Morgunblaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 27
Velvakandi 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG GET VEL
KLÁRAÐ MÍNA EIGIN
SUDOKU-ÞRAUT!
ER LÚLLI
KOMINN
AFTUR?
ÞESSI FYRSTA
LOTA HEFUR VERIÐ
ANSI LÖNG
JÁ, HANN ER KOMINN...
SNOOPY OG FJÓLA ERU LÍKA
KOMIN ÚR HÁDEGISMAT
EN NÚNA ERU LÍSA OG
FRÍÐA FARNAR HEIM
Í KVÖLDMAT...
HRÓLFUR,
HVAÐ EIGUM
VIÐ AÐ GERA
NÚNA?
ENGAR
ÁHYGGJUR...
ÉG HEYRÐI AÐ EF
MAÐUR BER HÁKARL Á
NEFIÐ ÞÁ SYNDIR
HANN Í BURTU
MÉR ER ALVEG
SAMA ÞÓ HANN
SÉ FRÆGUR...
ÉG VIL LOSNA VIÐ
ÞETTA SKÍTUGA NAGDÝR!
NEIBB!
OH, LALLI...
EINN AF SJÚKLINGUNUM
MÍNUM SEGIR AÐ FÓLK
LJÚGI STANSLAUST
HVORT AÐ ÖÐRU
HELDUR ÞÚ AÐ ÞAÐ SÉ
RÉTT HJÁ HONUM?
SEGIR ÞÚ MÉR OFT
EITTHVAÐ SEM ÞÚ VEIST
AÐ ER EKKI SATT?
ÞÚ SAGÐIST HAFA
HITT KÓNGULÓAR-
MANNINN?
JÁ, ÉG
GLEYMI
HONUM
ALDREI
HVAÐ MYNDI HÚN SEGJA
EF HÚN VISSI HVER ÉG ER?
AF HVERJU SEGI ÉG HENNI
EKKI BARA SANNLEIKANN?
M.J., MIG
LANGAR AÐ SEGJA
ÞÉR LEYNDARMÁL
HVAÐA
LEYNDAR-
MÁL?
Peysa tapaðist í
Esjuhlíðum
Svört Cintamani-peysa
tapaðist í Esjuhlíðum
27. júlí sl. Hafi einhver
fundið peysuna er sá
hinn sami vinsamlega
beðinn að hringja í Írisi
Ósk í síma 586-1263 eða
861-9144.
Setjum ólar á frelsið
Það er erfitt að hugsa
til þess að borgaryfir-
völd ætli að apa eftir
vitleysunni þarna í Ár-
borg varðandi að setja
ólar á kattargreyin sem
vön eru frelsinu en kattardýr
kunna illa frelsissviptingu, enda
ekki í kattarins eðli. Ætli sú stefna
myndi ekki útrýma þessum sjálf-
stæðu gæludýrum? Rætt er um að
kettir éti fuglana úr trjánum. Gott
og vel. Hundarnir eru nú farnir að
éta hver annan skv. fréttum enda
orðnir að mörgu leyti svo „vel rækt-
aðir“ að það vantar bara á þá stíg-
vélin.
Ég vil því benda frelsissvipturum
á, að fjöldi borgarbúa yrði afar feg-
inn ef settar yrðu ólar á mávana.
Þeir skíta á gluggana og grillin og
svo éta þeir líka litlu fuglana, t.d.
eru gera þeir árlega „vorhreingern-
ingu“ á Tjörninni fyrir
framan Ráðhúsið. Þar
komast nú u.þ.b. 20%
andarunga á legg, ef
það nær því þá.
Harpa Karlsdóttir.
xxx
Gamlar bækur
óskast
Ég undirrituð er að
leita að eftirtöldum
bókum:
Kisa veiðikló,
Draumalandið nr. 25
(frá Bókaútgáfunni
Björk), Með straumn-
um eftir Sigurð Árna-
son (útg. 1950 af G Ó G), Rökk-
urstundir, (dýralífsbók, útg. 1937
höf. Grímur), Litla músin og stóra
músin, (frá 1945, höf. Grímur), Sagan
um hann Nóa (útg. 1957, höf. Grím-
ur), Óður um gleðina (eftir Ólöfu frá
Hlöðum), Merkir Íslendingar nr. 3
(nýr flokkur). Einnig vantar mig síð-
ustu útgáfu af Læknatalinu.
