Morgunblaðið - 13.08.2010, Qupperneq 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
H
ægt er að nýta hina skap-
andi hugsun sem hönn-
uðir búa yfir á svo mörg-
um sviðum því þeir sjá oft
hlutina frá öðru sjón-
arhorni. Til dæmis væri hægt að nýta
arkitektúr við skipulagningu bæj-
arhátíða, koma með hugmyndir um
hin fjölmörgu opnu en illa nýttu
svæði í borginni og við skipulagningu
sumarhúsabyggða. Hönnun eða
hugsun er grunnurinn sem allar
framkvæmdir byggjast á,“ segir Rut
Káradóttir innanhússarkitekt en hún
lærði innanhússarkitektúr í Istituto
Europeo di Design í Róm og útskrif-
aðist þaðan árið 1993.
Frá útskrift hefur Rut sinnt fjöl-
breyttum verkefnum, hérlendis og á
Ítalíu, fyrir bæði einstaklinga og fyr-
irtæki. Að mati Rutar er mikil gróska
og endurnýjun í innanhúshönnun
þessa dagana og gömlu og nýju er
gjarnan blandað saman með mis-
munandi hætti. Hönnunarvörum er
komið fyrir innan um persónulega
„vintage“ muni og Íslendingar sækja
meira í gamlar hefðir en áður og eru
sjálfstæðari.
Glöggt er gests augað
Hlutverk innanhússarkitekta veltur
oftar en ekki á viðkomandi verkefni
og geta þeir því ýmist fengið frjálsar
hendur eða hannað eftir sérstökum
óskum viðskiptavina. Verkefnin geta
verið mjög fjölbreytt og allt frá því að
veita ráðgjöf um liti og efnisval og yf-
ir í að gera grunnskipulag og hanna
allt innanstokks í íbúðar- eða at-
vinnuhúsnæði.
„Mér finnst alltaf best að komast
sem fyrst inn í framkvæmdaferlið því
eitt mikilvægasta hlutverk innan-
hússarkitektsins er að búa til gott
grunnskipulag, hvort sem um er að
ræða íbúðir eða smærri rými. Ef það
tekst má síðan alltaf leika sér með
ólíka stíla, liti og efnisval því skipu-
lagið er að mestu laust við tísku-
strauma,“ segir Rut. Hún nefnir að
fólk ráðfæri sig gjarnan við innan-
hússarkitekta við kaup á fasteignum
eða þegar finna þarf lausnir á núver-
andi húsnæði, til dæmis ef fjölgar í
fjölskyldunni.
„Starf innanhússarkitektsins má
að vissu leyti finna í orðunum
„Glöggt er gests augað“. Mér finnst
líka alltaf fyndið þegar viðskiptavinir
segja við mig; „Betur sjá augu en
auga og ég er eineygð!“ segir Rut
glaðlega – og leggur áherslu á að
nýta megi þekkingu innanhúss-
arkitekta á fjölmarga vegu.
Skrautmunir líkt og
skartgripir
„Tíska í innanhúshönnun er ekki jafn
hröð og til dæmis fatatískan enda er
oft um að ræða dýrari hluti,“ segir
Rut spurð um nýjustu tískubylgj-
urnar í hönnunarheiminum. „Mér
finnst fólk sjálfstæðara. Vill frekar
hafa heimilin sín hlýleg og persónu-
leg en eins og sýningarsali. Að fólk
vilji hafa heimilið persónulegt þýðir
ekki að hönnuðir séu ekki nauðsyn-
legir því gildi hönnunar er alltaf við
lýði alveg sama hvaða stíl fólk vill
hafa. Skipulagið þarf að vera gott og
henta þeim sem býr í húsnæðinu og
til að það verði fallegt þarf lita- og
efnisval, lýsing og fleira að ganga
upp.“
Rut finnast hvítir veggir vera á
undanhaldi og mildir litir koma í
staðinn, jafnvel dökkir litir. Nátt-
úruleg og gróf efni eru áberandi og
húsin eru ekki höfð jafn „fín“ heldur
praktísk og hlýlegri. Í stað eldhús-
eyju með einni stálskál eru þar tré-
bakkar, tágakörfur og krukkur með
kökum.
„Mér finnst minn tími vera kominn
enda er ég drottning tágakörfunnar,“
gantast Rut og nefnir að það er lúxus
að geta kíkt í bílskúrinn til að geyma
og skipta á skrautmunum í hillurnar.
„Enginn setur alla hringana sína á
fingurna í einu heldur er þeim skipt
út. Þetta er eins með stofuna,“ segir
Rut og bætir við að hægt sé að skipta
um útlit eftir árstíðum auk þess sem
síður þarf að kaupa eitthvað nýtt ef
fólk nýtir sér geymsluna.
Heimilið skiptir miklu máli
„Á endanum er heimilið þar sem þú
býrð en ekki hvernig það lítur út. Það
er hins vegar gaman að geta leyft sér
að hafa fallegt í kringum sig en aðal-
atriðið er auðvitað hvernig fólki líður
heima hjá sér,“ segir Rut. „Ég reyni
alltaf að sjá fyrir mér einhverja
stemningu þegar ég hanna fyrir fólk
og ég held að það sé mikilvægt að
fólk reyni að átta sig á því hvaða
stemningu það langar að skapa á
heimilinu ekki síður en útlit þess. Ís-
lendingar eru gestrisin þjóð og við
erum dugleg að heimsækja hvert
annað til að eiga góðar stundir heima
við. Það er draumur að vera innan-
hússarkitekt í landi þar sem heimilið
skiptir svona miklu máli. Mér finnst
þetta átak ríkisstjórnarinnar, Allir
vinna, mjög hvetjandi. Það er ótrú-
lega mikið til af krafti í þjóðinni og
hönnunarstéttunum sem er ekki
nógu nýttur og nú er lag fyrir fólk að
hugsa og hanna áður en það fram-
kvæmir,“ segir Rut. kristel@mbl.is
www.rutkara.is
Morgunblaðið/Ernir
Skrautmunir Hægt er að breyta útliti
heimilisins með mismunandi skraut-
munum án þess að raska grunn-
skipulagi.
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Skrautmunir Hægt er að breyta útliti heimilisins með skrautmunum án þess að
raska grunnskipulagi heimilsins þar sem hver hlutur hefur sinn fasta stað.
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Notalegt Dæmi um hönnun þar sem hlýleiki og mildir litir ráða ferðinni.
Grunnurinn sem allar
framkvæmdir byggjast á
Rut Káradóttir hefur starfað sem innanhúss-
arkitekt í mörg ár og fæst við fjölbreytt verkefni.
Mikil gróska er í innanhúshönnun þessa dagana
og tískan býður upp á milda liti og hlýleg heimili.
Hönnuður Rut
Káradóttir innan-
hússarkitekt
ásamt dóttur
sinni. Rut lærði
innanhúss-
arkitektúr á Ítalíu.