Morgunblaðið - 06.07.2010, Page 32
AF TÓNLIST
Guðmundur Egill Árnason
gea@mbl.is
Þau eiga að falla vel að náttúrunni,
veginum og hraðanum, lögin sem við
hlustum á í bílnum þegar við geys-
umst áfram í útileguna á vit ævintýr-
anna, og hvað er þá sígildara með
hreina loftinu, sólinni og mosagrænu
hraunflákunum en …
1. „Immigrant song“ – Led Zeppelin
Þetta lag er samið á Íslandi og
okkur finnst við vera með Led Zep-
pelin á hraðri ferð á Reykjanes-
brautinni „We come from the land of
the ice and snow, from the midnight
sun where the hot springs blow.“
Svo hefðu þeir mátt bæta við
„Damn, the cops are pulling me
over.“
2. „Highway to Hell“ – AC DC
Lag af samnefndri plötu sem er sú
síðasta sem Bon Scott tók þátt í áður
en hann dó fyrir aldur fram. Hrað-
braut í Ástralíu rétt hjá heimili hans
lá að rokkbar og var oft kölluð hrað-
braut helvítis. Allir að velta helvíti
fyrir sér í bílnum.
3. „Low Rider“ – War
Fönk og psychadelic rokk er
ferðalag sem við viljum öll fara í,
jafnvel þótt við séum að aka til leið-
ingjarns staðar. Þessu lagi hefur
tekist að gera allar senur skemmti-
legar í kvikmyndum þar sem því hef-
ur brugðið fyrir, t.d. í Dazed and
Confused, Beverly Hills Ninja, A
Knight’s Tale, 21 Grams og Friday.
Ef það gerði Knight’s Tale þolanlega
rétt á meðan það spilaðist, þá verður
kannski ferðalagið til Dyngjuvíkur í
Prumpufirði ekki sem verst.
4. „Magic Carpet Ride“ –
Steppenwolf
Sumarið kemur ár hvert með lög-
um sem þessu. Grasið er grænt fyrir
utan bílinn svo lengi sem þetta er í
útvarpinu. „Move your eyes, girl, lo-
ok inside, girl. Let the sun take you
away.“
5. „Free Bird“ – Lynyrd Skynyrd
Kærasta Allen Collins, Kathy,
hvíslaði að honum spurningu sem
Allen skrifaði síðar niður og ber lag-
ið „If I leave here tomorrow, would
you still remember me?“ Áhyggjur
hennar voru ástæðulausar þar sem
Allen giftist henni seinna en kannski
hefði hún betur átt að fara og láta
hann gleyma sér. Allen brotlenti ást-
arsögunni í bílslysi þar sem Kathy
lést en hann lamaðist og dó fjórum
árum síðar, 37 ára gamall.
6. „Back in Black“ – AC DC
Aðgát skal höfð ef feykja á flösu
undir stýri. Árið 1989 setti tímaritið
Rolling Stone þetta lag í 187. sæti yf-
ir 500 bestu lög allra tíma. Það er
vegna þess að fólki finnst gaman að
hlusta á þetta lag með eyrunum sín-
um.
7. „Runnin’ down a Dream“ –
Tom Petty
Eldri kynslóðin man vafalítið
eftir þessu lagi úr tölvuleiknum
GTA: San Andreas á útvarps-
stöðinni K-DST. „Running
down a dream, that never wo-
uld have come to me.“
Ekki aka eins og í
GTA.
8. „Tush“ – ZZ
Top
„I’ve
been bad,
I’ve
been go-
od. Dall-
as, Tex-
as,
Hollywoo-
ooood. I ain’t
askin’ for
much.“
9. „The Passenger“ – Iggy Pop
Þetta lag er frábært fyrir kvik-
mynda-montage og gjarnan notað
sem slíkt. Hvað er náttúran fyrir ut-
an bílinn annað en kvikmynd?
10. „No Particular Place to Go“ –
Chuck Berry
„Riding along in my automobile,
my baby beside me at the wheel.“
Chuck Berry er enn að túra 83 ára
gamall og tími til kominn að einhver
bjóði honum til Íslands. Hver býður
sig fram í að hýsa hann? Maðurinn
er vel tenntur, húsvanur og kurteis.
Svo er hann líka stór áhrifavaldur í
sögu rokktónlistar.
11. „Take it Easy“ – Eagles
Þetta lag var svo vinsælt að bara
vegna þess að bærinn Winslow í Ari-
zona kemur fyrir í öðru versi, þá
reistu bæjarbúar þess bæjar brons-
Andvari og ævintýri á þjóðveg
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sumar Þjóðvegur eitt liggur um Mýrdalinn og færist niður að Dyrhólaós, en þá ætti maður að vera búinn að hlusta á a.m.k. þrjú lög.
Bara þrjú af þeim lögum
sem ég skil undan
„Truckin’“ – Grateful Dead
„Radar Love“ – Golden Earring
„No Sleep til Brooklyn“ –
Beastie Boys
12. A Tribe Called Quest hafa mögu-
lega aldrei farið út fyrir New York
nema á túr.
4. Strákarnir í Steppenwolf
voru einu sinni töffarar.
9. Iggy Pop
er farþegi
í mörgum
bílum,
10. Chuck Berry
leitar bara að ein-
hverjum til að hýsa sig
Bestu lögin í bílnum
2. Stytta af Bon
Scott í Ástralíu.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010
Ein vinsælasta
mynd sumarsinsKirsten Stewart,
Robert Pattinson og
Taylor Lautner eru mætt í
þriðju og bestu myndinni í
Twilight seríunni
„BESTA TWILIGHT MYNDIN TIL ÞESSA“
- ENTERTAINMENT WEEKLY
HHHH
- P.D. VARIETY
HHHH
- K.H. THE HOLLYWOOD REPORTER
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
600 kr.
Tilboð
TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 3:20-6-8-8:30-10:40-11 12 NIGHTMARE ON ELM STREET kl. 8-10:50 16
TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 5:20-8-10:40 VIP-LÚXUS SEX AND THE CITY 2 kl. 5-8 12
LEIKFANGASAGA 3 3D kl. 3:203D -5:403D L THE LOSERS kl. 10:40 12
LEIKFANGASAGA 3 kl. 3:20-5:40 L VIP-LÚXUS PRINCE OF PERSIA kl. 3:20-5:40-8-10:20 10
TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 5:20-8-10:40 12
NIGHTMARE ON ELM STREET kl. 5:40-10:50 16
LEIKFANGASAGA 3 3D m. ísl. tali kl. 5:403D L
TOY STORY 3 3D m. ensku tali kl. 83D -10:203D L
SEX AND THE CITY 2 kl. 8 12
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA