Morgunblaðið - 06.07.2010, Qupperneq 29
Menning 29FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010
Kría í árásarhug!
Mynd vikunnar
Ljósmynd vikunnar í ljósmyndakeppni mbl.is og Canon tók Höskuldur Birkir
Erlingsson. Myndina tók hann af kríu þar sem hún steypir sér í átt að honum.
Á síðustu stundu lyfti Höskuldur myndavélinni og flaug þá krían frá honum.
Disney-teiknimyndin um Bósa ljósár,
Vidda kúreka og félaga, Toy Story 3,
heldur fyrsta sæti Bíólistans sem
tekjuhæsta kvikmyndin að liðinni
helgi. Er þetta því þriðja vikan í röð
sem leikföngin tróna á toppi listans.
Vampírurómansinn The Twilight
Saga: Eclipse sem er að gera allt vit-
laust í kvikmyndahúsum um allan
heim kom sterk inn um helgina og fór
beint í annað sætið og ekki ólíklegt að
hún fari á toppinn fljótlega.
Tekjuhæstu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum
Leikföngin
á toppnum
Leikfangasaga Disney-myndin Toy Story 3 heldur sæti sínu á toppi Bíólist-
ans, þriðju vikuna í röð.
!
"
#
$#
% $
!&'()*
%
!*+,"-$
.
$/
0
1
2
3
4
5
6
07
Spænski hjartaknúsarinn Enrique
Iglesias hefur sakað foreldra ungs
aðdáanda um afskiptaleysi. Þannig
er mál með vexti að fótur ellefu ára
gamallar stúlku varð undir bíl
söngvarans árið
2007, er hún
reyndi að fá
eigin-
handaráritun
frá honum. Ig-
lesias var á leið
heim frá út-
varpsviðtali
þegar atvikið
átti sér stað, en
æstur hópur
aðdáenda beið hans fyrir utan hljóð-
verið og myndaðist mikill glundroði.
Iglesias segist ekki eiga neina sök á
því hvernig fór fyrir litlu stúlkunni,
en móðir hennar hefur höfðað
skaðabótamál á hendur söngv-
aranum. Hann hefur nú goldið í
sömu mynt og mun bera fyrir dómi
að sökin liggi hjá móður stúlkunnar.
Að mati Iglesias sýndi hún van-
rækslu þegar stelpan fékk að fara
ein síns liðs að bíl stórstjörnunnar.
Ef dómari fellst á þau rök söngv-
arans, að móðir stúlkunnar eigi sök
á atvikinu, ætlar Iglesias að fara
fram á að hún borgi dóttur sinni þær
skaðabætur sem hann sé nú krafinn
um.
Enrique Iglesias, sem er sonur
hins gamalkunna söngvara Julios
Iglesias, hefur á síðustu árum sótt í
sig veðrið í tónlistarheiminum og
nýtur nú heimsfrægðar.
Iglesias
neitar sök
Iglesias Það er erf-
itt að vera frægur.
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Gunnar Gunnarsson og Hjörtur Svavarsson, hljóð-
menn Rásar 2, voru öfundaðir menn um helgina, en
þeir voru í lykilhlutverki á dönsku tónlistarhátíðinni
í Hróarskeldu sem lauk nú á sunnudag. Þar sáu þeir
um upptökur fyrir danska útvarpið DR á þriðja
stærsta sviði hátíðarinnar.
Blaðamaður sló á þráðinn til Gunnars sem var
enn í góðu yfirlæti í glampandi sól og blíðu í Dan-
mörku.
Hátíðin sú allra flottasta
„Þetta var bara geðbilun, alveg ógeðslega gaman.
Þetta heppnaðist allt vel, það voru engin læti og allir
tónleikarnir voru flottir sem maður skoðaði. Stemn-
ingin var alveg geggjuð, þetta var alveg frábært,“
segir Gunnar sem á ekki í erfiðleikum með að lýsa
upplifun helgarinnar.
