Morgunblaðið - 13.08.2010, Side 7
Þ
au framkvæmdalán sem við
bjóðum hafa fengið mjög
góðar viðtökur. Strax að
morgni þess dags sem við
kynntum þau byrjuðu við-
skiptavinir að hringja og leita upp-
lýsinga um þau kjör sem í boði eru.
Nú þegar höfum við afgreitt nokk-
urn fjölda lána og töluvert er í far-
vatninu,“ segir Anna Bjarney Sig-
urðardóttir, framkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs Landsbankans.
Anna Bjarney segir að viðtökur
hafa í raun verið betri en bankinn
hafi búist við og ekki spilli skattaaf-
slátturinn sem í boði er, fyrir áhuga
fólks.
,,Við viljum leggja okkar af mörk-
um og taka þátt í verkefninu Allir
vinna með stjórnvöldum og öðrum
og teljum þetta ágæta leið til að
koma hreyfingu á vinnumarkaðinn
og atvinnulífið.“
Kjörin eru kostur
Lán til góðra verka sem Landsbank-
inn kallar svo bera 5,8% vexti og eru
til allt að fimm ára. Lántökugjöld
eru engin.
„Við ákváðum að bjóða við-
skiptavinum okkar að sækja um
þessi lán fram í desemberbyrjun,
tveimur mánuðum lengur en aðrir.
Það er hægt að fá allt að tvær millj-
ónir króna lánaðar með veði í hús-
næði en allt að einni milljón veðlaust.
Helsti kosturinn við þessi lán eru að
sjálfsögðu vaxtakjörin, en þau eru
tveimur prósentustigum lægri en á
óverðtryggðum íbúðalánum bankans
á hverjum tíma,“ segir Anna sem
undirstrikar að vissulega dugi þessi
lánsfjárhæð ekki til stórfram-
kvæmda. Hins vegar eigi hún að
geta greitt leiðina ef skipta þarf um
rúður, mála, setja upp nýja eldhús-
innréttingu eða flísaleggja á baðinu,
svo ef eitthvað sé nefnt.
Góður kostur
Þegar kemur að stærri og fjárfrek-
ari framkvæmdum býður Lands-
bankinn viðskiptavinum sínum hag-
kvæm langtímalán. Þar nefnir Anna
ný framkvæmdalán sem geta verið
til allt að 30 ára, ýmist verðtryggð og
óverðtryggð og taka vaxtakjör mið
af vöxtum íbúðalána bankans. Bank-
inn ákvað einnig að falla frá lántöku-
gjaldi, sem venjulega nemur 1% af
lánsfjárhæð, sem getur numið allt að
70% af markaðsvirði húsnæðis.
,,Þetta er mjög góður kostur fyrir
þá sem standa frammi fyrir verulegu
viðhaldi eða endurbótum og við finn-
um fyrir töluverðum áhuga við-
skiptavina,“ segir Anna.
sbs@mbl.is
Viljum leggja okkar af mörkum
Anna Bjarney Sigurðardóttir
Nú bjóðast sérstök lán til viðhalds á húsnæði. Vextirnir eru lágir og
viðtökur eru góðar, segir framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum.
Smiður Ef fé þarf til framkvæmda bjóðast ýmsir kostir og ágæt kjör.
MORGUNBLAÐIÐ | 7
Einhvern tíma kemur að því að viðgerða
á húsnæði er þörf. Vandamálin geta ver-
ið bæði stór og smá en misjafnlega al-
varleg. Afleiðingar þeirra geta verið
ófyrirsjáanlegar og ein viðgerð kallað á
fleiri. Því er mikilvægt að átta sig strax á
umfangi þeirra og meta hvort aðstæður
kalla á hjálp fagmanna eða ekki.
Margir vilja ljúka viðgerðum sjálfir og
ættu allir íbúar að spyrja sig hvort þeir
hafi þá þekkingu og reynslu sem til þarf,
því ekki er ráðlegt að reyna á þolmörkin
nema tími sé fyrir slíkt, sem og löngun.
Þar að auki er það bæði tíma- og pen-
ingaeyðsla að þurfa að gefast upp og fá
viðgerðarmann til að gera verkið upp á
nýtt ef illa fór.
Ástæður sem kalla á fagmenn
Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir að
mörgum viðgerðum fylgir ákveðin
hætta, samanber há húsþök og gamlar
rafleiðslur. Af öryggisástæðum getur því
verið ráðlegt að fá fagmann til verksins.
Einnig skipta gæði viðgerða máli. Ef það
fer aftur að leka eða rafmagninu slær
enn út, var það þá þess virði að gera allt
sjálfur? Í vissum tilfellum er betra að
verkið sé unnið vel til að ekki þurfi að
gera við aftur og aftur. Þá er gott að
bera saman kostnaðinn af því að ráða
fagmann og þann tíma sem það tekur að
gera við upp á eigin spýtur. Ef þinn per-
sónulegi tími er meira virði en fag-
mannsins þá tapast dýrmæt vinna og fé
á eigin kostnað. Ljóst er að í sumum til-
vikum er einfaldasta leiðin að sjá sjálfur
um viðgerðir og endurbætur – í öðrum
tilvikum ættu fagmenn að fá tækifæri til
að ljúka verkinu af, fljótt og örugglega.
Húsnæði Meta þarf hvort gera eigi við
upp á eigin spýtur eða með aðstoða
fagmanna.
Er viðgerða
þörf?
Lán til góðra verka
Til 1. desember verður boðið upp á allt að 2 milljóna
króna óverðtryggt lán á 5,80% vöxtum til 5 ára. Lánið er
veitt gegn framvísun reikninga fyrir vöru- og þjónustu-
kaupum sem tengjast framkvæmdunum.
- 5,80% óverðtryggðir vextir
- Allt að 2 milljóna króna lán með veði í fasteign
eða 1 milljón án veðs
- Engin lántökugjöld
- Umsóknarfrestur er til 1. desember
Framkvæmdalán
Í boði eru verðtryggð eða óverðtryggð lán með breyti-
legum vöxtum á sömu kjörum og bjóðast við kaup á
fasteign. Lánað er til endurbóta innan- og utanhúss,
t.d. endurnýjunar á þaki, lögnum eða innréttingum, til
lóðaframkvæmda, hellulagningar eða smíði sólpalla.
- Vextir ákvarðast af hlutfalli veðsetningar
- Lágmarkslánsfjárhæð er 500.000 krónur
- Lánstími til allt að 30 ára
- Engin lántökugjöld til 1. desember
LÁN | landsbankinn.is | 410 4000
N
B
I
h
f
.
(
L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
)
,
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
0
0
5
Hagstæð lán til
framkvæmda
Landsbankinn leggursitt af mörkum til hvatningarátaksins Allirvinna og býðurviðskiptavinum
hagstæð lán til framkvæmda og endurbóta á íbúðarhúsnæði. Engin lántökugjöld eru tekin
til 1. desember.