Morgunblaðið - 13.08.2010, Qupperneq 6
Morgunblaðið/Ernir
Uppbygging Iðnaðarmenn að störfum í tónlistarhúsinu Hörpu, stærstu framkvæmdinni sem unnið er að um þessar mundir. Fleira er þó í gangi svo sem smærri viðhaldsverkefni um allan bæinn.
Á
takið Allir vinna er að
mínum dómi jákvætt
innlegg í þeirri viðleitni
að koma atvinnulífinu
aftur af stað. Við finn-
um á verktökum, sem við erum í
miklum samskiptum við, að al-
menningur er meðvitaður um þau
afsláttarkjör af sköttum sem nú
bjóðast. Þetta er greinilega að
hreyfa við fólki,“ segir Sigurður
E. Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri BYKO.
Sumar og sólpallar
Bygginga- og verktakastarfsemi
er gjörbreytt frá því sem var
þegar best lét í góðærinu. Ný-
byggingar eru sáralitlar en iðn-
aðarmenn hafa hins vegar haft
nokkra vinnu við viðhaldsverk-
efni.
„Fyrir okkur er erfitt að leggja
mælistiku á hvaða viðskipti megi
rekja beint til átaksins. Hins veg-
ar hafa margir húseigendur verið
að stússast í ýmsum fram-
kvæmdum að undanförnu, hafa til
dæmis fengið iðnaðarmenn til að
setja upp sólpalla heima fyrir eins
og margir gera yfir sumartímann.
Þá eru margir í smáviðhaldi: láta
mála, flísaleggja, setja upp ný
hreinlætistæki og svo framvegis,“
segir Sigurður sem telur nauð-
synlegt að átaksverkefnið Allir
vinna vari lengur en bara út þetta
ár eins og nú er gert ráð fyrir.
Vari út næsta ár
„Skilaboð um skattaafsláttinn eru
svolítinn tíma að síast inn í vitund
almennings. Að ósekju mætti
verkefnið því gjarnan standa út
næsta ár enda hefur þetta aukið
umsvif bæði hjá bygginga-
vöruverslunum, verktökum og
skilað meira í ríkiskassann. Í ár-
ferði eins og núna munar um
allt,“ segir Sigurður.
Á allan almennan mælikvarða
eru umsvif á byggingamarkaðnum
í dag sáralítil. Nokkrum stórum
verkefnum er að ljúka og ekkert
viðlíka er í burðarliðnum. „Við
reiknum með því að veturinn geti
orðið erfiður. En vonandi fer
landið fljótlega að rísa, mér sýn-
ist að núna sé til dæmis að mynd-
ast eftirspurn á minna íbúða-
húsnæði; tveggja til þriggja
herbergja íbúðum sem eru 60 til
90 fermetrar. Og svo er auðvitað
alltaf nauðsynlegt að sinna við-
haldi og rækta sinn eigin garð,
eins og slíkt er stundum kallað,“
segir Sigurður E. Ragnarsson.
sbs@mbl.is
Þetta er greinilega að hreyfa við fólki
BYKO Sigurður E. Ragnarsson, for-
stjóri er ánægður með viðtökurnar.
Margir í viðhaldi, segir
forstjóri BYKO, sem
telur átaksverkefnið
Allir vinna vera já-
kvætt innlegg í end-
urreisnina.
6 | MORGUNBLAÐIÐ
Á
ætluð fjármunamyndun í
íslenskum mannvirkjum
er 3.500 milljarðar en það
er mikil fjárfesting,
kannski 90% af því sem
þjóðin á. Í Evrópu er talið að til að
halda eignunum við þurfi 1-2% af ári
að fara í kostnað vegna viðhalds. Ef
það er reiknað eru það allt að 70
milljarðar sem er nauðsynlegt að
leggja í viðhald þessara þjóð-
arverðmæta,“ segir Þorsteinn Ingi
Sigfússon, prófessor í eðlisfræði og
forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Ís-
lands.
Hlutverk Nýsköpunarmiðstöðvar
Íslands er meðal annars að hvetja
til nýsköpunar og efla framgang
hugmynda í íslensku atvinnulífi.
Hún er einn þeirra mörgu aðila sem
standa að átakinu Allir vinna og
mun stuðla að framþróun þess með
námskeiðahaldi og upplýsingaþjón-
ustu.