„Það hlupu allir inn að sviðinu þegar það var opn-
að fyrir almenning. Þá sá maður hrúguna koma inn
og svo byrjuðu tónleikarnir og það var mergjuð
stemmning allan tímann upp frá því.“ Gunnar hefur
farið á ófáar Hróarskelduhátíðir í gegnum tíðina og
segir hátíðina í ár hafa staðið upp úr.
ur á gítarinn og alls konar. Hann var klárlega með
flottasta „showið.“ Tónleikarnir með Muse voru líka
flottir og svo sá ég band sem heitir Gallows á sviðinu
sem við vorum að vinna á. Mér fannst þeir alveg
geggjaðir, það var svona pönk metall eitthvað.“
Sváfu undir berum himni
Að sögn Gunnars var það einnig mjög eftir-
minnilegt að hafa hitt óvænt á fræga menn á förnum
vegi. „Við hittum til dæmis bara „einhvern Mike
Snow,“ og eitthvert svona fólk. Þetta var helvíti
töff.“
Gunnar og Hjörtur eru væntanlegir til landsins á
morgun og prísa sig sæla yfir að hafa gistingu í
heimahúsi. Þeir félagar gistu nefnilega í tjaldi um
helgina og urðu næturnar heldur strembnar.
„Það var náttúrlega bara helvíti. Þú varst vakn-
aður klukkan átta á morgnanna útaf sólinni og það
var svona fimmtíu stiga hiti inn í tjaldinu. Þá dró
maður bara dýnurnar út undir næsta tré og lagði sig
áfram. Það voru allir sofandi úti undir berum himni,
það gekk ekki að sofa inni í tjöldunum vegna hita.
Það var kannski mesta sjokkið. En þessi hátíð var
best af þeim öllum, þó svo að „line-upið“ væri
kannski ekki það sem ég vildi. Þetta var rosaleg há-
tíð í alla staði.“
Í beinni í Rokklandi
Gunnar er bróðir Óla Palla, útvarpsmanns Rásar
2, sem var einnig staddur á hátíðinni. Þaðan sendi
hann beint út frá lokakvöldinu í þætti sínum Rokk-
landi, en samkvæmt Gunnari er meira efni vænt-
anlegt til landsins.
„Við vorum að taka upp fyrir danska útvarpið og
fáum þær upptökur sjálfir. Við vorum að vinna á
Odeon-sviðinu sem er þriðja stærsta sviðið á svæð-
inu. Við fengum líka viðtöl við þá sem voru að spila á
því sviði. Við vorum í rauninni að vinna mestallan
tímann en það var bara mjög gaman.Við fórum á
fund í hádeginu og fengum að vita hvaða bönd við
ættum að taka upp. Ég get eiginlega ekki lýst þessu,
ég er bara alveg í skýjunum eftir þetta. Er fyrst að
ná mér niður núna.“
Fólk fór í trans með Prince
Gunnar segist muna eftir fjölda góðra tónleika og
að nokkrir þeirra hefðu verið ógleymanlegir.
„Mér fannst Them Crooked Vultures langbestir.
Mesta stemningin skapaðist við Prince samt, þar fór
fólk í einhvern trans með kveikjara á lofti. Þó svo að
ég fíli ekki Prince persónulega þá missti ég andlitið
við að sjá hann. Ég trúði því ekki hvað hann var góð-
Mergjuð stemning í Hróarskeldu
Reuters
Minning Tónleikagestir minntust þeirra, sem létust á hátíðinni fyrir tíu árum, með rósum.
Sváfu undir berum himni vegna hita Prince kom sá og sigraði
Reuters
Einstök Bandaríska söngkonan Patti Smith
Söngkonan Lily Allen hefur ákveð-
ið að leggja hljóðnemann á hilluna
um hríð til að geta einbeitt sér að
barneignum. Hún er nú í sambandi
með hinum þrjá-
tíu og eins árs
gamla Sam
Cooper, en hún á
þann draum
heitastan að ala
honum barn.
„Ég held að ég
sé ekki of ung til
að verða móðir.
Móðir mín átti
mig þegar hún
var tuttugu og
þriggja ára gömul. Börn taka allan
þinn tíma, sérstaklega á fyrstu
tveimur, þremur árunum. Það yrði
ekki ábyrgðarfullt af mér að halda
áfram með tónleikaferðalögin mín
ef ég stefni á að eignast barn,“
sagði Allen í samtali við Elle
Magazine.
Sögusagnir eru nú þegar komnar
á kreik þess efnis að söngkonan sé
ólétt, en hún hefur ekki sést reykja
né drekka í þónokkurn tíma, sem
þykir nokkuð óvenjulegt miðað við
fyrri hegðun hennar.
„Það verða örugglega svona
fimm ár þar til ég gef út nýja plötu.
Það er svo mikil skuldbinding að
gefa út plötu. Ég vil eignast barn
eftir minna en ár.“
Allen vill
verða móðir
Allen Tilbúin að
eignast barn.