Morgunblaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 9
erfiðar, til dæmis þegar þarf að
smokra sér inn í þröngar geilar
eða príla uppi á pöllum, þar sem
trjágróður liggur að,“ segir Er-
lingur. Hann ítrekar að nýsmíði
og viðhald séu í raun sinn hvor
hlutirinn. Fólk sem ætli sjálft að
fara í endurbætur á eigi því að
leita eftir ráðum hjá mönnum sem
hafa einbeitt sér að viðhaldi.
Verkþekking glatast
„Fylgi fólk réttum ráðum fag-
manna og fái þá hugsanlega til að
leiða verkið áfram getur þessi
venjulegi húseigandi gert býsna
mikið sjálfur,“ segir Erlingur.
„Sú var tíðin að húsbyggingar
voru þjóðaríþrótt Íslendinga og þá
hafði fólk nánast ekki val um ann-
að en að bjarga sér. Mikill fjöldi
húsa hér á höfuðborgarsvæðinu -
raunar heilu hverfin er mér næsta
að halda - var byggður með vinnu-
skiptum milli manna. Smiður, raf-
virki, pípari og múrari hjálpuðust
að. Í þessari alþýðumenningu
myndaðist góð verkþekking meðal
fólks sem ég óttast að nú sé fyrir
bí. Að mörgu leyti er slíkt eðlilegt;
til dæmis sé horft til þess að
byggingarefni í dag eru vand-
meðfarnari en áður. Þar nefni ég
til dæmis lagnakerfi og málningu
og enginn skyldi fást við rafmagn
nema fagmenn. En auðvitað var
svolítil rómantík yfir því þegar
fjölskyldan sameinaðist við hús-
byggingu þar sem mótatimbrið
var hreinsað og naglarnir slegnir
til svo hamarshöggin glumdu um
bæinn breiðan.“ sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Smiðurinn Endurgerð eldri húsa eru í raun sérstök grein í húsasmíðinni, segir Erlingur, sem þykir nánast sorglegt að sjá
slæleg vinnubrögð. Mikilvægt sé að leita ráða fagmanna við endurgerð, hvort sem verkið sé lítið eða stærra í sniðum.
MORGUNBLAÐIÐ | 9
Allir íbúar heimilisins nota baðher-
bergið og flestir vilja hafa það
huggulegt og í góðu ástandi en það
er hægt með einföldum hætti, reglu-
legu eftirliti og viðhaldi. Í baðher-
bergjum er að finna mikinn raka og
í fyllingu tímans getur rakinn haft
áhrif á veggi herbergisins og máln-
ingu.
Oftar en ekki er hægt að mála
veginna upp á nýtt til að fela raka-
skemmdir en áður en ráðist er í
framkvæmdir er nauðsynlegt að at-
huga hvort sprungur hafi myndast
en þá þarf að fylla í ójöfnur með
sparsli. Öll baðherbergi geta litið vel
út og verið hrein og fín.
Hvaða gagn er hins vegar að því
ef allt er stíflað? Best er að leysa
vandamálin áður en allt flæðir í
vatni, ýmist með því að kaupa
stíflulosandi vökva eða fá fagmann
til verksins. Ef dropahljóð berast frá
vaskinum er það oftar en ekki merki
um leka og mikilvægt er að yfirfara
pípur og annan útbúnað.
Með tíð og tíma getur flísalagt
baðherbergi látið á sjá og mygla
sest á sturtuveggi eða baðkarsflísar.
Þá er mikilvægt að þrífa og skafa
skítinn af áður en hann verður óvið-
ráðanlegur. Ljóst er að viðgerðir á
baðherbergi snúast ekki einungis
um klósett og sturtu heldur geta
leynst ýmsar hættur sem fylgjast
þarf með.
Boðlegt baðherbergi
Huggulegt Baðherbergi geta litið vel út en þurft á miklu viðhaldi að halda.
„Allir vinna“ er hvatningarátak s
em miðar að því að hleypa kraft
i í atvinnulífið á Íslandi.
Þeir sem ráðast í framkvæmdir
við eigið íbúðarhúsnæði eða sum
arhús eiga rétt á 100%
endurgreiðslu á virðisaukaskatti
af vinnu á verkstað. Að auki fæ
st lækkun á tekjuskatts-
stofni, sem getur numið allt að
300.000 krónum.
Arion banki býður nú viðskipta
vinum sínum hagstæð lán til a
ð styðja við átakið.*
• Engin lántökugjöld.
• 5,75% óverðtryggðir vextir.**
• Fjárhæð allt að 2 milljónum k
r. til allt að fimm ára.
• Umsóknarfrestur er til 1. des
ember 2010.
* Lánin eru veitt til einstaklinga með góða greiðslugetu
** 3% lægra en óverðtryggðir kjörvextir Arion banka skv
. vaxtatöflu
Við ætlum að gera betur