Morgunblaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010
FRÉTTASKÝRING
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Í minnisblaði lögfræðinga sem
kynnt var viðskiptanefnd í gær kem-
ur m.a. fram að engin ákvæði um
ríkisábyrgð á skuldbindingum
Tryggingasjóðs innstæðueigenda og
fjárfesta sé að finna í lögum um
sjóðinn. Þá sé heldur ekki að finna
ríkisábyrgð á skuldbindingum sjóðs-
ins í frumvarpi efnahags- og við-
skiptaráðherra um innstæðutrygg-
ingar og tryggingakerfi fyrir
fjárfesta.
Mikið hefur verið rætt um trygg-
ingasjóðinn í tengslum við Icesave-
málið en honum er ætlað að tryggja
Bretum og Hollendingum greiðslu á
innstæðum sem þeir glötuðu við
hrun Landsbankans. Samkvæmt
minnisblaði lögfræðinganna er það
hafið yfir allan vafa að íslenska ríkið
beri ekki ábyrgð á þeim sjóði.
Lögfræðingurinn sem samdi
minnisblaðið og kynnti það fyrir við-
skiptanefnd er Áslaug Árnadóttir en
hún var áður stjórnarformaður
sjóðsins auk þess að gegna tíma-
bundið starfi ráðuneytisstjóra við-
skiptaráðuneytisins. Ekki náðist í
Áslaugu við vinnslu fréttarinnar.
Ekki á ábyrgð ríkisins
Lilja Mósesdóttir, formaður við-
skiptanefndar, segir álitið hafa þær
breytingar í för með sér að nú geti
Alþingi bætt inn lagaákvæði um að
engin ríkisábyrgð sé á sjóðnum án
þess að óttast þá túlkun á núgild-
andi löggjöf að hún hafi tryggt rík-
isábyrgð á Icesave-reikningunum.
„Við vorum að velta því fyrir okk-
ur hvort það væri ríkisábyrgð á Ice-
save og líka hvort lögin og frum-
varpið sem ráðuneytið lagði fyrir
þingið feli í sér meiri ríkisábyrgð en
núgildandi lög. Það var m.a. sú
gagnrýni sem kom frá sjálfstæðis-
mönnum. Hún segir þarna í svari
sínu að svo sé ekki, hvorki í núgild-
andi lögum né frumvarpi,“ segir
Lilja sem telur að túlka megi minn-
isblaðið á þann hátt að andstæðing-
ar Icesave-samningsins sem gerður
var á síðasta ári hafi haft rétt fyrir
sér. „Svo má líka segja að þeir sem
voru hlynntir því að gera upp þessar
skuldbindingar svokölluðu við Breta
og Hollendinga líti svo á að við verð-
um að læra af því og nú verði að
tryggja að ekkert bendi til þess að
það sé ríkisábyrgð.“
Þá kveður Lilja stjórnarmeiri-
hlutann klofinn í Icesave-deilunni en
ætlun viðskiptanefndar með frum-
varpinu sé að tryggja að slíkt mál
komi ekki upp á ný.
Ekki í eigu ríkisins
Í minnisblaðinu kemur einnig
fram afdráttarlaust að trygginga-
sjóðurinn sé sjálfseignarstofnun og
þannig ekki í eigu ríkisins.
„Á fundi viðskiptanefndar var
borin upp spurning um af hverju
þetta heyri ekki undir lög um sjálfs-
eignarstofnanir en þá kom fram að
það væri ekki hægt því að lögin
gilda ekki um stofnanir sem eru sér-
lagaákvæði um og þessi sjóður er
byggður á sérlagaákvæðum.“
Lilja kveður það einbeittan vilja
viðskiptanefndar að tengja ekki rík-
isábyrgð við sjóðinn. „Við erum að
reyna að tryggja það í þessu nýja
frumvarpi að það sé örugglega ekki
hægt á neinn hátt að tengja rík-
isábyrgð við sjóðinn.“
Morgunblaðið/Kristinn
Nefndir Af sameiginlegum fundi efnahags- og skattanefndar og viðskiptanefndar Alþingis.
Engin ríkisábyrgð
Minnisblað lögfræðinga sem kynnt var viðskiptanefnd seg-
ir ríkið ekki bera ábyrgð á tryggingasjóði innstæðueigenda
Viðræður ríkisins og fulltrúa lífeyr-
issjóða um þátttöku í fjármögnun
stórframkvæmda í vegagerð eru
komnar í fullan gang. Um er að ræða
breikkun Suðurlandsvegar, Vest-
urlandsvegar, Reykjanesbrautar og
gerð Vaðlaheiðarganga.
Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra væntir þess að ákvörðun
lífeyrissjóðanna liggi fyrir í næsta
mánuði. „Jafnframt vinnur Vega-
gerðin að undirbúningi a.m.k.
þriggja hluta útboðsverka af þessum
fjórum framkvæmdum, til að vinna
tíma til útboðs strax í haust ef samn-
ingar takast,“ segir á upplýsinga-
blaði um stöðuna sem hann kynnti í
ríkisstjórninni í gær.
