Morgunblaðið - 13.08.2010, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11
Á
s styrktarfélag var stofnað undir heit-
inu Styrktarfélag vangefinna árið
1958 og við erum því komin á góðan
aldur,“ segir Þóra Þórarinsdóttir,
framkvæmdastjóri Áss styrkt-
arfélags. Félagið er þriðji stærsti rekstrarað-
ilinn í þjónustu við fatlaða á Íslandi. Starfsemi
styrktarfélagsins, sem er sjálfseignarstofnun,
er umfangsmikil en meðal annars þjónustar fé-
lagið fjölda manns í formi búsetu, dagþjónustu
og vinnu. Ás styrktarfélag hefur í gegnum árin
staðið í ýmsum framkvæmdum og endurbótum
á þeim fasteignum sem félagið á og rekur ásamt
því að standa í nýbyggingu þjónustuíbúða.
„Við eigum nokkur sambýli sem við höfum
haldið við eins vel og okkur hefur verið kostur í
gegnum tíðina. Aðallega höfum við verið að
breyta úr því að hafa herbergjasambýli yfir í
aukið einstaklingsrými,“ segir Þóra um fram-
kvæmdirnar.
Hvert hús hefur sérstöðu
„Á síðustu árum höfum við til dæmis tekið húsið
okkar við Háteigsveg í gegn en þar eru nú íbúð-
ir á hverri hæð í stað herbergjasambýlis eins og
áður. Þessi breyting kemur skemmtilega út,“
segir Þóra. „Við eigum raðhúsalengju í Víðihlíð
þar sem við breyttum til og stækkuðum rými
fyrir einstaklinga. Fyrir um tveimur árum
byggðum við hús í Langagerði en það er byggt
eftir ýtrustu kröfum sem íbúðasambýli. Þar eru
fimm íbúðir, 50 til 70 fermetra að stærð, þar
sem einstaklingum gefst tækifæri á að vera al-
veg út af fyrir sig enda er allt til staðar, til
dæmis eru þvottahús og geymslur inni í hverri
íbúð.“
Ás styrktarfélag skipulagði húsnæðið sem
ætlað er mjög fötluðu fólki til langtíma búsetu.
„Kreppan kom og það þýddi að taka þyrfti sem
minnst lán en samt að halda áfram. Við þurftum
að komast úr aðstöðu sem var þröngt her-
bergjasambýli til að fá rými fyrir hjólastóla. Til
þess keyptum við hús við Kastalagerði í fyrra-
haust sem er fyrrverandi safnaðarheimili
Kópavogskirkju. Þar var allt tekið í gegn og við
innréttuðum upp á nýtt. Húsið er að vísu her-
bergjasambýli, en herbergin eru stór og í raun
aðskilin því þau snúa ekki á móti hvert öðru,“
segir Þóra. Í húsinu er fullkomin aðstaða til að
þjónusta fólk í hjólastólum en íbúar þess eru
flestir eldri borgarar.
„Við reynum að gera hlutina þannig úr garði
að hvert hús hafi svolítið sinn sjarma og sér-
stöðu,“ segir Þóra.
Miklar framkvæmdir fram á haust
Ási styrktarfélagi áskotnaðist fyrir nokkru gjöf
úr Áshildarsjóði sem mun nýtast í byggingu
sólskála og afþreyingar- og æfingaaðstöðu sem
rísa mun við Lækjarás, dagstofnun á vegum
styrktarfélagsins. „Nú er verið að grafa fyrir
þessu rými en þarna mun koma æfingasund-
laug. Þetta er lítil sundlaug með straumvatns-
kerfi og hægt að stilla hana að þörfum hvers og
eins. Við erum með stjörnur í augunum, þetta
er svo flott,“ segir Þóra en einnig verða í skál-
anum önnur æfingatæki ásamt slökunar-
aðstöðu. Bygging rýmisins og sundlaugarinnar
er mikil framkvæmd en vonir standa til að
verkið klárist í haust. Þó eru verkefni félagsins
ekki upptalin. „Á afmælinu mínu í fyrra var ég
svo heppin að okkur var úthlutað lóð við Laut-
arveg. Þar er hugmyndin að reisa sambýli og
skipulags- og arkitektavinna hefst í haust,“ seg-
ir Þóra, ákveðin í að láta kreppuna ekki stöðva
sig.
Félagið munar um allt
Framkvæmdir eru flestar fjármagnaðar af Ási
styrktarfélagi, með lánum eða einstaka sjóðs-
framlögum. Átakið Allir vinna kemur sér því
vel enda er sífellt verið að leita leiða til að draga
úr kostnaði.
„Það munar um allt. Það er okkar hug-
myndafræði hér, okkur munar um allt sem við
fáum til að efla þjónustuna. Allt sem við gerum,
byggingar eða breytingar, er gert með það fyr-
ir augum að búa einstaklingum, í okkar tilfelli
þroskaskertum sem eru jafnvel með líkamlegar
fatlanir, sem besta aðstöðu með skynsamlegum
hætti. Við reynum að velja hagkvæman, góðan
kost. Við byggjum til framtíðar,“ segir Þóra en
margar hugmyndir og verkefni á vegum styrkt-
arfélagsins bíða frekari framkvæmda á næstu
árum.
kristel@mbl.is
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Betri aðstaða Þóra Þórarinsdóttir er fram-
kvæmdastjóri Áss styrktarfélagsins. Verið er að
grafa fyrir nýrri æfingasundlaug við Lækjarás.
