frá endur- reisnarverkum til sænskra nútíma- verka. Af nútímaverkum má nefna En ny himmel och en ny jord eftir Sven-David Sandström við texta úr Opinberunarbók Jóhannesar og Michaelimotetten eftir Bent Hamraeus. Meðal eldri verka eru Le chant des oiseaux eftir Clément Janequin, en það verk er merkilegt fyrir þær sakir að fuglasöngur er færður í kórsetningu, og Missa Pange ling- ua eftir Josquin des Préz. Kórinn tók þátt í uppsetningu á Maríuvesper eftir Claudio Monte- verdi í Skálholti síðastliðinn sunnu- dag og voru þeir tónleikar hluti af Sumartónleikum í Skálholti. Stjórnandi kórsins er Olle Johansson. Tónleikar Olle Johansson kórstjóri. Fuglasöng- ur sænsks kórs Collegium Cantorum með þrenna tónleika Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Reykholtshátíðin hefst 21. júlí nk. með tónleikum kórs St. Basil- dómkirkjunnar í Moskvu. Verður það í fjórða sinn sem hinir karl- mannlegu Rússar koma fram á há- tíðinni en þeir halda þrenna tónleika að þessu sinni. Stjórnandi hátíð- arinnar er sem fyrr píanóleikarinn Steinunn Birna Ragnarsdóttir. „Það er alveg ljóst að þeir eru búnir að syngja sig inn í íslensku þjóðarsálina mjög rækilega,“ segir Steinunn um karlakórinn rússneska, slegist sé um miða á tónleika þeirra á hátíðinni. Tónleikar kórsins séu fyrir marga sterk og stundum trúar- leg upplifun en St. Basil-kórinn mun flytja þekkt rússnesk þjóðlög og miðaldatónlist rússnesku rétttrún- aðarkirkjunnar. Steinunn segir Ís- lendinga eiga eftir að kannast við mörg laganna hjá kórnum og þá einkum rússnesku þjóðlögin. „Hver söngvari í kórnum hefur mjög vítt tónsvið, stærra en gengur og gerist, og ég myndi segja að aðaleinkenni þessarar rússnesku karlakórahefðar séu þessir ofboðslega djúpu flauels- bassar og magnaður heildar- hljómur.“ En það er fleira á dagskrá hátíð- arinnar en rússneskur karlakór. Tvennir tónleikar verða haldnir á laugardeginum, Þóra Einarsdóttir sópran syngur á þeim fyrri við pí- anóleik Steinunnar verk eftir Schu- bert, Gesange og Duparc og um kvöldið tekur Reykholtstríóið við en Steinunn er í því auk Auðar Haf- steinsdóttur fiðluleikara og Bryndís- ar Höllu Gylfadóttur sellóleikara. Flutt verða verk eftir Beethoven, Schostakovitsj, Piazzolla og Gliére. Schumann og Chopin Lokatónleikar hátíðarinnar verða svo á sunnudegi, 25. júlí. Á þeim koma fram Reykholtstríóið, Ástríð- ur Alda Sigurðardóttir píanóleikari, Pálína Árnadóttir fiðluleikari, Þór- unn Ósk Marinósdóttir víóluleikari og Þóra Einarsdóttir sópran og flytja m.a. verk eftir Fauré og hinn þekkta píanókvintett eftir Schu- mann sem Ástríður alda mun m.a. leika ásamt strengjaleikurum. Schu- mann og Chopin eiga 200 ára afmæli í ár og verður þeim sómi sýndur. Ljósmynd/Anton Brink Hátíð Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari og stjórnandi Reyk- holtshátíðar, við flygilinn. Reykholtshátíðin hefst með rússneskum kór. 200 ára tón- skáld heiðruð  Reykholtshátíð haldin 21.-25. júlí Dagskrá hátíðarinnar má finna á reykholtshatid.is. Miðasala fer fram á midi.is og í síma 8227419. Stúlknakór frá Klarup, sem er bær í útjaðri Álaborgar, er stadd- ur hér á landi og heldur fimm tón- leika, þá fyrstu í kvöld. Kórinn, sem skipaður er 35 stúlkum á aldrinum 14 til 25 ára, er talinn meðal bestu stúlknakóra Dan- merkur. Hann fagnar 30 ára starfsafmæli á árinu. Á efnisskrá kórsins er aðallega norræn tónlist og klassísk kirkju- tónlist. Kórinn hefur sungið með sinfóníuhljómsveit Álaborgar og Danmarks radio underholdnings- orkester