Alþingi hefur samþykkt heimild
til stofnunar tveggja opinberra
hlutafélaga um verkefnin sem munu
afla tekna með veggjöldum til að
greiða niður lán vegna fram-
kvæmdanna. Verða félögin stofnuð
um miðjan september. Annars vegar
er um að ræða félag um vegafram-
kvæmdirnar og hins vegar heimild
til handa Vegagerðinni að taka þátt í
stofnun félags vegna Vaðlaheiðar-
ganganna þar sem Vegagerðin á allt
að 51%.
Mikill skortur á verkefnum
Skv. upplýsingum samgöngu-
ráðherra er staðfest að sveitarfélög
og einkaaðilar eru tilbúin að reiða
fram allt að 200 milljónir kr. í hlutafé
á móti ríkinu vegna félags um gerð
Vaðlaheiðarganganna. Miðað er við
að fjármögnun verkefnanna í vega-
gerð verði með útgáfu á skuldabréf-
um sem skráð verði í kauphöllinni.
Á upplýsingablaði ráðherra segir
að komist þessi verkefni ekki í gang
sé fyrirséður mikill verkefnaskortur
í mannvirkjagerð. Fjölmörgum
verkefnum sem hafa verið í gangi
ljúki í haust. Aðeins nokkur verk
verða þá í gangi og mikið í húfi að
viðræður við lífeyrissjóðina beri ár-
angur sem fyrst. omfr@mbl.is
Útboð strax í
haust ef samn-
ingar takast
Áhugi á þátttöku í félagi um jarðgöng
Morgunblaðið/Ómar
Breikkun Nýtt hlutafélag tekur að
sér framkvæmd vegagerðarinnar.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
í viðskiptanefnd, segir minnisblaðið vera enn eina stað-
festingu á því að ekkert bendi til þess að Íslendingum
beri lagaleg skylda til þess að láta ríkissjóð greiða inni-
stæðurnar. „Þetta er einnig innlegg í þá umræðu að
það innistæðutryggingakerfi sem okkur er ætlað að
innleiða gengur ekki upp og veitir fyrst og fremst
falska vernd.“
Enn ein staðfesting
Guðlaugur Þór
Þórðarson
MINNISBLAÐIÐ
ódýrt og gott
kr.
pk.
Grillaður kjúklingur
og Pepsi eða Pepsi Max, 2 l
998
Flugeldasýning fer fram á Jökulsár-
lóni næsta laugardag, ellefta árið í
röð. Staðarhaldarinn á Jökulsárlóni
og Björgunarfélag Hornafjarðar
standa að þessum viðburði sem er
fjáröflun fyrir björgunarfélagið.
Í fyrra komu 1.050 manns á sýn-
inguna og var það metþátttaka. Um-
hverfi flugeldasýningarinnar eru
fljótandi jakarnir á lóninu upplýstir
með útikertum. Áhugi er á að tengja
sýninguna við listviðburði eins og
tónleika. Einnig hafa komið upp hug-
myndir um að fá flugeldalistamenn
frá útlöndum til að setja saman tón-
list við flugeldasýningu þar sem flug-
eldarnir dansa í takt við tónlistina.
Flugeldar yfir ísjökunum
Ljósmynd/Runólfur Hauksson
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
Starfsmenn Heilsugæslunnar í Mjódd mótmæla harðlega
tillögum frá yfirstjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis-
ins þess efnis að sameina eigi heilsugæslustöðvarnar í
Efra-Breiðholti og stöðina í Mjódd í sparnaðarskyni.
Starfsmenn stöðvarinnar sendu Álfheiði Ingadóttur
heilbrigðisráðherra bréf um þetta í gær. Í bréfinu segir
að nýja stöðin muni þurfa að þjónusta um 30.000 manns
og slíkt „muni leiða til ófarnaðar“. Í bréfinu segir jafn-
framt að fjöldamörg fagleg rök séu til stuðnings afstöðu
starfsmanna stöðvarinnar, meðal annars þau að heilsu-
gæslan sé grunnur heilbrigðisþjónustu og hafi ávallt
byggst á persónulegri þjónustu og þekkingu á félagsleg-
um og efnalegum aðbúnaði fjölskyldna.
„Eftir því sem þjónustueiningarnar verða stærri, sér-
hæfing starfsmanna meiri og þaulskipulögð viðfangsefn-
in straumlínulöguð eftir kvörðum hagkvæmni og fjár-
heimilda, þá dregur úr getu kerfisins til að mæta þörfum
skjólstæðinganna, þekking starfsfólks á einstaklingunum
þynnist og hugmyndafræði heimilislækninganna um
samfellu í þjónustu mun líða undir lok ásamt með skil-
greindum hópum fyrir hvern heimilislækni.“
Þá er jafnframt bent á að starfsánægja minnki þegar
„fagleg hervirki“ eru framin á högum starfsmanna án
þess að þeir fái rönd við reist.
„Fagleg hervirki framin
á högum starfsmanna“
Heilsugæsla Yfirstjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæð-
isins leggur til sameiningu stöðva í sparnaðarskyni.
Starfsmenn Heilsugæslunnar
í Mjódd mótmæla sameiningu