Ef einhver getur lánað mér eða
selt mér einhverjar þessara bóka þá
vinsamlegast hafið samband í síma
551-6443.
Inga.
Ást er…
… að finna bréfið hans
inn á milli ruslpóstsins.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-16.
Dalbraut 18-20 | Félagsmiðstöðin er op-
in kl. 9-16.45, vinnustofa kl. 9, versl-
unarferð kl. 14.40.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin; leiðbeinandi við kl. 10-
17, félagsvist kl. 13 og viðtalstími FEBK
kl. 15-16.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist
kl. 9, ganga kl. 10, kvennabrids kl. 13.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist
kl. 9, ganga kl. 10, kvennabrids kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Skráning í tómstunda- og íþrótta-
námskeið haustsins fer fram í Jónshúsi
þessa viku. Brids og bútasaumur kl. 13,
sala á miðum í ferð FEBG í Land-
mannalaugar 31. ágúst kl. 13-15, verð kr.
9.000, ekki tekið við greiðslukortum.
Opið í Jónshúsi kl. 9.30-16 alla virka
daga.
Háteigskirkja | Kaffi kl. 10 og fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 11, súpa og brauð
og brids kl. 13.
Hraunbær 105 | Hjúkrunarfræðingur
verður við kl. 9-11.
Hraunsel | Opið virka daga kl. 9-16.30.
Morgunrabb kl. 9, biljard í kjallara, gler-
bræðsla kl. 13, bingó kl. 13.30.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Stefánsganga kl. 9. Skráningu lýk-
ur 30. ágúst. 55 hugmyndir liggja á
borðinu! Ert þú með einhverja hugmynd
sem þú vilt koma í framkvæmd? Við
byggjum starf okkar á frumkvæði og
vilja fólksins. Uppl. í s. 411-2790.
Norðurbrún 1 | Félagsvist kl. 14.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaað-
gerðir kl. 9-16, aðstoð v/böðun kl. 9-12,
sund kl. 10-12, hádegisverður kl. 11.30-
12.30, verslunarferð í Bónus, Holtagörð-
um kl. 12.10-14 og kaffiveitingar kl.
14.30 -15.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgun-
stund, handavinnustofan opin, fram-
haldssagan kl. 12.30, verslunarferð kl.
12.15, dans kl. 14 með Vitatorgsband-
inu. Byrjað er að skrá í námskeið vetr-
arins, uppl. og skráning í síma 411-
9450.
Húnvetningurinn Pétur Pét-ursson hlakkar til Braga-
þings, landsmóts hagyrðinga, sem
fram fer næstu helgi, ef marka má
vísu sem hann ber á torg:
Brestur senn á Bragaþing
og bítast hagyrðingar.
Með kvíðahroll og kveisusting
nú kveljast Þingeyingar.
Húnvetningar munu nefnilega
mæta Þingeyingum á landsmótinu.
Árni Jónsson var ekki seinn til
svars, en hann er í liði Þingeyinga:
Sumum gatan sýnist hál
sannleikann í kringum.
Lengi hafa lygimál
liðist Húnvetningum.
Og Friðrik Steingrímsson keppir
einnig fyrir Þingeyinga:
Húnvetninga skelfdu skinn
skríða í viskusvelti.
Breiða yfir ótta sinn
með innantómu gelti.
Pétur Pétursson sagðist glaður
ef sér hefði skjátlast um sálar-
ástand Þingeyinga:
Gott er að ekkert óttist þið
átakafund,
því aumingjagóðir erum við
á örlagastund.
Friðrik sagði að þeir ættu það
eitt sameiginlegt:
Þótt löngum við látum sem óðir
þá líklega sitjum við hljóðir.
Allir við þegjum,
og ekkert við segjum,
við erum svo aumingjagóðir.
En Árni var ekki hættur:
Tali þeirra trúi laust,
til og frá þeir svinga,
enda ber ég ekkert traust
enn til Húnvetninga.
Bragaþingið verður haldið næst-
komandi laugardag, 28. ágúst, á
Grand hóteli. Er það hugsað bæði
fyrir vísnavini og vísnasmiði.
Áhugasamir geta skráð sig hjá
Sigrúnu Haraldsdóttur, sem er
með netfangið sigrun@landspitali-
.is.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af einvígi og landsmóti
Fáðu úrslitin
send í símann þinn