Fagleg kennsla og fróðleikur
Þegar blaðamaður slær á þráðinn til
Þorsteins segist hann sjálfur vera
að taka þátt í átakinu með nauðsyn-
legu viðhaldi á húsinu sínu.
„Á Íslandi eru svo erfiðar að-
stæður veðurfarslega séð að það
veitir ekkert af að halda í við nið-
urbrotið sem verður,“ segir Þor-
steinn. Með áðurnefnda tölfræði og
viðhaldsþörf í huga ákvað Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands að setja á fót
námskeiðið Viðhald og verðmæti
sem hefst í haust. Auk þess er hægt
að nálgast leiðbeiningar og bækl-
inga um viðhald á vefsíðu stofnunar-
innar. Námskeiðið verður ætlað öll-
um sem vilja halda við sínu húsnæði,
einstaklingum, fulltrúum sveitarfé-
laga og öðrum aðilum. Fagmenn sjá
um kennslu en auk þess koma
Íbúðalánasjóður og Byggðastofnun
að framkvæmd námskeiðsins. Verið
er að kynna hugmyndina og er nú
þegar mikill áhugi á henni. Þegar
Nýsköpunarmiðstöð Íslands var
stofnuð fyrir þremur árum var
starfsemi Rannsóknarstofnunar
byggingariðnaðarins færð til henn-
ar. Aðspurður hvert hlutverk Ný-
sköpunarmiðstöðvarinnar sé gagn-
vart átakinu Allir vinna nefnir
Þorsteinn að stofnunin varðveiti
þekkinguna sem var í Rannsókn-
arstofnun byggingariðnaðarins.
„Þegar syrti í álinn og kreppan
lagðist yfir fannst okkur að við gæt-
um lagt svo mikið til. Í fyrsta lagi að
halda við þessum miklu verðmæt-
um. Í öðru lagi að örva atvinnulíf og
veltu þjóðarbúsins. Það er enginn
verðmætaflokkur meiri en þessi,“
segir Þorsteinn.
„Við reynum að standa okkur í
okkar lögbúna hlutverki og gleðj-
umst yfir því þegar stjórnvöld fara
af stað með okkur. Einnig er mik-
ilvægt að vinna með aðilum vinnu-
markaðarins. Okkur finnst jákvætt
ef átakið mun valda gegnsæju kerfi
og agaðra samfélagi. Ef ekki er hirt
um viðhaldið grotnar þjóðarauð-
urinn niður.“
Ávinningur fólginn í samvinnu
Síðastliðinn vetur hélt Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands námskeiðið
Viltu verða orkubóndi? en þar var
fjallað um nýtingu á orku hérlendis.
Þorsteinn segir að í haust verði
jafnframt lögð áhersla á að sam-
tvinna hugmyndir um endurbætur á
húseignum og orkusparnað.
„Í Allir vinna felst skemmtilegur
orðaleikur, ekki er aðeins átt við
vinnu heldur er mikill ávinningur
fólginn í að vinna saman. Það er
gaman að sjá hve iðnaðarmenn taka
vel í átakið og þetta er mikil örvun
fyrir þennan hluta markaðarins.
Þetta er með því betra sem hægt er
að gera í núverandi aðstæðum og
það er einhver von sem kemur með
þessu. Í átakinu felst einnig bjart-
sýni, við viljum fegra umhverfi okk-
ar og halda því við. Þetta hefur upp-
örvandi andlegan þátt líka,“ segir
Þorsteinn en hann finnur fyrir auk-
inni samheldni í samfélaginu.
„Við áttum svolítinn þátt í þessu
átaki og það hefur gengið betur en
ég vonaði.“ kristel@mbl.is
Nauðsynlegt að viðhalda þjóðarverðmætum
Morgunblaðið/RAX
Þorsteinn Ingi Sigfússon: „Ef ekki er hirt um viðhaldið grotnar þjóðarauðurinn niður.“ Þorsteinn ræðir við iðnaðarmenn
sem vinna að endurbótum á húsi hans og er hér greinilega að mörgu að hyggja, rétt eins og gerist á stóru heimili.
Nýsköpunarmiðstöð
Íslands er meðal
þeirra sem standa að
átakinu Allir vinna. Í
haust verða haldin
námskeið um allt er
viðkemur viðhaldi á
eignum.