Morgunblaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 30
AF ÍÞRÓTTALÝSINGUM Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Ég náði blessunarlega aðhorfa eitthvað á heims-meistaramótið í knatt- spyrnu í sumar meðfram sumar- frísdútli og öðrum verkefnum sem féllu utan vinnunnar á málgagninu. Blessunarlega er ég nú kominn aft- ur að lyklaborðinu og get nú loks, í formi þessa pistlings, blásið út um ákveðið mál sem fór algerlega í mín- ar fínustu þegar ég var að fylgjast með leiknum fagra. Ég efast ekki um að einhverjir deili þessum pirr- ingi með mér.    Umkvörtunin varðar beinarlýsingar sjónvarpsins frá leikj- unum. Tveir aðilar sáu um að lýsa leikjunum, svo sátu aðrir fjórir (með Þorsteinn J. í öndvegi) og fóru yfir leikinn, bæði fyrir, eftir og í hléi. Þær umræður voru svosem í góðu lagi en sjálf lýsingin var fyrir neðan allar hellur, svona oftast nær. Við erum flest alin upp við enska bolt- ann og heyrum oft hvernig enskir lýsa leikjum. Þar finnur maður hvernig menn ókyrrast í sætum, hrópa upp yfir sig þegar færin koma, eiga ekki til orð yfir markinu, hneykslast á framgöngu einstakra leikmanna og myndast við að sund- urgreina það sem fram fer – af ósvikinni ástríðu – frá fyrstu mín- útu. Þetta smitar út frá sér og mað- ur lyftist upp í sófanum. Leiklýsing- arnar hér heima voru eins og að tveir menn sætu á fundi hjá Hinu ís- lenska bókmenntafélagi (með fullri virðingu fyrir því ágæta félagi) og væru að fara í rólegheitum yfir gamlar ársskýrslur. Framvindu var lýst með eintóna seimi, nánast eins og mönnum væri slétt sama og jafn- vel áhugalausir. Maður efaðist stundum um að blóðið rynni í þess- um blessuðu mönnum. Menn eins og Hjörvar Hafliðason tosuðu þetta ei- lítið upp en það var ekki nóg. Í mínum huga er þetta óskiljan- legt. Ég þykist vita að þarna séu ekki bara fagmenn á ferðinni heldur líka einlægir áhugamenn um knatt- spyrnu. Og þegar menn eru komnir í þessa stöðu, að lýsa leikjum í sjón- varpi, ber þeim skylda til að veita því áfram til áhorfenda. Draga þá inn í leikinn, gera hann spennandi, leyfa tilfinningum að flæða, heilla og skemmta. Ég er ekki að tala um box- lýsingar að hætti Bubba og Ómars, bara smávegis líf, takk. Nóg ætti að vera af knatt- spyrnufróðum galgopum sem gætu tekið þetta að sér. Út með morkið og ládeyðulegt skriffinnskuhjal, inn með æsilegt og ástríðufullt fótbolta- tal. Takk fyrir. Hvar er ástríðan? » Leiklýsingarnarhér heima voru eins og tveir menn sætu á fundi hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi Reuters Tilfinningar Andres Iniesta fagnar marki sínu fyrir Spán í úrslitaleik HM. Ástríðan er ósvikin. Gaman væri ef slíkt væri að finna í svipuðu magni hjá þeim sem lýstu keppninni hér á Fróni. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010 ALLAR SVÖLUSTU HASARHETJURNAR Í EINNI FLOTTUSTU MYND ÁRSINS HHHHH Fyrir alla KARLMENN í heiminum þá er þessi mynd mesta veisla sem hægt er að fara á. Það er einfaldlega upplifun að sjá þessa mynd. Gillz - DV HHH T.V - Kvikmyndir.is HHHH „Magnad madur, magnad” ÞÞ - FBL TOPPMYNDIN Í DAG Á ÍSLANDI OG USA! HHH The Expendables uppfyllir það sem hún lofar... S.V. - MBL 2 VIKUR Á TOPPNUM Í USA! Scott Pilgrim kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Ljóti andarunginn og ég kl. 3:30 (650 kr) LEYFÐ Expendables kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára The Last Airbender 3D kl. 3:20 B.i. 10 ára Expendables kl. 5:40 - 8 - 10:20 LÚXUS Karate Kid kl. 5:10 LEYFÐ Salt kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára Shrek 4 2D íslenskt tal kl. 3:30 LEYFÐ Vampires Suck kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára Sími 462 3500 Scott Pilgrim kl. 8 (uppselt) - 10:10 B.i. 12 ára Vampires Suck kl. 6 B.i. 12 ára The Expendables kl. 8 - 10 B.i. 16 ára Salt kl. 6 B.i. 14 ára Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI Jackie Chan kennir ungum lærling sitthvað um Kung fu í vinsælustu fjölskyldumynd ársins! Missið ekki af myndinni sem sló í gegn í Bandaríkjunum og fór beint á toppinn. SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI FRÁ LEIKSTJÓRA HOT FUZZ OG SHAUN OF THE DEAD KEMUR EIN FYNDNASTA OG FRUMLEGASTA MYND ÁRSINS Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með K „Ég veit að þið þurfið tónlist. Þess vegna ætla ég að gefa eitt nýtt lag á netinu vikulega fram að jólum,“ tísti rapparinn Kaney West á sam- skiptavefnum Twitter í vikunni. Hann sagði einnig að lögin yrðu ekki endilega bara eftir hann, heldur gætu komið lög eftir tónlistarmenn á borð við Jay-Z. West vinnur nú að sinni fimmtu breiðskífu en rapparinn hefur ekki viljað gefa upp hvenær hún ná- kvæmlega kemur út eða hvað hún mun koma til með að heita. West sagði að í tónlist skiptu aðdá- endurnir mestu máli og hann væri að gera þetta fyrir þá. Ekki er víst hvort lögin verða fáanleg í gegnum Twitter eða bloggsíðu rapparans, en nýtt lag er væntanlegt á föstudaginn kemur. West er þessa dagana staddur í Prag í Tékklandi þar sem hann vinnur að kvikmynd sem mun fylgja útgáfu nýju plötunnar. Gjafmildur Kanye West

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.