Langagerði Húsið var byggt eftir ítrustu kröfum sem
íbúðasambýli. Þar eru fimm íbúðir.
Endurbætur Húsin í Víðihlíð hafa tekið nokkrum breytingum. Á myndinni
sést vinna við viðbyggingu þar sem útsjónarsemi og lagni ráða ferðinni.
Ný æfingasundlaug í byggingu
Framkvæmdir Við dagþjónustusetrið Lækjarás mun rísa sólskáli og æf-
ingasundlaug. Vonir standa til að vinnu við verkið ljúki í haust.
Ás styrktarfélag stendur í
spennandi verkefnum en
ýmsar nýbyggingar munu
þjónusta félagið á næstu ár-
um. Auk þess hafa miklar
endurbætur verið gerðar á
húsnæði á vegum félagsins.
Þ
að er ekki hægt að neita því
að átakið Allir vinna hefur
greinilega áhrif en fyrst og
fremst hefur viðhaldsvinna
úti við aukist,“ segir Krist-
ján Aðalsteinsson, málarameistari og
eigandi málningarþjónustunnar Lita-
gleði. Hann hefur verið starfandi mál-
arameistari síðan 1990 og tekið að sér
alls kyns verkefni, bæði stór og lítil.
Að sögn Kristjáns fá málarameist-
arar nú fleiri beiðnir um tilboð í verk.
Verkefnin eru fleiri en þau dreifast á
færri fyrirtæki. Flest fyrirtæki hafa
dregið saman í mannahaldi og þau
sem áður voru með 20-30 manns í
vinnu hafa kannski fimm starfsmenn
núna.
Góð vinnubrögð tryggð
„Hins vegar er ekki sanngjarnt að
miða við einhvern topp sem var árið
2007 en þótt það sé aukning á verk-
efnum nær það ekki eins og það var,“
segir Kristján en margir iðn-
aðarmenn hefðu viljað sjá átakið fara
fyrr af stað og eru uggandi yfir haust-
inu þegar innivinna tekur við.
Oftar en ekki getur verið öruggara
að leita til málarameistara heldur en
að húseigendur grípi sjálfir í pens-
ilinn. Í fyrsta lagi eru góð vinnubrögð
tryggð enda vinna fagmenntaðir
menn verkið. Í öðru lagi fylgir ábyrgð
með verkinu. Þá er til Ábyrgð-
arsjóður meistaradeildar Samtaka
iðnaðarins sem Málarameist-
arafélagið stendur að ásamt fleirum.
Ef eitthvað kemur upp sem þarfnast
skoðunar getur úrskurðarnefnd lagt
mat á vinnubrögð viðkomandi og ger-
ir athugasemdir ef ástæða er til.
„Slíkt eykur öryggi þeirra sem
verkin kaupa. Einnig stuðlar þetta að
ábyrgari vinnu og að verkin séu klár-
uð og vel gerð. Það væri eitthvað
skrýtið ef ekki væri munur á vinnu-
brögðum faglærðs manns og ófag-
lærðs en það er auðvitað til mikið af
laghentu fólki sem kýs að gera hlut-
ina sjálft,“ segir Kristján.
Hann telur að átakið Allir vinna
komi fyrst og fremst í veg fyrir kaup
á „svartri“ vinnu en slíkt grefur und-
an hagkerfinu í heild. Það er nokkuð
um að ófaglærðir menn vinni svart og
hefur það neikvæð áhrif á orðspor
iðnaðarmanna sem fagstéttar.
Málningin verndar veggina
Á heimasíðu Málarameistarafélags-
ins, www.malarar.is, gefst fólki færi á
að óska eftir tilboði í verk sem það vill
láta vinna. Senda þarf lýsingu á verki
sem óskað er eftir og berst fyr-
irspurnin þaðan til allra félagsmanna
sem síðan gera viðkomandi tilboð.
„Ég hef setið í markaðsnefnd félags-
ins og þetta kerfi var sett upp með
það í huga að jafna möguleika allra á
verktilboðum,“ segir Kristján.
Mála þarf tréverk á þriggja til fjög-
urra ára fresti og stein á sex til sjö
ára fresti en þá er fasteigninni haldið
vel við. Stundum er tréverkið ekki
málað á milli þess sem allt húsið er
málað en ef það er ekki gert geta
gluggar farið að fúna og vatn komist í
steininn sem kallar á viðgerðir.
„Málning er ysta kápan og því oftar
sem málað er því minna verður við-
haldið,“ segir Kristján og líkir máln-
ingu við regnkápu sem hlífir gegn
veðri og vindum. kristel@mbl.is
Minna viðhald
með reglubund-
inni málningu
Fjölmargir nýta nú tækifærið til að mála hús-
næði sitt. Útiverkefnum málarameistara hefur
fjölgað að undanförnu. Ekki er einungis mik-
ilvægt að fasteignir líti vel út heldur verndar
málningin einnig og kemur í veg fyrir skemmdir.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Málarameistari Kristján Aðalsteinsson hefur verið starfandi málarameistari
síðan 1990 og tekið að sér alls kyns verkefni í áranna rás.
Verkefni Kristján og hans menn voru að vinnu við Hótel Sögu í sumar þar sem
veggir og skyggni á framhlið voru máluð. Talsverða lagni þurfti við verkið.
Efsta hæð Kristján í Litagleði tekur
að sér margvísleg verkefni.