og einnig með hljómsveit danska útvarpsins. Árið 2002 söng kórinn með Frakkanum Jean Mic- hel Jarre á tónleikum sem nefndir voru „Aero“ sem var sjónvarpað víða um heim. Tónleikarnir í kvöld verða í Grafarvogskirkju og hefjast kl. 20.00. Annað kvöld syngur kórinn svo í Skálholtskirkju kl. 20.00, í Selfosskirkju næstkomandi laug- ardag kl. 17, í Víkurkirkju mánu- daginn 12. júlí kl. 20.00 og loka- tónleikar kórsins verða í Norræna húsinu þriðjudaginn 13. júlí kl. 20.00. Heimsókn frá Klarup Starfsafmæli Stúlkurnar í Klarup kórnum sem staddur er hér á landi. Þar kemur m.a. fram að „aðeins“ átta milljónir fylgdust með fimmta leik í úrslitakeppni NBA 30 » Þá hefur Múlinn enn flutt umset – úr kjallaranum á Bar11 við Hverfisgötu í Risiðvið Hafnarstræti. Sá stað- ur er flottur og hljómurinn þar mun betri. Það var flutt sama dag og Hemstock hélt tónleikana og píanóið því ferðlúið. Í apríl 1999 hélt Hemstock Múla- tónleika á Sólon Íslandus og lék verk af efnisskrá Miles Davis frá 1950- 1954. Þar voru í framlínunni Jóel Pálsson og Sigurður Flosason saxó- fónleikarar, en nú voru það verk af efnisskránni 1954-1964 og tromp- etleikarinn Ari Bragi Kárason í fronti. Ari Bragi hefur síðustu tvö ár stundað nám í New York. Hann var orðinn ansi góður er hann hélt utan, 18 ára, en er sýnu betri nú og varla mörg ár í að hann skipi sér í fremstu röð norrænna trompetleikara. Tækni Ara er fín, tónninn tær og hugmyndirnar flæða kraftmiklar fram. Hann er enn undir miklum áhrifum harðbopparanna, en stíll hans ber þó sterkan keim af sókn Marshalis og Hardgroves til tromp- etmeistara svingtímans. Í því er hann skyldur Kjartani Hákonarsyni. Miles Davis hefur aldrei haft mikil áhrif á íslenska trompetleikara – kannski vegna þess að meðan veldi hans var sem mest á klassíska tím- anum voru varla nokkrir djass- trompetleikarar á Íslandi. Ari notaði dempara lítið á tón- leikum, enda kunna trompetleikarar nútímans ekki þá list að nýta hann án hljóðnema. Hann lék jöfnum höndum á trompet og flygilhorn, þar sem tónn hans er flauelsmjúkur. Eins og flestir ungir menn er Ari ekki heilsteyptur ballöðuleikari og spillti aðeins fyrir heildaráhrifunum í fantavel blásinni „Bess“ Gershwins með ungæðislegum trixum er Hard- grove sótti í smiðju Reds Allens. Aftur á móti lét hann slíkt vera í „My funny Valentine“ Rodgers og þar mátti heyra mörg „likk“ frá hinni mögnuðu túlkun Miles 1964. Tónleikarnir voru svo rammaðir inn í tvo söngdansa: „If I were a bell“ og „On Green Dolphin Street“, þar sem Ari Bragi vitnaði í „Four“, og auka- lagið var „Someday my prince will come“ og lauk þeim valsi á skemmti- lega blúsuðum stigum. Svo má ekki gleyma fínt spiluðu titillagi „Seven steps to heaven“, sem Miles samdi með Victor Feldman, og „Joshua“ Feldmans, sem ekki heyrist oft. Auðvitað var klassíkin blásin: „All blues“, „Milestones“ og „All that jazz“ og hrynsveitin stóð sig vel. Matthías bar hitann og þungann með dýnamískum og músíkölskum trommuleik sínum, Þorgrímur kompaði hann flott í sólóum og ekki síður kvartettinn og Agnar Már átti fín sóló þrátt fyrir kvefað píanó. Ari Bragi flottur með Hemstock Múlinn í Risinu við Hafnarstræti Kvartett Matthíasar M.D. Hemstocks bbbnn Ari Bragi Kárason trompet, Agnar Már Magnússon píanó, Þorgrímur Jónsson bassa og Matthías N.D. Hemstock trommur. Fimmtudagskvöldið 1. júlí 2010. Þeir munu leika valin lög úr katalóg Miles Davis frá tímabilinu 1956-1964. VERNHARÐUR LINNET TÓNLIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.